Tíminn - 16.08.1989, Qupperneq 16

Tíminn - 16.08.1989, Qupperneq 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 f NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnorhúsinu v/Tryggvagötu, © 28822 71 o<% AMVINNUBANKi ISLANDS HF. ÁTTHAGAFÉLÖG, PÓSTFAX TÍMANS 687691 MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989 ■Bl Hagvirki greiddi söluskattskröfu ríkissjóös um kaffileytið í gær: Snaraði út rúmum 108milljónumkr. „Ráðuneytið hefur ekkert viljað gefa eftir af kröfu sinni og núna rétt fyrir klukkan fjögur greiddi ég þeim 108 milljónir 32 þúsund þrjúhundruð og tvær krónur,“ sagði Jóhann Bergþórsson forstjóri Hagvirkis í gær. í yfirlýsingu sem Hagvirki sendi starfrækja Hagvirki áfram. frá sér í gær segir að fyrirtækið hafi fallist á að greiða áætlaðan sölu- skatt á fyrirtækið þrátt fyrir að það hafi sjálft ekki innheimt söluskatt af verkum sínum. Upphæðin hafi j verið greidd til að unnt verði að: Hagvirki hefur talið að því hafi ekki borið að innheimta söluskatt af virkjunarframkvæmdum sem fyrirtækið hefur annast fyrir ríkið og hefur vitnað til laga máli sínu til stuðnings. Ríkisskattanefnd úr- skurðaði 13. júlí s.l. að fyrirtækið skyldi greiða söluskatt af virkjun- arframkvæmdum sem Hagvirki annaðist árin 1983 og 1984 ásamt álagi og dráttarvöxtum og hefur Hagvirki óskað eftir því að nefndin taki málið upp að nýju. Hagvirki áskildi sér í gær rétt til að krefjast þess að ríkissjóður endurgreiddi fyrirtækinu ásamt álagi og dráttarvöxtum frá degin- um í gær þann hluta skattsins sem ríkisskattanefnd mun hugsanlega fella niður. Fari hins vegar svo að ríkis- skattanefnd ákveði enga lækkun þessara gjalda hyggst Hagvirki leita með málið til dómstóla til að fá skattinn lækkaðan eða felldan niður og síðan endurgreiddan frá ríkissjóði í samræmi við hugsanleg- an dóm. Jóhann Bergþórsson sagði að ekki hefði verið átakalaust að ná saman rúmlega 108 milljónum en fyrirtækið væri stöndugt og hefði notið aðstoðar góðra manna. Þetta hefði verið nauðsynlegt til að tryggja það að reksturinn stöðvað- ist ekki og ekki væri hægt að vinna undir ósköpum af því tagi sem raunin hefur verið að undanförnu vegna aðgerða fjármálaráðuneytis- ins. -sa Tím&mynd: Árni Bjaraa ■ Fyrsta dósin fer í eina af fimmtíu kúlum í Reykjavík og nágrenni. Þjóðþrifum hleypt af stokkum: Dósir fyrir gott málef ni Við hátíðlega athöfn á Lækjar- torgi í gær hlaut Davíð Oddson borgarstjóri heiðurinn af því að jafnhenda fyrstu dósina ofan í eina af 50 kúlum, er komið verður fyrir í Reykjavík og nágrenni og ætlaðar eru til móttöku á einnota umbúð- um. Kúlum þessum verður dreift bróðurlega til bensínstöðva, stór- markaða og annarra fjölsóttra staða, fyrst á höfuðborgarsvæðinu en síðar jafnframt um land allt. Þá verður komið fyrir dósakössum í kaffistofum fyrirtækja. Framtak þetta er ávöxtur af samstarfi Bandalags íslenskra skáta, Landssambands hjálpar- sveita skáta og Hjálparstofnunar kirkjunnar. Slá aðilar þessir hér þrjár flugur í einu höggi: Stuðla að aukinni umhverfisvernd, endur- nýta verðmæti og næla sér loks í nokkra fimmkalla til eflingar starfseminni. Einnig verður hluta af væntanlegum ágóða varið til umhverfismála. Hyggjast Þjóð- þrifamenn gróðursetja eitt tré fyrir hverjar þúsund dósir er í kúlur og kassa berast. Til teikna um góðan vilja Þjóðþrifa í þessu efni voru borgarstjóra færðar 100 trjáplöntur til viðgangs og varðveislu, þá er dósunum var kastað. Trjárækt þessi kemur til viðbótar framtaki Ferðamálaráðs og leiðsögumanna, er sett hafa upp söfnunarbauka á ferðamannastöðum, svo sem kunn- ugt er, og þess því skammt að bíða að ættlandið verði aftur viði vaxið milli fjalls og fjöru. JBG. Ekki staf- krókur um HR í láns- fjárlögum „Það er algerlega rangt sem haldið hefur verið fram, m.a. af starfs- mönnum Húsnæðisstofnunar, að útlán hennar séu bundin í lansfjar- lögum. Þvert á móti, þá er ekki stafkrókur um útlán Húsnæðisstofn- unar í lánsfjárlögum. Það er hins vegar bundið í lögum að útlán byggingarsjóðanna eiga að fara eftir innstreymi fjár frá lífeyris- sjóðunum. Aukið fjárstreymi á því að fara í hraðari útlán og stytta þar með biðtímann eftir lánum,“ sagði Alexander Stefánsson sem situr í fjárveitinganefnd og var félagsmála- ráðherra þegar núgildandi húsnæðis- lánakerfi tók gildi. Einu tengsl Húsnæðisstofnunar við lánsfjárlög sagði Alexander fel- ast í töflum f fylgiskjölum laganna, um áætluð útlán og út- og innstreymi fjármagns hjá stofnuninni. „Það er hins vegar bundið í lögum að útlán byggingarsjóðanna er bund- ið við innstreymi lánsfjár frá lífeyris- sjóðunum, þ.e. 55% af ráðstöfunar- fé þeirra og síðan framlag ríkissjóðs. Alexander Stefánsson Aukið fjármagn frá lífeyrissjóðun- um á því að fara í hraðari útskriftir lánsloforða og hraðari útlán og þar með stytta biðtíma fólks eftir lánum, enda annað ekki verjandi. Það er alls ekki gert ráð fyrir að þessu fé sé safnað í sjóði umfram venjulegar þarfir," sagði Alexander. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.