Tíminn - 10.06.1989, Blaðsíða 10

Tíminn - 10.06.1989, Blaðsíða 10
20 HELGIN Laugardagur 10. júní 1989 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL l SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁ Líkið var sprengt í tætlur... innan frá Tilgangurinn með að breyta líkinu í sprengju var að gera það óþekkjanlegt. Síðan ætluðu morðingjarnir að bæta ráð sitt. Lögreglan hafði ekki í hyggju að sleppa þeim við svo búið. Síðdegis laugardaginn 15. ágúst 1987 átti veiðivörðurinn Marcel Leclerc leið um Lisses-skóg þegar hann í rjóðri einu hlut sem hefði átt að vekja athygli hans en gerði ekki. Hluturinn sem var sívalur og svartur og ósléttur lá á bletti af sviðnu grasi. Augljóst mátti vera að kveikt hafði verið í honum. Bannað var að kveikja eld í skóginum og því hefði Leclerc átt að taka við sér en hann var að flýta sér og gleymdi þessu hreinlega. Viku seinna var hann aftur á ferð á sama stað af tilviljun. Þá var sunnudagur og Leclerc ekki á hrað- ferð svo hann leit nánar á svarta hlutinn. Sólskin var og heitt í veðri og hluturinn þakinn flugum. Þegar Leclerc kom nær, flugu þær burtu og afhjúpuðu mannsh'kama. Raunar var líkaminn tæpast þekkjanlegur sem slíkur því hann var nánast f tætlum. Leclerc datt í hug að villisvín hefðu komið þarna nálægt því þau éta allt sem hægt er að melta. Fnykurinn af rotnandi holdi var mjög svo greinilegur og Leclerc ákvað að fara ekki nær, heldur á lögreglustöðina í Corbeil-Esonnes, þar sem íbúar voru um 40 þúsund. Staðurinn er um 35 km suðaustan Parísar og stendur á fallegum stað við Signu. Þar sem Corbeil-Esonnes er róleg- ur staður og nú var sunnudagur að auki, voru aðeins fáir lögreglumenn á vakt og kalla varð rannsóknarlög- reglumenn út heiman að frá sér. Því var komið fram á dag þegar Petry og Maussac komu á vettvang ásamt lækni og tækniliði. Enginn var ánægður með að þurfa að vinna á sunnudegi, en Petry lögregluforingi þó sérstaklega neikvæður. Hann var mikill áhugamaður um knattspymu og hafði verið truflaður í miðjum leik. Hann hafði við orð um að banna ætti skógarvörðum að vera á ferli á sunnudögum. - Mánudagur hefði engu breytt, samsinnti Maussac. - Líkið hefur greinilega legið hér lengi. - Tvær eða þrjár vikur, lagði læknirinn til málanna. - Ég get ekki einu sinni sagt hvort það er af karli eða konu. Líkið sprakk innan frá - Það verður vandamál að bera kennsl á það, þvf svo virðist sem eitthvert dýr hafi nartað rækilega f það, hélt Maussac áfram. - Ég er ekki viss um það, sagði læknirinn. - Förum með það í lík- húsið og svo sé ég til. Reynum að velta því yfir á plastdúk. Það tókst og þegar búið var að líma rækilega fyrir hvarf óþefurinn úr andrúmsloft- inu. - Ég bíð niðurstaðna á skrifstof- unni, sagði Petry, snerist á hæli og ók burt. Um sexleytið var búið að kanna umhverfið og klukkustundu síðar fékk Petry þá skýrslu. Hún var stutt. Fundist höfðu nokkrar tætlur af taui, lfklega úr fötum fómarlambsins en af þeim varð ekki ráðið hvort um karl eða konu var að ræða. Niðurstaðan varð sú að viðkom- andi hefði verið myrtur annars stað- ar og líkið síðan flutt í skógarrjóðrið enda hægur vandi að komast á bíl nær alla leið þangað. Spottinn sem þurft hefði að bera líkið var þó tæpir 50 metrar og það benti til að fleiri en einn hefðu þurft að vera að verki. Lík af þessari stærð síga vel í og augljóslega hefur þurft að koma því í skjól til að ekki sæist frá veginum þegar kveikt væri í því. - Fyrst svona mikið var haft fyrir að gera líkið óþekkjanlegt, má gera ráð fyrir að morðingjarnir hafi verið svo nánir hinum myrta að þeir féllu strax undir gmn, sagði Maussac. Þó kmfning lfksins væri ekki fljót- legt verk fann læknirinn brátt sitt- hvað gagnlegt. í fyrsta lagi var ljóst að um morð var að ræða, því tvær kúlur úr veiðiriffli fundust í brjóst- holi lfksins. Talið var að morðið hefði verið framið nálægt 10. ágúst. Þá var nokkuð ljóst að um karl- mann var að ræða, meðalháan og um 70 kg að þyngd. Hann hafði verið milli 30 og 40 ára og einhvern- tíma brotnað um ökla. Brotið hafði verið spengt með málmplötu. Það sem olli lækninum þó mestum heila- brotum var að líkið virtist hafa verið sprengt í loft upp ... innan frá. Líks saknað í Cannes - Áttu við að hann hafi verið opnaður og sprengju stungið inn? spurði Petry og botnaði ekki neitt í neinu. - Nei, svaraði læknirinn. - Hand- sprengja eða þvíumlíkt hefði skilið eftir brot en þau em engin. Maður- inn sjálfur var sprengjan. Hann var troðinn út af sprengiefni. - Var hann lifandi þá? spurði Maussac og hryllti sig en læknirinn var sannfærður um að maðurinn hefði verið skotinn fyrst og því áreiðanlega látinn. - Er ekkert sem bendir til hver hann er? spurði Petry. - Engir hringar, veski eða lyklar? - Alls ekkert, svaraði læknirinn. - Bara málmplatan. - Þetta er ekki verk viðvaninga, sagði Petry. - Við skulum hringja til uppljóstrara undirheimanna. At- hugið hverjir hafa horfið nýlega, einkum í París. Þetta em ekki hand- brögð sveitamanna. Ekki var talið að nein vitni fyndust og þó allir væm spurðir sem hugsan- Thlerry Lang talaði svo mikið að hann ógnaði öryggi félaga sinna. Þeir losuðu sig þvf við hann. lega hefðu haft ástæðu til að vera á ferli á svæðinu, hafði enginn séð eða heyrt neitt óvenjulegt. Uppljóstrar- ar gátu gefið upplýsingar um týnda glæpamenn sem fundust síðar í lík- húsum. Málið staðnaði og Petry ákvað að leggja það í salt þar til eitthvað kæmi fram sem gæti þokað því frekar. Þegar nóvember var á enda, sat allt við hið sama. Þá vom þeir menn sem unnið höfðu að málinu sendir til Cannes til að rannsaka vopnað rán þar. í Cannes var enn sólskin og hiti þó sumarleyfisgestum hefði fækkað til muna á ströndinni. Maussac naut þess að dvelja í blíðunni þó ekki yrði honum mikið ágengt við að rannsókn ránsins. Þann 30. nóvember, daginn áður en hann átti að fara heim, sat hann á kaffihúsi með fjómm innfæddum Iögreglumönnum og nefndi þá af tilviljun að heima lægi óieyst mál sem varðaði lík sem enginn gæti borið kennsl á. - Það er öfugt við okkur, sagði einn hinna. - Okkur vantar hins vegar lík. - Hvemig vitið þið þá að það er lík en ekki lifandi maður? vildi Maussac vita. Anna Maria Corsaro sagðist ekki vera glæpamaður heldur fórnar- lamb rangláts efnahagskerfis. góða uppljóstrara að og fylgdust vel með glæpamönnum. Þeir höfðu lengi vitað að Thierry Lang hefði horfið í byrjun ágúst og sfðan hafði hvorki fundist af honum tangur né tetur. Maussac ákvað að nefna þetta við Petry þegar hann kæmi heim og gerði svo. Petry varð hrifinn. - Út- vegaðu allar iipplýsingar um Lang, sagði hann. - Ég vil vita hvort hann hefur öklabrotnað. í ljós kom að Lang hafði brotnað svo illa á vinstri ökla að nauðsynlegt hafði reynst að spengja brotið með málmplötu. Hæð hans, þyngd og aldur kom einnig heim við bmnnu lfkamsleifamar. - Þá ættu glæpafélagar hans að vera morðingjamir, sagði Petry. - Gallinn er bara sá að við getum ekki sannað það. - Ekki enn, sagði Maussac. - Nú vitum við hins vegar hverra við leitum og þau hljóta að hafa verið hér í grennd í byrjun ágúst. Athug- um betri hótelin. - Af hverju þau betri? spurði Petry hissa. - Þetta fólk stundaði bankarán, svaraði Maussac. - Heldurðu að það hafi gist í einhverjum grenjum? Símanúmer okkar verður eftir sem áður 688411. SAMVINNUl LÍFEYRISSJODURINN í Laugalækur 2a - Sími 688411 Fjórmenningaklíka Þeir vissu það ekki fyllilega en lfkumar vom miklar. Um tveggja ára bil hafði fjögurra manna glæpa- hópur stundað rán, innbrot og jafn- vel nauðganir en farið svo laglega að að ekki var nokkur leið að sanna neitt. Lögreglan vissi hverjir vom að verki en gat ekkert gert. Glæpimir voru vandlega hugsaðir og skipulagðir og þar var að verki hin 21 árs Anna Maria Corsaro, fyrrum nemi við háskólann í Pe- rouse. Hún hafði tekið virkan þátt í stúdentaóeirðum en lagði svo alfarið út á glæpabrautina. Anna Maria naut aðstoðar hins 35 ára Martins Herison sem starfað hafði hjá al- þjóðafyrirtækjum í Kanada og Suð- ur-Ameríku. Anna Maria var ítalsk- ur borgari en Martin hafði bæði franskt og ítalskt vegabréf. Um framkvæmdir sáu þeirThierry Lang, 34 ára, upprunninn í París og atvinnuglæpamaður frá 18 ára aldri og Michel Berry, fertugur, sem setið hafði í fangelsum fyrir allt frá vopn- uðum ránum til þess að ganga á grasi þar sem það var bannað. Hann var elstur og reyndastur og talinn höfuð flokksins. —CanaesJögteglitmftnnimir^j áttu. Blóðpollur ó bílastæði Það reyndist rétt. Brátt hafðist uppi á afgreiðslumanni á hóteli sem kannaðist við fjórmenningana af myndum, einkum önnu Maríu sem var ung, lagleg og virtist feimin. - Þau leigðu íbúð á L'Ermitage aðfaramótt 10. ágúst, sagði Petry. - Þar gerðist fleira sem munað er eftir. Þegar þau fóru um morguninn fannst stór pollur af hálfstorknu blóði á bílastæðinu þar sem bíllinn þeirra hafði staðið um nóttina. Hann var hvítur Benz 190. Enginn tók eftir númerinu og hótelgestimir höfðu auðvitað ekki skráð sig undir réttum nöfnum. - Það skiptir engu með bílnúmer-, ið, sagði Maussac. - Bíllinn var eflaust stolinn. Reynum að hafa uppi á tilkynningu um þjófnaðinn. - Það var ekki erfitt. Atvinnu- fiðluleikari hafði tilkynnt að bíl sínum hefði verið stolið í Monaco 9. júlí og hann var enn ekki kominn í leitimar. - Snjallt hjá þeim að ræna bílnum löngu áður en þau þurftu á honum að halda. - Hvað um blóðið á bílastæðinu? spurði Petry. - Það var úr Lang, svaraði Maus-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.