Tíminn - 10.06.1989, Síða 2
12
HELGIN
Laugardagur 10. júní 1989
KAUPFÉL ^SBÚNADi ÖGIN OG ARDEILD
VSAMBA ÁRMÚLA3 REYI 1; . U 1 ^ PJ
Útboð
Skútustaðahreppur óskar eftir tilboðum í uppsteypu
og þaksmíði á suðurhluta grunnskóla í Reykjahlíð
við Mývatn, auk þakfrágangs á norðurhluta hússins.
Grunnflatarmál er um 790 m2, þar af 210 m2 á
tveimur hæðum.
Verkinu skal að fullu lokið 30. september 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Skútustaða-
hrepps, Múlavegi 2, Reykjahlíð og hjá Verkfræði-
stofu Norðurlands, póstbox 4, Akureyri og hjá
Tækniþjónustunni, Garðarsbraut 18, Húsavík, frá
og með mánudeginum 12. júní gegn kr. 10.000,-
skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á Verkfræðistofu Norðurlands
fyrir kl. 14.00, þriðjudaginn 20. júní.
Tilboð verða opnuð þar þriðjudaginn 20. júní kl.
14.00.
Áskilinn réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
Útboð Óshlíð - undirstöður undir grjótnet
''//wm Y Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum (ofangreint V verk. Magn: Undirstöður 40 stk., mótaflötur 450 m2, steypa 85 m3. Verki skal lokið 1. september 1989. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Isafirði og f Reykjavfk (aðalgjaldkera) frá og með 12. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 26. júni 1989.
Vegamálastjóri
Útgerðarmenn
- fiskverkendur
Óskum eftir að kaupa stálfiskirör, mega þarfnast
einhverra viðgerða.
Upplýsingar, Sandur hf., sími 91-673555.
„Veröldfláa
sýnir sig“
einhvern hörmungaratburð. Er líka
ekki annars að vænta en að það hafi
runnið honum til rifja ef einhver af
bakarakúnum hefur orðið bráð-
dauð, því að húsbóndahollari maður
en Jón var vandfundinn. Líka var
það aðalstarf hans um langan aldur
að gæta að kúm Bernhöfts bakara og
því skiljanlegt að áhugamál hans
snérust mikið um þær.
Aftur á móti kunni hann lítinn
mun að gera á kynferði orða, hvað
þá muni á eintölu og fleirtölu. Gekk
því kúahópur húsbóndans í munni
hans allajafna undir samheitinu
„kúin bakarans“.
Haagensen
Annar kynlegur kvistur í Reykja-
vík var Haagensen. Réttu nafni hét
hann Kristján Jónsson, Hákonar-
sonar, og var hann vestfirskur að
ætt. Á nýársdag, sumardaginn fyrsta
og ef til vill á fleiri tyllidögum ár
hvert hafði hann þann sið að ganga
einkennisbúinn fyrir helstu mektar-
menn bæjarins og óska þeim gleði-
legs árs eða gleðilegs sumars. Þessi
einkennisbúningur var heiðblár
klæðisfrakki með skínandi
hnöppum, en buxur ýmislega litar
og stundum leggingar á, en á höfði
bar hann svartan blankhatt.
Á yngri árum hafði Haagensen
Sæfinnur með sextán skó.
haft þann starfa að vera leiðsögu-
maður á dönskum herskipum hér
við land, einkum við Vesturland. í
þeim starfa fékk hann bæði nafnið,
•einkennisbúninginn og hattinn.
Frá mörgu kunni hann auk þess að
segja frá þeim tíma er hann var á
freigátunni, eða þegar hann hafði
verið „til orlogs“ eins og hann komst
að orði, og talaði hann þá jafnan
dönsku eða dönskublending. Þegar
GRÓÐURSKÁLINN-
S9
Gróðurhúsaskálinn hentar vel við
húsvegg. Byggt upp af ál-prófílum 3 mm
gróðurhúsagleri eða 4 mm tvöföldu yl-
plasti.
Stærð: 9,8 ferm. 383x254 cm.
HAGSTÆTT VERÐ
sinpraAstálhf
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 627222
REYKJMIÍKURBORG
£<uiátxi Stödui
Vistheimilið Seljahlíð
Hjallaseli 55
Hjúkrunarfræðingur óskast í sumarafleysingar í
júlí og ágúst.
Upplýsingar gefur Aðalheiður Hjartardóttir í síma
73633.
"" 1 , ' ■■■ 11 .—i j .. : i j r-r—r-—
____ _____________!' ( s i'Lfc-nSit: óij- 'í/t; ^
Haagensen gekk fyrir höfðingja
Reykjavíkur til að færa þeim heilla-
óskir sínar beitti hann ekki heldur
mikið móðurmáli sínu. Einnig
áskotnaðist honum oft drjúgur skild-
ingur í þessum ferðum sínum, þótt
ekki væru þær skoðaðar sem beinar
beíningaferðir.
Korktappar
Víkur þá sögunni að öðru fólki.
Ófeigur Jónsson er maður nefndur,
og bjó hann í bæ sem nefndur var
Melkot og var á stað sem nú er
norðanvert í gamla kirkjugarðinum.
Hann þótti einkennilegur, en meðal
annars safnaði hann öllum kork-
töppum, sem hann gat náð í, brenndi
þá eða steikti í eldi, og át síðan. Þá
var hann afar lúsugur, og gekk sú
saga að hann hefði lýsnar sem viðbit
með töppunum. Hann var lítill mað-
ur vexti, grannur og þótti hinn mesti
illhryssingur.
Auk Ófeigs bjuggu nokkrir fleiri í
Melkoti. Þar bjó Jón „bol, bol“, sem
var eða hafði verið slátrari. Þar
bjuggu einnig Gunna „grallari" og
Manga „skam í auga“. Þótti Gunna
bera langt af þessum hjúum, því að
hún var vel greind, hafði laglega
söngrödd og var dálítið hagmælt.
Var hún því yfirleitt vel látin, en
aftur á móti var hún afar drykkfelld
og fékkst aðallega við vatnsburð hjá
Jörgensen veitingamanni í bænum.
Samlyndi þessara fjórbýlinga var
ekki alltaf upp á marga fiska, og var
Ófeigi mest gefin sök á því. Bar
jafnvel við að sumt af sambýlisfólki
hans varð að flýja bæinn og leita á
náðir nágranna sinna. Einn vetur
var honum gefið það að sök að hann
legði í vana sinn að vekja þetta
sambýlisfólk sitt um nætur og hræða
það á ýmsan hátt, svo sem með
hnífum. Stundum átti hann að hafa
setið uppi í rúmi sínu, verið að brýna
stóran skurðarhníf og látið sér um
munn fara, svo hátt að þau máttu vel
heyra, að ekki teldi hann það mikla
samviskusök „að skera annað eins
hyski niður við trog.“
Skáld í „diplómat"
Þá var Vilhelm eða Vilhjálmur
Hölter vel þekktur í bænum og
reyndar víðar um land. Hann var
mjög drykkfelldur og fremur illa
kynntur, enda þótti hann oflátungur
og montinn í meira lagi. Hann hélt
sig vel í klæðaburði og var venjulega
í svo nefndum diplómatfrakka úr
svörtu klæði, en að vetrarlagi bar
hann dökkbláan yfirfrakka utan yfir.
Flakkaði hann víða um sveitir lands-
ins og vildi láta hafa mikið við sig.
Vilhjálmur var hagmæltur, en
taldi sig stórskáld og vildi láta um-
gangast sig sem slíkan. Ýmsir kveð-
lingar hans þóttu jöfnum höndum
fyndnir og meinlegir. Er sérstaklega
nefndur svo kallaður „píuballs-
bragur“, ortur í tilefni af vinnukonu-
dansleik í Reykjavík, og þótti hann
býsna illkvittinn í garð reykvískra
vinnukvenna sem fjölmenntu á
ballið. Úr honum er þessi vísa eða
vísupartur:
Hallast þeirra höfuðföt
hanga þau á silfurprjónum,
MF
Vélalakk
Hagstættverð
/S BUNABARDEILD
59 BAMBANDBINfl
ARMULA 3 REYKJAVlK SlMI 38900
J.l J .!!!'.!. JJJ.IJ '■V.l1'
I