Tíminn - 01.06.1989, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 1. júní 1989
Aðstoðarhópar kvenna sem orðið hafa fyrir nauðgun vilja
úrbætur í réttarkerfinu:
Hvetja ekki til
kæru nauðgana
Aðstoðarhópar kvenna sem hafa orðið fyrir nauðgun
treysta sér ekki Iengur til að hvetja viðkomandi konur til
að kæra og segja ástæður þess mega finna í málsmeðferð.
Rannsóknarlögregla ríkisins segir engra breytinga vera að
vænta á þeim bæ sem rekja megi til gagnrýni hópanna, þar
sem ekki séu forsendur fyrir henni.
Hóparnir sem um ræðir eru Sam-
tök um kvennaathvarf, Ráðgjafa-
hópur um nauðgunarmál, barna-
hópur Kvennaathvarfs og Vinnu-
hópur gegn sifjaspellum. I tilkynn-
ingu frá þeim segir; „Ástandið er
nú svo slæmt að við sem í mörg ár
höfum aðstoðað konur við að kæra
kynferðisafbrot getum við þessar
aðstæður ekki hvatt konur til að
kæra.“
„Ég held að ég geti ekki trúað
þessum orðum. Ef tilgangur hóp-
anna er að koma í veg fyrir afbrot
af þessu tagi og koma lögum yfir
afbrotamennina getur ekki verið
að maður eigi að trúa þessu,“ sagði
Bogi Nilsson rannsóknarlögreglu-
stjóri í samtali við Tímann.
Rannsóknarlögregla ríkisins
sinnir nauðgunarkærum og í þess-
ari tilteknu deild verður, eftir
mánuð, enginkonastarfandi. Meg-
intilgangur kvennasamtakanna, er
að leggja áherslu á að konur geti
valið hvort kynið þær vilja láta
hafa málið til úrvinnslu. „Ef óskað
er eftir kvenlögregluþjóni við yfir-
heyrslur reynum við að verða við
því. Starfsemin hér innanhúss er
ekki fastnjörvuð niður í ákveðnar
deildir. Pó enginn kvenlögreglu-
þjónn væri í þeirri deild sem mest
fjallar um ofbeldismál, sem til að
mynda nauðganir falla undir, þarf
það ekki að þýða að kona gæti
ómögulega fengist við yfirheyrsl-
ur,“ sagði Bogi.
„Okkur finnst líka skorta þekk-
ingu og faglega kunnáttu og að
þessum málum sé ekki sinnt af
nógu miklum skilningi,“ sagði
Guðrún Tulinius í samtali við
Tímann. Bogi sagði það að vísu
vera rétt að á vegum lögreglunnar
væri ekki boðið upp á þjálfun eða
fræðslu sérstaklega varðandi þessi
mál. „En það er hér eins og annars
staðar að þeir sem hafa verið
lengur í starfi kenna þeim sem eru
að hefja störf og menn læra af
reynslunni," sagði hann.
Kvennahópamir og RLR hafa
samstarf sín á milli. Gangur mála
er yfirleitt sá að nauðganir eru
kærðar til RLR og þeir bjóða síðan
viðkomandi upp á að haft sé sam-
band við einhvem aðstoðarhóp-
anna.
„Það er sjaldgæft að konurnar
leiti til okkar fyrst. Ef það er gert
spyrjum við viðkomandi hvort hún
vilji kæra. En þegar þeim er gert
mjög erfitt fyrir, er tekið með
tortryggni og byrjað á að trúa þeim
ekki, þá finnst okkur þetta vera
meiri áreynsla en að sætta sig við
orðinn hlut. Við myndum því alls
ekki verða fyrri til að hvetja fórnar-
lambið til að kæra. Það verkar ekki
hvetjandi þegar manni er tekið
með vantrúnaði og tortryggni um
leið. Það á að trúa konunum þegar
þær bera fram þetta alvarlega
ákæru, enda er það erfið ákvörðun
að kæra slíkt mál. Við segjum
konunni að við munum standa
Bogi Nilsson rannsóknarlögreglustjóri.
með henni á hverju sem dynur en
einnig að hún skuli hafa varann á
að þetta er erfitt og langlíklegast sé
að þeim verði ekki trúað,“ sagði
Guðrún.
Bogi sagði ekki vera á döfinni að
gera neinar breytingar á starfshátt-
um rannsóknarlögreglunnar vegna
framkominnar gagnrýni þar sem
ekki væru forsendur fyrir henni.
„Meðferð þessara tilteknu mála
hefur innan réttarkerfisins enga
sérstöðu, fyrir utan það að þau
njóta forgangs við afgreiðslu. Á
okkur hvílir sama sönnunarskylda
og þegar um önnur afbrotamál er
að ræða. Við verðum að reyna að
upplýsa málið og þá er nauðsynlegt
að fórnarlambið gefi sem gleggstar
upplýsingar. Ég veit að við yfir-
heyrslur í nauðgunarmálum er lögð
mikil áhersla á að lögreglumenn
sýni nærgætni. Við reynum al-
mennt að halda vöku okkar en það
verða ekki gerðar neinar sérstakar
breytingar vegna ásakana kvenna-
hópanna þar sem ég tel ekki vera
forsendur fyrir þeim.“ jkb
Frá teiknisýningunni í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Fjölnir Ásbjörnsson bendir hér á myndina sem fékk fyrstu verðlaun.
Tímamynd: ÖÞ
Sauðárkrókur:
Skólabörn teikna
í umhverfisátaki
Fyrir skömmu var hleypt af stokk-
unum á Sauðárkróki Umhverfísátaki
1989. Að átakinu standa umhverfis-
og gróðurverndarnefnd Sauðár-
króks ásamt bæjaryfirvöldum.
Fyrsti liðurinn í umhverfisátakinu
var að efnt var til teiknisamkeppni
meðal skólabama á Sauðárkróki. í
samkeppninni tóku þátt börn frá
forskólaaldri til níunda bekkjar og
sendu þau alls 320 myndir í sam-
keppnina. Myndunum var ætlað að
minna á umgengnismál í bænum og
hverju væri helst ábótavant á því
sviði. Allar myndirnar sem bárust
voru síðan almenningi til sýnis t
Safnahúsinu á Sauðárkróki í síðustu
viku.
Alls fengu 14 myndir verðlaun og
afhenti Snorri Björn Sigurðsson
bæjarstjóri verðlaunin við opnun
sýningarinnar. Fyrstu verðlaun fékk
mynd Helga Páls Jónssonar, Um-
gengni lýsir innri manni. Verðlaun
Helga Páls voru reiðhjól. Önnur
verðlaun hlaut mynd Tinnu Gunn-
arsdóttur, Hreinar götur rusl í fötur.
Fyrir þessa mynd hlaut Tinna
myndavél í verðlaun. Einnig fengu
12 krakkar til viðbótar bókaverðlaun
fyrir framlag sitt til sýningarinnar.
Fyrirhugað er að setja verðlaun-
amyndirnar á plaköt sem hengd
verða upp vt'ðsvegar á Sauðárkróki
til að minna á umhverfisátakið. í
byrjun júní eru síðan fyrirhugaðir
svonefndir Umhverfisvemdardagar.
Er þá meðal annars meiningin að
hreinsa allt msl úr bænum, gróður-
setja plöntur og sitthvað fleira til
fegrunar bæjarins.
ÖÞ Fljótum.
Útskrift
í ME
Brautskráning stúdenta úr
Menntaskólanum á Egilsstöðum
fer fram þann 4. júní kl. 14:00.
Athöfnin fer fram í Egilsstaða-
kirkju og er reiknað með að
fjöldi stúdenta verði alls 32, þar
af 7, sem luku námi á haustönn
1988.
Frá því verkfall BHMR leystist
þann 20. maí hefur verið kennt
daglega í ME til kl. 17:00. Nem-
endur skiluðu sér vel í tíma og í
suma áfanga vantaði engan nem-
anda. Nokkur próf vom felld
niður samkvæmt óskum nemenda
en flest vom þau tekin. Próf
hófust 26. maí og standa til 2.
júní.
Þeim sem ekki gátu þreytt próf
í vor býðst að taka þau í haust og
verður þá boðið upp á kennslu
fyrir þá sem þurfa og vilja. -gs
Páfaheimsókn á íslandi:
Samkirkjuleg guðs-
þjónusta á Þingvðllum
í tilefni af heimsókn páfans Jóhannesar Páls II, býður biskup íslands til
samkirkjulegrar guðsþjónustu með þátttöku páfa og föruneytis hans.
Að beiðni páfa verður guðsþjónustan haldin á Þingvöllum. Hefst hún um
kl. 17.40 laugardaginn 3. júní og era allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.
fslenska þjóðkirkjan býður Jó-
hannes Pál II páfa í Róm velkominn
til fslands. Hún fagnar honum sem
kristnum bróður, leiðtoga fjölmenn-
asta trúfélags í heimi og samfagnar
rómversk-kaþólsku kirkjunni á fs-
landi að mega taka á móti leiðtoga
sínum.
Tildrög guðsþjónustunnar
Þegar ljóst var að páfi myndi
heimsækja Norðurlönd á þessu ári,
rituðu allir höfuðbiskupar Norður-
landa honum bréf og fögnuðu komu
hans. í bréfi sínu segir biskup íslands
m.a. að hann vænti þess að þjóð-
kirkjan eigi aðild að samkirkjulegri
guðsþjónustu á íslandi með þátttöku
páfa til að leggja áherslu á mikilvægi
einingar kristinna manna og fagna
komu hans. „Heimsókn páfa“, segir
biskup í bréfi sínu, „er mjög mikil-
vægur liður í því jákvæða samstarfi
og skoðanaskiptum sem eiga sér
stað milli rómversk-kaþólsku kirkj-
unnar og lúthersku kirkjunnar." Páfi
lagði sérstaka áherslu á að heim-
sækja Þingvelli og var lagt til af hálfu
kaþólsku kirkjunnar, að samkirkju-
lega guðsþjónustan yrði haldin þar.
Hefur hið besta samstarf verið með
þjóðkirkjunni og opinberum aðilum
að undirbúningi þessa atburðar.
Skipulag
Yfirskrift hinnar samkirkjulegu
guðsþjónustu er: Kirkja Krists á
Islandi í 1000 ár. Fer hún fram á
Efri-Völlum en þangað er gengið
niður ( gegnum Almannagjá. Settur
hefur verið upp pallur þar sem
helgihaldið fer fram og boðsgestir
sitja. Góð aðstaða er uppi í hh'ðinni
fyrir ofan, fyrir aðra þá sem vilja vera
við guðsþjónustuna, sem að sjálf-
sögðu er öllum opin. Bæði Jóhannes
Páll páfi II og biskup íslands, Pétur
Sigurgeirsson, mundu prédika.
Einnig aðstoða við guðsþjónustuna
sr. Heimir Steinsson, sem rekur
stuttlega sögu Þingvalla, sr. Kristján
Búason dósent, formaður Samstarfs-
nefndar kristinna trúfélaga, Torfi
Ólafsson, formaður Félags kaþ-
ólskra leikmanna og Alfred Jolson,
biskup rómversk-kaþólskra á fs-
landi, sem lesa ritningartexta. Fjöl-
breytt og vönduð tónlist verður við
guðsþjónustuna og stýrir henni
Glúmur Gylfason, settur söngstjóri
þjóðkirkjunnar. Fjórir kórar, Dóm-
kórinn, Mótettukór Hallgríms-
kirkju, Kór Öldutúnsskóla, Skóla-
kór Garðabæjar og Lúðrasveitin
Svanur flytja tónlistina, sem hefst
hálftíma fyrir guðsþjónustuna.
Umferð kann að vera þung til
Þingvalla þennan dag og fólki því
ráðlagt að ætla sér nægan tíma til
ferðarinnar og hlusta eftir leiðbein-
ingum lögreglunnar. Bílastæði verða
ofan við Almannagjá og við Þjón-
ústumiðstöðina.
Það sem skilur og sameinar
Á fslandi hefur verið óslitinn krist-
inn vitnisburður frá því land byggðist
á 9. öld. Margt er það sem skilur að
evangelísku lúthersku þjóðkirkjuna
og rómversk-kaþólsku kirkjuna.
Meðal ágreiningsefna er það að
Rómarkirkjan viðurkennir ekki
biskupsvígslu mótmælenda né held-
ur vígslu presta þeirra. Mótmælend-
ur hafna að sínu leyti forræði páfa og
leggja áherslu á sjálfstæði kirkna í
hverju landi. Því eiga kirkjuraar
ekki enn sameiginlegan aðgang að
altarissakramentinu.
Hins vegar hafa kirkjudeildirnar
átt samvinnu í margvíslegu hjálpar-
starfi og ræðst ítarlega við, annars
vegar um sameiginlegan arf og hins
vegar um það sem aðskilur.
Þjóðkirkjan trúir því og treystir,
að það sem sameinar sé dýrmætara
því sem sundrar og í þeirri trú hittist
kaþólskir og lútherskir við samkirkju-
lega athöfn á Þingvöllum.