Tíminn - 24.06.1989, Side 13
Laugardagur 24. júní 1989
Tíminn 25
lllllllM MINNING llllllllllllM
Þorbergur
Þorsteinsson
Fæddur 2. október 1908
Dáinn 20. maí 1989
Mig langar til að minnast með
nokkrum orðum vinar míns Þor-
bergs Þorsteinssonar, sem andaðist
á Sjúkrahúsi Skagfirðinga á Sauðár-
króki 20. maí 1989. Hann fæddist á
ísafirði 2. okt. 1908, sonur Þorsteins
Magnússonar frá Gilhaga á Fremri-
byggð, sem var bóndi allvíða í
Skagafirði, og Sigríðar Benedikts-
dóttur frá Syðra-Skörðugili á Lang-
holti, sem áður var gift Pétri Péturs-
syni bónda á Grímsstöðum í Svart-
árdal, en síðar Hannesi Kristjáns-
syni bónda í Hvammholti í Tungu-
sveit. Stóðu að Þorbergi traustar og
greindar bændaættir í Skagafjarðar-
sýslu, með nokkru húnvetnsku og
eyfirsku ívafi. í föðurætt var hann
náskyldur Sfmoni Bjarnasyni Dala-
skáldi, en einn forfeðra hans í móð-
urætt var Gísli Konráðsson sagnarit-
ari og hreppstjóri Seylhreppinga.
Þorbergur ólst upp hjá móður
sinni og stjúpa og fermdist frá þeim
með ágætum vitnisburði árið 1923.
Var hann hjá þeim í Hvammkoti til
1929, en síðan um skeið vinnumaður
hjá prestshjónunum Tryggva Kvar-
an og Önnu Grímsdóttur á Mælifelli
á Fremribyggð. Hinn 30. maí 1936
gekk hann að eiga fósturdóttur
prestshjónanna, Guðríði Helgu
Hjálmarsdóttur, sem fæddist á
Grímsstöðum í Svartárdal 30. jan.
1912 og enn er á lífi á Sauðárkróki.
Eignuðust þau Þorbergur og Guð-
ríður fjögur böm, sem til aldurs
komust, og eru þau öll uppkomin og
eiga afkomendur.
Þorbergur var bóndi á Mælifelli á
Fremribyggð 1936-38, í Hvamms-
koti í Tungusveit 1938-39, á Steins-
stöðum í Tungusveit 1939-40, á
Brenniborg á Neðribyggð 1940-45
og á Sauðá í Borgarsveit 1945-56, að
hann brá búi, og var kenndur við þá
jörð æ síðan. Þorbergur sleit sam-
vistum við konu sína árið 1956 og
var eftir það verkamaður á ýmsum
stöðum, til sjávar og sveita. Fyrst lá
leiðin til Keflavíkur, þar sem hann
vann eigi allskamma hríð hjá Kefla-
víkurbæ. Eignaðist hann þar marga
vini og velunnara og hygg ég að á
engan sé hallað, þó þar séu öðrum
fremur nefndir Danival Danivalsson
kaupmaður, Gísli Þorsteinsson
verkamaður, Hilmar Pétursson fast-
eignasali, Sigtryggur Árnason yfir-
frá Sauðá
lögregluþjónn og Valtýr Guðjóns-
son bankastjóri. Síðar var Þorbergur
verkamaður í Vestmannaeyjum og í
Vík í Mýrdal, svo eitthvað sé nefnt,
og um skeið var hann ráðsmaður hjá
Gróu Kristjándóttur á Hólmi í Aust-
ur-Landeyjum. Nafngreini ég það
fólk, sem að framan er talið, vegna
þess að ég veit að Þorbergi var mjög
hlýtt til þess. Síðustu æviárin átti
Þorbergur heima á Sauðárkróki og
var þá sestur í helgan stein.
Þorbergur var alla tíð erfiðismað-
ur, bóndi, síðar verkamaður, einn af
þeim fjölmörgu, sem skapa hin raun-
verulegu verðmæti, sem eru undir-
staða þjóðarbúsins. Hann var gáfað-
ur maður og á sumum sviðum af-
burðagreindur, dável sjálfmenntað-
ur og mjög víða heima. Virtist mér
hægt að halda uppi samræðum við
hann um nálega allt milli himins og
jarðar. Hann var afar sjálfstæður í
hugsun og skoðunum, svo að engum
tjóaði að ætla að hafa áhrif á hann,
sérvitur og einþykkur, og mættum
við gjarnan eiga fleiri menn búna
þeim eðliskostum nú á tímum, þegar
samheimska og skriðdýrsháttur fyrir
viðteknum viðhorfum virðist vera
að tröllríða þjóðfélaginu. Menn sem
vinna gervistörf inni á stofnunum
voru Þorbergi framandi, og þá ekki
síður þeir, sem liggja hundflatir fyrir
erlendum menningaráhrifum og
ásælni. Með slíkum mönnum átti
hann enga samleið. Hann var mikill
íslendingur og unni heilshugar öllu,
sem íslenskt er - mannlífinu, arf-
leifðinni og umfram allt tungunni og
sjálfstæði þjóðarinnar. Hann talaði
mjög kjarnyrt og vandað íslenskt
mál og var auk þess prýðilega hag-
orður allt frá unga aldri, og víða
kunnur fyrir hagmælsku sína. Ekki
hélt hann kveðskap sínum til haga
sem skyldi, og er það skaði, en ein
ljóðabók eftir hann leit þó dagsins
ljós um síðustu áramót.
Þorbergur var húmoristi fram í
fingurgóma og ber kveðskapur hans
þess glögg merki. Hann var mann-
blendinn og hafði gaman af því að
spjalla við fólk um daginn og veginn.
Kærasta umræðuefni hans mun hafa
verið skáldskapur og sögur úr dag-
lega lífinu, fyrr og nú. Hann aðhyllt-
ist eingöngu hefðbundinn íslenskan
kveðskap, þar sem rím, stuðlar og
höfuðstafir skipa öndvegissess, og
áttu atómskáldin ekki upp á pall-
borðið hjá honum. Hann kunni
ógrynni af kveðskap, bæði eftir sjálf-
an sig og aðra, sem hann hafði
gjaman á takteinum, og fjöldann
allan af gamansögum, gömlum og
nýjum. Þorbergur var vínmaður
mikill og manna skemmtilegastur
með víni. Voru það mér og fleirum
sannkallaðar ánægjustundir að sitja
og rabba við gamla manninn þegar
guðaveigar lífguðu sálaryl og hygg
ég að gáfur hans, fyndni og orð-
heppni hafi aldrei notið sín betur en
einmitt þá.
Þorbergur var skapstór maður og
gat verið heiftrækinn í orði, ef
honum fannst sér misboðið, en ekki
mun sú heiftrækni hafa rist djúpt og
sjaldan eða aldrei mun hann hafa
fylgt henni eftir í verki. Hann var
góðmenni að eðlisfari, tók jafnan
málstað lftilmagna og hændust börn
mjög að honum. Hann var trygg-
lyndur og langminnugur á það, sem
honum var gert til góða, og eins á
hitt, sem honum var gert á móti.
Aldrei batt hann bagga sína sömu
hnútum og samferðamenn. Þrátt
fyrir þverbresti, sem ég og fleiri
töldum okkur verða vara við í skap-
gerð Þorbergs og tilfinningalífi, er
það mála sannast, að flestum eða
öllum, sem höfðu af honum persónu-
leg kynni, mun hafa verið hlýtt til
hans. Kom þar til að Þorbergur bar
mikla persónu, var allajafna hinn
skemmtilegasti í umgengni og hafði
góðan mann að geyma, þegar á
reyndi.
Þorbergur safnaði ekki jarðnesk-
um auði, hann hafði þroskaðra verð-
mætamat en svo , en andlegum
gildum hélt hann vel til haga. Ekki
gekk hann menntaveginn, og hefur
þó margur fetað þann stig með
minna veganesti en Þorbergur hlaut
í vöggugjöf. Hins vegar auðgaði
hann líf samferðamanna sinna. með
kímnum og upplífgandi kveðskap,
gáfulegum og hnyttilegum athuga-
semdum um menn og málefni, oft
leiftrandi, og þeirri sönnu góð-
mennsku sem kemur frá hjartanu.
Auk þess hafði hann mannrænu í sér
til að láta sér líða vel við nautn
áfengra drykkja. Slíkir menn verja
lífi sínu vel, því verður ekki á móti
mælt.
Guðmundur Sigurður Jóhannsson
FRIGG
60ÁRA
í tilefni af 60 ára afmæli Sápugerð-
arinnar Frigg afhenti stjórn Félags
matvörukaupmanna Frigg viður-
kenningu fyrir vöruvöndun og góða
þjónustu við félagsmenn. Á mynd-
inni sést Júlíus Jónsson, formaður
Félags matvörukaupmanna, af-
henda Jóni Þorsteini Gunnarssyni,
framkvæmdastjóra Frigg, viður-
kenninguna.
Skrifstofustjóri
Búnaðardeild Sambandsins óskar að ráða skrif-
stofustjóra.
Starfssvið skrifstofustjóra felur í sér m.a. bókhald
og tölvumál deildarinnar ásamt skrifstofu- og
fjármálastjórn.
Leitað er að manni með viðskiptafræðimenntun
eða víðtæka reynslu á þessu sviði.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist starfsmannastjóra er veitir
nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 30. þessa mánaðar.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
Landsbyggðarfólk
Óskum eftir að komast í samband við fólk úti á
landsbyggðinni sem getur útvegað okkur ýmsar
jurtir og annað, t.d. blóðberg, fjallagrös, söl og
fleira.
Upplýsingar í síma 27058 og 623220.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Jakob Jónsson
fyrrverandi sóknarprestur
sem lést á Djúpavogi 17. júní, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju,
mánudaginn 26. júní kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hallgrímskirkju, Reykjavík.
Þóra Einarsdóttir
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir Hans W. Rothenborg
Svava Jakobsdóttir
Þór Edward Jakobsson
Jón Einar Jakobsson
barnabörn og barnabarnabörn
Jón Hnefill Aðalsteinsson
Jóhanna Jóhannesdóttir
Gudrun Jakobsson
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
sonar okkar og bróður
Trausta Geirs Hreinssonar
Fáskrúðsfirði
Hreinn Hermannsson Valdís Þórarinsdóttir
Ásmundur Þór Hreinsson Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir
Pétur Gauti Hreinsson
t
Alúðarþakkir til þeirra fjölmörgu sem hafa sýnt okkur samúð og
vinarþel vegna andláts
Ásgeirs Ósmanns Valdemarssonar
Holtsmúla, Landsveit
Jóna Lilja Marteinsdóttir
Halldóra S. Ásgeirsdóttir
Hjördís Björk Asgeirsdóttir
Erna Hrönn Ásgeirsdóttir
ValdemarTrausti Ásgeirsson
og barnabörn.
Roar Aagestad
Pétur Þorvaldsson
Víglundur Kristiánsson
Hallfríður Ósk Óladóttir