Tíminn - 24.06.1989, Síða 2

Tíminn - 24.06.1989, Síða 2
2 Tíminn Laugardagur 24. júní 1989 Framkvæmdastjóri Hagvirkis hótar skaðabótamáli og líkir aðgerðum ríkisins við aðgerðir í lögregluríki: „Skotið fyrst, spurt á eftir“ „Ég á ekki orð yfir að ríkið skuli vera að reyna að drepa niður íslenskt framtak í mannvirkjagerð. Við getum ekkert gert annað en beðið og fylgst með hve ríkisvaldinu er fært að ganga langt í að níðast á einstaklingum og fyrirtækjum. Ef við þurfum að búa hér við lögregluríki í stað eðlilegs þjóðlífs er full ástæða að hugsa sinn gang. Ég hélt að ríkið væri fyrir þjóðfé- lagið en ekki öfugt. Við teljum okkur engan söluskatt skulda og finnst óeðlilegt að borga eitthvað sem við skuldum ekki. Ef fyrirtækið hefur þetta af verður örugglega farið í skaðabótamál við ríkið,“ sagði Jóhann G. Bergþórsson fram- kvæmdastjóri Hagvirkis í samtali við Tímann. Skrifstofu fyrirtækisins var í gær lokað vegna vangoldinna söluskatta upp á um 153 milljónir. Hafi skuldin ekki verið greidd á mánudag verður starfseminni lokað. Árs velta er um sautján hundruð milljónir þannig að með hverjum degi sem liði mætti gera ráð fyrir að töpuðust rúmlega 4,6 milljónir króna. Orsök lokananna er aftur- virkur úrskurður og áætlun ríkis- skattstjóra frá 1987, um greiðslu á skatti sem að sögn Jóhanns var aldrei innheimtur. Túlkun lögfræðinga og endur- skoðenda Hagvirkis á söluskatts- lögunum frá 1960 er sú að vinna vélamanna og véla við virkjana- og mannvirkjagerð almennt væri undanþegin söluskatti. „Þar af leið- andi lögðum við ekki söluskatt á þessa þætti vegna framkvæmda á árunum ’81 til ’85,“ sagði Jóhann í samtali við Tímann. Fyrirtækið kærði úrskurðinn og liggur kæran nú hjá ríkisskattanefnd. Fyrir einu og hálfu ári var hafin lögtaksaðgerð á eigum fyrirtækisins en Hagvirki mótmælti á grundvelli samskonar greinargerðar sem var lögð fyrir Hæstarétt. „Þau mótmæli eru nú í dómsmeðferð bæjarþings Hafnarfjarðar. „Venjulega hefur ekki verið gengið hart eftir málum sem eru í dómsmeðferð, því bjugg- umst við alls ekki við þessum aðgerð- um og þykir þær mjög undarlegar og óeðlilegar,“ sagði Jóhann. Hann benti sérstaklega á að sér þættu aðgerðimar undarlegar í ljósi aðgerða ríkisstjórnarinnar vegna at- vinnuieysis í landinu. „Á sama tfma innsigla þeir skrifstofur og stjórn- höfuðstöðvanna í gær. Starfsemin mun að öUum líkindum lamast fljótlega. Tímamynd: Pjetur stöðvar okkar og vega þar með hart að fyrirtæki sem hefur um þrjú hundruð manns í vinnu. Okkur finnst að þetta hljóti að varða við mannréttindalöggjöfina því menn eru dæmdir sekir áður en málið fær eðlilega dómsmeðferð. Það málíkja þessu við villta vestrið, skotið fyrst og spurt á eftir um sekt eða sak- leysi,“ sagði Jóhann. Hann ræddi við fjármálaráðherra í gær en Ólafur lýsti því yfir að í þessu máli yrði viðhöfð full harka og ekki tekið við neinum tryggingum eða öðru slíku, engu nema beinhörð- um peningum. „Þó fyrirtækið sé sæmilega stöndugt höfum við ekkert lausafé til að reiða fram í þessu máli,“ sagði Jóhann. Iðnaðabankinn er viðskiptabanki Hagvirkis. „Bankinn lítur lokunina mjög alvarlegum augum því þama er deilt um túlkun á lögum en ekki er um vanskil á söluskatti að ræða. Þetta eru hálfgerð fantabrögð. Við hjálpum engum fyrirtækjum sem eru í vanskilum vegna söluskatts sem þegar hefur verið innheimtur af borgurunum. En okkur finnst hrika- legt þegar er lokað á meðan deilan er ekki útkljáð," sagði sparisjóðs- stjóri aðalútibús Iðnaðarbankans í samtali við Tímann. jkb Útf lutningur í miklum ólestri Nýjung í íslensku menntakerfi: Járnblendið leggur til prófessors- stöðu við Hl Útflutningur á gámafiski tii Bret- Iands er í miklum ólestri og vinnu- brögð utanríkisráðuneytisins við úthlutun leyfa til útflutnings á ísflski eru algjört kák. Þetta kemur fram í viðtali við Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóra LÍÚ í Fiskifrétt- um, þar sem hann vitnar í skýrslu tveggja veiðieftirlitsmanna frá sjáv- arútvegsráðuneytinu, eftir athugun í byrjun júní. Kristján segir í viðtalinu að í skýrslunni komi fram að ekki sé hægt að sjá nokkurt samhengi milli umsókna, leyfisveitinga og sölu á fiski á mörkuðum. Þá séu vinnu- brögðin öll hin undarlegustu og ekki Merki um lokaða vegi ekki virt: Hálendis- ferðamenn sektaðir Lögreglan á Húsavík hefur síð- ustu daga þurft að hafa afskipti af ferðamönnum, sem þrátt fyrir bann hafa lagt á hálendið. Nokkr- um Svíum á tveimur Lapplander bílum var snúið til baka við Öskju og þýsk stúlka festi bíl sinn illa í Jökulsárgljúfri og er hann þar enn. Sekt var ákvörðuð tíu þúsund krónur á bíl í þessum tilvikum. Lögreglan á Húsavík vill beina þeim tilmælum til hálendisfara að þeir virði bannmerki þau sem sett hafa verið upp víðsvegar við hálendisvegi, sem flestir eru enn lokaðir sökum snjóa. Vegir eru mjög viðkvæmir við þau skilyrði sem nú eru, snjór að fara af þeim og frost að fara úr jörðu. Geta bílar því valdið miklum spjöllum eins og ástandið er nú. sé hægt að sjá að umsækjendum sé alvara þegar þeir sendi inn umsókn- ir. Starfsmenn ráðuneytisins geri sé enga grein fyrir, á hvaða veiðum bátarnir séu sem sótt er um leyfi fyrir. Hann nefnir sem dæmi að þegar athugunin hafi verið gerð, hafi bátar sem stundi humar og langlúru- veiðar en fái hverfandi af þorski eða ýsu, sótt um leyfi. Þá var einnig sótt um leyfi til að flytja út heilan gám fyrir tryllubát og 12 tonn fyrir bát Stjórn BÍ samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi í gær: Stjóm Blaðamannafélags íslands lýsir undrun sinni og furðu á nýfölln- um dómi Sakadóms Reykjavíkur yfir Halli Magnússyni blaðamanni. Blaðamannafélagið áréttar fyrri samþykkt sína þar sem varað er alvarlega við þeirri þróun í átt til ritskoðunar í landinu, að ríkissak- sóknari höfði opinber sakamál á Alþýðubandalagið í Reykjavík mun ekki stofna til hópferðar út á Reykjanes í dag eins og gert hafði verið ráð fyrir. Herstöðvaandstæð- ingar munu aftur á móti halda áfram leiðöngrum stnum og er áætluð hóp- sem verið hafði bundinn við bryggju síðan í byrjun apríl. í títtnefndu viðtali segir Kristján það ekkert launungarmál að útgerð- armenn sem em í gámaútflutningi segi að braskað sé með leyfi. Þá á þann hátt að þeir sem fá leyfi en eiga engan fisk, bjóði útgerðarmönnum sem ekki hafa fengið leyfi hjá ráðu- neytinu í það skipti, að nýta sín leyfi gegn því að borga leyfishafa 2% umboðslaun. - ABÓ hendur einstaklingum á grundvelli 108. gr. hegningarlaganna, vegna umfjöllunar um opinbera embættis- menn í fjölmiðlum. Ekki er hægt að líta á hinn harða dóm Sakadóms á annan hátt en alvarlega tilraun hins opinbera til að hefta gagnrýna umfjöllun um opin- ber málefni og opinbera starfsmenn, á gmndvelli löngu úreltrar lagagrein- ar. Slíkir dómar em tilræði við prentfrelsi og tjáningarrétt. ferð frá Umferðarmiðstöðinni klukkan tíu. Að sögn formanns herstöðvaandstæðinga koma nokkr- ir alþýðubandalagsmenn til með að slást í för með þeim. jkb íslenska járnblendifélagið hf. hef- ur boðið Háskóla íslands að kosta nýja stöðu prófessors í eðlisfræði þéttefnis. Prófessornum er ætlað að stunda frjálsar grundvallarrann- sóknir á sínu sviði en verði jafnframt ráðgjafi íslenska járnblendifélagsins við rannsóknir og þróun fyrirtækis- ins. Prófessorsstaða með þessu sniði er nýmæli hérlendis en tíðkast víða erlendis. Gert er ráð fyrir að staðan verði í upphafi til tveggja ára og verði þá samið um endurnýjun. Framlag Járnblendifélagsins felur í sér laun prófessorsins og ákveðna upphæð sem ætlað er til greiðslu kostnaðar við rannsóknir ofl. Eftir ítarlega umfjöllun innan Háskólans hefur Háskólaráð ákveð- ið einróma að bjóða dr. Þorsteini I. Sigfússyni eðlisfræðingi að taka að sér stöðuna á fyrsta tímabili hennar. Þorsteinn I. Sigfússon er fæddur 1954. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og námi í eðlisfræði við Háskólann í. Kaupmannahöfn hélt hann til Cam- bridge þar sem hann lauk doktors- prófi frá Cavendish Laboratory 1983. Þorsteinn er kvæntur Berg- þóru K. Ketilsdóttur kerfisfræðingi og eiga þau tvö börn. Þorsteinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir rannsóknastörf sín. Hann hefur beitt sér sérstaklega fyrir auknu samstarfi Háskólans og atvinnulífs- ins hér á landi. Þorsteinn hefur undanfarin fimm ár byggt upp aðstöðu til rannsókna í eðlisfræði þéttefnis við Raunvísinda- stofnun. Hann hefur m.a. unnið að rannsóknaverkefnum á eðlisfræði kísiljárnkerfisins en niðurstöður þeirra rannsókna hafa verið nýttar með góðum árangri í rekstri verk- smiðjunnar á Grundartanga. Þorsteinn I. Sigfússon. Utför dr. Jakobs á mánudag Útför dr. Jakobs Jónssonar verður á mánudag. Athöfnin hefst klukkan 13:30 í Hallgríms- kirkju. Stjórn Blaðamannafélagsins um dóm yfir Halli Magnússyni blaðamanni: Tilræði við prentfrelsi Alþýðubandalag- ið situr heima

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.