Tíminn - 04.07.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminni
Þriðjudagur 4. júlí 1989
Þriðjudagur 4. júlí 1989
Tíminn 11
Þeystu á 2%
•W
Austfirskir hestamenn héldu fjórð-
ungsmót sitt við Iðavelli eða á Stefánsvelli
dagana 29. júní til 2. júlí sl. Svæðið er
orðið mjög gott til mótshalds og er
austfirskum hestamönnum óskað til ham-
ingju með þetta góða mótssvæði á hinum
undurfagra stað í landi Vallaness á
Völlum. Veðrið var eins og best var á
kosið á sunnudaginn, sem var síðasti
keppnisdagur mótsins og komst hitinn í
19 stig í sunnanáttinni. Einhverja nóttina
áður hafði hann þó dottið á með frost.
Sex hestamannafélög á Austurlandi
stóðu að mótinu og var það haldið á svæði
hestamannafélagsins Freyfaxa, sem var
einnig mest áberandi á sýningunum með
hestamannafélaginu Hornfirðingi. í
hópreiðinni mættu Hornfirðngarnir í
rauðum skartklæðum og þreyttist þulur
mótsins aldrei á að hrósa þeim fyrir
glæsilega sýningu. Önnur hestamannafé-
lög voru Geisli, Blær, Goði og Glófaxi.
Einn stóðhestur var sýndur með af-
kvæmum, Flosi 966 frá Brunnum og hlaut
hann einkunnina 7,87. Hann er afburða
gæðingur sjálfur en erfðafestan ef til vill
ekki nógu mikil. Almennt var að heyra á
hrossaræktarráðunautnum Þorkatli
Bjarnasyni, að ræktunin væri í nokkurri
lægð á Austurlandi um þessar mundir.
Stendur það vafalaust til bóta, enda
landsmót í Skagafirði á næsta ári.
Tvær hryssur voru sýndar með afkvæm-
um Bára 447 frá-Ketilstöðum og Ljóns-
löpp 3882 frá Skorrastað. Fengu þær
einkunnirnar 7,82 og 7,61. Efstur ein-
stakra sýndra stóðhesta var Bjartur frá
Egilsstöðum með einkunnina 7,79. Hann
er í eigu Vigdísar M. Sveinbjörnsdóttur,
Dagfinnssonar ráðuneytisstjóra og dótt-
urdóttur Hermanns Jónassonar forsætis-
ráðherra. Hefur hún nú borið áhuga
feðra sinna á góðhestum til Austurlands.
Annar stóðhestur fjögurra vetra var sýnd-
ur úr Hornafirðinum, Dofri frá Höfn í
eigu Guðmundar Jónssonar. Hlaut hann
einkunnina 7,59.
Af einstökum hryssum 6v og eldri stóð,
efst Vissa frá Hálsi í Kjós, eink. 8,13 og'
af einstökum hryssum 5v stóð efst Hekla
frá Gerði í Suðursveit, eink. 7,82. Vakn-
ing frá Ketilsstöðum var aftur á móti efst
4v hryssa, eink. 7,89.
Ketilsstaðabúið stóð að glæsilegri sýn-
ingu ræktunarbúa og einnig voru sýnd
hross undan gæðingshryssunni Eldingu
3364 frá Jaðri í eigu bræðranna Þorbergs
Bjarnasonar í Gerði og Ingimars Bjarna-
sonar í Jaðri.
Örvar frá Ketilstöðum stóð efstur al-
hliða gæðinga, eink. 8,47. Eigandi og
knapi er Bergur Jónsson. Annar var Jörfi
Ágústs Ólafssonar, eink. 8,27, knapi
Trausti Þór Guðmundsson og þriðji var
Sikill Sigurðar Sveinbjörnssonar, eink.
8,27 og sýndi Ragnar Hinriksson hestinn.
Anna Bryndís Tryggvadóttir sat svo gæð-
ing sinn og Erlu Jónsdóttur, Svertu, til
fjórða sætis, eink. 8,16.
Ragnar Hinriksson sat líka efsta hest í
B-flokknum og var það Gauti Elínar
Sveinbjörnsdóttur, eink. 8,24. Vann
Ragnar klárinn upp um tvö sæti í úrslita-
keppninni, enda frábær reiðmaður og
fyrrverandi Evrópumeistari í reið-
mennsku. Ragnar sat líka efsta hest á
fjórðungsmóti Vesturlands á Kaldármel-
um í fyrra. Gunnar Arnarson sat annan
hest í B-flokknum, var það Prati Þor-
steins Kristjánssonar, eink. 8,37. Þriðji
var Huginn Hallgríms Bergssonar, eink.
8,16 og knapi var Bergur Jónsson. Fjórði
B-flokks gæðingurinn var svo Glymur
Jens Einarssonar, ritstjóra Hestsins okk-
ar og sat hann hestinn sjálfur, eink. 8,25.
Börn úr hestamannafélaginu Blæ og
Freyfaxa voru sigursæl í barnaflokki og
sigraði Erna Þorsteinsdóttir úr Blæ á
Jarli, eink. 8,21. Kári S. Gunnarsson úr
Freyfaxa varð númer tvö á Gúlpó Garró,
eink. 8,20.
í unglingaflokkinum sigaraði Bára
Garðarsdóttir úr Freyfaxa á Tvist, eink.
8,40, og annar var Jón E. Sveinsson
einnig úr Freyfaxa á Sóloni, eink. 8,20.
Ekki urðu tímar á landsmælikvarða í
kappreiðunum, enda mótvindur og ís-
landsmet í engri hættu. Einhver móts-
gesta sagðist verða í sumarfríi til
14.ágúst, „eða um það leyti sem stökk-
hestarnir í 800 metrunum koma í mark“,
enda lægi honum ekkert á fyrst hann væri
kominn í Mæjorkaveðrið á Héraði. í 250
m hlaupi sigraði Sonnetta Önnu B.
Tryggvadóttur á 20,28 sek. Lovísa H.
Ragnarsdóttir var knapi. Önnur var Zola
Gunnars Kjartanssonar á 20,56 sek.
Knapi Jón Þ. Þorvarðarson. Jens Einars-
son ristjóri átti þriðja hest í hlaupinu og
heitir hesturinn Stekkur heitinn og sat
Jens hann ekki sjálfur. Tíminn varð 20,66
sek. en knapi var Svanur Guðmundsson.
Lovísa H. Ragnarsdóttir varð fyrst í
350 m hlaupinu á Daníel Jósefs V.
Iðavöllum
Eftir Guðlaug Tryggva Karlsson
Örvar og Bergur unnu A-flokkinn.
Þorvarðarsonar á 27,71 sek. Feykir Óm-
ars Antonssonar varð annar á 28,02 sek.,
knapi var Svanur Guðmundsson, og
þriðji var Loftur Ómars Antonssonar á
28,57 sek., knapi var Kristín Gunnars-
dóttir.
Sævar Pálsson sat Kulda sinn til sigurs
í 300 m brokki og fengu þeir félagarnir
tímann 42,83 sek. Annar var Snorri
Jónsson á Bleik Hjartar Haukssonar á
46,43 sek. og þriðji varð Snorri Jónsson
á Villing sínum á 46,94 sek.
Eyþór Ragnarsson átti fyrsta hest í 800
Bikurum hampað í A-flokknum.
Níu efstu í unglingakeppninni.
m stökki, Sindra og knapi var Krístín
Gunnarsdóttir á 1,14,27 mín. Annar í
hlaupinu var Feykir Ómars Antonssonar,
knapi Svanur Guðmundsson á 1,14,89
mín. Feyki munaði greinilega ekki um
sprettina því hann var einnig annar í 350
m hlaupinu. Þriðja varð svo Yrpa Friðriks
I. Ingólfssonar, knapi Lovísa H. Ragn-
arsdóttir á 1,21,59 mín.
í 250 m skeiði náðust sæmilegir tímar
og sigraði Guðlaugur Antonsson á Glaum
sínum, sem hann á með Jóni Björnssyni
á 23,5 sek. Annar varð hinn þekkti
skeiðgammur Trausti Þ. Guðmundsson á
Jörfa Ágústar Óiafssonar á 24,84 sek.
Matthías Eiðsson varð svo þriðji á Sokka
Heiðu Vagnsdóttur á 25,93 sek.
í 150 m skeiðinu sigraði Friðrik Reynis-
son á Tvist Reynis Sigursteinssonar á
15,91 sek. Annar var Ragnar Hinriksson
á Sikli Sigurðar Sveinbjörnssonar á 16,01
sek. og þriðji varð svo Eyjólfur Kristjóns-
son á Krapa sínum á 18,41 sek.
Félag tamningamanna valdi að venju
þann knapa sem því finnst að beri
verðlaun fyrir fágaða reiðmennsku og
prúðmennsku í hestamennskunni. Eru
verðlaunin fögur skeifa sem Ragnheiður
Samúelsdóttir hlaut verðskuldað.
í töltkeppninni kom upp smá angi af
þeim átökum sem átt hafa sér stað milli
Norðlendinga um landsmótsstaðinn á
næsta ári. Galvaskir Akureyringar skráðu
sig auðvitað í töltkeppnina, en þá fóru
menn að rífast út í það að þau væru
félagar í hestamannafélaginu Létti á
Akureyri sem ennþá er ekki í Landsam-
bandinu og þannig ekki tæk í íþrótta-
keppnina. Þau fengu svo auðvitað að
Trausti Þór og Jörfi á flugaskeiði.
keppa og Pétur Jökull Hákonarson for-
maður Iþróttasambandsins dæmdi þau
síðan með ágætum. Trausti Þór Guð-
mundsson reyndist svo sigursæll þarna
sem víðar, hann fékk 90,93 stig á Muna.
Annar í töltkeppninni varð Hinrik Braga-
son á Mekki með 78,13 stig. Þriðji var
Lúther Guðmundsson á Stíg með 80,0
stig og fjórði varð Jóhann G. Jóhannes-
son með 73,04 stig.
Á annað þúsund manns sótti mótið
sem þótti takst ágætlega vel enda um-
hverfið undurfagurt og ferðir á svona
Ljósmyndir G.T.K.
staði stórkostleg upplyffing fyrir hvern og
einn. Þeir á Héraði eru líka vanir að taka
. á móti gestum og láta þeim líða vel.
Sýningarsvæðið er stórkostlegt og þótt
þeir slái ekki öðrum héruðum við í
einkunnum og metum, þá má það heldur
ekki gleymast að aðeins um 2% hrossa-
eignar landsmanna eru talin í fjórðungn-
um, auk þess, sem veturinn var kaldur.
Hittumst öll heil á Landsmóti næsta
sumar.
Átta efstu í klárhestunum með tölti.
. .
I