Tíminn - 03.10.1989, Blaðsíða 1
Nær fimmtán þúsund bílum fleira á höfuðborgar-
svæðið en á landsbyggðina, árin 1986 til 1988
Reykjavík bólgnar
út af fólksbílum
Óhætt er að segja að Reykja-
vík og næsta nágrenni hafi
bólgnað út af bílum síðustu
ár. Árin 1986 til ’88 voru ný-
og endurskráningar bíla á
höfuðborgarsvæðinu tæp-
lega átján þúsund fleiri en
afskráningar.
Á sama tíma var þessi
fjöldi um þrjú þúsund bílar á
landsbyggðinni fyrir utan R-
kjördæmin. Þegar þessar
tölur er skoðaðar þarf engan
að undra þó umferð á Stór-
Reykjavíkursvæðinu hafi
aukist mikið á þessu tíma-
bili. • Blaðsíða 3
Brotist var inn í útibú KA í Þorlákshöfn um helgina
Vanir menn“ í
Þorlákshöfn?
Heimildir Tímans herma að ránsfengur
við innbrot í kaupfélagið í Þorlákshöfn hafi
verið ein milljón og fjögur hundruð þúsund
krónur. Þessar upplýsingar fengust ekki
staðfestar hjá rlr í gær, en heimamenn
sögðu okkur að greinilegt væri að þetta
innbrot hefði verið fram af „vönum
mönnum.“ Þjófavarnakerfið stóð ekki undir
nafni, furðu ákveðið virðist hafa verið geng-
ið til verks og tíminn sem valinn er mjög
góður með tilliti til fúlgunnar í peninga-
skápnum. Föstudag bar upp á mánaðamót.
Lögregla gefur engar upplýsingar um
málið.
• Baksíða
Her má sjá ummerki eftir innbrotiö. Hurðin
var spennt upp og fuilyrða nágrannar að
þjófavarnakerfið hafi ekki farið af stað.
T(mamynd Pjetur