Tíminn - 24.06.1989, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 24. júni 1989
FRÉTTAYFIRLIT
PEKING - Forystumenn
kínverska kommúnistaflokks-
ins fyrirskipuðu skilyrðislaust
afturhvarf til bókstafstrúar
kommúnismans. í undirbún-
ingi virðist vera fundur hinna
hæst settu í kommúnista-
flokknum til þess að sparka
endanlega og opinberlega um-
bótasinnanum Zhao Ziyand
leiðtoga Kommúnistaflokksins.
Harðlínumennirnir f forysti
kommúnistaflokksins höfðu
betur [ baráttunni við umbóta-
sinnana og tóku Zhao úr um-
ferð og skipuðu sfðan skrið-
drekum á varnarlausa andófs-
menn á Torgi hins himneska
friðar.
LUANA -Jose Eduardo dos
Santos forseti Angóla sagði að
vopnahléssamkomulag hefði
náðst milli marxistastjórnarinn-
ar og skæruliðasveita UNITA
hreyfingarinnar. Það væri
fyrsta skrefið í átt til varanlegs
friðar í Angóla.
MOSKVA - Hundruð sov-
éskra múslíma söfnuðust sam-
an í moskunni í höfuðborg
Azerbaijan til að hylla Ali Akbh-
ar Hasemi Rafsanjani forseta
íranska þingsins og líklega
næsta forseta Irans, en Rafs-
anjani bað bænirnar sínar f
moskunni. Rafsanjani er á
heimleið úr árangursríkri heim-
sókn til Sovétríkjanna þar sem
meðal annars var samið um
aukin samskipti múslíma f
Sovétríkjunu og írana, auk
hernaðarsamvinnu.
MOSKVA - Hópar vopn-
aðra ungmenna hafa reynt að
ráðast á verksmiðjur í Kas-
akhstan til að stöðva þar fram-
leiðslu, auk þess sem þeir
hvetja til verkfalls. Fjórir menn
hafa fallið í kynþáttaátökum í
Kasakhstan að undanförnu.
LONDON - Breska lögregl-
an hefur handtekið þrjá mót-
mælendur sem skvettu hvítri
málningu á F.W. de Klerk sem
að líkindum verður næsti fon-
seti Suður-Afríku. Hann er nú
í heimsókn í Bretlandi og mun
ræða við Margaret Thatcher
forsætisráðherra Breta.
BANGKOK - Tvö þúsund
ungmenni hópuðust í mót-
mælagöngu í miöborg Ran-
goon eftir að herstjórnin í
Burma fordæmdu óvænt Aung
San Suu Kyi leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar.
ÚTLÖND
Barátta Palestínumanna á hernumdu svæðunum komin á nýtt stig:
Bandarískum manni
rænt á Gazasvæðinu
Óþekktir Palestínumenn rændu
bandarískum starfsmanni hjálpar-
stofnunar á hinu hernumda Gaza-
svæði í gær og kröfðust þess að
Palestínumenn sem ísraelar halda
föngnum verði sleppt úr haldi. Tólf
klukkustundum síðar var manninum
sleppt lausum og heilum á húfi.
Frelsissamtök Palestínu höfðu for-
dæmt mannránið og sagt að það væri
vatn á myllu fsraela í áróðursstríðinu
gegn Palestínumönnuni.
Bandaríkjamaðurinn Chris
George að nafni er framkvæmda-
stjóri hjálparsamtakanna „Bjargið
börnunum“, en þau samtök hafa
staðið í hjálparstarfi á meðal Palest-
ínumanna á hernumdu svæðunum á
Vesturbakkanum og í Gaza. Honum
var rænt af skrifstofu sinni í Gaza um
miðjan dag í gær.
Fáeinum klukkustundum síðar
barst skrifstofu Rauða krossins í
Gaza bréf sem undirritað var af
George þar sem ræningjar hans
krefjast þess að öllum Palestínum-
önnum sem handteknir hafa verið
vegna uppreisnar Palestínumanna á
hernumdu svæðunum verði sleppt.
Fyrr yrði George ekki sleppt. Annað
kom þó á daginn.
í yfirlýsingu sem ísraelski herinn
gaf út vegna mannránsins sagði að
menn tengdir PLO, Frelsissamtök-
um Palestínu, stæðu að ráninu og að
öryggissveitir hersins störfuðu í ná-
inni samvinnu við bandarísk yfirvöld
við það að rekja slóð mannræningj-
anna. ísraelskir hermenn settu upp
farartálma og leituðu dyrum og
dyngjum að mannræningjunum og
George þar til honum var sleppt.
Talsmaður bandaríska sendiráðs-
ins í ísrael sagði að George hafi
haldið beint til fjölskyldu sinnar, en
hann býr í palestínska bænum Ram-
allah á Vesturbakkanum, rétt norð-
an Jerúsalem.
Talið er að liðsmenn Hamas sam-
Palestínumenn sem berjast gegn fsraelum á hernumdu svæðunum hafa nú hafíð mannrán til að ná fram kröfum
sínum. Bandarískum hjálparstofnunarmanni var rænt í gær, en síðan sleppt og er það vonandi að mannrán verði
ekki fastur liður í uppreisninni í Palestínu eins og verið hefur í Líbanon um langt skeið.
takanna hafi staðið að baki
mannráninu, en ekki liðsmenn PLO
enda kæmi mannrán sér illa fyrir þá.
Hamas eru skæruliðasamtök sem
byggja á bókstaf íslams og hafa þau
keppt við PLO um hylli Palestínu-
manna á hernumdu svæðunum. Er
talið að Hamas standi að baki ránum
á tveimur t'sraelskum hermönnum á
Gazasvæðinu.
Um þrjúhundruð meðlimir Ham-
as voru handteknir í sérstakri aðför
ísraela á hernumdu svæðunum í
síðasta mánuði og er talið að með
mannráninu hafi ætlunin verið að fá
þá frjálsa.
Óttast er að mannrán þetta gæti
verið upphafið að gíslatökum á her-
numdu svæðunum svipuðum þeim
sem tíðkast hafa í Líbanon.
Spennan milli Palestínumanna og
gyðinga fer sífellt vaxandi. ísraelsk-
ur sagnfræðingur var stunginn til
bana á fimmtudaginn og er talið að
þj óðernissinnaðir Palestínuarabar
hafi framið verknaðinn. Er hann
annar gyðingurinn sem stunginn er
til bana af Palestínuaröbum á einni
viku og virðast gyðingar nú í auknum
mæli fara að gjalda átakanna á
hernumdu svæðunum með lífi sínu.
Þá upplýsti lögreglan í Tel Aviv
að upp hefði komist um öfgasamtök
gyðinga sem skipulagt höfðu árásir á
Palestínumenn í kjölfar þess að
lögreglan handók gyðing sem gerði
skotárás á Palestínumenn á her-
numdu svæðunum á fimmtudag.
Ráðstefna um öryggi og samvinnu í Evrópu:
Stjórnarmyndunar-
viðræður ganga
lítt á Grikklandi
Konstantín Mitsotakis leiðtoga
hægri manna á Grikklandi mistókst
að mynda samsteypustjóm á
Grikklandi og hefur Papandreou
forsætisráðherra nú fengið umboð-
ið, en hann og sósíalistaflokkur
hans biðu nokkuð afhroð í kosn-
ingum sem fram fóm í Grikklandi
á sunnudaginn. Þá missti fyrrver-
andi ríkisstjórn meirihluta sinn.
Papandreou fær nú þrjá daga til
að mynda starfhæfa meirihluta-
stjórn á Grikklandi. Ef honum
tekst það ekki mun Harilaos Flor-
akis leiðtogi bandalags kommún-
ista fá umboðið til þriggja daga.
Litlar líkur eru talda á að Pap-
andreou nái að mynda stjórn.
Hann er nú á sjúkrahúsi með
öndunartruflanir og slæmt kvef og
ekki er langt um liðið frá því hann
gekkst undir hjartaaðgerð.
Það var Nýi lýðræðisflokkurinn
með Mitsotakis sem hlaut flest
atkvæðin í kosningunum á sunn-
udaginn. Hann hlaut 145 þingsæti
á meðan sósíalistabandalag Pap-
andreous hlaut aðeins 125. Nýtt
kosningabandalag kommúnista
hlaut 28 sæti á þinginu og er í
lykilaðstöðu og má telja nokkuð
Papandreou beið afliroð í kosning-
unum á Grikklandi á sunnudaginn.
víst að kommúnistar hljóti ráðherr-
aembætti í fyrsta sinni frá því í
þjóðstjórn sem starfaði stuttan
tíma árið 1944 eftir að Þjóðverjar
höfðu verið hraktir frá Grikklandi.
Reyndar var kommúnistaflokkur-
inn bannaður á Grikklandi á árun-
um 1945 til 1974, svo ekki hafa
tækifærin verið mörg.
Kommúnistar segjast vilja þjóð-
stjórn á Grikklandi þar sem allir
flokkarnir þrír skipti með sér ráðu-
neytum. Því slitnaðu upp úr stjórn-
armyndunarviðræðum Nýja lýð-
ræðisflokksins og kommúnista,
auk þess sem skoöanaágreiningur
er gífurlegur, enda heill sósíalista-
flokkur á milli.
Sovétmenn gagnrýna
rúmenskan gaddavír
Sovétmenn tóku í gær undir gagn-
rýni flestra ríkja Vesturlanda á að-
gerðir Rúmena sem nú eru að byggja
rammgerðar gaddavírsgirðingar á
landamærum Rúmeníu og Ung-
verjalands.
Gagnrýni Sovétmanna kom fram
á ráðstefnu um mannréttindamál
sem nú er haldin í París. Svar
Teodors Melescanu formanns sendi-
nefndar Rúmeníu á ráðstefnunni
var skýrt. Hann sagði gagnrýnina
staðlausa og sagði sendinefndum
hinna 35 ríkja sem sækja ráðstefn-
una að hugsa um eigin mál og vera
ekki að skipta sér af framferði Rúm-
ena.
- Ég vil nota þetta tækifæri og vísa
á bug þeim algerlega staðlausu ásök-
unum sem snerta efnahag, félagslegt
og stjórnmálalegt ástand í landi
mínu, sagði Teodor á lokafundi
Ráðstefnu um öryggi og samvinnu í
Evrópu.
Rúmenar hafa verið harðlega
gagnrýndir fyrir mannréttindabrot,
en miklar ofsóknir hafa verið á
hendur Ungverjum í Rúmeníu, auk
þess sem þúsundir manna hafa verið
flæmdar frá þorpum sínum sem
síðar hafa verið jöfnuð við jörðu.
Önnur aftaka í Nevada
Önnur aftakan á einni viku fór
fram í ríkisfangelsinu í Nevada í
gær. Hinn 28 ára gamli Sean Flana-
gan var svæfður svefninum langa
með sérstakri eitursprautu, en sá
háttur er hafður á þegar rnenn eru
teknir af lífi í Nevada.
Flanagan sem seldi karlmönnum
lfkama sinn var dæmdur til dauða
fyrir að hafa kyrkt tvo viðskiptavini
sína, enda hataði Flanagan homma
þó að hann seldi þeim líkama sinn
sér til framfæris.
Sálfræðingur sem stundað hefur
Flanagan, sem er fyrrverandi sjóliði,
sagði að Flannagan hafi verið mór-
alskur og rómantískur menningar-
snauður ruddi í anda Rambó.
Flanagan limaði í sundur annað
fórnarlamb sitt sem hann myrti í
fyrra.
Flanagan bað um dauðadóm á
sínum tíma, þar sem hann óttaðist
að hann myndi myrða aftur. Hann
skírðist aftur til kristinnar trúar í
fangelsinu. Eftir það sagðist hann
sjá eftir morðunum sem framin voru
í október á síðasta ári og fór fram á
að dauðadómnum yrði breytt í ævi-
langt fangelsi.
En Flanagan skipti um skoðun og
taldi dauða sinn Guðs vilja.