Tíminn - 04.07.1989, Page 9
Þriðjudagur 4. júlí 1989
Tíminn 9
FRÉTTAYFIRLIT
DAMASKUS - Nabih Berri
leiðtogi herflokka múslíma (
Líbanon saaði að Kbanskar
sveitir vopnáora múlsíma sem
njóta stuðninps Sýrlendinga
væru reiðubunar að hefja
vopnahlé nú þegar, en sveitirn-
ar eiga í hörðum bardöqum við
kristna hermenn í Líbanon.
Hins vegar kæmi ekki til mála
að opna leiðir að höfnum krist-
inna manna.
BÚDAPEST -JanosKadar
fyrrum leiðtogi ungverskra
kommúnista var fluttur á
sjúkrahús með alvarlega
lungnabólgu. Kadar var for-
sætisráðherra Ungverjalands
allt frá þvf uppreisnin f Ung-
verjalandi var brotin á bak aftur
árið 1956 þar til í fyrra þegar
honum var vikið frá völdum af
umbótasinnum. Kadar á í al-
varlegum öndunarerfiðleikum
auk þess sem blóðrásin erekki
eins og best væri á kosið.
LONDON - Sir Geoffrey
Howe utanrfkisráðherra Bret-
lands skellti hurðinni á fbúa
Hong Kong með þvf að lýsa
yfir að Bretar myndu ekki taka
við fbúum nýlendunnar þó erf-
iðleikar steðji að þegar Hong
Kong fer undir kínverska stjórn
árið 1997.
WASHINGTON - Hæsti-
réttur Bandarfkjanna hafa
staðfest strangari túlkun áfóst-
ureyðingarlögqjöfinni f Banda-
ríkjunum, meo því að veikja
réttarstöðu kvenna til fóstur-
eyðingar. Hins vegar er réttur
sá er konum var fenginn til
fóstureyðinga árið 1973 ekki
afnuminn.
SAN SALVADOR -
Vinstri sinnaðir skæruliðar f El
Salvador réðust á fbúðahverfi
hermanna í San Salvador með
eldflaugaárásum og vélbyssu-
skothríð.
ÚTLÓND lllllllfllllllllllllllllli
Lech Walesa og félagar hans í Samstöðu með sigurmerkið á Iofti. Nú vilja þeir leiða nýja ríkisstjóm í Póllandi i
skiptum við stuðning við forsetaframbjóðanda kommúnistaflokksins.
Pólland:
Samstaða vill
í ríkisstjóm
Samstaða hefur lýst yfir vilja sínum tii þess að mynda nýja
ríkisstjóm í Póllandi í stað þess að styðja forsetaefni
kommúnistaflokksins í forsetakosningunum sem fram fara í
vikunni
Háttsettur sovéskur embættis-
maður skýrði frá því í gær að
Sovétríkin muni halda uppi vinsam-
legum samskiptum við Pólverja þó
að hin frjálsu verkalýðssamtök
myndi meirihlutastjóm, svo allar
aðstæður ættu að vera fyrir hendi til
þess að Samstaða brjóti blað í sögu
austantjaldsríkjanna með myndun
ríkisstjórnar sem ekki er undir stjóm
kommúnista.
Óstaðfestar heimildir herma að
nokkrir leiðtogar ríkisstjómar
kommúnista hafi um helgina lýst sig
reiðubúna til að ný ríkisstjóm verði
mynduð undir forsæti fulltrúa Sam-
stöðu og hafa þeir stungið upp á
Bronislaw Geremek, 57 ára gömlum
prófessor, sem forsætisráðherra, en
Geremek er einn af helstu stjórn-
málaleiðtogum Samstöðu.
Kommúnistaflokkurinn mun að
öllum líkindum útnefna Czeslaw
Kiszczak innanríkissráðherra sem
forsetaframbjóðanda sinn eftir að
Jamzelski núverandi forseti hafði
mælt með honum. Talið var að
Jamzelski myndi verða valinn fram-
bjóðandi, en hann sagði sjálfur að
landsmenn tengdu hann um of við
herforingjastjómirta og herlögin sem
sett vori 1981 þannig að framboð
hans væri ekki skynsamlegt.
Kiszcazak er frekar vinsæll í Pól-
landi þó hann hafi átt þátt f að koma
á fót herlögum árið 1981, en Kisz-
czak hefur verið einn helsti samn-
ingamaður ríkisstjómarinnar í
samningum við Samstöðu um þær
stjómmálaumbætur sem orðið hafa
að undanförnu.
Kommúnistaflokkurinn hefur
ekki enn ákveðið hvort Kiszczak
verði forsetaframbjóðandi þeirra
eður ei, og leppflokkar hans undan-
fama áratugi, Bændaflokkurinn og
Lýðræðisflokkurinn, hafa tekið sér
umhugsunartíma um það hvort þeir
styðji Kiszczak. Því er Samstaða f
lykilaðstöðu í forsetakosningunum
með alla fulltrúa í efri deild þingsins
ogfjórðung fulltrúa í neðri deildinni.
Hugmyndin um að Samstaða byð-
ist til þess að styðja Kiszczak til
forsetaembættisins í stað þess að
Samstaða fái embætti forsætisráð-
herra kom upp á fundi 260 mið-
stjórnarfulltrúa Samstöðu á laugar-
daginn. Tilboð þeirra var birt í
dagblaði Samstöðu í gær.
- Slíkur forseti kommúnista
mundi tryggja nauðsynleg áfram-
haldandi áhrif kommúnista, samn-
ingastöðu á alþjóðavettvangi og
tryggja áframhaldandi hernaðar-
samvinnu, sagði f grein Michknik
ritstjóra Gazeta Wyborcza þar sem
tilboð Samstöðu er reifað.
- Slík ríkisstjórn Samstöðu myndi
hafa stuðning mikils meirihluta Pól-
verja og tryggja áframhaldandi úr-
bætur í efnahagsmálum og stjóm-'
málum. Slíkt samkomulag yrði Pól-
verjum og heiminum öllum til fram-
dráttar, skrifaði Michknic.
Gromyko
látinn
Fyrrum utanríkisráðherra og for-
seti Sovétríkjanna Andrej Gromyko
lést á sunnudaginn 79 ára að aldri.
Mikhafl Gorbatsjof skýrði sovéska
þinginu frá þessu í gærmorgun og
risu sovésku þingmennimir úr sætum
sínum og þögðu um stund til að
minnast Gromykos.
Ekki er vitað hvað varð Gromyko
endanlega að bana, en hann gekkst
undir uppskurð fyrir helgina en þá
var hann ekki talinn í lífshættu.
Prátt fyrir dauða Gromykos sem
var utanríkisráðherra Sovétríkjanna
allt frá því á tímum Stalíns þar til
Gorbatsjof komst til valda og lét
kjósa Gromyko forseta, þá mun
Gorbatsjof ekki fresta opinberri
heimsókn sinni til Frakklands, en
hún átti að hefjast á fimmtudag.
Gromyko lét af embætti forseta
síðastliðið haust þegar Gorbatsjof
tók við og í aprílmánuði var honum
einnig vikið úr miðstjórn flokksins
þegar hundrað fulltrúar frá tíma
Leoníds Brésnefs vom látnir taka
pokann sinn.
Flokkur Unos
bíður afhroð
Pað blæs ekki byrlega fyrir
Frjálslynda lýðræðisflokkinn sem
fer með stjórnartaumana í Japan.
Flokkurinn galt mikið afhroð í
borgarstjómarkosningum sem
fram fóru í Tokyo á sunnudaginn.
Flokkurinn tapað 20 sætum í
borgarstjórn hlaut aðeins 43 sæti
af 128 en hafði 63 sæti fyrir
kosningar.
Þessi úrslit eru enn eitt áfallið
í hrakfallasögu flokksins að
undanfömu. Fyrst var það hið
mikla fjármálahneyksli í kringum
Recmit-fyrirtækið sem neyddi
Nobum Takeshita að segja af sér
forsætisráðherraembættinu, en
áður höfðu nokkrir ráðherrar
þurft að taka pokann sinn.
Ekki tók betra við þegar Sos-
uke Uno tók við forsætisráð-
herraembættinu, eftir að leitað
hafði verið rauðu Ijósi eftir arf-
taka Takeshita sem ekki væri
viðriðinn fjármálahneykslið. Það
var Uno ekki, en þess í stað kom
upp á yfirborðið að Uno var
viðriðinn kynlífsneyksli sem allt
hefur gert brjálað í Japan og sér
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn nú
fram á að missa meirihluta sinn í
japanska þinginu sem hann hefur
haft í 34 ár.
Það var Sósíalistaflokkur Jap-
ans sem vann flest þingsætin af
Frjálslynda lýðræðisflokknum,
hlaut 29 sæti en hafði 11. f
forsvari fyrir Sósíalistaflokkinn
er Takako Doi sem er eina konan
sem náð hefur langt í forystu-
sveitir japanskra stjómmála-
flokka.
Skammtímaríkisstjórn
íhaldsmanna og komma
Papandreou og sósíalista-
flokkur hans verða undír
smásjá íhaldsmanna og
komma næstu mánuði, en
um helgina var mynduð sam-
steypustjórn hins hægri sinn-
aða Nýja lýðræðisflokks og
bandalags kommúnista í
Grikklandi. Helsta stefnu-
mál hinnar nýju ríkisstjómar
er að rannsaka niður í kjölinn
tneinta fjármálaspiHingu
sósíalista sem hafa verið við
völd í Grikklandi undanfarin
ár.
Kommúnistar ákváðu að ganga til
samstarfs við Nýja lýðræðisflokkinn
eftir að Constantin Mitsotakis leið-
togi íhaldsmanna dró til sig baka
sem forsætisráðherraefni og lagði til
að samflokksmaður hans, fyrrum
kafbátaforinginn Tzannis Tzanneta-
kis yrði forsætisráðherra. Eftir mara-
þonviðræður Mitsotakis og Hari-
faosar Florakis um hel|ina var ný
ríkisstjórn mýhduðT ’Kommúhístar’
fengu dómsmálaráðuneytið og
innanríkisráðuneytið í sinn hlut og
mun því vera í fararbroddi í rann-
sókn fjármálaspillingarinnar.
Aftur á móti fær Nýi lýðræðis-
flokkurinn tuttugu ráðuneyti, enda
hafa þeir 145 þingsæti á móti 28
þingsætum kommúnista.
Gert er ráð fyrir að stjómin muni
einungis sitja í þrjá mánuði á meðan
flett er ofan af sósíalistum og að
kosningar verði haldnar í septem-
berlok eða byrjun októbermánaðar.
Papandreou fráfarandi forsætis-
’ráðhe’rra' bg léibtógi sösíalista var
ekki par hrifinn af hinni nýju ríkis-
stjóm:
- Nýi lýðræðisflokkurinn og
Kommúnistabandalagið hafa mynd-
að samsteypustjórn íhaids og hefni-
gimi einungis til að skaða sósíalista-
flokkinn, sagði Papandreou sem er
óðum að jafna sig eftir lungnabólgu
sem þvingaði hann inn á sjúkrahús í
kjölfar kosninganna.
Átta ráðherrar sósfalista urðu að
segja af sér í fráfarandi ríkisstjórn
vegna tengsla sinna við alvarlegt
fjármálahneyksU ( GrikklapdL . . .