Tíminn - 01.06.1989, Page 10

Tíminn - 01.06.1989, Page 10
10 Tíminn Fimmtudagur 1. júní 1989 Fimmtudagur 1. júní 1989 Tíminn 11 Nordisk Industrifond Nedre Vollgt. 8 N-0158 Oslo 1 Tlt.: (02) 41 64 80 Telefax: (02) 41 22 25 Líftækni í umhverfisvernd Norræna líftækniáætlunin lýsir eftir tillögum/um- sóknum um rannsókna- og þróunarverkefni þar sem áhersla er lögð á notkun líftæknilegra aðferða við hreinsun, afeitrun og endurvinnslu úrgangs- efna og frárennslisvatns frá atvinnustarfsemi. Gert er ráð fyrir að verkefnin, sem auglýst er eftir á öllum Norðurlöndunum, verði samræmd innan stærri áætlunar sem standi 4 ár og hefst það 1. október 1989. Um öll verkefnin gilda eftirfarandi skilyrði: - samvinna skal höfð við aðila í a.m.k. einu hinna Norðurlandanna, - áhugi á aðild fyrirtækja þarf að vera fyrir hendi, - 20% kostnaðar við verkefnin komi úr sjóðum í heimalandinu, 30% kostnaðar greiðist með stuðningi eða þátttöku fyrirtækja, - hlutur Norræna iðnaðarsjóðsins verður að há- marki 50% af heildarkostnaði eða 4 milljónir norskra króna á ári (nú 31,5 millj. íslenskra króna). Tillögur að verkefnum verða metnar af erlendum sérfræðingum (ekki norrænum) og stýrihópur, skipaður 1 fulltrúa hvers Norðurlandanna býður að því loknu þeim umsækjendum, sem hæfir þykja, til samráðs í september áður en endanleg umsókn um styrk verður send Norræna iðnaðarsjóðnum. Umsóknareyðublöð og upplýsingar fást hjá Nor- ræna iðnaðarsjóðnum. Umsóknir og tillögur að verkefnum skulu berast sjóðnum fyrir 1. júl í 1989. Nánari upplýsingar veita Morten Laake, VKI, Vandkvalitets Instituttet, Danmörku, sími 9045-2- 865211, bréfsími 9045-2-867273, og Eiríkur Bald- ursson, Rannsóknaráði ríkisins, sími 91-21320, bréfsími 91-29814. NÖLBRAUTASKÓUNN BREIÐHOLTI Frá Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti Skólaslit verða í Fella- og Hólakirkju, Hólabergi 88, laugardaginn 10. júní n.k. og hefjast þau kl. 10.30. Allir nemendur dagskóla og kvöldskóla, er lokið hafa prófum á þriggja og fjögurra ára brautum, eiga að koma þá og taka á móti prófskírteinum. Um er að ræða nemendur, er lokið hafa áföngum sjúkraliða, snyrtifræðinga, matartækna, sveins- prófs svo og sérhæfðu verslunarprófi og stúdents- prófi. Nemendur, er lokið hafa eins og tveggja ára brautum, fá skírteini sín afhent í Fella- og Hólakirkju eftir skólaslitin (um kl. 12.30) og síðan á skrifstofu skólans. Foreldrar, aðrir ættingjar svo og velunnarar skól- ans eru velkomnir á skólaslitin. BR0SUM og allt gengur betur • lllllllllllllll fÞRÓTTIR lllllllllllllllllllBllllllilllllllllllllllllllIlllllllllllilllllllllllllllIlllllll^ ÍÞRÓTTIR Illllllllllllllilllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllll Knattspyrna: Knattspyrna: Finnar 3 mín. f rá jaf ntef li - gegn Hollendingum í Helsinki I’innska iandsliðið í knattspyrnu varð að sætta sig við að tapa fyrir Evrópumeisturum Hollendinga er liðin mættust í 4. riðli undankeppni HM í knattspyrnu. Finnska liðið varðist vel í leiknum og sigurmark HoUendinga kom ekki fyrr en á 87. mín. Ruud Gullit sagði fyrir leikinn að hann mundi ekki koma inná nema leikurinn þróaðist á versta veg fyrir Holland. Sem kunnugt er hefur kappinn átt við þrálát meiðsl að stríða að undanförnu. Gullit hafði lög að mæla, Ilol- lendingum gekk illa að fínna glufu á vörn Finna, en á 55. mín. var kappinn settur inná í stað Eller- manns. Það var einmitt eflir fyrir- gjöf Gullits að Wim Kieft skoraði sigurmark Evrópumeistaranna. Hollendingar þurftu mjög á stigun- um 2 að halda, því þeir eru í harðri keppni við V-Þjóðverja í 4. riðli, um sæti i úrslitakeppninni á Ítalíu á næsta ári. BL !AKN IRAUSÍRA FUJIISJINGA Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla miðvikudaga Varberg: Alla fimmtudaga Moss: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell............20/6 Gloucester/Boston: Alla þriðjudaga New York: Alla föstudaga Portsmouth/Norfolk: Alla sunnudaga SKJPADEILD f^SAMBANDSiNS LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVlK SlMI 698100 Á. L A. A X l a i Halldór Áskelsson skoraði mark íslenska liðsins í Moskvu í gær, en íslenska liðið er það eina sem náð hefur að skora í leik gegn því sovéska í undankeppni HM nú. Á myndinni sækir Halldór að markverði Portúgal í landsleik á Laugardalsvelli í fyrra. Tímamynd Pjetur. - óvænt 1-1 jafntefli í Moskvu heldur Italíu-voninni lifandi Oft er svo í íþróttum að þegar við miklu er búist verður árangurinn slakur og von- brigðin mikil. Sem betur fer gerist það einnig að góður árangur næst stundum, þegar ekki er búist við miklu. Þetta gekk eftir í gærdag þegar íslenska landsliðið í knattspyrnu gerði 1-1 jafntefli við það sovéska á Lenín-leikvanginum í Moskvu, en leikurinn var liður í undankeppni heims- meistarakeppninnar. Fyrir leikinn var búist við stórsigri Sovétmanna, sem urðu að þola jafntefli á Laugardalsvellinum s.l. haust í sömu keppni. Þá gerði Sigurður Grétarsson mark íslands, en það mark var fyrsta markið sem Rinat Dassajev fékk á sig í keppninni. Þá varð einnig 1-1 jafntefli í leik liðanna í Laugardal 1986 í Evrópu- keppninni, en þá skoraði Arnór Guðjóns- en mark íslendinga. Menn töldu að leikurinn frá því í Reykjavík yrðu Sovétmönnum ofarlega í huga og þeir yrðu því í hefndarhug. Góður leikur íslenska liðsins kom Sovétmönnum í opna skjöldu og þeir urðu enn einu sinni að sætta sig við jafntefli gegn litla íslandi. Sovéska liðið virkaði þungt í leiknum í gær og þótt þeir sovésku væru meira með knöttinn, tókst þeim ekki að skapa sér mörg alvarleg marktækifæri. Engu var líkara en slökunarstefna Gorbatsjovs hefði áhrif á leikmenn sovéska liðsins því þeir voru óvenju slakir í leiknum. Oleg Protasov var sá eini sem ógnaði íslenska markinu í fyrri hálfleik, en hann komst tvívegis í góð færi. í fyrra skiptið skaut hann í þverslá og síðan skaut hann framhjá. Hinum megin á vellinum skapaðist tví- vegis nokkur hætta eftir að Rinat Dassajev mistókst úthlaup. íslensku leikmennirnir voru fullseinir að átta sig á mistökum hins heimsfræga markvarðar og ekkert varð úr. Einnig er vert að minnast á gott langskot Gunnars Gíslasonar, en Dassajev sá við Gunnari og varði vel. Það hefur áreiðanlega gefið íslensku leikmönnunum aukinn kraft að geta hafið síðari hálfleikinn án þess að vera með mark á bakinu. Liðið varðist hverri sóknar- lotu sovéska liðsins á fætur annarri, en nokkuð var um óþarfa brot að hálfu okkar manna. Eitt slíkt leit dagsins ljós á 64. mín. og Igor Dobrovolsky skoraði beint úr aukaspyrnunni. Bjarni Sigurðsson mark- vörður var rangt staðsettur í markinu og allt of lengi að kasta sér niður til að verja skotið. Dobrovolsky sá hvað verða vildi, var fljótur að taka spymuna framhjá varnarvegg íslenska liðsins og undir Bjarna, 1-0 fyrir Sovétmenn. Eftir markið færðist mikil harka í leik- inn, þeir sovésku fóru sér hægt og töfðu leikinn. íslensku leikmennirnir undu þessu illa og létu sovésku leikmennina fá það óþvegið. Á stundum lá við slagsmálum á vellinum. Á 68. mín. skipti Sigfrid Held landsliðs- þjálfari um leikmann í íslenska liðinu. Halldór Áskelsson kom inná í stað Guð- mundar Torfasonar. Önnur breyting var gerð í liðinu á 83. mín. Rúnar Kristinsson kom þá inná í stað Ómars Torfasonar. Við þessa skiptingu gjörbreyttist leikur ís- lenska liðsins til hins betra. Rúnar barðist af miklum krafti og vann knöttinn af sovésku leikmönnunum margsinnis. Á 86. mín. fengu íslendingar innkast, eftir að Rúnar hafði unnið knöttinn af Sovétmönn- um. Ólafur Þórðarson henti knettinum langt inní teiginn þar sem Atli Eðvaldsson stökk manna hæst og skallaði knöttinn áfram inní teiginn á Sigurð Jónsson. Sig- urður náði að pota knettinum í áttina að fjærstönginni þar sem Halldór Áskelsson kom aðvífandi. Halldór var ekki lengi að átta sig og þrumskot hans fór rakleiðis í netið framhjá Dassajev, 1-1. Við markið sló þögn á sovésku áhorfend- urna sem konir voru á Lenín-leikvanginn til að verða vitni að stórum sovéskum sigri. Sá tíma sem eftir var af leiknum var of skammur fyrir Sovétmenn að skora og enn einu sinni urðu þeir að sætta sig við að gera jafntefli gegn íslendingum, nú á heimavelli sínum. Islensku strákanir fögnuðu ákaft þegar finnski dómarinn flautaði til leiks- loka. Það er ekki á hverjum degi sem íslenska knattspyrnulandsliðið vinnur stig á útivelli, hvað þá gegn jafn sterku liði og Sovétmenn hafa á að skipa. Með því að fá óvænt 1 stig úr leiknum í Moskvu í gær eru vonir íslendinga um að landsliðið komist í úrslit HM á Ítalíu 1990, enn til staðar. 8 stig gætu dugað til þess að komast í 2. sætið í riðlinum, en til þess þarf íslenska liðið að sigra Tyrki og Austurrík- ismenn á Laugardalsvelli og gera jafntefli gegn A-Þýskalandi hér heima, eða Aust- urríkismönnum á útivelli. Islenska liðið: Bjarni Sigurðsson, Ágúst Már Jónsson, Guðni Bergsson, Atli Eðvaldsson, Ólafur Þórðarson, Gunnar Gíslason, Pétur Arn- þórsson, Ómar Torfason (varam. á 83. mín. Rúnar Kristinsson), Sigurður Jónsson, Guð- mundur Torfason (varam. á 68. min. Halldór Áskelsson) og Sigurður Grétarsson. BL Staðaní 3. riðli: Sovétríkin .. 5 3 2 0 8-2 8 Tyrkland..... 5 2 1 2 8-6 5 Austurríki...3 111 4-5 3 ísland....... 4 0 3 1 3-5 3 A-Þýskaland .... 5 1 1 3 4-9 3 Tvö efstu liðin komast í úrslita- keppni HM á ítah'u 1990. LESTIINARÁfHLUIf Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Árhus: Alla þriðjudaga FRJÁLSI LÍFEYRISSJÓÐURINN HEFUR ÞÚ HUGSAÐ FYRIR ÞVÍ HVERNIG F.TÁRHAGUR ÞINN VERÐUR ÞEGAR ÞÚ LÆTUR AF STÖRFUM ? Nú á tímum eru margir farnir að huga að því hvort þeir muni geta haldið þeim lífsgæðum sem þeir njóta í dag þegar að því kemur að þeir láta af störfum. Trúlega viltu ekki Láta fjárhaginn stoppa þig þegar þú loksins hefur tíma til að njóta Lífsins. Til þess að það gerist ekki verður þú sjálfur að gera þínar ráðstafanir, því enginn annar gerir það nógu vel fyrir þig. Og eins og máltækið segir, ekki er ráð nema í tíma sé tekið. / FRJALSI LÍFEYRISSJÓÐ- URINN Frjálsi Lífeyrissjóöurinn ávaxt- ar iðgjöldin á öruggan og arðbæran hátt og tryggir þér góðar tek.jur þegar þú lætur af störfum. Frjálsi Lífeyrissjóður- inn er hentugri leið til að undirbúa sig betur undir ævikvöldið enflestar aðrar sparnaðarleiðir. BYRJAÐU STRAX!... Ef þú byrjar snemma að greiða í Frjálsa Lífeyrissjóðinn, þá færð þú verulega mikið hærri lífeyrisgreiðslur vegna margföldunaráhrifa vaxta. NJÓTTU ÞESS SÍÐAR Frjálsi Lííeyrissjóðurinn er séreignasjóður en ekki lána- stofnun. Féð í sjóðnum helst því alltaf óskert. Sérfræðingar Fjárfestingarfélags íslands sjá um að ávaxta það með kaup- um á verðbréfum, sem bera hæstu vexti á hverjum tíma. Þannig er þér tryggður hámarks lífeyrir miðað við framlag þitt. ALLIR GETA VERIÐ MEÐ Fáðu upplýsingar um fulla aðild eða viðbótaraðild í Frjálsa Lífeyrissjóðnum. bví íyrr sem þú gengur í sjóðinn, því íyrr geturðu vænst þess að íá hærri lífeyrisgreiðslur, þegar þar að kemur. FjARFESTINGARFElAGIÐ Hafnarstrætt 7 S (91) 28566, Kringlunni S 689700 Ráöhustorgi 3, 600 Akureyri S (96) 25000 Fjármál þín • sérgrein okkar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.