Tíminn - 01.06.1989, Qupperneq 8

Tíminn - 01.06.1989, Qupperneq 8
8 Tíminn Fimmtudagur 1. júní 1989 Timinn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og _____Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aöstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriöi G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason . Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. mars hækkar: ' Mánaðaráskrift í kr. 900.-, verð í lausasölu í 80,- kr. og 100,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 595.- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Boðskapur Skinfaxa Pað er gleðilegt til þess að vita að enn kemur Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags íslands, út reglubundið eins og hann hefur gert í 80 ár. Þar birtast oft ágætar hugvekjur um þjóðþrifamál, sem sýnir að ungmennafélögin eru vakandi á verðinum og leitast við að vera trú uppruna sínum. í síðasta hefti Skinfaxa ritar stjórnarmaður í Ungmennafélagi íslands, Matthías Lýðsson, grein um umhverfismál, sem hefur að geyma þann meginboðskap að úrbætur í umhverfismálum felist í afstöðu hvers einstaklings til þeirra, ekki síður en ráðstöfunum ríkis og sveitarfélaga. í grein sinni segir Matthías Lýðsson að mikið sé nú rætt hér á landi um gróðureyðingu, mengun af völdum sorps og hættulegra efna í iðnaði og landbúnaði. Umræðan snýst þannig um sambúð lands og þjóðar. Matthías segir að þetta mikilvæga málefni sé hins vegar orðið að rifrildismáli, þar sem alltaf sé hjakkað í sama farinu. í stað þess að ræða saman á skiljanlegu máli standi menn í öndverðum fylkingum og æpi hver á annan. Þessum umræðu- máta verður að ljúka að mati greinarhöfundar, þannig að áhugafólk um umhverfismál snúi bökum saman og ræði hverjar séu úrbótaleiðir í umhverfis- og náttúruverndarmálum. Greinarhöfundur bendir réttilega á að t.d. gróðureyðing orsakist af mörgum þáttum sem oftar en ekki séu samverkandi. Þar ráða náttúruöfl- in sínu og maðurinn á þar einnig hlut að máli. Að sjálfsögðu verði að stjórna þeim þáttum, sem maðurinn ræður yfir með ýmiss konar friðunarað- gerðum, ræktunarstörfum og hóflegri beit. Um þessi atriði er áreiðanlega fullur skilningur meðal áhugafólks og hagsmunaaðila sem ekki láta öfgar ráða afstöðu sinni. Eins og Matthías Lýðsson bendir á eiga hófsemdaröflin að ná saman í gróðurverndarmálunum. í Skinfaxagreininni er bent á þá miklu mengun sem verður af völdum úrgangs frá neysluþjóðfélag- inu, s.s. plast- og álumbúða. Bendir greinarhöf- undur á að rekja megi slóð þessa sorps m.a. frá söluturnum og sjoppum svo að ruslið liggi eins og hráviði út um allt. Augljóst sé að sorpílát séu of fá og of lítil og úr því þurfi að bæta sem ekki er vandasamt. Talsmaður Ungmennafélags íslands minnist á hina sóðalegu sjómengun af völdum sorps og ógeðið víða á fjörum í landinu þar sem allt veður út í hafreknu rusli af ýmsu tagi. Þessi sorpreki er af ýmsu til kominn, m.a. af því að drasli er fleygt í sjó af skipum og bátum. Á þessu kann þó að verða breyting, því að sjómenn eru með samstilltu átaki að hætta þeim ósóma að fleygja sorpi og ónýtum hlutum fyrir borð. Sorpi er safnað saman í sérstök ílát um borð í skipunum og það flutt í sorpeyðing- arstöðvar í landi. Þessi hugvekja í blaði Ungmennafélags íslands er tímabær. Hvatning til þjóðarsamstöðu um umhverfismál er sannarlega í anda ungmennafé- lagshreyfingarinnar. GARRI íhaldið drekkur ekki vín Um þessar mundir stjórnar Jón Steinar Gunnlaugsson því hverjir drekka vin. Hann er orðinn eins- konar yfirdrykkjusiðameistarí þjóðarinnar. Jón Steinar, sem er hinn vaskasti lögfræðingur, er málsverjandi Magnúsar Thor- oddsens í brennivínsmálinu fræga, sem þegar hefur veríð dæmt af alþýðudómstóli fjölmiðla. í upp- hafi voru gerðar kröfur um, að birtur yrði listi yfir þá sem notið hefðu brennivínsfríðinda á liðnum árum, en af einhverjum ástæðum hefur ekki borið mikið á þeirrí kröfu upp á síðkastið. Hins vegar hefur Jón Steinar Gunnlaugsson notað tækifæríð til að kalla tvo ráðherra sérstaklega fyrir vegna áfengiskaupa, og hefði mátt álíta að þar réðu flokksskírteini mestu, þótt það skuli ekki staðhæft. Þeir ráðherrar sem nú eru bornir fyrir kaupum á áfengi, einir manna, á löngum lista framámanna, sem haft hafa heimildir til áfengiskaupa, en hvergi er getið við þetta mál, eru Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, og Halldór Ás- grímsson, sjávarútvegsráðherra. Það er lögfræðingurinn Jón Steinar Gunnlaugsson sem ræður því hverra er getið við áfengiskaup í máli Magnúsar Thoroddsens á meðan það er fyrír dómstólum. Hann ræður hverjir eru kallaöir til vitnis um áfengiskaup samkvæmt heimildum þar um, og hann gætir þess augsýnilega að fara ekki of langt í listann yfir kaupendur áfengis samkvæmt heimild. Brennivínssamviska íhaldsins Með þessari aðferð sinni cr Jón Steinar Gunnlaugsson, lögfræðing- ur, að koma því á framfærí við alþjóð, að íhaidið drekki ekki vín. Jón Steinar Gunnlaugsson yfir- drykkjusiðameistari. Öðru máli gegnir um framsóknar- menn. Tveir ráðherrar þeirra hafa nú boríð að hafa notað kaupaheim- ild í litlum mæli. Spurningin er, hvort Jón Steinar hafi valið þá einvörðungu vegna þess að þeir eru framsóknarmenn, en látið íhaldið í fríði af þvi það er íhald. Samkvæmt þeirri mynd sem mál- ið gegn Magnúsi Thoroddsen hefur tekið á sig fyrír atbeina Jóns Stein- ars, hefur t.d. Matthias Á. Mathiesen aldrei notað kaupa- heimild til að ná sér í ódýrt ráð- herrabrennivín. í ráðherratíð Ragnhildar Helgadóttur kom aldrei vín inn á hennar heimili. Matthías Bjarnason keypti auðvit- að aldrei ráðherrabrennivín á með- an hann gegndi því embætti, þótt vitað sé að sjaldan hafa Vestfirð- ingar „flotinu neitað“. Þorvaldur Garðar, kunnur þingforseti, hefur ekki svo dómstóli í máli Magnúsar sé vitanlegt, keypt forsetabrenni- vín. Þannig sér Jón Steinar til þess, að ekki sé veríð að róta við brenni- vínssamvisku íhaldsins frammi fyr- ir dómstóli. Menn fer ósjálfrátt að gruna, að lögfræðingurinn meti mikils flokksskírteini sitt í Sjálf- stæðisflokknum. Þarf í rauninni ekki að minna á, að Þorsteinn Pálsson hefur ekki veríð orðaður við brennivínskaup frammi fyrir téðum dómstóli. „Afholdsmennesker“ Það liggur því í augum uppi að íhaldið drekkur ekki brennivín. Að vísu fór einhverjum sögum af því hér fyrr á árum. Og til er Egilsstaðayfirlýsing um bindindi eins af forystumönnum flokksins, sem legið hafði undir grun. Þá eru til einhverjar tölur um ótæpileg brennivínskaup samkvæmt heim- ildum nú í seinni tíð, bæði ráðherra og forseta þings, en þær upplýsing- ar koma ekki Jóni Steinari við, enda er hann með málflutningi sínum á góðrí leið með að gera alla íhaldsmenn að „afholdsmennesk- er“. Það er munur að hafa svona lögfræðinga á sínum snærum. Vonandi sleppur Magnús Thor- oddsen með fullri æru frá máli því sem Jón Steinar rekur nú fyrir hann frammi fyrir dómstólum. Öðru máli gegnir með íhaldið. Æra þess hefur að visu beyglast nokkuð í áranna rás, og endurhæf- ing Jóns Steinars gerír þar enga bót. Aftur á móti gerir Jón Steinar íhaldinu mikinn óleik, vegna þess að með því að telja almenningi í landinu trú um, að íhaldið drekki ekki, verður það framvegis annað tveggja að afþakka ráðherraem- bætti eða drekka á laun. Hvorugur kosturinn er góður. Garrí VÍTT OG BREITT Lífeyrisaðall og hinir Lífeyrissjóður er eitt ömurleg- asta rangnefni sem úr sér gengnar launþegahreyfingar eru að vafra um með í sínu farteski. Tíu af hundraði allra tekna almenns launafólks er plataður af því með lögum og 90 bankastjórar og jafn- mörg bankaráð taka peningana í sína vörslu til að leika lánastofnan- ir. Allar þessar bankaómyndir lána eigendum sínum peninga á sví- virðilegri vöxtum, en þegar opin- berum byggingasjóðum og ríkis- sjóði eru lánaðir peningarnir. Innan almennu launþegahreyf- inganna eru málefni þessara okur- stofnana aldrei rædd og síst af öllu ef einhver ætlar að gera sig svo digran að biðja um skýringar á tilgangi þeirra eða vilja ræða um lífeyri. Þá er öllu skellt í lás. Hins vegar er leyfilegt að tala um öll þessi vandræði sem lána- stofnanir. Launþegar skilja alls ekki hvað lífeyrir er. Ef svo væri kæmust vörslumenn þessara sjóða ekki upp með bankastjóraleikinn. Afæturnar Tíminn birti í gær frétt um að iðgjöld í flesta lífeyrissjóðina fari að verulegu leyti í ljúft líf á skrif- stofum þeirra. Eru dæmi um að 41% iðgjalda fari í kostnað við starfsemi þeirra. Hjá nokkrum sjóðum á að heita að icostnaðurinn sé eðlilegur. Sömu aðilamir og éta upp fé sjóðanna í eigin laun og ósvífinn kostnað við að reka bankastarf- semi til að okra á sjóðsfélögum, kvarta sáran yfir að ekki sé hægt að greiða lífeyri vegna fjárskorts og væru langflestir félaga í almennum lífeyrissjóðum allt eins vel komnir með lélega tekjutryggingu í ellinni eins og svokallaðan lífeyri úr sjóði Allt aö 41 % iögjalcta Hfeyris^öa for , Iðgjöld lífeyrissjoða i liúft líf á skrifstofu Lm vcrja einns minnstum Mula al HeilaanS __—„„ sem búinn er að ræna 10% af ævitekjunum. Opinberir starfsmenn, alþingis- menn og starfsfólk launþegasam- taka, sem og bankamenn, eru á allt öðmm og miklu betri lífeyriskjör- um en sauðsvartur almúginn og er sinnuleysið um lífeyrissjóðina því að kenna, eða þakka. Sérhyggju- fólkið skammtar sjálfu sér uppbót úr ríkissjóði eða bönkunum, sem að langmestu leyti em ríkisfyrir- tæki, og nýtur allt annarra og mun betri kjara en eigendur 90 lána- stofnana, sem em féflettir eftir kúnstarinnar reglum og em furðu fúsir að sjá ekki, heyra ekki og skilja ekki hvernig þeirra eigið fé er notað til að gera þá enn fátækari. Undantekningin Fyrir utan hinn opinbera lífeyris- aðaí, þar sem kjömir fulltrúar á löggjafarsamkundunni em fremstir í flokki, sýnist aðeins ein atvinnu- stétt á landinu hafa sinnu á að gæta hagsmuna sinna varðandi lífeyri. Það em flugmenn. Sennilegast er það vegna þess að þeir hafa kynnst stéttarfélögum í útlöndum og em því ekki eins og heimaaldir sauðir sem láta leiða sig möglunarlaust til slátrunar þegar þeir semja um sín lífeyrisréttindi. í síðustu samningum bættu þeir lífeyriskjör sín verulega á kostnað vinnuveitenda sinna og voru þau þó góð fyrir, miðað við aðra al- menna íslenska launþega. Hin góðu kjör eru fóðmð með því að starfsævi flugmanna sé stutt. En hún er ekkert styttri en hjá mörgum öðmm, sem verða að láta sig hafa það að vinna fullt starf þangað til þeir verða nær örvasa gamalmenni vegna hræmulegra líf- eyrissjóða. Tími er til kominn að launþegar fari að átta sig á að lífeyrissjóðir em til að greiða lífeyri en ekki okurbúllur em eru algjörlega máttvana þegar til lífeyrisgreiðslna kemur en reglulega fjársterk fyrir- tæki þegar forstjórar og starfsmenn semja við sjálfa sig um launin, skrifstofuhald og risnu. Þá er hvergi slegið af bruðlinu. Ef enginn kærir sig um að koma lífeyrissjóðamálum í siðlegt horf er eðlilegast að almennir launþegar heimti að sjóðirnir verði lagðir niður og iðgjöldin renni beint í launaumslögin. Miðað við verðhækkanirnar sem verða í dag jafngildir það því að launin standi í stað og er það ekki svo slæmt miðað við allt og allt. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.