Tíminn - 08.09.1989, Side 3
Föstudagur 8. september 1989
Áherslubreytingar í starfsemi almenningsbókasafna:
Tíminn 3
Lesa börn minna en áður?
Á síðustu árum hafa átt sér
stað allmildar breytingar á starfi
almenningsbókasafna. Börn
virðast nota söfnin minna en
áður og lesendum afþreyinga-
bókmennta virðast einnig hafa
fækkað. Aftur á móti hefur
aukning orðið í útlánum á bók-
um sem Qalla um sérsvið. Sjón-
varpið virðist eiga einna mestan
þátt í að ýta undir þessa þróun.
„Það hefur dregið úr ásókn í
þessar svokölluðu afþreyingarbók-
menntir en aukist í því sem við
köllum flokkaefni þ.e. öðru en
skáldsögum," sagði Marta Richter
bókasafnsfræðingur við bókasafnið í
Mosfellsbæ. „Það sem okkur þykir
einna verst er samdráttur í útlánum
á barnabókum. Það er nokkuð sem
ætti að valda öllum áhyggjum. Það
varð almennur samdráttur í aðsókn
að bókasöfnum í kringum 1986. Sá
samdráttur hefur stöðvast og nú er
vöxtur í útlánum á mjög mörgum
tegundum af bókum. En samdráttur-
inn í útlánum á barnabókum virðist
ætla að halda áfram og sama má
segja um afþreyingarbókmenntir."
Hrafn Harðarson forstöðumaður
Bókasafns Kópavogs hefur gert töl-
fræðilega úttekt á útlánum í sínu
safni og þar kemur mjög greinilega
fram að síðastliðin tvö ár hefur
börnum sem nota bókasafnið fækk-
að mikið. Á þessu ári hefur þessi
þróun stöðvast og vart hefur orðið
við nokkra aukningu frá síðasta ári.
Hrafn sagðist vona að krakkarnir
væru búnir að fá nóg af teiknimynd-
unum í sjónvarpinu en hann sagðist
telja að teiknimyndirnar sem sýndar
væru í sjónvarpinu og hefjast suma
daga snemma á morgnana, ættu sinn
þátt í því að draga úr aðsókn bama
á bókasöfn.
Böm á aldrinum 10 til 13 ára lesa
mjög mikið og hefur stundum verið
talað um lesaldur í þessu sambandi.
Hrafn sagðist halda að þetta væri
ekki að breytast. „Ég vona það
a.m.k. því að ef börn á þessum aldri
missa áhuga á bókum á það eftir að
hafa afar óæskilegar afleiðingar í för
með sér.“
Söfnin hafa reynt að bregðast við
þessari þróun með því að bjóða
myndbönd til útlána. Með því móti
vonast þau til þess að fá börn og
fullorðna sem hingað hafa látið sér
nægja að skreppa á myndbandaleig-
ur, til að koma á bókasöfn.
Sjónvarpið virðist hafa mikil áhrif
á notkun bókasafna og þá bæði til
góðs og ills. Jákvæða hliðin er sú að
nú sækir fólk í alls kyns fræðibækur
um málefni sem sjónvarpið hefur í
mörgum tilfellum vakið áhuga fólks
á. Sláandi dæmi um þetta er að þessa
dagana eru allar bækur sem fjalla
um seinni heimsstyrjöldina, rifnar út
úr söfnunum en sjónvarpið hefur
verið með þætti um stríðið nær
daglega. „Þetta sýnir ágætlega ann-
marka sjónvarpsins. Þessi miðill get-
ur ekki tekið á efninu nema mjög
grunnt. Fólk fær ekki svör við þeim
spumingum sem koma upp í
hugann. Svörin fást aðeins í
bókum,“ sagði Hrafn.
Það er að verða nokkur áherslu-
breyting á starfsemi almennings-
bókasafna. Upplýsingaþjónusta fer
vaxandi og heimildaöflun sömuleið-
is. Fólk fer nú í auknum mæli á
bókasöfnin til að leita sér fræðslu um
ákveðin efni. Framhaldsskólanemar
og fólk í fullorðinsfræðslu sækir
söfnin í auknum mæli.
„Það er margt merkilegt sem fer
fram á bókasöfnum. Þetta eru hreint
ekki deyjandi stofnanir. Þetta eru
merkilegar menningarstofnanir,"
sagði Marta Richter að lokum.
- EÓ
Atvinnu- og orkumái
á Austuriandi
Almennur fundur þriðjudaginn, 12. september 1989,
kl. 20.30, í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra, fjallar um horfur í sjávarútvegi
og atvinnumálum. Jón Sigurðsson, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, fjallar nm
virkjanaáform og iðnaðaruppbyggingu,
sérstaklega Fljótsdalsvirkjun og
iðnaðaráform tengd henni. Að fram-
söguerindum loknum verða al-
mennar umræður. Með ráðherr-
unum verða sérfræðingar frá
sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneyti
og stofnunum sem undir þau heyra.
í tengslum við fundinn verður haldin
sýning í Hótel Valaskjálf á teikn-
ingum sem lýsa hugmyndum um
virkjun Jökulsár í Fljótsdal
og virkjun Fjarðar-
ár. Sýningin verður
opin frá kl. 17.00.
Sérfræðingar frá
Landsvirkjun og Raf-
magnsveitum ríkis-
ins verða á sýning-
unni til að útskýra
það sem fyrir augu
ber.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
IÐNAÐARRÁÐ UNEYTIÐ
Ja,hver
þrefaldur!
Þrefaldur
sti vinningur
á laugardag!
Þreföld ástæða
til að vera með!
SAMEINAÐA/SlA