Tíminn - 08.09.1989, Qupperneq 15
Föstudagur áfseptember 198§
>nr!!n:ii i i
Tíminn 15
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur:
A-ÞYSKUR SIGURIGARDABÆ
Tap fyrir A-Þjóðverjum í íþrótt-
um er daglegt brauð þessa dagana og
jafnvel í fleiri en einni grein sama
daginn. Enn einn a-þýskur sigur á
íslendingum leit dagsins Ijós í gær-
kvöldi þegar handknattleikslandslið-
ið mátti sætta sig við þriggja marka
ósigur 26-29.
Leikurinn fór fram í hinu nýja og
glæsilega íþróttahúsi þeirra Garðbæ-
inga að Ásgarði. Var hér um vígslu
hússins að ræða, en það á eftir að
koma að góðum notum í framtíðinni
í þessum ört vaxandi íþróttabæ.
íslendingar höfðu leikinn í hendi
sér allan fyrri hálfleik og leiddu mest
með 5 mörkum, 13-8. A-Þjóðverjum
tókst að minnka muninn fyrir hlé í
13-11.
Leikurinn var í jafnvægi framan af
síðari hálfleik og íslendingar leiddu
með 1-2 mörkum. Þeir þýsku náðu
að jafna 19-19 og eftir það sigu þeir
fram úr. Mest náðu gestirnir4 marka
forystu, en heimamönnum tókst að
klóra í bakkann undir lokin. Engu
að síðar var þriggja mark tap stað-
reynd 26-29.
Kristján Arason átti stjörnuleik í
gærkvöldi jafn í sókn sem vörn.
Guðmundur Guðmundsson var
einnig góður og Atli Hilmarsson
sýndi gamla takta. Aðrir leikmenn
íslenska liðsins fundu sig illa. Send-
ingar fóru margar forgörðum og
A-Þjóðverjar skoruðu ódýr mörk úr
hraðaupphlaupum. Varnarleikurinn
var oft á tíðum sterkur, en illa gekk
mönnum að binda endi á sóknirnar.
Munaði þar mestu um stórleik þýska
markvarðarins, en markvarslan hjá
okkar mönnum var í molum.
íslenska liðið sýndi oft á tíðum
skemmtileg tilþrif í leiknum í gær,
en liðið er ekki í mikilli leikæfingu,
enda undirbúningur liðsins ekki
langt á veg kominn.
íslenska landsliðiö í knattspyrnu:
„Veit ekki betur en
Pétur Ormslev gef i
ekki kost á sér“
- segir Sigfried Held um gagnrýni á val landsliðsins
Valið á íslenska landsliðinu fyrir
leikinn gegn A-Þjóðverjum í fyrra-
kvöld og reyndar valið á liðinu í allt
sumar, hefur verið gagnrýnt tölu-
vert og þá sérstaklega það hvaða
leikmönnum er haldið fyrir utan
landsliðshópinn. Einkum hefur
það vakið furðu að Pétur Ormslev
skuli ekki hafa fengið tækifæri
með liðinu, en hann hefur átt
hvem stórleikinn á fætur öðmm
með Fram að undanförau.
Pétur gaf ekki kost á sér í leikina
gegn A-Þjóðverjum og Tyrkjum í
fyrra haust, af persónulegum
ástæðum, en í sumar hefur lands-
liðsnefndin ekki séð ástæðu til þess
að tala við Pétur, þrátt fyrir það að
hann hafi sagst vera tilbúinn til
þess að leika með landsliðinu.
Svipaða sögu er að segja um þá
Pétur Pétursson KR og Þorvald
Örlygsson KA. Þeir gátu ekki tekið
þátt í undirbúningi fyrir ákveðna
leiki og síðan hafa þeir ekki verið
í náðinni.
En hverju skyldi fráfarandi
landsliðsþjálfari, Sigfried Held
svara þessarí gagnrýni?
„Pétur Ormslev tilkynnti lands-
liðsnefndinni í fyrra haust að hann
gæfi ekki kost á sér í landsliðið
vegna fjölskyldu sinnar. Hann vill
því ekki leika með landsliðinu og
aðrar upplýsingar hef ég ekki.
Pétur tjáði mér á sínum tíma hvers
vegna hann gæfi ekki kost á sér.
Síðan hef ég ekki haft samband við
hann,“ sagði Held.
Hvað með Pétur Pétursson og
Þorvald Örlygsson?
„Það er alltaf hægt að biðja um
aðra leikmenn, en ég tel að það lið
sem við stilltum upp gegn A-Þjóð-
verjum sé það sterkasta sem mögu-
legt var að stilla upp.“
En af hverju var ekki skipt
tveimur varamönnum inná í leikn-
um?
„Það var samkomulag milli KSÍ
og Anderlecht að Arnór Guðjóns-
en léki aðeins í 45-50 mín. og því
skipti Ragnar við hann.“
Af hverju fékk Rúnar Krístins-
son ekki tækifæri í leiknum?
„Við fengum á okkur 3 mörk á
stuttum tíma og það er erfitt fyrir
ungan leikmann eins og Rúnar að
koma inná undir slíkum kringum-
stæðum. Ég vildi ekki gera honum
það,“ sagði Sigfried Held.
Held er nú haldinn á brott og
Guðni Kjartansson mun stjórna
íslenska liðinu í leiknum gegn
Tyrkjum 20. september. Fróðlegt
verður að fylgjast með því hvort
þeir 3 leikmenn sem að framan eru
taldir hljóta meiri miskunn fyrir
augum Guðna en V-Þjóðverjans.
Fleiri leikmenn hafa verið nefnd-
ir í sambandi við valið á landsliðinu
svo sem Birkir Kristinsson mark-
vörður Framara og væri ekki rétt
að gefa Erlingi Kristjánssyni fyrir-
liða og aðalmáttarstólpa toppliðs
KA svo sem eins og eitt tækifæri
með landsliðinu?
Eins og knattspyrnuáhugamenn
vita gaf Sigurður Jónsson ekki kost
á sér í landsliðið fyrir leikinn gegn
A-Þjóðverjum. Ástæðan mun hafa
verið persónulegs eðlis, eins og hjá
Pétri Ormslev. Fróðlegt verður að
fylgjast með hvort Sigurði verður
refsað fyrir þessa ákvörðun sína,
þegar landsliðshópurinn verður
valinn fyrir Tyrkjaleikinn, eða
hvort landsliðsnefndin treystir sér
til þess að gera uppá milli mikilvægi
einkalífs manna, þegar tveir álíka
sterkir leikmenn eiga í hlut.
BL
^ Er Ásgeir Sigurvinsson hættur með landsliðinu?
„Eg hef ekki gefið út
neina slíka yf irlýsingu"
- segir Ásgeir sem lítur björtum augum á framtíð landsliðsins
Ásgeir Sigurvinsson stóð sig einna
best íslensku landsliðsmannanna í
landsleiknum gegn A-Þjóðverjum í
fýrrakvöld. Var leikurínn síðasti
leikur hans með íslenska landslið-
inu?
„Ég hef ekki gefið út néina slíka
yfirlýsingu, að ég væri hættur með
íandsliðinu. Hins vegar eru 90%
líkur á því að ég hætti að leika
knattspyrnu eftir yfirstandandi
keppnistímabil með Stuttgart. Það
segir sig því sjálft að hætti ég í vor,
þá hef ég leikið minn síðasta lands-
leik, þar sem ég á ekki heimangengt
í leikinn gegn Tyrkjum," sagði Ás-
geir eftir leikinn gegn A-Þjóðverjum
í fyrrakvöld.
Hafa úrslitin í þessum leik einhver
áhrif á hvort þú leikur áfram með
landsliðinu?
„Nei, ég horfi ekki mikið í þennan
leik sérstaklega, hann verður von-
andi fljótur að gleymast. Það sem
málið snýst um er hvort ég legg
skóna á hilluna í vor eða ekki.“
Hvernig líst þér á framtíð lands-
liðsins?
„Það verða einhverjar manna-
breytingar í liðinu, en maður kemur
í manns stað og það er bjart fram-
undan. Það þarf að hafa raunsæi að
leiðarljósi í málefnum liðsins, setja
stefnuna hátt, en halda sig þó við
jörðina."
Þarf að haga undirbúningi lands-
liðsins fyrir leiki á annan hátt en gert
er í dag?
„Það verður alltaf vandamál að
koma liðinu saman, meðan leik-
mennirnir koma alls staðar að úr
Evrópu. Okkar undirbúningur verð-
ur því ekki eins og hjá flestum
öðrum þjóðum. Við getum ekki
frestað leikjum út um alla Evrópu út
af okkar leikjum, en hérna heima er
þessu öðru vísi farið. Ef þurfa þykir,
þá ætti að fresta leikjum á íslands-
mótinu, til þess að gefa landsliðinu
betri tíma til undirbúnings fyrir leiki
sína,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson.
BL
Mörkin Island: Kristján 10, Guð-
mundur 6, Atli 4, Óskar 2, Geir 2,
Valdimar 1 og Þorgils Óttar 1.
A-Þýskaland: Winselmann 11,
Wahl 5, Hauch 5, Triepel 3,
Handschke 2, Scneider 1, Fuhrig 1
oe Buruth 1.
BL
1x2 1x2 1x2 1x2 1x2
Get-raunir!!!
Tveir lukkunnar pamfílar
kræktu sér í góðan auka-
skilding um síðustu helgi er
þeir náðu 12 leikjum réttum
í 35. leikviku íslenskra get-
rauna.
Annar hinna heppnu var
að auki með 10 raðir með 11
réttum og fékk hann því í
sinn hlut rúmar 350 þúsund
kr. Hinn aðilinn fékk sýnu
minna eða um 310 þúsund
kr.
Skipting getraunamerkj-
anna var mjög óvenjuleg
um síðustu helgi, 6 heima-
sigrar, 6 jafntefli og enginn
útisigur. Þrátt fyrir það
komu 34 raðir fram með 11
réttum, auk þeirra tveggja
raða sem voru með 12
réttum. Fyrir hverja röð
greiðast 4.470 kr. í vinning.
Heildarupphæð vinninga
um síðustu helgi var 771.494
kr. og sífellt bætast fleiri
krónur í pottinn í hverri
viku, enda enski boltinn
farinn að rúlla fyrir alvöru.
Nýr hópleikur getrauna,
„Haustleikur" hefst núna
um helgina, í 36. leikviku
og sömuleiðis hefst nýr fjöl-
miðlaleikur.
En snúum okkur að leikj-
um helgarinnar, sölukerfið
lokarkl. 13.55 álaugardag.
Arsenal-Sheff. Wed.: 1
Það yrði saga til næsta bæjar
ef Englandsmeistararnir
misstu stig til botnliðs Sheff-
ield Wednesday. Einróma
samkomulag um heimasig-
ur.
Aston Villa-Tottenh.: 2
Útisigur í þessum leik er
líklegur, Tottenham liðið
er að spjara sig jafnt og
þétt, en lið Aston Villa gæti
þó gert Lundúnaliðinu
skráveifu.
Chelsea-Nott. For.: 2
Chelsea kom upp úr 2. deild
og fór þegar á topp 1. deild-
ar. Nú er hins vegar komið
að fyrsta tapleik liðsins á
þessu keppnistímabili og
fyrsta sigri Forest.
Crystal Pal.-Wimbledon: x
Hvorugt liðið hefur unnið
leik það sem af er og á því
verður engin breyting í |
þessum leik, steindautt
jafntefli.
Derby-Liverpool: x
Hvorugt liðið hefur tapað í
fyrstu 3 leikjum sínum. Lið
Derby kom á óvart í fyrra
og í haust hefur liðið haldið
uppteknum hætti. Bikar-
meistararnir verða að sætta
sig við jafntefli á Baseball
Ground.
Everton-Man. Utd.: 2
United menn eru búnir að
hugsa sinn gang eftir tapið
fyrir Derby um daginn og
vinna sigur á Everton á
útivelli.
Luton-Charlton: x
Hinn skæði heimavöllur
Luton dugar þeim ekki til
sigurs að þessu sinni og
leikmenn Charlton ná að
fóta sig vel á gervigrasinu
og ná jafntefli.
Man. Utd.-QPR: x
Enn eitt jafnteflið á seðlin-
um. QPR verður því áfram
taplaus og City liðið bætir
einu stigi við það eina sem
fyrir var.
Millwall-Coventry: 1
Toppleikur helgarinnar milli
liðanna í 2. og 4. sæti 1.
deildar. Millwall hefur 7 stig
úr 3 leikjum og er taplaust,
en Coventry hefur 6 stig úr
jafnmörgum leikjum. Millw-
all heldur uppteknum hætti ■
og sigrar á heimavelli sínum.
Norwich-Southampton: 1
Áfram heldur Norwich sig
við toppinn. Liðið hefur nú
5 stig í 8. sæti deildarinnar, l
en Dýrlingarnir hafa 3 stig í
6. neðsta sætinu. Heimasigur
í þessum leik ætti að vera
borðleggjandi.
Leeds-Ipswich: 2
Lið Ipswich virðist ætla að
spjara sig vel í 2. deildinni.
Lið Leeds er enn mjög ó-
stöðugt og óútreiknanlegt.
Útisigur er ekki svo fráleitur
kostur.
Sunderland-Watford: 2
Bæði þessi lið hafa byrjað
bærilega í 2. deildinni í
haust. Watford drengirnir
hafa betur í þessari viðureign
og fikra sig nær toppnum.
m 8S;Íf» 'i'V.I wM
| LEIKIR 9. SEPT. ’89 ú 2 s z z 1 Z (L 2 S 1 K CC 5 I m Z s CE 1 1 m I < z < i m SAMTAL$ |
1 X 2 R
| Arsenal - Sheff. Wed. 1 1 1 i i 1 1 1 1 1 i 11 0 °1
| Aston Vllla - Tottenham 2 X 2 2 2 X 2 2 2 1 1 1 2 b|
| Chel5ea-Nott.For. X X 2 2 1 2 X X 2 X X 1 6 4|
| C.Palace-Wimbledon X 2 X 2 X 1 1 1 X 1 1 5 4 2|
| Oerby-Uverpool 2 2 X 2 2 2 2 2 2 2 2 0 1 10|
Everton - Han. Utd. 1 X 2 X X X 2 2 X 1 1 3 5 31
Luton-Charlton 1 1 X 1 1 1 1 X 1 1 1 9 2 oi
Man. City - Q.P.R, X X X 1 1 X 1 X 1 1 X 5 6 °l
Millwall - Coventry 2 X 1 1 X 1 X 2 X 1 2 4 4 3|
Norwlch - Southampton 1 1 1 1 1 1 1 2 2 1 1 9 0
leeda - ipswlch 1 1 2 1 1 1 2 1 1 X X 7 2 21
Sunderland-Watford 2 1 2 2 as 2 SE X ‘SB 2 11 2 2 X 2 2 7P
x2 1x2 1x2 1x2 1x2