Tíminn - 10.06.1989, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.06.1989, Blaðsíða 5
Laugardagur 10. júní 1989 HELGIN r 15 fram umfangsmiklar rannsóknir á hinni fyrirhuguðu áveitu og málið var rætt bæði á Alþingi og heima í héraði. Byrjað var á að vinna við Skeiða- áveituna vorið 1917 og henni lokið 1923. Aðalskurður áveitunnar var grafinn með skurðgröfu, hinni fyrstu sem tekin var í notkun hér á landi. Skurðakerfi áveitunnar var 65.591 metri á lengd en að rúmmáli 164.533 tengingsmetrar. Alls er talið að áveitan hafi kostað 458.000 krónur, og er með í þeirri tölu 23.000 krónur, sem bændur voru búnir að leggja í flóðgarða árið 1924. Eftir að farið var að veita á jókst heyfengur verulega og beitiland batnaði víða. Á tímabilinu, sem áveitan var notuð fjölgaði nautgripum verulega og voru bændur þar af leiðandi betur undirbúnir er þeir hófu að selja mjólk. Seinast munu Skeiðamenn hafa heyjað á áveitum svo einhverju næmi 1951, en eitthvað var veitt á lengur. í>egar kom fram um 1950 var framræsla til túnræktar hafin í tals- verðum ‘mæli og þá kom í ljós að ekki var bæði hægt að hefja túnrækt í stórum stíl og nota áveituna jafnframt. Til þess var landið of jafnlent. Áveitan náði til 33 jarða þar af eru tvær í Villingaholtshreppi. Búnaðarfélag Skeiðahrepps var stofnað 1889. Fyrstu verkefni þess munu aðallega hafa verið túnaslétt- un og túngarðahleðsla. Á fyrstu árum þess var mikið um að gerðar væru svonefndar beðasléttur og sást lengi móta fyrir þeim. í fyrstu mun starfsemi félagsins hafa verið í smá- um stíl, en þegar kemur fram yfir aldamótin, fer hún að aukast. Tals- vert var unnið að túnasléttun í félagsvinnu og þá er ofanafristuspað- inn helsta verkfærið allt fram að 1930. Annars er erfitt að rekja sögu félagsins framan af því hluti af gögnum þess er glataður. Árið 1905 eru 17 menn á mælinga- skýrslu og vinna um 500 dagsverk og mest eru það þaksléttur. Árið 1907 eru tveir plógar til í sveitinni og 1913 eru keypt 2 spaðaherfi og þá eru plógar orðnir 4 og nú fer að vinnast meira á og einstöku menn eru farnir að sá grasfræi. Flest árin frá aldamót- um og fram um 1930 mun búnaðar- félagið hafa haft menn í umferða- vinnu sem unnu að jarðabótum. Plóg keypti félagið 1927 og var unnið með honum í nokkur ár. En mönnum fór að finnast að hægt miðaði ræktunarstörfunum ef að mestu væri byggt á mannsaflinu einu með lítilsháttar stuðningi hestafls- ins. í nóvember 1930 er samþykkt að félagið kaupi dráttarvél með tilheyr- andi verkfærum. Búnaðarfélag ís- lands veitti 3.000 kr. lán til kaupanna og 1.500 kr. styrk úr verkfærakaupa- sjóði. Með þessari vél vann félagið í 24 ár og með henni var lokið við að slétta allt þýfið í gömlu túnunum á fyrstu tíu árunum. Árið 1946 gerðist félagið með- stofnandi að Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða. Hefur félagið fyrst og fremst fengið skurðgröfur og jarðýtur frá ræktunarsambandinu, en jarðvinnslan hefur að mestu leyti farið fram á vegum félagsins. Félagið hefur lengi rekið fjöl- breytta starfsemi. Árið 1952 lét það smíða votheysgryfjumót, sem bæði var hægt að nota sem gryfjumót og mót á venjulega beina veggi. Seinna var þessum mótum breytt yfir í Breið- fjörðsmót og hefur mikill hluti af þeim húsum, sem byggð hafa verið síðan í sveitinni verið steypt í þeim mótum. Steypuhrærivél hefur félagið rekið síðan 1955. Árið 1957 keypti félagið turnamót og voru nokkrir turnar steyptir í þeim, en ekki hafa þau verið notuð á seinni árum. Núna á félagið 3 dráttarvélar, sem eru að mestu notaðar til jarðvinnslu. Pað á um 20 tæki stór og smá. Þá rak það í 5 sumur færanlega heykök- verksmiðju ásamt Búnaðarfélagi Hraungerðishrepps og Búnaðar- sambandi Suðurlands. Byggði félag- ið stóra skemmu sem verksmiðjan var geymd í. Félagið hefur mikið gert að því að útvega bændum Guðmundur Jónsson bóndi á Brjánsstöðum 1948-1951 Guðmundur Eyjólfsson bóndi á Húsatóftum 1951-1986 Guðmundur Sigurðsson bóndi Reykhól frá 1986 sáðvörur. Búnaðarfélagið hefur alltaf leitast við að sinna kalli tímans. Það hefur leitast við að vekja bændur til um- hugsunar um nýmæli í búnaði, sem til hagsbóta hefur horft. Á aðal- fundum félagsins hefur það lengi verið venja að fá ráðunauta til þess að ræða um sérfræðileg efni í búnaði. Á þessum fundum hafa bændur verið ódeigir að velta fyrir sér helstu vandamálum búnaðarins á líðandi stund. Þessir menn hafa gegnt for- mennsku í félaginu frá upphafi: Jón Jónsson, hreppstjóri, Skeiðhá- holti, 8 ár Bjarni Jónsson, hreppstjóri, Skeið- háholti, 27 ár Eiríkur Þorsteinsson, Löngumýri, 22 ár Hinrik A. Þórðarson, Útverkum, 3 ár Guðmundur Jónsson, Brjánsstöð- um, 3 ár Guðmundur Eyjólfsson, Húsatóft- unt, 35 ár Guðmundur Sigurðsson, Reykhól, frá 1986 Rekstur félagsins hefur að mestu hvílt á formönnum félagsins og hefur verið mikil vinna að sinna þeim málum, sérstaklega eftir að vélaút- gerð þess fór að aukast. Á seinni árum hefur formanninunt verið greitt lítilsháttar fyrir þá vinnu. §É§tl:M Júníhefti komið út INNLENT Ég vil Davíð á þing................................ 9-15 í ýtarlegu viðtali við Þorstein Pálsson formann Sjálfstæðisflokksins er víða komið við. Þorsteinn rekur m.a. endalok síðustu ríkisstjórnar og fer harkalegum orðum um þáverandi samstarfsmenn sína. Hann fjallar einnig um Sjálfstæðisflokkinn, sem fagnar sextugsafmæli sínu á þessu ári. Núverandi ríkisstjórn fær einnig sinn skammt... HEILBRIGÐISMÁL íslendingar elska Svía. Goðsögninni um „Svfahatur" íslendinga hrundið. Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar um afstöðu íslendinga til annarra þjóða .............................. 16 Friðun Reykjanesskaga...................................... 17 Gífurleg þörf fyrir félagslegar fbúðir..................... 18 Sumar í sveit. Hundruð barna og unglinga úr þéttbýli fara til vinnu og leiks í sveitum landsins. Félag fósturmæðra í sveitum hafa milligöngu um sveitadvöl barna....................................... 20 Skák Fer skákin á hausinn? Áskell Örn Kárason skrifar grein um bága fjármálastöðu í íslensku skákinni.......................... 22 ERLENT Pólland Vopnahlé. Tíðindamaður Þjóðlífs var viðstaddur er Samstaða var lögleyfð og segir frá umdeildu vopnahléi í landinu......... 25 Við tókum áhættu .......................................... 26 Hringborðið á sér öfluga andstæðinga ...................... 27 Bretland Verkamannaflokkur í endurhæfingu........................... 28 Noregur Sundrung á hægri vængnum. Framfaraflokkurinn er líklegur til fylgisaukningar í kosningunum í haust. Sagt frá stöðu norsku stjómmálaflokkanna ....................................... 30 Hitler í hundrað ár..................................... 33-37 Hverjir komu Hitler til valda? Um þessar mundir er öld liðin frá fæðingu hins harðsvíraða einræðisherra í Þýskalandi. í tiiefni af því hafa fjölmiðlar og sagnfræðingar víða um heim rifjað upp söguna og endurmetið hana. Einar Heimisson, sem leggur stund á sagnfræði við háskólann í Freiburg í V—Þýskalandi, skrifar um bakgrunn valdatökunnar og endalok Weimarlýðveldisins.... MENNING Kvikmyndir Magnús — nýr norðri. Spjallað við Þráin Bertelsson kvikmyndagerðar- mann um nýjustu mynd hans, „Magnús“ og íslenska kvikmyndagerð . 39 Kaffileikhúsið í Kvosinni.................................. 43 Karlmenn hafa alltaf verið í skítverkum. Guðrún Túliníus spjallar við Ríkharð Vaitingojer, sem opnað hefur gallerí austur á Stöðvarfirði. 44 Reykingar Et,drekk, reyk ok ver grannr. Óholl aðferð til að halda kjörþyngd . 47 Óbeinar reykingar hættulegar ............................. 47 Fósturvefjalækningar. Umdeild grein læknavísinda.......... 48 Börn alkóhólista. í þessari grein segir frá samtökum fólks í Bandaríkjunum sem ólst upp við alkóhólisma foreldra sinna . 50 VIÐSKIPTI Samruni fyrirtækja. Margir telja að árið 1989 verði „ár samrunans" í íslensku atvinnulífi. Hliðstæðar bylgjur hafa gengið yfir fyrirtæki annars staðar á Vesturlöndum. Oft er verr af stað farið en heima setið. Jónas Guðmundsson hagfræðingur skrifar.................... 53 UPPELDISMÁL Kennaramenntunin mikilvægasta forsenda farsæls skólastarfs. Ásgeir Friðgeirsson ræðir við Jónas Pálsson sálfræðing og rektor Kennaraháskólans ..........................,.................57 Börn eru heimspekingar. Heimsókn á dagvistarheimilið að Marbakka, þar sem uppeldisstarf er byggt upp á skyldum aðferðum og kenndar hafa verið við Reggio Emilia ............................... 60 ÞJÓÐFÉLAGSMÁL Að hafa kvenkynið undir......... 65-67 Steinunn Jóhannesdóttir skrifar grein um ofbeldi gagnvart konum, nauðgun. Steinunn vitnar til þrenns konar nauðgara: Sá reiði, sá ráðríki og sadistinn. Langflestar konur verða fyrir barðinu á „þeim ráðríka". Steinunn byggir grein sína á umfjöllun um þetta efni erlendis og á íslandi... Saklausir dæmdir í fjölmiðlum.................... 68-71 Þegar hið umfangsmikla „Geirfinnsmál“ var uppi, lentu fjórir saklausir menn í þeirri raun að sitja í fangelsi. Halldór Reynisson prestur og fjölmiðlafræðingur rannsakaði umfjöllun Qölmiðla á þessum tíma og hefur unnið þessa grein upp úr ritgerð sem hann skrifaði við bandarískan háskóla... ÝMISLEGT Smáfréttir af fólki ............................... 32 og 38 Smáfréttir af viðskiptum................................ 56 Bamalíf ................................................ 63 Fordfjölskyldan ........................................ 72 Bílar. Ingibergur Elíasson skrifar ..................... 75 Krossgáta............................................... 78 - Spennandi fréttatímarit -

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.