Tíminn - 16.08.1989, Blaðsíða 10

Tíminn - 16.08.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn Miðvikudagur 16. ágúst 1989 DAGBÓK OPIÐ HÚS í Norræna húsinu: Torfbæir og gömul hús Næst síðasti fyrirlesturinn í „Opnu húsi“ í Norræna húsinu verður fimtudag- inn 17. ágúst kl. 20:30. Þá mun Þór Magnússon þjóðminjavörður tala um ís- lenska torfbæi og gömul hús og sýna iitskyggnur. Fyrirlesturinn er fluttur á sænsku, en dagskráin er einkum ætluð norrænum ferðamönnum. Að loknu kaffihléi verður sýnd kvikmyndin Sveitin milli sanda og er hún með norsku tali. Síðasti fyrirlesturinn í Opnu húsi verð- ur fimmtudaginn 24. ágúst og þá talar Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur um eldvirkni og jarðfræði Islands. Bókasafnið er opið til kl. 22:00 eins og venja er á fimmtudögum, eða svo lengi sem „Opið hús“ verður á dagskrá í sumar. I bókasafninu liggja frammi bækur um ísland og þýðingar íslenskra bók- ELAWeeT A n rkvi\i\ii«9 i Mnr Guðm. Bjarnason Valgerður Sverrisdóttir Jóhannes Geir Sigurgeirsson Suður-Þingeyingar Guömundur, Valgerður og Jóhannes verða til viðtals og viðræðna við heimamenn sem hér segir: Grunnsk. Bárðardal, miðvikud. 16. ágúst kl. 21. Grunnsk. Svalbarðsströnd, fimmtud. 17. ágúst kl. 21. Gamla skólanum Grenivík, föstud. 18. ágúst kl. 21. Komið í kvöldkaffi með þingmönnunum og spjallið við þá um þjóðmálin. Allir velkomnir. Framsóknarflokkurinn. Landsþing L.F.K. verður haldið að Hvanneyri dagana 8.-10. september n.k. Mætum allar. Stjórn L.F.K. Sumartími: Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavík, er opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00. Framsóknarflokkurinn. Héraðsmót framsóknarmanna í Skagafirði verður í Miðgarði laugardaginn 26. ágúst og hefst kl. 21.00. Ræðu flytur Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. Góð skemmtiatriði á skemmtuninni verða auglýst síðar. Hljómsveit Geirmundar Valtýs- sonar leikur fyrir dansi. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi Sæmundur Magnús Óskarsson frá Eyri Hlaðbrekku 3, Kópavogi verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag 16. ágúst kl. 15:00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands. Guðmundur A. Sæmundsson Inga Þ. Sæmundsdóttir Kristín U. Sæmundsdóttir Guðrún Ó. Sæmundsdóttir Sigþrúður I. Sæmundsdóttir barnabörn og Halldóra E. Magnúsdóttir Jóhann M. Hafliðason Helgi Birgisson Valdimar H. Sigþórsson Eyjólfur V. Harðarson barnabarnabörn. mennta á öðrum norrænum málum. Kaffistofa hússins er opin til kl. 22:30 á fimmtudagskvöldum. Aðgangur er ókeypis og allir eru vel- komnir í Norræna húsið. Sigurður Ingi Sigurðsson. Aftnæli Sigurður Ingi Sigurðsson, Víðivöllum 4, Selfossi á 80 ára afmæli í dag. Hann og kona hans, Arnfríður Jóns- dóttir, taka á móti gestum í tilefni afmæl- isins.n.k. sunnudaginn 20. ágúst í Hótel Selfossi Id. 16:00-19:00 (4-7 e.h.) Hundadagar: Tónleikar í Listasafni Sigurjóns 1 Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, verða tónleikar fimmtudaginn 17. ágúst. Þar leikur Tríó kauniainen: Sakari, Raulano, Hyttinen. Tríóið Ieikur verk eftir Matetoja, Þorkel Sigurbjörnsson og Shostakovits. Pennavinir í Ghana Frá Ghana betast oft bréf með ósk um að komast í samband við pennavini á fslandi. Nú nýlega bættust hér þrír ungir menn í hópinn. Þeir eru allir um tvítugt og hafa mörg áhugamál, svo sem músík, dans, borðtennis, póstkortasöfnun o.fl. Utanáskrift til þessara ungu Ghanabúa er: Edward W. Mensah P.O. Box 38, Cape Coast, Ghana W/Africa Jonah D. Abaidoo, P.O.Box 100, Cape Coast, Ghana W/Africa Patrick Kemayor P.O. Box 38, Cape Coast, Ghana W/Africa Tónleikar listafólks frá Moldavíu Um 20 tónlistarmenn frá Sovétlýðveld- inu Moldavíu eru komnir hingað til lands í tilefni Sovéskra daga MlR 1989. Lista- mennirnir koma fram á fyrstu tónleikum sínum hér á landi í menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar, Hafnarborg, mánud. 21. ágúst Id. 20:30.. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt: hljómsveitar- verk, óperuaríur, sönglög og þjóðleg tónlist. Flytjendur eru Kammersveit Ríkisútvarps og sjónvarps Moldavíu, undir stjórn A.G. Samúile, og tveir úr hópi kunnustu óperusöngvara Sovétríkj- anna í dag: María Bieshú sópran og Mikhaíl Múntjan tenór. Moldavíska tónlistarfólkið heldur tón- leika víða um land næstu daga. f Hvera- gerðiskirkju þriðjud. 22. ágúst kl. 21:00, Neskaupstað miðvikudag, Eskifirði fimmtudag og á Egilsstöðum á föstudag. Lokatónleikarnir verða í Þjóðleikhús- inu sunnud. 27. ágúst kl. 16:00. Landslagsmyndir í Safnj Ásgríms Jónssonar f Safni Ásgríms Jónssonar við Berg- staðastræti hefur verið opnuð sýning á landslagsmyndum eftir Ásgrím. Sýndar eru 24 myndir, bæði olíumálverk og vatnslitamyndir. Þar eru nokkrar eldri vatnslitamynda Ásgríms, svo sem myndin Brenna í Rútsstaðahverfi ■ Flóa frá 1909. Á sýningunni eru einnig nokkrar öræfa- myndir, t.d. frá Kerlingarfjöllum. Flestar eru myndirnar frá Borgarfirði, þar sem Ásgrímur var langdvölum á efri árum, einkum á Húsafelli. Má nefna olíumál- verkin Sólskin á Húsafelli og Úr Húsa- fellsskógi, Eiríksjökull og vatnslitamynd- irnar Kiðárbotnar og Strútur og Eiríks- jökuU frá 1948. Sýningin stendur til septemberloka og er opin kl. 13:30-16:00 alla daga nema mánudaga. Sjóminjasafn íslands í Hafnarfirði Sjóminjasafn íslands er til húsa í Brydepakkhúsi í Hafnarfirði, sem var byggt um 1865, en hefur nú verið endur- byggt og sniðið að kröfum safnahúss. Auk fastra safnmuna eru sérstakar sýningar í safninu um tiltekin efni, t.d. áraskipatímabilið á íslandi. Myndasýn- ingar (myndbönd, litskyggnur og kvik- myndir) og fyrirlestrar eru einnig hluti af starfsemi safnsins og eru auglýst sérstak- lega. Elsta hús Hafnarfjarðar, hús Bjarna Sívertsen, byggt um 1803, er í næsta nágrenni. Þar er til húsa byggðasafn Hafnarfjarðar. Opnunartímar Sjóminjasafnsins er yfir sumarmánuðina (júní-sept.): Þriðjudaga- sunnudaga kl. 14:00-18:00. Nútímalist að Kjarvalsstóðum Menningarmálanefnd Reykjavíkur opnar sýningu á alþjóðlegri nútímalist frá listasafninu í Epinal í Frakklandi laugar- daginn 22. júlí kl. 16:00 að Kjarvalsstöð- um. Á sýningunni eru verk eftir 27 nútíma listamenn, þar á meðal hinn nýlátna Andy Warhol. Sýningin stendur dagana 22. júlí-20. ágúst, en opið er daglega kl. 11:00-18:00. Sumarferð Félags eldri borgara í Kópavogi Sumarferð um Árnessýslu verður farin laugardaginn 19. ágúst. Lagt verður af stað frá Sparisjóði Kópavogs, Digranes- vegi 10, kl. 09:00. Farmiðar á skrifstofu félagsins miðvikudaginn 16. ágúst og fimmtudaginn 17. ágúst kl. 13:30-17:00. Síminn er 41226. Sumarleyfisferðir F.í. 16. -20. ágúst: Landmannalaugar- Þórsmörk. Fararstjóri: Leifur Þorsteins- son. 17. -20. ágúst: Núpsstaðarskógur.Gist í tjöldum. Gönguferðir um stórbrotið landslag. Fararstjóri: Hilmar Þór Sigurðs- son. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu F.Í., Oldugötu 3. Ferðafélag íslands Minningarkort Landssamtaka hjartasjúklinga - eftirtaldir staðir hafa minningarkortin til sölu. Reykjavík: Skrifstofa Landssamtaka hjartasjúklinga, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, sími 25744, Bókaverslun ísafoldar, Austurstræti og Bókabúð Vest- urbæjar, Víðimel. Seltjamarnes: Margrét Sigurðardóttir, Mýrarhúsaskóli eldri. Kópavogur: Veda bókaverslanir Hamra- borg 5 og Engihjalla 4. Hafnarfjörður: Bókabúðir Böðvars, Strandgötu 3 og Reykjavíkurvegi 64. Selfoss: Apótek Selfoss, Austurvegi 44. Gmndarijörður: Halldór Finnsson, Hrannarstíg 5. Ólafs- vík: Ingibjörg Pétursdóttir, Hjarðartúni 3. ísafjörður: Urður Ólafsdóttir, Brautar- holti 3. Árneshrcppur: Helga Eiríksdótt- ir, Finnbogastöðum. Blönduós: Helga A. Ólafsdóttir, Holtabraut 12. Sauðárkrók- ur: Margrét Sigurðardóttir, Birkihlíð 2. Akureyri: Gísli J. Eyland, Víðimýri 8 og Bókabúðirnar á Ákureyri. Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, Garðarsbraut 9. Egilsstaðir: Steinþór Er- lendsson, Laufási 5. Höfn, Hornafiröi: Erla Ásgeirsdóttir, Miðtúni 3. Vestmann- aeyjar: Axel ó Lárusson skóverslun, Vestmannabraut 23. Sandgerði: Póstaf- greiðslan, Suðurgötu 2-4. Keflavík: Bókabúð Keflavíkur, Sólvallagötu 2. Sölustaðir minningarkorta HJARTAVERNDAR Reykjavik:Skrifstofa Hjartaverndar, Lágmúla 9, 3. hæð, sími 83755 (Gíró) Reykjavíkur Apótek, Austurstr. 16, Dvalarheimili aldraðra, Lönguhlíð, Garðs Apótek, Sogavegi 108, Bókabúðin Embla, Völvufelli 21, Árbæjar Apótek, Hraunbæ 102A, Bókabúð Glæsibæjar, Álfheimum 74, Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27, Vesturbæjar Apótek, Melhaga 20-22. Kópavogur: Kópavogs Apótek, Hamra- borg 11. Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers Steins, Strandg.31, Sparisjóður Hafnar- fjarðar. Keflavík: Rammar og gler, Sól- vallag. 11, Apótek Kefiavíkur, Suðurg. 2, Akranes: Bókabúð Andrésar Níelssonar, Skólabraut2. Borgarnes: Verslunin ís- björninn. Stykkishólmur: Hjá Sesselju Pálsdóttur, Silfurg. 36. ísafjörður: Póstur og sími, Aðalstræti 18Strandasýsla: Hjá Ingibjörgu Karlsdóttur, Kolbeinsá, Bæjarhreppi. Akureyri: Bókabúðin Huld, Hafnarstræti 97, Bókaval, Kaup- vangsstræti 4Húsavík: Blómabúðin Björk, Héðinsbr. 1. Raufarhöfn: Hjá Jónu Ósk Pétursdóttur, Ásgötu 5. Egils- staðir: Hannyrðaverslunin Agla, Selási 13. EskiQörður: Póstur og sími, Strand- götu 55. Sigluljörður: Verslunin Ögn, Aðalgötu 20. Vestmannaeyjar: Hjá Arn- ari Ingólfssyni, Hrauntúni 16. Selfoss: Selfoss Apótek, Austurvegi 44. Minningarkort Styrktarsjóðs bamadeildar Landakotsspítala Styrktarsjóður bamadeildar Landa- kotsspítala hefur látið hanna minningar- kort fyrir sjóðinn. Sigríður Björnsdóttir myndlistarmaður og kennari teiknaði fjögur mismunandi kort. Eftirtaldir staðir selja minningakortin: Ápótek Seltjarnarness, Vesturbæjar- apótek, Hafnarfjarðarapótek, Garðsapó- tek, Holtsapótek, Mosfellsapótek, Ár- bæjarapótek, Lyfjabúð Breiðholts, Reykjavíkurapótek, Háaleitisapótek, Kópavogsapótek, Lyfjabúðin Iðunn. Blómaverslanirnar; Burkni, Borgarblóm, Melanóra Seltjarnarnesi og Blómaval Kringlunni. Einnig eru þau seld á skrif- stofu og bamadeild Landakotsspítala. MESTAMENNSKA KARLASÞORT? MEO CARDIN OG ALBERTI í PARÍS ÍSLAND í TVEIM HEIMSÁUFUM KUUOR ISMSA EFRIÁRIN Gmsnpúnmw rYKiRTÆKi? TV&RSAKA- MÁiASÖoua wrrÁ 8iS.46J VIKAN 16. tbl. 51. árg. Viku-viðtalið er að þessu sinni við Margréti Ákadóttur leikkonu, sem um þessar mundir leikur í „Macbeth" á vegum Alþýðuleikhússins. Sagt er frá Parísarferð skafmiða-verðlaunahafa, en það voru mæðgur í Hafnarfirði sem fóm í ferðina, ásamt blaðamanni Vikunnar og Ijósmyndara. Þá eru viðtöl við marga ellilífeyrisþega um áhugamál þeirra. Djúpsteiktur smokkfiskur er aðalréttur meistarakokk- anna í þessu blaði. Svo er það hesta- mennskan. Er hún karlasport? Rætt er við hestakonur. Helgidómur Hitlers er nafn á grein um dulspekiáhuga Hitlers. Þá em margs konar leiðbeiningar fyrir þær sem eru í atvinnuleit. Er ísland á tveim heimsálf- um? nefnist grein um spmnguna sem liggur þvert yfir ísland. Ráðleggingar um hvernig fá má sterkar og fallegar neglur. Margt annað efni er í blaðinu, svo sem smásaga, krossgáta, stjörnuspá, prjóna- uppskrift o.fi. Utgefandi er Sam-útgáfan. Forsíðu- myndin er af Kristínu Ingvadóttur, en tekin af Gústaf Guðmundssyni. Skinfaxi 3. tbl. 80. árg. -Tímarit UMFÍ „Við tókum á og tókum til“ er fyrirsögn á grein Pálma Gíslasonar, form. UMFÍ um hreinsunarátak ungmennafélaganna. 15 ár yfir ránni, nefnist viðtal við Þórdísi Gísladóttur hástökkvara, sem í 15 ár samfleytt hefur verið afreksmaður í frjáls- íþróttum. Ritstjóri blaðsins, Ingólfur Hjörleifsson, ræðir við Þórdísi um íþróttir og tímamót sem hún nú stendur á, en hún á von á bami á næstunni. „Ömurlegt að sjá fallegar konur með hvern vöðva strekktan," var haft eftir gömlum íþróttafrömuði, og Unnur Stef- ánsdóttir notar þessi ummæli í fyrirsögn á grein sína um konur í keppnisíþróttum. Hjördís Ámadóttir skrifar um sama efni út frá sjónarhóli íþróttafréttamanns og er fyrirsögnin: Skoðum hlutina í samhengi. Einnig er grein um kvennaknattspymu og myndir fylgja. 1 blaðinu em viðtöl við Jónas Þórhalls- son um knattspymu á Suðurnesjum o.fl. og viðtal við Véstein Hafsteinsson kringlukastara, sem nýlega setti lslands- met í greininni. Kynnt er aðstaðan í Mosfellsbæ, en þar á að halda 20. Landsmót UMFÍ í júlímán- uði 1990. Margar íþróttafréttir og greinar um ýmisleg efni eru í blaðinu, sem er um 40 bls. að stærð með mörgum myndum. Forsíðumyndina af Þórdísi Gísladóttur tók Gunnar Sverrisson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.