Tíminn - 01.06.1989, Side 20

Tíminn - 01.06.1989, Side 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300 ríkissRip NÚTÍMA FLUTNINGAR Holnarhúsinu v/Tryggvagölu, S 28822 L ^10ILAS r0 ÞRÚSTUR 685060 VANIR MENN PÓSTFAX TÍMANS 687691 Tíminn FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ1989 Ljósmæðrum á Landspítala ógnar fyrirsjáanlegar annir í sumar: Sparið blómin og símhringingarnar „Til að minnka álag á starfsfólk (Fæðingar)deildarinn- ar í sumar biðjum við aðstandendur fæðandi kvenna að draga úr símhringingum og blómasendingum vegna mikils ónæðis og vinnu sem því fylgir.“ Svo segir í ályktun frá Ijósmæðrum á Fæðingardeild Landspítalans, sem nýlega héldu ráðstefnu þar sem m.a. var fjallað um lokun Fæðingarheimilisins í Reykjavík á mesta annatíma ársins. Lýstu Ijósmæðurnar undrun sinni á þessari ákvörðun borgaryfirvalda, sem óhjákvæmilega mundi leiða til skcrtrar þjónustu við, í og eftir fæðingu á Fæðingardeild Lsp. Kveikjuna að þessari ályktunar- gerð ljósmæðra sagði yfirlæknir Kvennadeildar Lsp., Jón Þorgeir Hallgrímsson, vafalítið þá, að t.d. í júlí í fyrra hafi verið alveg óvenjulega mikið að gera á Fæð- ingardeildinni. „Ljósmæður voru þá bókstaflega að gefast upp. Þær þurftu að taka mjög þéttar erfiðar vaktir og það kom upp það ástand sem var hér áður að konur voru nánast að fæða úti á göngunum. Og það varð að grípa til þess að senda þær fyrr heim en venja er.“ Ástæða þessara óvenju miklu anna í fyrrasumar, meðan Fæð- ingarheimilið var lokað, var ekki síst sú að fæðingar á deildinni voru þá fleiri en nokkru sinni, eða um 2.800. Yfirlæknir sagði fyrir- liggjandi upplýsingar benda til þess að fæðingar verði alveg eins margar í ár. Ástæður þcssa eru tvíþættar. Annars vegar telur Jón Porgeir einfaldlega að konur vilji nú frem- ur eiga börn en fyrir nokkrum árum. í annan stað hefur þeim stofn- unum í landinu sem annast sæng- urkonur farið fækkandi á undan- förnum árum, líklega vegna þess að þeim konum hefur farið fjölg- andi „sem ákveða að ala börn sín fremur þar sem öryggi er meira. Jón Þorgeir sagði því t.d. heldur ekki neitað að nýtingin á Fæð- ingarheimilinu í Reykjavík hafi verið ansi léleg, sem sé svo ástæða þessara árlegu lokana á sumrin. „En það er alveg ljóst mál að Fæðingardeild Landspítalans ann- ar ekki öllum þeim fæðingum sem að myndu berast ef Fæðingar- heimilið lokar," sagði yfirlæknir- inn. „Eðlileg fæðing" var yfirskrift áðurnefndrar ráðstefnu sem ljós- mæður héldu í Munaðarnesi. Fjallað var m.a. um breytilegar fæðingarstellingar, saumaskap á konum eftir fæðingu, verkjameð- ferð, og fræðslu til verðandi for- eldra. Einnig fjölluðu Ijósmæður um mannleg samskipti og ýmsar leiðir til þess að bæta þau og gera fæðinguna sem ánægjulegasta. - HEI *** : s Tímamynd Árni Bjama Tímamynd Pjelur Allt tiltækt lið slökkviliðs Reykjavíkur kallað út: Eldur í Hótel Vík Allt tiltækt lið slökkviliðs Reykjavíkur var í gærkvöldi kvatt að Hótel Vík við Hallærisplan og logaði þar mikill eldur í risi hússins. Upphringingin barst slökkviliðinu laust eftir klukkan 20 og tók skamman tíma að ráða niðurlögum eldsins. Þegar slökkvilið kom á staðinn logaði eldur upp úr risi hússins og voru þegar sendir inn tveir reykkafarar til að ganga úr skugga um að fólk væri ekki hættu. Enginn meiddist í brunanum. Rishæðin í húsinu er mikið skemmd af völdum elds og neðri hæðir skemmdust af völdum vatns og reyks. Mjög mikill viðbúnaður var hjá lögreglu vegna eldsins og var miðbærinn lokaður af. Á tímabili var óttast að eldurinn myndi breiðast út í nærliggjandi hús, en slökkviliði tókst að afstýra þeirri hættu. í gærkvöldi var ekki ljóst hver eldsupptök hafa verið. -ES Bílafloti fylltur fyrir 19% hækkun Mjög stöðugur straumur var á sem Tíminn ræddi við í gær vakti bensínstöðvum víðsvegar um land það athygli þeirra að í fyrsta skipti í gær. Bifreiðaeigendur fylltu bíla sem almenningur hefur vitað af sína vegna yfirvofandi hækkunar á hækkun á bensíni, var stöðugur bensíni sem tekur gildi í dag. Um straumur allan daginn. Vaninnhef- er að ræða verulega hækkun, eða ur verið sá að allir kæmu undir 19% ogfer bensínlítri í 52 krónur. lokun og langar biðraðir hafa þá Að sögn bensínafgreiðslumanna myndast. Tímamynd:Pjetur

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.