Tíminn - 09.08.1989, Blaðsíða 1
Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjö tugi ára
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989 - 155. TBL. 73. ÁRG. - VERÐ í LAUSASÖLU KR. 90,-
Tveim milljörðum hlaðið inn í Seðlabanka í skjóli félagsmálaráðherra til að mæta mögrum
tíma húsbréfasölu. Stórtafir á eðlilegum útlánum húsnæðisstofnunarvegna söfnunarfjárins:
SAFNAR MILUARDA
SJÓDI í SEDLABANKA
Húsnæðisstofnun ríkisins hefur safnað
digrum sjóði í Seðlabankanum á síðustu
mánuðum. Þetta virðist hafa gerst á
sama tíma og mjög varlega hefur verið
farið í að gefa út lánsloforð. Reyndar
hafa stjórnarmenn húsnæðisstofnunar
sumir hverjir gagnrýnt fjársöfnunina og
telja eðlilegra að greiða út lán en safna
digrum sjóðum. A sama tíma hafa full-
trúar fjármálaráðuneytis verið að renna
hýru auga til fjárins og bent á að með
slíkri sjóðasöfnun ætti að vera hægt að
skera niður framlag ríkisins til stofnun-
arinnar. • Blaðsíða 2
Talið að
tæplega
fimmtíu
þúsund
manns
hafi gist í
tjöldum
víðsveg-
ar um
land um
helgina:
• Bladsida 5
Fimm þús. smokka
hátíð í Húnaveri
Hátt í átta þúsund einstaklingar
ákváðu að verja tíma sínum um
verslunarmannahelgina á útihátíð-
inni „Húnaver ’89“ við áfengis-
drykkju og ýmislegt sem henni fylgir.
Mörgum kom á óvart sú mikla
smokkasala sem var á mótsstað. Á
föstudagskvöld voru allir smokkar
uppseldir og varð þá að leita á náðir
apóteks og sjúkrahúss á Blönduósi.
Þrátt fyrir þetta er talið að færri hafi
fengið en vildu. • Opnan
■
i , f < , f * A * .< C ■ . .
■A