Tíminn - 10.11.1989, Page 2
2 Tíminn
Föstudagur 10. nóvember 1989
Félag íslenskra fræða:
Hlutverk rann-
sóknarstofnana
Félag íslenskra fræða boðar til málþings í Norræna
húsinu næstkomandi laugardag. Verður fjallað um hlut-
verk nokkurra rannsóknarstofnana á sviði íslenskra fræða.
Tvö framsöguerindi verða flutt um hverja stofnun, eitt af
starfsmanni stofnunarinnar og hitt af starfandi fræðimanni
í viðkomandi grein utan stofnunarinnar.
Þær stofnanir sem fjallað verður
um eru: Sagnfræðistofnun, Bók-
menntafræðistofnun, Þjóðminja-
safnið, Árnastofnun, Þjóðskjala-
safn og Orðabók Háskóla íslands.
Spurt verður um fjölda starfs-
manna, þróun og möguleika á
endurnýjun, ráðningarform, rann-
sóknarstefnu og rannsóknarverk-
efni. Þá verður fjallað um verkefni
undanfarna áratugi, þjónustu þess-
ara stofnana við almenning og
fræðimenn, hugsanlega samvinnu
við fyrirtæki og samtök á einkavett-
vangi og síðast en ekki síst sjálf-
stæði rannsóknarstofnana á vegum
ríkisins.
Fyrirspurnir og opnar umræður
verða um hverja stofnun og undir
lokin verða pallborðsumræður þar
sem fulltrúi menntamálaráðherra
kynnir stefnu stjórnvalda í málefn-
um íslenskra fræða.
Málþingið hefst kl. 9:15 í Nor-
ræna húsinu og er öllum opið
meðan húsrúm leyfir. SSH
Islensk list
sýnd í Hull
Laugardaginn 29. október síðast-
liðinn opnaði menntamálaráðherra
myndlistarsýninguna „Landscapes
from a High Latitude - Icelandic Art'
1909- 1989“ í Ferens listasafninu í
Hull.
Meðfylgjandi ntynd er tekin við
opnunina. F.v. Patrick Doyle leið-
togi borgarstjórnar Hull-borgar,
Trevor Larsen formaður menningar-
ráðs Hull, J.A. Milne forstöðumað-
ur tómstundastarfs á vegum Hull-
borgar, Tómas Karlsson sendifull-
trúi, Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra, Jón A. Baldvinsson sendi-
ráðsprestur, Björgin Vilhjálmsson
fulltrúi Skipadeildar SÍS í Bretlandi,
Pétur Björnsson forstjóri ísberg Ltd.
í Hull, Jón Olgeirsson ræðismaður
íslands í Grímsby, Ólafur Egilsson
Sendiherra, Thomas Boyd jr. ræðis-
maður íslands í Hull og frú, Stefán
Stefánsson fulltrúi Eimskipafélags
íslands í Bretlandi. Hópurinn stend-
ur við verk Ásmundar Sveinssonar
„Höfuðlausn.“
Dagur kristniboðs-
ins á sunnudaginn
Næstkomandi sunnudagur, 12.
nóvember, er Kristniboðsdagur ís-
lensku þjóðkirkjunnar. Biskup ís-
lands hefur ritað prestunum bréf og
hvatt þá til að minnast kristniboðsins
í guðsþjónustum þann dag. Sam-
band íslenskra kristniboðsfélaga
hefur unnið að kristniboði í Kenýu
síðastliðin ellefu ár og í Eþfópíu í
hálfan fjórða áratug, í nánu sam-
starfi við norskra kristniboða.
Gert er ráð fyrir að ellefu milljónir
króna þurfi til starfs Sambands ís-
lenskra kristniboðsfélaga á þessu ári
auk kostnaðar við að reisa nýja stöð
í Voitó í Eþíópíu. Á Kristniboðs-
daginn verður fólki gefinn kostur á
að leggja sitt af mörkum bæði í
guðsþjónustum ogá kristniboðssam-
komum. Ágóðinn af „Kristniboðs-
almanakinu 1990“, sem er í prentun,
rennur til starfsins. í tilkynningu frá
sambandinu kemur fram að það
getur nýtt notuð frímerki, innlend
og útlend. Skrifstofa SÍK er á Amt-
mannsstíg 2B í Reykjavík. Senda
má gjafir á gíróreikning nr. 651001.
í tilkynningunni segir einnig:
„Kristniboðið vill í senn leggja and-
legan, kristilegan grundvöll, hjálpa
fólki í neyð og efla framfarir.“
Frystitogarinn Stakfell frá Þórshöfn er búinn með kvótann
og mun liggja við bryggju fram yfir áramót. Útgerðarfélag
Norður-Þingeyinga hefur fengið þriggja mánaða greiðslustöðvun:
Skuldirnar eru
um 400 milljónir
Afrískur drengur með sykurreyr.
Mjólkursamsalan hefur sett á
markað nýja mjólkurafurð, svo-
nefnda Þykkmjólk. Þykkmjólkin er
með þremur afbrigðum, sex korna
með ferskjum, með eplum og perur
í stórum bitum og með hreinum
jarðarberjasafa. Sömu gerlar eru í
Þykkmjólkinni og AB mjólkinni en
notuð eru önnur afbrigði og með
ólíkri sýringu. Sýrustig Þykkmjólk-
urinnar helst nánast óbreytt við
geymslu. Þessir gerlar eru í melting-
arfærum mannslíkamans og eru tald-
ir auðvelda meltingu og auka mót-
stöðu líkamans gegn óæskilegum
bakteríum. Margar rannsóknir
benda einnig til að þeir hindri
krabbameinsmyndun. Þykkmjólkin
er framleidd í Mjólkursamlagi Borg-
firðinga í Borgarnesi.
Blaðamenn á Tímanum hafa
bragðað á Þykkmjólkinni og er það
Útgerðarfélag Norður-Þing-
eyinga hefur fengið greiðslu-
stöðvun í þrjá mánuði. Skuldir
fyrirtækisins nema um 400 millj-
ónum. Togarinn Stakfell, sem
er í eigu Útgerðarfélagsins, ligg-
samdómaálit þeirra allra að hér sé á
ferðinni mjög bragðgóða fæðu.
-EÓ
ur nú við bryggju og mun liggja
þar fram yfír áramót vegna þess
að skipið er búið með kvótann.
Búið er að segja áhöfninni upp
störfum.
Sigurður Jónsson framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélagsins sagði að ver-
ið væri að leita að varanlegri lausn á
fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Skuldir
þess eru miklar, en Sigurður kvaðst
telja að eignir fyrirtækisins væru
álíka miklar og skuldirnar.
Stakfellið er rúmlega sjö ára gam-
alt skip. Það landaði afla á Þórshöfn
og Raufarhöfn fyrstu fimm árin en
var síðan breytt í frystitogara. Sig-
urður sagði að sú ákvörðun hafi
verið tekin vegna þess að útgerðin
hafi ekki staðið undir sér. Skipið
hafi hins vegar skaffað mikla at-
vinnu. Eftir að Stakfellinu var breytt
var keypt annað skip til þess að
halda uppi atvinnu í landi. Útgerð
þess skips gekk illa vegna tíðra
bilana. Meðal annars þurfti að skipta
um aðalvél í skipinu. Það var að
lokum selt.
Sigurður sagði að á fyrstu átta
mánuðum þessa árs hefði rekstur
Stakfelsins verið í jafnvægi, en þenn-
an tíma var það rekið sem frystiskip.
Á þessunt átta mánuðunt kláraði
það mest allan kvótann. Sigurður
sagði að greiðslustöðvunin nú væri
komin til vegna þess að kvótinn væri
búinn og skammtíma skuldir væru
alltof miklar.
Staðan í atvinnumálum á Þórs-
höfn er sæmileg um þessar mundir.
Bátar hafa aflað vel í haust. At-
vinnuástandið hefur jafnan verið
erfitt í mánuðunum í kring um
áramót og má búast við að svo verði
einnig nú. Sigurður Jónsson sagði að
þörf væri á að skip eins og Stakfellið
legði afla að landi í þessum mánuð-
um. Skipið gæti hins vegar fryst afla
um borð í hinum mánuðunum.
Vandamálið væri aftur á móti að
kvóti væri ekki nægur.
„Skipið er það dýrt að það stendur
ekki undir því að landa öllum sínum
kvóta, sem fer reyndar hríðminnk-
andi eins og hjá öðrum, hjá vinnslu
í landi. Við vildum að skipið stæði
það vel rekstrarlega að það gæti
landað á Þórshöfn yfir vetrarmánuð-
ina þegar vantar afla en hefði svo
aftur frjálsar hendur til að afla allra
mögulegra tekna þess á milli.
Ofan á þau áföll sem Útgerðarfé-
lagið hefur orðið fyrir bætist að það
hafa sjaldan verið ömurlegri kring-
umstæður í sjávarútvegi en í dag.
Fjármagnskostnaður er geipilegur
og stöðugur aflasamdráttur. Þegar
allt leggst á eitt þurfa fyrirtæki að
hafa sterkari bein en við höfðum í
upphafi þessarar niðursveiflu. Ekk-
ert má útaf bera í rekstrinum," sagði
Sigurður að lokunt. -EÓ
Ricciarelli
í Háskólabíói
Hin heimsþekkta sópransöng-
kona, Katja Ricciarelli, mun
syngja á tónleikum með Sinfóníu-
hljómsveitinni á morgun, laugar-
dag. Ricciarelli hefur sungið sig
inn í hjörtu heimsbyggðarinnar í
öllum helstu óperuhúsum heims-
ins. Tónleikarnir eru utan áskrift-
ar og fer miðasala fram í Gimli
við Lækjargötu. Fer hver að
verða síðastur að fá miða á tón-
leikana.
Á efnisskránni verða meðal
annars aríur eftir Rossini, Bellini,
Cilea og Catalani. Auk þess verð-
ur flutt Sinfónía nr. 23 eftir
Mozart og Exultate jubilate,
einnig eftir Mozart, forleikurinn
úr Luisa Miller eftir Verdi og
Stundadansinn eftir Poncielli.
Katja Ricciarelli var væntanleg
á Listahátíð 1986 en gat ekki
komið þá vegna skyndilegra veik-
inda. Hljómsveitarstjóri á tón-
leikunum verður Petri Sakari,
aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitar Islands. SSH
Þykkmjólk