Tíminn - 01.06.1989, Qupperneq 5

Tíminn - 01.06.1989, Qupperneq 5
Fimmtudagur 1. júní 1989 Tíminn 5 Nýstofnuðfasískumhverfissamtökgætu orðið norðlægum veiðiþjóðum þung í skauti. Bannfæra allar skipulagðar veiðar: Orkin - nýtt þúsundáraríki? Nýlega voru stofnuð ný samtök umhverfissinna sem ýmislegt bendir til að ætli sér stóran hlut á þeim sama vettvangi og Grænfriðungar hafa haslað sér völl á. Samtök þessi nefnast Ark og tilgangurinn er hvorki rneira né minna að opna augu almennings og vinna hann til fylgis við félagsskapinn þannig að alheimssamfélag skapist sem helga mun alla krafta sína því markmiði að vernda og stýra öllu lífríki jarðar. „Talsmenn þessara nýstofnuöu samtaka voru afskaplega hroka- fullir og báru það varla við að svara spurningum sem til þeirra var beint á kynningarfundi sem þeir héldu á umhverfisráðstefnunni í Lille í Frakklandi fyrir skemmstu. Það virtist enginn efi ríkja í hugum þessara manna að veiðar á hvölum og fiski væri hin versta villimennska. Þegar ég spurði þá um á hverju Norður- Atlantshafs- þjóðimar, svo sem Grænlendingar, Islendingar o.fl. ættu þá að lifa ef ekki mætti lengur veiða fisk, ypptu þessir menn bara öxlum og sögðu: „Þið verðið að finna einhvem iðn- að og þróa hann upp.“ Ég spurði þá hvað það ætti að vera; hvort við ættum að flytja inn hráefnið, kannski einhverjar tágar og flétta tágakörfur og flytja þær síðan aftur út. Gæti þjóðin fram- fleytt sér á slíku. Yrði slíkur varn- ingur ekki ansi dýr? Þessu svöruðu mennirnir á þann veg að það væri ekki þeirra vanda- mál heldur okkar sjálfra. Við yrð- um að læra að bjarga okkur öðru vísi en hingað til og hvemig við leystum þessi mál væri algerlega undir sjálfum okkur komið,“ sagði Elín Þóra Friðfinnsdóttir kvik- myndagerðarmaður en hún sótti kynningarfund samtakanna. Elín Þóra sagði að einsýni tals- manna samtakanna hefði virkað óhugnanleg og málflutningur tals- mannanna mjög „fasískur". Það hefði verið greinilegt að samtökin hefðu úr nægum fjármunum að moða en einn upphafsmanna þeirra erpopparinn Kevin Godley. Godley var einn meðlima hljóm- sveitarinnar lOcc en hann og Lol Creme gengu úr sveitinni fyrir um tíu ámm og stofnuðu dúettinn Godley and Creme. Jafnframt haslaði Kevin Godley sér völl í auglýsinga- og myndbandagerð og hefur auðgast verulega af því og orðið valdamikill í breskum auglýs- ingaheimi. Margir þekktir og auðugir popp- arar, kvikmyndaframleiðendur og -leikarar hafa gengið til liðs við hreyfinguna og hafa verið gefnar út hljómplötur sem umtalsverður hagnaður hefur orðið af. Af þekkt- um poppurum sem sitja í stjórn samtakanna má nefna David Bow- ie sem um langt skeið hefur að- hyllst fasískar skoðanir, Dave Stewart, Sting og Peter Gabriel. Elín Þóra sagði að á kynningar- fundinum í Lille hefði Kevin Go- dley haft orð fyrir hreyfingunni og hefði komið skýrt fram hjá honum að samtökin hygðust grípa til allra hugsanlegra ráða til að ná fram markmiðum sínum sem væru að koma stjórn á lífríki jarðar. Yrði þar engu til sparað og þekkingu í áróðri og auglýsinga- mennsku ásamt fjármunum yrði beitt til hins ítrasta. Á næstunni yrði stofnuð deild í BNA og í Sovétríkjunum og þegar hefði fjöldi auðugra og voldugra manna og kvenna í löndunum gengið til liðs við hreyfinguna. Þetta væri í samræmi við þá trú samtakanna að völd í bland við hugsjónir væru raunhæf leið til að skapa betri heim. Þegar kynningarbæklingur Ark- ar er skoðaður vekur það athygli hversu fagmannlega hann er unninn. Það er þó ljóst af honum að Arkarmönnum fellur hreint ekki að þjóðir lifi á sjávarafla. Vaxi samtökunum fiskur um hrygg þá mega íslendingar allt eins eiga von á verulegu harðræði af hálfu þeirra og þau verði okkur þyngri í skauti en Grænfriðungar eru nú. í herskárri stefnuyfirlýsingu Ark segir meðal annars: Mikil þörf er á hreyfingu umhyggjusamra karla og kvenna frá öllum þjóðum veraldar sem sameinast um það markmið að verja náttúruna, heilsufar manna og leitast við að öllum lífverum líði vel. Ark var stofnuð í þessum tilgangi. Ark var stofnuð í Bretlandi og mun ná fótfestu í öllum löndum Evrópu, bæði austan og vestan hinnar pólitísku markalínu sem aðskilið hefur okkur síðustu hálfa öld. Þá mun Ark einnig nema land í BNA og Kanada. Þetta er þó aðeins byrjunin. Ark mun skapa öfluga almenna hreyf- ingu í öllum löndum veraldar án nokkurrar einustu undantekningar og svo fljótt sem efni leyfa. Þannig mun skapast alheimssamfélag af þeirri stærð og þeim mætti sem hæfir vandamálum þeim sem við stöndum frammi fyrir. Þúsundáraríkið sem boðað var upp úr 1933 átti líka að verða dýrðlegt fyrir hina útvöldu þegna þess. -sá Enginn getur starfað að lækningum af neinu tagi á læknaleyfis: Engir skottujæknar starfandi á íslandi „Það eru engin dæmi um það hérlendis að fólk hafi smitast af eyðni við nálastungumeðferð,“ sagði Kristján Erlendsson læknir í gær en nýlega kom mál upp í Frakk- landi þar sem sautján ára piltur smitaðist af eyðni á þennan hátt. Krístján sagði að vissulega hefðu heilbrígðisyfirvöld bæði hér og er- lendis haft áhyggjur af nálameðferð- um af ýmsu tagi, svo sem nálastungu- meðferð, tattóveríngum og slíku og reynt að sjá til þess að fyllsta hrein- lætis og sótthreinsunar værí gætt. Þær reglur sem settar hefðu verið hér og raunar víðast hvar þar sem þessir hlutir fara fram, ættu að tryggja að fólk smitaðist ekki. Hins vegar væri seint hægt að ganga úr skugga um svo óyggjandi væri hvort fyllsta hreinlætis væri gætt á öllum þeim stöðum þar sem slík starfsemi fer fram. - En getur hver sem er orðið sér úti um nálar og farið að stunda nálastungumeðferð? Ólafur Ólafs- son landlæknir: „Nei. Enginn getur tekið að sér að lækna annað fólk án þess að hafa lækningaleyfi. Það er ákvörðun Al- þingis að læknar hafi einkaleyfi á að lækna. Því hlýtur enginn leyfi til þess nema að hafa fyrst lokið læknaprófí og síðan fengið lækningaleyfi eftir að hafa sýnt og sannað sig í starfi í eitt og hálft ár.“ Það er því ljóst að hér á landi getur enginn tekið sig til, sótt eitt- hvert nálastungunámskeið og síðan opnað stofu og tekið fólk í nála- stungumeðhöndlun. Eftir því sem næst varð komist í gær hafa tveir til þrír menn hér á landi tekið fólk í slíka meðferð en þeir eru allir læknar. Hvort nálastungumeðferð sé til einhvers gagns er álitamál. Það er þó staðfest að kínverskir læknar stað- deyfa sjúklinga með nálunum og einn viðmælandi Tímans var skorinn upp við illkynjuðu magasári austur í Kína fyrir nokkrum árum. Hann var deyfður með nálum og hafði fulla meðvitund meðan á aðgerðinni stóð. Þótt hann fyndi ekki fyrir beinum sársauka sagði hann að honum hefði liðið vægast sagt djöfullega meðan á aðgerðinni stóð og eins lengi á eftir. Hvort nálastungumeðferð við ýmsum streitukvillum sé gagnleg er álitamál. Læknir einn sagði að í sumum tilfellum gagnaðist prýðilega hjá læknum að gefa fólki pillur sem aðeins innihéldu hveiti eða kalk þegar það væri að biðja um verkjalyf við einkennum sem hrjáðu það. Þannig gæti vel verið að fólk tryði í blindni á lækningamátt nálanna og trúin læknaði það í raun, eða þá að því batnaði af sjálfu sér. Tíminn ræddi við konu sem gekkst undir nálastungumeðferð hérlendis Ólafur Ólafsson landlæknir um nokkurt skeið vegna vöðvabólgu og sagði hún að meðferðin hefði hjálpað sér ómetanlega. Bólgurnar hefðu horfið að langmestu leyti og ekki tekið sig upp aftur eftir að meðferð lauk og þakkaði hún það meðferðinni. -sá __ Landsbankinn krefst kyrrsetningar eigna 01 ís: Fógetaúrskurður líkast til í dag Landsbankinn hefur krafist þess fyrir fógetarétti í Reykjavík að eign- ir Olís verði kyrrsettar sakir vanskila félagsins í bankanum, en þær nema að sögn Sverris Hermannssonar milli fjögur og fimm hundruð milljónum króna og hefur Bankaeftirlitið varað bankann við að tryggingar séu ónóg- ar fyrir skuldum þessum. Búast má við að úrskurður verði felldur í málinu í dag. í fréttatilkynningu frá Óla Kr. Sigurðssyni forstjóra Olís um þetta mál segir að krafa Landsbankans um kyrrsetningu eigna Olís sé tilefnis- laus og hefði verið einfaldara fyrir bankann að óska eftir meiri trygging- um í stað þess að grípa á ný til þvingunaraðgerða fyrir fógetarétti. „Við höfum margreynt að fá tryggingar og það getum við sannað með bréfaskriftum og opinberlega reyndum við innsetningargerð til að fá inn tryggingar. Þeir vörðust af hörku og innsetningarbeiðni okkar náði ekki fram að ganga. Fréttatil- kynningin er því marklaus," sagði Sverrir Hermannsson bankastjóri í gærkvöldi. - sá Sverrír Hermannsson bankastjóri Hæstiréttur staðfesti niðurstöður Sakadóms Hæstiréttur hefur staðfest úr- skurð Sakadóms Reykjavíkur um að hafna frávísunarkröfum í Haf- skipsmálinu. Það voru lögmenn ellefu ákærðra af sautján sem kröfðust frávísunar, en Sakadómur Reykjavíkur hafnaði þeirri kröfu þann 23. apríl sl. Þá var úrskurður Sakadóms kærður til Hæstaréttar sem staðfesti niðurstöðu Sakadóms í fyrradag. í úrskurði Hæstaréttar kemur fram að heimilt hafi verið að sækja í einu lagi sök gegn þeim 16 mönnum sem voru ákærðir 11. nóvember sl. og að heimilt hafi verið að sameina mál gegn Jóhanni Einvarðssyni fyrrverandi banka- ráðsmanni Útvegsbankans, máli annarra ákærðra. -ABÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.