Tíminn - 16.08.1989, Síða 2

Tíminn - 16.08.1989, Síða 2
2 Tíminn MiðyiKudQgui>16,'ágúst 1989 Lífeyrissjóöur starfsmanna ríkisins býöur nú 500.000 kr. B-lán: Jop p“ veði settí ar eignir drag; a úr lái laef tirspurn „Það er víða orðið svo ásett um veð hjá fólki að margur hefur kannski orðið í minna mæli veð fyrir nýjum lífeyris- sjóðslánum“, sagði Gísli Sigurkarlsson hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. En vegna aukins ráðstöfunarfjár sjóðsins, sem m.a. stafar af því að dregið hefur út eftirspurn eftir hinum hefðbundnu lífeyrissjóðslánum, hefur sjóðurinn nú ákveðið að gefa sjóðfélögum kost á nýjum lánaflokki; svokölluðum B- lánum. B-lánin geta verið allt að 500 þús.kr. Lánin eru til 5 ára, vísitölu- tryggð með meðalvöxtum lánastofn- ana samkvæmt auglýsingum Seðla- bankans. Skilyrði fyrir láni eru ið- gjaldagreiðsla í lífeyrissjóðinn í 8 ár hið minnsta. Hin almennu lífeyris- sjóðslán sjóðsins nema nú allt að einni milljón króna, þannig að ríkis- starfsmenn eiga nú orðið kost á allt að 1,5 millj.kr. láni úr lífeyrissjóði sínum, þ.e. hafi menn næg laus veð fyrir þeirri upphæð. En þar mun einmitt „hnífurinn standa í kúnni" hjá sumum, eins og áður segir. Skilyrði fyrir almennu lífeyrissjóðs- láni er fullt starf í hálft þriðja ár og vextir á þeim 5% auk verðtrygging- ar. B-lánin sagði Gísli óháð öðrum lánum. Eina tengingin sé sú, að ef fólk skuldi enn eftirstöðvar gamalla óverðtryggðra lána verði að borga þau upp. Sú greiðsla heggur í fæstum tilfell- um stórt skarð í nýja lánið. Eftir- stöðvar gömlu lánanna eru (með hjálp verðbólgunnar) yfirleitt komn- ar niður í örfá þúsund kr. og árlegar afborganir og vextir aðeins nokkur hundruð kr. í mörgum tilfellum. „Við erum kannski að senda út rukkanir fyrir 100 krónum í afborg- un og vexti", sagði Gísli. Ársafborgunin er þá varla nema fyrir frímerkinu og gíróseðlinum? „Innheimtan er stundum orðin kostnaðarsamari heldur en upphæð- in sem við fáum í stáðinn". Að sögn Gísla eru töluvert mörg slík lán í gangi ennþá. Þótt heildar- skuldin nemi aðeins orðið 2-3 þús. krónum sagði Gísli fólk yfirleitt ekki greiða þau upp nema að það sjái sér einhvern sérstakan hag í því, t.d. endurlánarétt eða annað. Flestirláta þau standa áfram og borga sinn 100-kall á ári í afborganir og vexti. -HEI Tónleikar í félags- miðstöðinni Fellahelli: Laugardaginn 19.ágúst nk. stend- ur félagsmiðstöðin Fellahellir fyrir hinni svokölluðu Rykkrokkhátíð í portinu við Fellaskóla. Rykkrokk er útitónleikar sem hefjast klukkan 15:00 og standa til miðnættis. Þeim verður útvarpað á Rás tvö, en að- gangur er ókeypis og öllum heimill. Nítján hljómsveitir, bæði þekktar sem óþekktar, munu leika og spila. Þær eru: Sykurmolarnir, Langi Seli og Skuggarnir, Jupiters, Ham, Risaeðlan, Tarot, Október, Boot- legs, Laglausir, Dýrið gengur laust, Rúnar Þór og H2Ó, 16. eyrnahlífar- búðir, Complex, Flintstones, Móð- ins (Grindavík), Hálfur undir sæng (Neskaupstað),Túrbó (Borgarnesi), Bróðir Darvíns (Akranesi), Drykkir innbyrðis (Akureyri). GS Samband sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi: Aðalfundur á Vopnafirði Tuttugasti og þriðji aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi verður haldinn í íþróttahúsinu á Vopnafirði dagana 25. og 26. ágúst næstkomandi. Hrafnkell A. Jónsson, formaður SSA, mun setja fundinn klukkan 10:00, föstudaginn 25.ágúst. Til há- degis verður skýrsla stjórnar kunngerð, sem og annarra aðila innan sambandsins, og reikningar og fjárhagsáætlun SSA verður kynnt. Eftir hádegisverð verða á dagskrá umræður undir heitinu Austurland árið 2000. Framsögumenn verða Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar, Hallgrímur Guðmundsson bæjarstjóri á Höfn, Arnbjörg Sveinsdóttir formaður bæjarráðs Seyðisfjarðar, Sigurborg Kr. Hannesdóttir hótelstjóri í Vala- skjálf, Ágústa Þorkelsdóttir hús- freyja á Refsstað í Vopnafirði og/eða Sigríður Bragadóttir húsfreyja á Sí- reksstöðum Vopnafirði. Klukkan fjögur verða kynnt drög að reglugerð um framlög úr Jöfnun- arsjóði sveitarfélaga og mun Sveinn Guðmundsson, sveitarstjóri í Vopnafirði flytja framsöguræðu. Hálftíma síðar verður kynnt breytt skipan um framkvæmd heilbrigðis- mála, þar sem Stefán Þórarinsson, héraðslæknir á Egilsstöðum mun flytja framsöguræðu. Klukkan fimm verða svo tillögur frá stjórn og fulltrúum lagðar fram og kynntar. Um átta leytið bjóða heimamenn til kvöldverðar. Á laugardaginn heldur dagskrá áfram klukkan 9:00 og munu þá nefndir starfa til hádegis. Eftir há- degisverð, klukkan 14:00, mun fara fram afgreiðsla nefndarálita, fjár- hagsáætlunar og reikninga og eru áætluð fundarslit klukkan 18:00. Boðið verður upp á kvöldverð klukkan 19:00. Skipadeild Sambandsins: Bein lína til Brimahafnar Skipadeild Sambandsins hefur afráðið að taka upp reglubundnar siglingar frá Reykjavík og Vest- mannaeyjum til Bremerhaven í V- Þýskalandi. Áætlun hefst 29. ágúst nk. og verða ferðir á tveggja vikna fresti. Siglt verður frá Reykjavík til Eyja á þriðjudögum, þaðan degi síðar og losað í þýskri höfn á sunnu- dagskvöldi. Telja jafnt útflytjendur íslenskra fiskafurða sem þarlendir kaupendur þetta til mikilla hags- bóta, þar eð mánudagar eru vænleg- ustu söludagar ferskfisks, suður þar. Eru siglingar þessar liður í endur- skipulagningu á sölu íslensks fersk- fisks er hagsmunaaðilar hafa unnið að undanfarið, í samráði við íslensk stjórnvöld og L.Í.Ú. JBG. Björgunarhundur liggur á starfsáætlun Björgunarskóla LHS fyrir næsta ár, en þar er gert ráð fyrir 51 námskeiði eða atburðum undir heitinu „Skóli lífsins." 51 námskeið í Skóla lífsins Á starfsáætlun Björgunarskóla Landssambands hjálparsveita skáta fyrir næsta ár er gert ráð fyrir alls 51 námskeiði og námsstefnum undir heitinu Skóli lífsins. Fyrsti viðburðurinn í starfsáætl- uninni verður dagana 18.-21.ágúst, þegar haldin verður námsstefna í samvinnu við Björgunarhunda- sveit íslands um notkun hunda við leitarstörf í húsarústum og vatni. Gestur námsstefnunnar og leið- beinandi verður Caroline Hebard frá Bandaríkjunum, sem er mjög þekkt meðal björgunarmanna þar og hefur tekið þátt í fj ölda bj örgun- araðgerða. Námsstefnan verður haldin að Snorrabraut 60 og hefst klukkan 18:00 á föstudag. Byggt verður á fyrirlestrum, sýningu myndbanda, auk verklegrar kennslu og æfinga með völdum hundum. Námsstefnan er öllum opin og annast skrifstofa LHS skráningu þátttakenda í síma 91- 621400. Annar viðburðurinn í starfsáætl- un Björgunarskóla LHS verður námskeið í björgunarköfun dagana 25.ágúst til 2.september í Hafnar- firði. Kennt verður eftir kröfum sem settar eru af alþjóðlegum sam- tökum björgunarkafara - IADRS. Þátttakendur, sem standast próf, fá alþjóðlegt skírteini og rétt til að kalla sig björgunarkafara (PSD - Public Safety Divers) og geta starf- að sem slíkir innan björgunar- sveita. Leiðbeinendur verða þeir Stefán Axelsson, Hjálparsveit skáta Hafnarfirði og Kjartan Hauksson, Hjálparsveit skáta ísa- firði, en þeir hafa kennsluréttindi í björgunarköfun. Þátttakendur skulu vera félagar í hjálpar- eða björgunarsveit, lögreglumenn eða slökkviliðsmenn. Aldurstakmark er 20 ár og er staðgóð skyndihjálp- arkunnátta áskilin. Skráningu ann- ast skrifstofa LHS. GS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.