Tíminn - 10.06.1989, Blaðsíða 11
Laugardagur 10. júní 1989
HELGIN
21
■
4
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKA
sac. - Lík hans var í skottinu. Við
finnum ekki bílinn. Hann er eflaust
á sjávar- eða vatnsbotni einhvers
staðar. Hugsanlega gætum við þó
komist að hvar hann vár notaður.
Þó ekki reyndist unnt að grafast
fyrir um ferðir bílsins frá því hann
hvarf í Monaco og þar til hann sást
við hótelið í Corbeil-Esonnes, tókst
samt að finna tilgang bílþjófnaðar-
ins. Síðasti glæpaverknaður fjór-
menninganna svo vitað væri, átti sér
stað 9. ágúst, nákvæmlega viku eftir
að Leclerc skógarvörður sá líkið í
fyrra skiptið í skóginum.
Vettvangur var kaffihús í verslun-
armiðstöð í Chambourcy. Anna
Maria kom þar inn með vélbyssu og
hélt starfsfólki og gestum í skefjum
meðan Lang, Herison og Berry
tæmdu peningakassann og höfðu á
brott með sér jafnvirði nær hálfrar
milljónar IKR.
Vildu losna við einn
Petta rán gekk ekki alveg snurðu-
laust fyrir sig því einn viðskiptavin-
anna sem hafði meiri kjark en skyn-
semi til að bera, fleygði sér á Lang
og hindraði hann um stund. Berry
og Herison komu félaga sínum til
hjálpar og rotuðu manninn með
byssuskefti. Hann mátti teljast hepp-
inn að sleppa lifandi.
Fjórmenningamir komust undan
á stolnum Peugeot 204 sem seinna
fannst yfirgefínn tæpum kfiómetra
frá kaffihúsinu. Þá þótti Ijóst að
fjórmenningamir hefðu þar farið
yfir í hvíta Benzinn.
Þó ræningjamir hefðu verið með
grímur, lýstu vitni atburðarásinni og
öllu svo vel að lögreglan var ekki í
minnsta vafa um hverjir væm að
verki.
- Þau hljóta að hafa drepið Lang
fljótlega eftir ránið, sagði Maussac.
En hvers vegna? Héldu þau að hann
ætlaði að kjafta frá eða fannst þeim
hann standa sig illa á kaffihúsinu?
- Ég hallast að því síðara, sagði
Petry. - Cannes-lögreglan talaði við
marga sem þekktu Lang vel og
öllum ber saman um að hann hefði
síst verið líklegur til að leysa frá
skjóðunni. Hins vegar hefði hann
verið hreinn villimaður á köflum.
Ljóst þótti að Lang var hættulegur
og óútreiknanlegur, allt öðmvísi
manngerð en sú sem gerist lögregl-
uuppljóstrari.
Lang var lýst sem taugaóstyrkum,
uppstökkum og svo vörum um sig að
hann svaf að jafnaði með hlaðna
vélbyssu í fanginu. Þegar hann drakk
sig fullan skemmti hann áheyrendum
gjarnan með sögum um rán og
ofbeldi af sinni hálfu og hleypti af
upp í loftið til að sannfæra þá sem
illa trúðu honum.
- Það gæti verið ástæða, sagði
Maussac. - Bjálfinn talaði svo mikið
að hann ógnaði öryggi þeirra. Það
má teljast furða að þau losuðu sig
ekki fyrr við hann. Nú vantar okkur
hin þrjú.
Svo sannarlega vom fleiri sem
vantaði þremenningana. Ekki
reyndist nauðsynlegt að lýsa eftir
þeim því lögregla um allt Frakkland
var þegar að leita þeirra.
Handtekin á Ítalíu
Því miður var ekki leitað á réttum
stöðum. Herison og Anna Maria
vom farin til Ítalíu og Berry var
handtekinn í París fyrir ávísanamis-
ferli. Hann var í fangelsi en hafði
ekki gefið upp rétt nafn. Sökum
mikilla anna hafði ekki komið f ljós
að fingraför hans vom af eftirlýstum
manni.
Fyrsta vísbendingin varðaði Mar-
tin Herison sem sendur hafði verið í
fangabúðir eftir seinustu handtöku,
en þar ráðist á starfsmann með hnífi.
Skýrsla var gerð og á henni var
síðasta vitað heimilisfang Herisons á
Ítalíu.
Leitað var aðstoðar ítölsku lög-
reglunnar sem handtók Önnu Mariu
og Herison fljótlega. Þau vom þó
ekki framseld til Frakklands, heldur
dregin fyrir rétt á Ítalíu. Þegar þar
var komið sögu vom sakir þeirra
aðeins bílþjófnaður og vopnað rán.
Engar sannanir lágu enn fyrir um að
félagar Langs hefðu myrt hann.
Herison þóttist þó viss um að svo
væri því hann féll nær strax saman
Michel Berry var sá sem skaut
banaskotunum.
og játaði þátt sinn að morðinu sem
hann sagði næsta lítinn. Lang hafði
verið orðinn hinum hættulegur með
stöðugu blaðri sínu og hin þrjú vom
næsta viss um að einhvem daginn
yrði lögreglumaður hreinlega áheyr-
andi að lýsingu á glæp þeirra.
Þau ræddu málið sín á milli og
komust að þeirri niðurstöðu að ekki
væri nokkur leið að þagga niður í
Lang. Hann yrði bara ofsareiður
slíkri uppástungu og vís til að skjóta
þau öll á staðnum.
Að vísa honum úr hópnum var lítt
fýsilegt. Að því slepptu að það hefði
sennilega einnig leitt til skothríðar,
lék enginn vafi á að Lang héldi
áfram einn á glæpabrautinni og þar
sem hann var ekki sérlega greindur
myndi hann fljótt nást og leysa frá
skjóðunni um fyrrum félaga sína.
Þess vegna varð niðurstaðan sú að
hreinlega yrði að útrýma Lang og
ákveðið var að gera það strax eftir
ránið á kaffihúsinu. Ránið gekk
samkvæmt áætlun að undantekinni
tilraun viðskiptavinar til að hindra
það og síðan var ekið til norðurs í
hvíta Benzinum.
Mannleg bensínsprengja
Herison sagði ætlunina hafa verið
að fara norður á bóginn á móti
ferðamannastraumnum. Um leið og
ferðamenn tvöfalda fbúatölu við
ströndina, tvöfaldar lögreglan líka
liðsstyrk sinn þar.
Að kvöldi 9. ágúst stönsuðu þau
við afleggjara af þjóðveginum
skammt frá Lyon. Þar veittu tré og
runnar gott skjól. Anna Maria þótt-
ist þurfa að ganga afsíðis og hinir
gripu tækifærið til hins sama.
Lang fór inn milli runnanna em
Berry læddist þá aftur að bílnum og
þegar Lang kom aftur, tók Berry á
móti honum með hans eigin vélbyssu
sem hann hafði skilið eftir. Lang sá
hvað var að gerast og hrópaði: - Nei,
ég er félagi þinn, { sama mund og
Berry skaut hann þrisvar.
Hann lést þó ekki strax og kvein-
aði enn þegar Berry og Herison
tróðu honum í bílskottið. Kveinin
Martin Herison stundaði vopnuð
rán í Frakklandi til að fjármagna
tilvonandi fatahreinsun sína á ít-
alíu.
voru þó löngu þögnuð þegar komið
var til Corbeil-Esonnes þar sem
þremenningamir borðuðu kvöld-
verð og gistu á góðu hóteli.
Morguninn eftir þegar út var
komið, varð þeim illa við að sjá
stóran blóðpoll undir bílnum en
enginn annar virtist hafa veitt honum
athygli svo þau flýttu sér burtu. Þar
sem þau höfðu ekki skráð sig undir
réttum nöfnum, óttuðust þau ekki
að þekkjast þó einhver sæi blóðið
seinna.
Þau óku beint á bensínstöð og
keyptu tvo tíu lítra brúsa af bensíni.
Berry sem var kunnugur á svæðinu
ók út í Lisses-skóg þar sem þau tóku
líkið úr bílnum. Það var orðið
allstíft, en þó tókst þeim að opna
munn þess og hella eins miklu bens-
íni ofan í líkið og það tók við.
Herison kvaðst hafa orðið mest
hissa á að það reyndust nær tíu
lítrar.
Afganginum af bensíninu helltu
þau yfir líkið og fleygðu siðan að því
bolta úr logandi dagblaði. Mikil
sprenging kvað við þegar líkið
sprakk í tætlur og bófamir þrír urðu
allir ataðir ösku og innyflum fyrmm
félaga síns. Þau urðu að skrá sig á
annað hótel til að komast í bað.
Klíkan leysist upp
Þó þremenningamir hefðu ætlað
sér að halda hópinn og uppteknum
hætti framvegis, tók morðið þannig
á þau að þau hittust sjaldnar og
sjaldnar og loks ekkert.
Berry tók bílinn og Herison vissi
ekki hvað var um hann. Herison og
Anna Maria flúðu til Ítalíu þar sem
þau höfðu í hyggju að stoftia fata-
hreinsun fyrir ágóða sinn af ránum.
Opinberlega höfðu þau verið
„saman“ lengi þó Önnu Mariu hefði
ekkert munað um að svala holdleg-
um fýsnum hinna tveggja jafnframt.
Herison hafði lagt fyrir drjúgan
hluta ágóða síns og Önnu Mariu og
hugðist lifa góðu lífi þegar hann
settist í helgan stein. Anna Maria
var hins vegar bara 21 árs og auk
þess sem hún hugsaði ekki um efri
ár ennþá, taldi hún sig alls ekki
glæpamanneskju.
Hún var sannfærð um að ranglátt
efnahagskerfi kallaði á rán af ýmsu
tagi. Hún þóttist ekkert vita um
morðið á Lang en hélt langa ræðu
um baráttu sína fyrir frelsi og kvaðst
nú vera stríðsfangi fasistastjórnar.
Hún sagði Herison svikara við
málstaðinn, en gat þó ekki skýrt
nákvæmlega hver málstaðurinn var.
Þegar ósk hennar um að teljast
pólitískur fangi var neitað, vom þau
Herison ákærð formlega fyrir vopn-
uð rán og aðild að morði.
Herison kvaðst ekki hafa heyrt
neitt frá Berry síðan hann yfirgaf
Frakkland og hefði ekki hugmynd
um hvar hann væri. Anna Maria
kvaðst hins vegar aldrei hafa heyrt
Berry þennan nefndan.
Það var ekki fyrr en í marsbyrjun
að lögreglan í París kom því í verk
að bera fingraför Berrys saman við
skýrslur og sá þá að hann var
eftirlýstur fyrir morð. Þá var hantt
afhentur lögreglunni í Corbeil-
Esonnes fyrir meiri sakir en ávísana-
fals.
Óll fangelsuð
Þegar honum var sýnd játning
Herisons, viðurkenndi hann fljótt
að hafa átt þátt í morðinu. Þó
neitaði hann að hafa skotið Lang og
kenndi Herison um það. Hann væri
óður t peninga og hefði drepið Lang
til að fá þriðja hluta af ágóða hans.
Sérfræðingar lögreglunnar vom
ekki í neinum vandræðum með að
hrekja þetta. Herison var að vísu
glæpahneigður en ekki ofbeldismað-
ur í eðli sínu. Nægar sannanir lágu
fyrir um að hann kynni varla að
halda á byssu, hvað þá skjóta af
slíkri.
Anna Maria söðlaði skyndilega
um og studdi Herison í að það hefði
verið Berry sem skaut Lang. Loks
fór svo að Berry hætti líka að neita.
Þegar þetta er skrifað er áætlað að
réttarhöld yfir þremenningunum
hefjist með haustinu. Fullvíst má
telja að Berry fái lífstfðardóm fyrir
morðið og hin eitthvað minna fyrir
samsekt, en að auki fá þau öll dóma
fyrir vopnuð rán og því næsta víst að
ekkert þremenninganna verður á
ferli næstu áratugina.
HJÓLAGRAFAN
SEM
SKARAR FRAMÚR
BUNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SlMI 38900
MP
Industrial