Tíminn - 04.07.1989, Side 14
14 Tíminn
DAGBÓK
Þriöjudagur 4. júlí 1989
meö utibú allt í knngum
landiö, gera þer mögulegt
aö leigja bíl á einum stað
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi$Jj
interRent
Ðílaleiga Akureyrar
r i.vrviv«9ð~rMnr
Þroskahjálp
3. tbl. 11. árg.
Þroskahjálp kemur út sex sinnum á ári
og útgefandi er Landssamtökin Þroska-
hjálp. í þessu blaði er fyrst viðtal við Júlíu
Oskarsdóttur á Höfn í Homafirði, greinin
nefnist: Hér viljum við búa, en fjallað er
um Bjama litla, sem býr að heilaskaða
sem hann fékk í fæðingu og er seinn til
þroska.
Þá er grein eftir Berit Johnsen: Skóli
fyrir alla. Viðtalið „Á línunni" er við
Bryndísi Sveinbjömsdóttur, þroskaþjálfa
á Höfn í Homafirði. Rannveig Trausta-
dóttir skrifar frá Bandaríkjunum og segir
frá stuðningi og þjónustu við fjölskyldur
þroskaheftra. Sagt er frá sumarstarfi fyrir
þroskahefta og birt er sýnishorn af skrif-
um eftir þá. Margt efni er frá félagsstarfi
samtakanna.
Ritstjóri er Halldóra Sigurgeirsdóttir.
Á forsíðu er mynd af Guðrúnu Unni
Þórsdóttur að störfum á Miklatúni.
Landslagsmyndir í
Safni Ásgríms Jónssonar
1 Safni Ásgríms Jónssonar við Berg-
staðastræti hefur verið opnuð sýning á
landslagsmyndum eftir Ásgrím. Sýndar
em 24 myndir, bæði olíumálverk og
vatnslitamyndir. Þar eru nokkrar eldri
vatnslitamynda Ásgríms, svo sem myndin
Brenna í Rútsstaðahverfi í Flóa frá 1909.
Á sýningunni eru einnig nokkrar öræfa-
myndir, t.d. frá Kerlingarfjöllum. Flestar
em myndimar frá Borgarfirði, þar sem
Ásgrímur var langdvölum á efri ámm,
einkum á Húsafelli. Má nefna olíumál-
verkin Sólskin á Húsafelli og Úr Húsa-
fellsskógi, Eiríksjökull og vatnslitamynd-
irnar Kiðárbotnar og Strútur og Eiríks-
jökull frá 1948.
Sýningin stendur til septemberloka og
er opin kl. 13:30-16:00 alla daga nema
mánudaga.
Árbæjarsafn
Árbæjarsafn er opið kl. 10:00-18:0(
alla daga nema mánudaga.
Leiðsögn um safnið laugardaga oj
sunnudaga kl. 15:00. Veitingar í DiUons
húsi.
Rjómabúið á Baugsstöðum við Stokkseyrí.
Rjómabúið á Baugsstóðum
Eins og undanfarin sumur verður gamla
rjómabúið hjá Baugsstöðum, austan við
Stokkseyri, opið almenningi til skoðunar
í sumar sfðdegis á laugardögum og sunnu-
dögum í júlí og ágúst og fyrstu helgina í
september. Einnig á frídegi verslunar-
manna 7. ágúst, miUi kl. 13:00 og 18:00
alla dagana. Vatnshjólið og tækin í
vinnslusalnum munu snúast þegar gesti
ber að garði og minna á löngu liðinn tíma.
Frá sýningu Light Nights í Tjamarbíói. F.v.: Halldór Snorrason, Krístín G. Magnús,
Matthías Amgrímsson, Hanna R. Guttormsdóttir, Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Guðrún
Kristinsdóttir, nátttröUið, Erlendur Pálsson og Magnús Snorri Halldórsson.
Ferðaleikhúsið:
LIGHT NIGHTS -
20. sýningarárið
Sýningar Ferðaleikhússins á Light
Nights eru f Tjamarbíói við Tjörnina í
Reykjavík (Tjarnargötu 10E). Sýningar-
kvöld eru fjögur f viku: á fimmtudags-,
föstudags-, laugardags- og sunnudags-
kvöldum. Sýningarnar hefjast kl. 21:00
og lýkur kl. 23:00. Sfðasta sýning verður
3. september.
Light Nights sýningarnar eru sérstak-
lega færðar upp til skemmtunar og fróð-
leiks enskumælandi ferðamönnum. Efnið
er allt fslenskt, en flutt á ensku, nema
þjóðlagatextar og kveðnar lausavfsur.
Sýningaratriði eru 24 alls. Leiksviðs-
myndir tni af baðstofu um aldamótin og
af víkingaskála. Einnig er stórt sýningar-
tjald, þar sem um 300 skyggnur ero
sýndar. Stærsta hlutverkið er sögumaður,
sem er leikinn af Kristínu G. Mangús.
Stofnendur og eigendur eru Halldór
Snorrason, Kristfn G. Magnús og Magnús
S. Halldórsson.
Þetta er 20. sumarið sem þessar sýning-
ar eru í Reykjavík, en Light Nights hafa
verið sýndar f útlöndum, bæði austan hafs
og vestan.
Frá Félagi eldrí borgara
Farin verður dagsferð laugardaginn 8.
júlí um Hvalfjörð í Borgames, Bifröst,
Þverárhlíð, Kalmanstungu, Húsafell,
Hraunfossa, Hálsasveit, Reykholt og
Dragháls til Reykjavíkur.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins í
síma 28812.
Áfangar, 2. tbl. ’89
í þessu blaði Áfanga er ritstjóraspjall
eftir Valþór Hlöðversson ritstjóra: Skuld-
in er stór. Halldór Matthíasson segir frá
ferð „Á skíðum yfir Vatnajökul". Þá er
grein sem nefnist: Arkað um hálendið
með allt á bakinu, sem er ferðasaga
göngufólks um hálendið. Viðtöl eru við
talsmenn Náttúruverndarráðs og Jeppa-
klúbbsins 4X4 um baráttuna gegn um-
hverfisspjöllum.
Tjörnes - ein merkasta náttúrusmíð
jarðar. 1 þeirri grein segja þau Aðalheiður
E. Ásmundsdóttir og Björn Hróarsson
frá ferð um Tjömesið. Þá er grein um
veiðivötn í nágrenni borgarinnar.
Á slóðum Brimara er frásögn ritstjóra
blaðsins af ferð til Bremen og víðar.
Esjan heillar alltaf, segir Einar Þ. Guð-
johnsen í viðtali. Breiðdalsvík er kynnt
og nágrenni hennar. „Fjallkonan hrópar
á vægð“ nefnist grein Herdísar Þorvalds-
dóttur. Kynnt er „Ferðaþjónusta bænda“
og grein er um umhverfismál. Ýmislegt
fleira efni og fallegar myndir em í blað-
inu. Útgefandi er Frjálst framtak hf.
Sveitarstjórnarmál
3. tbl. 1989
Forustugrein blaðsins nefnist í höfn, og
er skrifuð af Sigurgeir Sigurðssyni. Þá er
sagt frá afmæli Búlandshrepps og 400 ára
verslunarafmæli Djúpavogs, 60 ára af-
mæli Neskaupstaðar o.fl. Frásögn er af
fulltrúaráðsfundi á Akureyri. Rætt er um
nytjaskógrækt á Fljótsdalshéraði. Einnig
er fjallað um Byggðastofnun og atvinnulíf
á landsbyggðinni. Margar merkar greinar
um málefni sveitarfélaga em í ritinu sem
prýtt er mörgum myndum.
Útgefandi er Samband Islenskra sveit-
arfélaga, en ritstjóri er Unnar Stefánsson.
Tíu manna hópar, eða fleiri, geta
fengið að skoða minjasafnið á öðmm
tíma, ef haft er samband við gæslumenn
í síma 98-22220 Ólöf, 98-21972 Ingibjörg
og 98-21518 Guðbjörg, með góðum fyrir-
vara.
Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins, er fimmtugur í
dag, þriðjudaginn 4. júlí. Hann tekur á
móti gestum að Nóatúni 21 milli kl. 17:00
og 20:00 (kl. 5-8) í dag.
Sjávarfréttir 2. tbl. 1989
Meðal efnis í þessu blaði Sjávarfrétta
er: Burt með sóknarmarkið! þar sem
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra segir álit sitt um fiskveiðistefnuna.
Hreiðar Júlíusson er nýkominn heim eftir
10 ára starf í fiskvinnslu á Nýfundnalandi
og ber saman sjávarútveg landanna í
greininni Island-Nýfundnaland.
Hversu stórir (litlir) emm við? Hér er
rætt við forstjóra SH og SlF um stöðu
okkar í harðnandi samkeppni við aðrar
þjóðir á þessu sviði. Vinnsluskip framtíð-
arinnar heitir grein um vinnslutækni um
borð í fiskiskipum.
Þorskstofnamir í Norðaustur-Atlants-
hafi er grein eftir Sigfús Schopka fiski-
fræðing. Fjallað er um undirbúning fyrir
Sjávarútvegsskólann á Akureyri í samtali
við Jón Þórðarson.
Þá er blaðaukj um fiskeldi.
Ritstjóri Sjávarfrétta er Guðjón Ein-
arsson. Útgefandi Frjálst framtak hf.
BILALEIGA
Vorhappdrætti Framsóknarflokksins
Dregið var í Vorhappdrætti Framsóknarflokksins 9. júní. Vinnings-
númer eru sem hér segir:
1. vinningur númer 17477
2. vinningur númer 36272
3. vinningur númer 33471
4. vinningur númer 37116
5. vinningur númer 38156
6. vinningur númer 27174
7. vinningur númer 8313
Vinningsmiðum skal framvísa á skrifstofu Framsóknarflokksins í
Nóatúni 21, Fteykjavík.
Ógreiddir miðar eru ógildir.
Vinninga skal vitja innan árs frá útdrætti.
Allar frekari upplýsingar I síma 91-24480.
Framsóknarflokkurinn
Landsþing L.F.K. á Hvanneyri
8.-10. september 1989.
4. landsþing L.F.K. verður haldið að Hvanneyri dagana 8.-10.
september n.k.
Dagskrá þingsins verður tilkynnt síðar.
Framsóknarkonur eru hvattar til að fjölmenna eins og á undanfarin
þing.
Stjórn L.F.K.
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 i Reykjavík, verðurfrá
og með 1. júní n.k. opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
Sveitar
stjórnar
xiiá.1