Tíminn - 03.10.1989, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 3. október 1989
. ; i ►
Tíminn 15
Körfuknattleikur:
Sigurður Bjarnason reynir gegnumbrot í leiknum gegn Drott, en eins og sjá má mætir harðri mótspyrnu eins
leikmanna Drott. Tím.mynd Pje.nr.
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik:
STJORNUHRAP
- tapaöi 14-23 fyrir sænska liöinu Drott
Haukar nýttu
sér ekki
hæðarmuninn
og töpuöu 68-72 fyrir Njarövíkingum
Fyrsta heimaleik Stjörnunnar í
nýja íþróttahúsinu í Garðabæ á
sunnudagskvöld lauk með 9 marka
ósigri heimamanna. Sænska liðið
Drott fór hamförum gegn Stjörnunni
og sigraði örugglega 23-14.
Jafnræði var með liðunum fyrstu
mín. í leiknum allt upp í 3-3. Þá tóku
gestirnir öll völd á vellinum og
skoruðu næstu 7 mörk og breyttu
stöðunni í 3-10. Pá vöknuðu heima-
menn aftur til lífsins og löguðu
stöðuna í 5-10, 6-11 og 9-12 í
leikhléinu.
Stjarnan gerði fyrsta markið í
síðari hálfleik og minnkaði muninn
í 10-12. í kjölfarið fylgdu 3 mörk frá
Drott og möguleikar Stjörnunnar á
að jafna minnkuðu stöðugt. Munur-
inn fór í 7 mörk 12-19 og þegar upp
var staðið var 9 marka ósigur stað-
reynd 14-23.
Drott sýndi handknattleik í allt
öðrum gæðaflokki en Stjarnan á
sunnudaginn, svo mikið er víst.
Liðið leikur yfirvegað og skynsam-
lega, en á milli má sjá glæsilegar
leikfléttur. í liðinu er skemmtileg
blanda af ungum og efnilegum leik-
mönnum og gömlum og reyndum.
Jörgen Abrahamsson og Magnus
Andersson áttu bestan leik Drott
manna, en þeir Tomas Gustavsson
markvörður, sem varði 15 skot og
Magnus Weberg Iéku einnig vel.
Anders Holmen markvörður kom
inná og varði 2 vítaköst. Sigur í
síðari leiknum ytra ætti að vera
formsatriði fyrir lið Drott.
Lið Stjörnunnar var mjög slakt í
þessum leik, en hafa ber í huga að
tvo lykilmenn vantaði í liðið, þá
Brynjar Kvaran markvörð og Haf-
stein Bragason hornamann. Besti
maður liðsins í þessum leik var hinn
ungi markvörður Ingvar Ragnarsson
sem varði 14 skot. Gylfi Birgisson og
Sigurður Bjarnason voru slakir, en
ógnandi. Nafnarnir Sigurjón Bjarna-
son og Sigurjón Guðmundsson áttu
þokkalegan leik, en athygli vakti
mjög slæm frammistaða Skúla
Gunnsteinssonar, sem lék með af-
brigðum illa.
„Þetta var mjög dapurt, menn
þoldu greinilega ekki þá spennu sem
var samfara þessum nýjungum,"
sagði Gunnar Einarsson þjálfari
Stjörnunnar eftir leikinn.
„Við gerður 15 tæknifeila í leikn-
um, sem er mjög óeðlilegt, við
vorum komnir niður í 4 feila í fyrra.
Þessi taugaveiklun gaf Svíunum auk-
ið sjálfstraust og jafn reynt lið og
Drott nýtir sér það.“
„Við munum skoða leikinn á
myndbandi og athuga hvaða mistök
við höfum gert í undirbúningi liðsins
síðustu 2 vikur. Þetta eru okkur
mikil vonbrigði, en menn eiga að
herðast við mótlæti."
„Róðurinn verður erfiður í
Svíþjóð, en ég minni á að lið Drott
er þekkt fyrir afar sveiflukenndan
leik. Það veikti lið okkar að tvo
lykilmenn vantaði, en Ingvar stóð
sig vel í markinu og það er ekki við
hann að sakast,“ sagði Gunnar að
lokum.
Valsmenn voru Grindvíkingum
auðveld bráð í úrvalsdeildinni í
körfuknattlcik á Hlíðarenda á
sunnudagskvöld. Gestirnir fóru
með öruggan sigur af hólmi 75-68
eftir að hafa verið yfir í leikhléinu
30-27.
Þessi lið börðust um sæti í úr-
slitakeppninni í fyrra og þá höfðu
Valsmenn betur. I vetur er allt útlit
fyrir að dæmið snúist við, en fleiri
lið verða í baráttunni í riðlinum.
Þórsarar frá Akureyri náðu að
veita KR-ingum öfluga mótspyrnu
á sunnudaginn er liðin mættust í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Á
lokamínútum leiksins gerðu þó
KR-ingar harða hríð að körfu Þórs
og tryggðu sér stórsigur 66-87.
Jafnræði var með liðunum fram-
an af og til að mynda var jafnt
32-32. Þegar flautað var til leikhlés
var staðan 34-40 KR í vil.
Bilið breikkaði jafnt og þétt í
síðari hálfleik og þegar um 2 mín.
voru til leiksloka var staðan 63-74.
Þá sprungu Þórsarar og KR-ingar
'röðuðu niður körfunum. Lokatöl-
ur urðu 66-87.
Axel Nikulásson og Anatolij
Kovtoum voru bestir í liði KR, en
hjá Þór var Jón Örn Guðmundsson
stórgóður í sínum fyrsta leik með
Þór. Konráð Óskarsson átti einni
góðan leik. Bandaríkjamaðurinn
Dan Kennard náði sér ekki á strik
Danskir dómarar dæmdu leikinn
nokkuð vel, en leiðinlegt var að sjá
að þeir urðu fyrir aðkasti áhorfenda,
sem hræktu á þá. Vonandi endurtck-
ur það sig ekki.
Mörkin Stjarnan: Gylfi Birgisson
6/3, Siguröur Bjarnason 4, Sigurjón
Bjarnason 2, Sigurjón Guðmunds-
son 1 og Einar Einarsson 1.
Drott: Jörgen Abrahamsson 6,
Jan Olof Jönason 5, Magnus Weberg
4, Ola Lindgren 3, Göran Bengtsson
2, Magnus Andersson 2 og Henrik
Andersson 1. BL
Chris Behrends var bestur
Valsmanna í þessum leik ásamt
Svala Björgvinssyni og Einar Ól-
afssyni, en hjá Grindavík voru þeir
Jeff Null, Guðmundur Bragason
og Rúnar Árnason bestir.
Stigin Valur: Chris Behrends 21,
Svali 20, Einar 16, Matthías 6,
Arnar 4 og Björn 1.
Grindavík: Jeff Null 30, Guð-
mundur 24, Rúnar 15, Sveinbjörn
2, Hjálmar 2 og Jón Páll 2. BL
í liði norðanmanna.
Stigin Þór: Jón Örn 20, Konráð
19, Dan Kennard 12, Björn 6,
Guðmundur 5 og Ágúst 4.
KR: Axel 26, Páll 16, Kovtoum
12, Birgir 11, Matthías 7, Sigurður
5, Lárus 4, Gauti 4 og Guðni 3.
BL
IBK sigur
Keflvíkingar hófu titilvörn sína í
nágrannabænum Sandgerði á
‘ sunnudaginn. Heimamenn úr reyni
voru engin fyrirstaða og ÍBK vann
stórsigur 107-64.
Stigin ÍBK: David Grissom 23,
Jón Ben 12, Sveinn 12, Einar 6,
Ellert 6 Árni 2 og Sigurþór 2. ÍBK:
John Weargasson 21, Guðjón 21,
Sigurður 12, Magnús 11, Falur 10,
Albert 9, Kristinn 8, Ingólfur 8,
Einar 5 og Nökkvi 2. BL
íslandsmótið í körfuknattleik var
sett á laugardaginn í íþróttahúsinu
við Strandgötu. Kolbeinn Pálsson
formaður KKÍ flutti stutta og gagn-
orða ræðu og síðan hófst leikur
Hauka og Njarðvíkinga.
Flestir hafa eflaust reiknað með
öruggum sigri Hauka í þessum leik,
þar sem Njarðvíkingar léku án er-
lends leikmanns. Haukarnir skört-
uðu hins vegar Bandaríkjamannin-
um Jonathan Bow, auk ívars
Websters. Hæðarmunurinn á liðun-
um var því umtalsveröur, 7 bakverð-
ir í liði Njarðvíkinga og aðeins 2
leikmenn yfir 1,90 m. Þessi hæðar-
munur kom hins vegar ekki að sök,
þar sem Haukamenn virtust ekki
gera sér grein fyrir yfirburðum sín-
um á þessu sviði, en reyndu þeim
mun meira fyrir sér í þriggja stiga
skotum.
íslandsmótið hófst með glæsibrag
og sýnir hvað í vændum er í vetur.
Njarðvíkingar unnu uppkastið og
Teitur Örlygsson brunaði fram og
tróð með tilþrifum í Haukakörfuna.
Fyrri hálfleikur var allur eign Njarð-
víkinga sem leiddu allan tímann.
Nokkrar tölur úr fyrri hálfleik: 0-6,
5- 6, 8-21, 25-35 og í hálfleik var
staðan 28-39.
Haukamenn breyttu um leikað-
ferð í síðari hálfleik, hættu að leika
maður á mann, en tóku Teit Örlygs-
son úr umferð. Bilið milli liðanna
minnkaði og um miðjan hálfleikinn
var staðan 49-55. Haukar komust í
fyrsta sinn yfir í leiknum 59-58 með
þriggja stiga körfu Jonathan Bow.
Næstu mín. var leikurinn í járnum,
en gestirnir náðu að komast yfir
68-69. Þegar hér var komið við sögu
var Helgi Rafnsson kominn með 5
villur og Kristinn Einarsson var með
4 villur. Síðustu körfu leiksins gerði
Friðrik Rúnarsson fyrir Njarðvík-
inga 68-72 og síðustu 1:40 mín.
héldu Njarðvíkingar boltanum,
Haukarnir brutu á Njarðvíkingum,
sem ávallt völdu að taka innkast.
Sá feill sem kostaði Hauka sigur í
þessum leik var sá að sækja ekki
meira inní vítateig Njarðvíkinga og
fá þannig auðveldar körfur og villur
á Helga og Kristin. Á þessu áttuðu
Hafnfirðingarnir sig of seint og því
fór sem fór. Sem dæmi um hæðar-
muninn þá gætti Jóhannes Krist-
björnsson Jonathans Bow allan leik-
inn.
Njarðvíkingar unnu mikið afrek
með sigri sínum í þessum leik. Hittni
þeirra var góð og skynsemin réð
ríkjum jafnt í vörn sem sókn. Teitur
Örlygsson átti mjög góðan leik og
þrátt fyrir að hann væri tekinn úr
umferð í síðari hálfleik, þá náði
hann að rífa sig lausan af og til og
skora mikilvægar körfur. Jóhannes,
Isak og Friðrik Rúnars. voru einnig
góðir, og Helgi var sterkur í frá-
köstunum, en slakur í sókninni.
Bow og Webster voru skástir í liði
Hauka, en með réttri leikaðferð
hefðu þeir tveir átt að geta gert út
um leikinn. Pálmar Sigurðsson var
mjög slakur í fyrri hálfleik og skoraði
þá ekki stig. Hann reif sig upp í
síðari hálfleiknum og gerði þá 13
stig. Jón Arnar Ingvarsson og ívar
Ásgrímsson hittu illa og aðrir komu
lítt við sögu.
Leikinn dæmdu þeir Jón Otti
Ólafsson og Jón Bender. Sá síðar-
nefndi hefði gjarnan mátt vera nísk-
ari á tæknivillurnar.
Stigin Haukar: Jonathan Bow 23,
Pálmar 13, Webster 12, Jón Arnar
11, ívar Á. 7 og Tryggvi 2.
UMFN: Teitur 25, Jóhannes 17,
ísak 9, Friðrik Rúnars. 9, Helgi 4,
Kristinn 4, Friðrik Ragnars. 2 og
Ástþór 2. BL
Knattspyrna:
Hörður þjálfar
Breiðablik
Breiðabliksmenn gengu á
sunnudagskvöldiö frá ráðningu
í þjálfaramálum sínum fyrir
næsta keppnistímabil í knatt-
spyrnunni. Fyrrum þjálfari
Selfyssinga, Hörður Hilmars-
son mun taka við liöinu.
I lokahófi Blika fyrir nýlokið
tímabil var markvörðurinn
efnilegi Eiríkur Þorvarðarson
kjörinn knattspyrnumaður árs-
ins hjá félaginu. BL
Kraftur ’89:
Jón Páll
sterkastur
Jón Páll Sigmarsson sannaði
uni helgina að hann er ekki
dauður úr öllum æðum. Jón
Páll sigraði í kraftakeppninni
Kraftur '89 í Laugardalshöll.
Jón Páll og sterkasti maður
heims, Jamie Reeves stóðu
uppi jafnir að stigum að keppn-
inni lokinni, en Jón Páll hafði
sigur þar sem hann sigraði í
fleiri greinum. Magnús Ver
Magnússon hafnaði í 3. sæti.
Knattspyrna:
Mogginn vann
Fjölmiðlamótið í knatt-
spymu 1989 fór fram á gervi-
grasinu í Laugardag á sunnu-
' dag. Tíu miðlar mættust í
keppni þar sem ekkert var
geFið eftir og var það mál
manna að mótið hafi aldrei
verið sterkara en í ár. Fjórir
þekktir leikmenn úr Hörpu-
deildinni tóku þátt ■ mótinu,
auk formanns KSÍ.
Morgunblaðið bar sigur úr
bítum að þessu sinni, eftir 4-2
sigur á Dag í úrslitaleik. DV
varð í þriðja sæti eftir sigur á
Bylgjunni sem varð í 4. sæti.
Tíminn varð í 4. sæti í sínum
riðli, eftir 2-1 sigur á Alþýðu-
blaðinu í hörkuleik. BL
Silfurbolta
stolið
Fótbolta úr silfri að verð-
mæti 6,6 milljónir ísl. kr. var
rænt á Ítalíu á sunnudag. Bolt-
inn á að vera verðlaun til
handa besta markverði heims-
meistarakeppninnar á Ítalíu
næsta sumar og vegur gripur-
inn 9 kg.
Vopnaðir grímuklæddir
menn reyndu gripnum þegar
verið var að flytja hann frá
skartgripasýningu í Tórínó.
Körfuknattleikur:
|R-Reynir
í kvöld verða 2 leikir í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. í
Seljaskóla mætast ÍR og Reyn-
ir og á Sauðárkróki Tindastóll
og Þór. Báðir leikirnir hefjast
kl. 20.00. BL
Körfuknattleikur:
Góðir Grindvíkingar
JónÖrnbyriarvel