Tíminn - 10.06.1989, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.06.1989, Blaðsíða 1
„Veröld fláa sýnir sig Af utangarðsfólki í Reykjavík á fyrri árum Aldrei getur hjá því farið að eínhverjir einstaklingar séu miður til þess fallnir að takast á við lífsbaráttuna en gerist og gengur um þá sem fullfrískir eru kallaðir. Sumir eru það vegna líkamlegrar bæklunar. Aðrir ráða ekki við viðfangsefni daglegs lífs vegna andlegrar fötlunar af einhverju tagi. Og svo eru það enn þeir sem eru svo illa haldnir af vínhneigð að þeir geta ekki annað en drukkið frá sér bæði vit og ráð. Nú á dögum reynir samfélagið eftir föngum að hjálpa slíkum einstaklingum. Reynt er að veita þeim aðstoð til að bjarga sér og standa á eigin fótum, en takistþað ekki er þeim komið fyrir á stofnunum eða hælum. Aður fyrr var þessu hins vegar öðru vísi farið. Þá átti slíkt fólk allt sitt undir náð og miskunn velviljaðra samborgara. Og vildi þá víst oft velta á ýmsu með það hvernig til tókst. Hér verða nú tíndar til nokkrar sagnir af slíku fólki sem var áberandi í bæjarlífi Reykjavíkur seint á síðustu öld og í byrjun þessarar. Stuðst er við grein sem nefnist Einkennilegt fólk, er eftir Klemens Jónsson og kom í öðru bindi Blöndu, árin 1921-23. Segist hann rita þarna eftir minningum sínum um þetta fólk frá því á uppvaxtar- árum sínum í Reykjavík. Myndirnar, sem hér fylgja með af nokkrum þessara einstaklinga, lét Þjóðminjasafnið góðfúslega í té. „Ljóstollur" í frásögn Klemensar Jónssonar af þessu fólki er áberandi hvað margt af því hefur verið uppnefnt. Er Iíka sannast sagna að ekki er annað að sjá en að býsna margir hafi lagt það í vana sinn að hrekkja þetta fólk og stríða því, meðal annars með því að uppnefna það. Fór þá allt eftir skaplyndi þess sem fyrir varð hvort hann kippti sér upp við slíkt og þvílíkt. Sumir létu sem ekkert væri og tóku öilu með jafnaðargeði, og varð þá oftar en ekki minna úr gríninu en til var ætlast. Aðrir reidd- ust, og er svo sannast sagna að þá var tilganginum náð hjá þeim sem fyrir stóðu. Slíkir hrekkir, þótt ófagrir væru, voru eitt af því sem þetta fólk varð að þola í ofanálag við eymd sína. Einn af þeim, sem fyrir þessu urðu, var Eyjólfur sem nefndur var ljóstollur. Hann var raunar af góðum ættum, og á unga aldri hafði honum verið komið til bókbandsnáms hjá Agli Jónssyni bókbindara í Reykja- vík. Á þeim tíma vildi svo til að Egill hafði fjármál Dómkirkjunnar á sinni hendi. Sendi hann Eyjólf gjarnan út um bæinn með reikninga sem inn- heimta þurfti vegna kirkjunnar. Ekki þurfti meira til, og af þessum handavikum, sem Eyjólfur tók ung- ur að sér fyrir húsbónda sinn, varð viðumefnið til. Annars er Eyjólfi svo lýst að honum hafi verið margt vel gefið. Hann var glaðlyndur jafnan og þótti skemmtilegur, enda sagður hag- mæltur. En hann átti við sama vanda að stríða og margir fleiri, sem líkt var ástatt um, það er óstöðvandi hneigð til víndrykkju. Á þessum ámm var vín selt og veitt hvarvetna í verslunum Reykjavíkur og því auðvelt að nálgast það. Þetta varð Eyjólfi um megn og olli því að hann varð einn af undirmálsmönnum bæjarins á sínum tíma. Gunna graliari. „Kis, kis“ Býsna átakanlega má eiginlega telja söguna af Jóni Gissurarsyni, sem uppnefndur var „kis, kis“. Hann var innfæddur Reykvíkingur, borinn snemma á síðustu öld og virðist eftir lýsingum að dæma hafa verið stór- lega vangefinn frá fæðingu. Hann varð þannig aldrei meir en svo talandi og gat ekki lært að telja hærra en upp að fimm. Fermdur var hann um tvítugt eftir sérstöku bisk- upsleyfi, upp á fáeinar greinar í kverinu. Þegar Bernhöft elsti bakari með því nafni settist hér að um 1835 varð Jón vinnumaður hjá honum og var það síðan alla sína ævi. Þrátt fyrir skort sinn reyndist hann bakaranum bæði trúr og dyggur þjónn. Sú saga gekk að eitt sinn þegar Jón var ungur hefði hann átt að lóga ketti, og hefði hann ætlað að hengja köttinn. Það verk lánaðist þó ekki betur en svo að kötturinn smaug úr snörunni og slapp. Á þessu stríddu Reykvíkingar ýmsir Jóni æ síðan. Hann gekk ævinlega undir uppnefn- inu „kis, kis“, og ætti hann leið um götur bæjarins kvað það stöðugt við á eftir honum, eða þá að mjálm heyrðist úr ólíklegustu homum. Þó að ætla mætti að Jón væri orðinn þessu vanur, þar sem hann heyrði þetta nánast daglega, þá brást ekki að hann reiddist þessu ákaflega. Það voru strákar bæjarins, sem fyrir þessu stóðu, og oft mátti sjá Jón hlaupandi fram og aftur á eftir þeim í vonlausum tilraunum til að ná í einhvem sökudólginn. Þegar inn í búðimar kom tók svo ekki betra við. Þar var mjálmað bæði innan og utan við búðarborðið, svo að Jón æddi eftir búðargólfinu hamstola af bræði. Verst var þó við búðarmennina að eiga, sem voru innan við borðið, því að gagnvart þeim var aumingja Jón vamarlaus. Talið fyrir staup Af þessum ástæðum hefði mátt vænta þess að Jón hætti sér ekki út á götur bæjarins nema í brýnustu nauðsyn, en því var þó ekki að heilsa. Þó að hann ætti þar ærnum óvinum að mæta fór hann gjarnan í bæinn undir rökkur, og þá í búðirnar sem vom aðalsamkomustaðir bæjar- ins meðan þær vom opnar. Þar var staupasala í hverri búð, og aukheldur var hvert handarvik þar borgað með staupi. Það gerðu búð- armennirnir, og auk þess vom marg- ir þeirra ósparir á að gefa í staupinu Búðirnar ( Reykjavík voru lengi aðalsamkomustaðir bæjarins. Þangað sóttu iíka ýmsir sérkenni- legir menn og þótti það þá góð skemmtun að skopast að þeim. Jón boli. þegar svo bar undir. Var þaö ekki síst ef um einhverja skemmtun var að ræða, enda voru það óskrifuð lög í verslunum að búðarmenn ættu það sem í lekabyttuna fór, og sáu þeir því til þess að ætíð væri nóg í henni. Það dró Jón hins vegar til búða- göngu, líkt og marga fleiri, að hon- um þótti ákaflega gott í staupinu. Gekk honum líka allvel á þeim veiðum, og átti hann það ekki síst að þakka kunnáttu sinni í talnalist. Gilti þá einu þótt hann kynni ekki að telja nema upp að fimm, en ruglaðist þegar hærra var komið. Það varð almenn skemmtun búð- armanna að fá Jón til þess að telja kaffibaunir, sem hann tók að sér fyrir kvartpela. Voru baunirnar lagðar á hlerann yftr inngönguopinu um búðarborðið, ásamt staupi. Jón byrjaði óðar að telja, en þegar hann fór að ruglast í reikningnum barði einhver innan við borðið bylmings- högg undir hlerann svo að baunirnar flugu um allt og vínið skvettist úr staupinu framan í aumingja Jón sem stóð hálfboginn yfir hleranum við talninguna. Við þetta fokreiddist Jón, sem vonlegt var, og æddi fram og aftur um gólfið með formælingum og ragni. Þó var hann fljótur að sefast aftur, enda brást ekki að hann fékk kvartpelann eigi að síður. „Kúin bakarans“ Varla mátti Jón heita að fullu talandi, og meðal annars átti hann erfitt með að tala um kýr. Varð það fólki gjarnan að gamanefni, en eitt af því sem menn gerðu sér Icik að var að leggja fyrir Jón spurringuna „Hvernig líður kúin bakarai .’" Ekki brást að Jón svaraö ">essari spurningu af fullri alvöru. Við hana kom jafnan á hann rauna;, ur, og henni svaraði hann mjög alvurlegur með orðunum „Hún er du . hún varð sjálfdau." Mennvissuraunarekkil. .gurvið hvaða atburð hér var átt, en hitt var þó ljóst að við þessá spurningu vaknaði upp með Jóni minning um

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.