Tíminn - 10.11.1989, Blaðsíða 15

Tíminn - 10.11.1989, Blaðsíða 15
Föstudagur 10. nóvember 1989 Tíminn 15 lllllllllllllll ÍÞRÓTTIR Lið Fellaskóla sigraði í knattspyrnumóti KR og Stjömunnar í gærkvöldi á gervigrasvellinum í gærkvöld. Andstæðingar þeirra vom úr Ölduselsskóla en ekki gekk þrautalaust að knýja fram úrslit í leiknum. Jafnt var 1-1 að loknum venjulegur leiktíma og framlengingu og þurfti því vítaspyrnukeppni til. Fellaskóli skoraði úr öllum sínum spyrnum, en Ölduselsskóla misnotaði eina. Fellaskóla sigraði því 6-5 í leiknum. Timamynd Pjetur. íslandsmótið í handknattleik: „Okkur skorti úthald og því töpuðum við“ - sagði Guðmundur Guðmundsson þjálfari Víkinga eftir að liðið tapaði 25-27 fyrir Val „Okkar vantar meira úthald og því tapaðist þessi leikur. Ég vona að mér takist að laga leik liðsins meira þannig að við leikum betur í næsta leik,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson hornamaðurinn snjalli í liði Víkings, en hann tók við þjálfun liðins fyrir nokkrom dögum, eftir að Júgóslavinn Slavko Binibir var rekinn. Víkingsliðið lék í gær án Árni Friðleifssonar, sem á við meiðsl að stríða og munar um minna. Þrátt fyrir það sýndi Víkingar ágætis leik, en eins og Guðmundur benti á þá vantaði liðið aukið úthald til þess að ná sigra. Þrjú fyrstu mörkin í leiknum voru víkinga og Valsmenn komust ekki á blað fyrr en eftir 10 mín. leik. Hlíðarendapiltum tókst að jafna -5 og síðar komust þeir yfir 7-8. Það var í eina skiptið í fyrri hálfleik sem Víkingar höfðu ekki frumkvæðið. Þegar flautað var til leikhlés voru Víkingar 3 mörkum yfir 15-12. Valsmenn jöfnuðu þegar í síðari hálfleik og leikurinn var í járnum fram að 19-19. Þá tóku Valsmenn við forystuhlutverkinu og komust í 19- 21. Þrátt fyrir yfirvegaðan leik Víkinga undir lok leiksins, þar á meðal 2 mín. sókn á lokamínútunum tókst þeim ekki að jafna og síðasta mark leiksins gerði Jakob Sigurðs- son úr hraðaupphlaupi 25-27. Ingi- mundur Helgason Víkingur missti knöttinn þegar nokkrar sek. voru til leiksloka, en Víkingar gerðu þá örvæntingarfulla tilraun til þess að koma knettinum framhjá sterkri vörn Vals. Leikurinn var fjörugur og spenn- andi og allt annað var að sjá til Víkingsliðsins en í undanförnum leikjum. Þeir Guðmundur, Bjarki, Birgir og Ingimundur léku allir vel og Hrafn varði vel í markinu. Hjá Val voru menn nokkuð lengi í gang en þegar á þurfti að halda skiluðu menn sínu. Brynjar Harðar- son gerði falleg mörk, en hann var lengst af tekinn úr umferð. Jón Kristjánsson og Einar Þorvarðarson léku best Valsmanna að þessu sinni, en hætt er við að þeir Hlíðarenda- piltar verði að leika betur á sunnu- dagskvöld gegn Raba Eto í Evrópu- keppninni, ætla þeir að vinna upp mörkin 6 og komast í 3. umferð keppninnar. Mjög slakir dómarar leiksins voru þeir Einar Sveinsson og Kjartan Steinback. Mörkin Víkingur: Birgir 7, Bjarki 6, Guðmundur 6/2, Ingimundur 4 og Siggeir 2. Valur: Jón 7, Brynjar 6, Valdimar 6/1, Jakob 3, Júlíus 3, Finnur 1 og Ingi Rafn 1. BL Staðan í 1. deildinni í handknattleik VÍS-keppninni: FH ....... 54 1 0 136-105 +31 9 Stjarnan ..4400 95- 69 +26 8 Valur .... 5 4 0 1 131-111 +20 8 KR ....... 5 3 0 2 107-113 -6 6 ÍR........52 12 121-118 +3 5 ÍBV.......5 122 113-115 -2 4 Víkingur .61 14 129-142 -13 3 Grótta ... 5 1 1 3 93-113 -20 3 HK ....... 5 1 04 109-128 -19 2 KA ....... 5 10 4 104-124 -20 2 Körfuknattleikur-NBA deildin: Magic sektaður fyrir löðrung Fimm leikmenn í bandarísku NBA atvinnumannadeildinni í körfuknattleik hafa verið sektaðir fyrir að beita líkamlegu ofbeldi það sem af er keppni, en aðeins er vika síðan keppnistímabilið í deild- inni hófst. Earvin „Magic“ Johnson aðal- maðurinn í liði Los Angeles Lakers var dæmdur í 3.000 dala sekt fyrir að löðrunga Kevin Johnson í leik Lakers, og Phoenix Suns. Báðir vom þeir reknir af leikvelli i leikn- um og Kevin Johnson fékk líka sekt sem nemur 1.000 dölum. Þá var Byron Scott dæmdur í 500 dala sekt fýrir að stjaka við Kevin Johnson í sama leik. Scott Hastings leikmaður með Detroit Pistons var dæmdur í 1.500 dala sekt fyrir slagsmál við nýliða Chicago Bulls, Stacey King. King fékk 500 dala sekt fyrir að slá til Hastings. í fyrrakvöld vora nokkrír ieikir í NB A-deiIdinni. Athygli vekur sig- ur Orlando Magic á Cleveland Cavaliers 117-110, en framleng- ingu þurfti til að úrslit fengjust. Úrslit urðu annars þessi: Indiana Pacers-Detroil Pistons 95-74 Philadelphia ’76-Miami Heat 115-91 Washington Bullets-Boston C. 112-103 Chicago Bulls-Minnisoda Timb. 96-84 Portland Trail BI.-S.A. Spurs 108-104 Denver Nuggets-Sacramento K. 102-84 Utah Jazz-Charlotte Homets 102-86 Dalias Mavricks-L.A.CIippers 123-99 Orlando Magic-Cleveland Cava. 117-110 BL 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 Get-raunir!!! Fyrsti vinningur gekk ekki út í síðustu leikviku getrauna og því er potturinn ijórfaldur nú um helgina. Er það í þriðja sinn sem það gerist í beinlínutengda get- raunakerfinu. Úrslitin voru óvænt um síðustu helgi ekki nema von að tippurum gengi illa. Að- eins 14 voru með 11 rétta og vinningur þeirra er óvenju stór, eða 41.249 kr. í hlut hvers. Þar sem potturinn verður fjórfaldur á morgunn og salan hefur varið vaxandi síðustu vikur, má gera ráð fyrir því að heildarvinningar verði ekki undir 10 milljón- um kr. á ntorgunn. Ekki mun heldur skemma fyrir að leikur 7 á seðlinum, leik- ur QPR og Liverpool verð- ur sýndur í beinni útsend- ingu í ríkissjónvarpinu. Leikurinn hefst kl. 15.00, en sölukerfinu verður lokar 5 mín. fyrr. Fram var söluhæsta félag- ið í síðustu viku með 44.078 raðir, næst kom Fylkir með 35.013 raðir og KR var í þriðja sætinu með 17.713 raðir. Öll félögin í topp 10 listanum seldu fleiri en 10 þúsund raðir. Hópurinn SOS hefur for- ystu í haustleik getrauna með 92 stig. Næstur kemur SÍLENOS með 90 stig, FÁLKAR hafa 89 stig, TVB16 hafa 88, HULDA 87 og SVENSON 86. Aðrir hópar hafa færri stig. Morgunblaðið stóð sig langbest fjölmiðla í síðustu viku og var með 8 leiki rétta. Aðrir miðlar voru með 4-6 rétta. Staðan í fjölmiðlaleiknum er nú þessi: Alþýðublaðið 55, Bylgjan 53, DV og Rúv 50, Stöð 2 og Dagur 47, Hljóð- bylgjan 46, Þjóðviljinn 44, Stjarnan 41 og Tíminn 38. En snúum okkar þá að leikjum helgarinnar og höf- um í huga að til mikils er að vinna og að undanförnu hafa úrslit verið mjög óvænt í 3-4 leikjum á hverjum seðli. Coventry-Southampt.: 2 Allt getur gerst í þessum leik, gengi beggja liðanna hefur verið skrykkjótt, en ætli Dýrlingarnir hafi ekki sigur að þessu sinni. Crystal Palace-Luton: I Ekki væri vitlaust að eyða þrítryggingu á þennan leik, en líklegast er þó að um heimasigur verði að ræða. Derby-Man. City: 1 Eftir tap á útivelli um síð- ustu helgi má gera ráð fyrir leikmönnum Derby ákveðn- um að sigra City í þessum leik. Everton-Chelsea: x Leikur í toppbaráttunni og allt getur gerst. Reyndar er lið Everton sterkt á heima- velli en brugðið getur til beggja vona og jafntefli ætti ekki að koma svo mjög á óvart. Spurning um að nota tvítryggingu. Millwall-Arsenal: 2 Allt annað en sigur Arsenal kæmi á óvart, en vel á minnst, úrslitin hafa verið óvænt að undanförnu og því má alveg eins gera ráð fyrir jafntefli. Norwich-Aston Villa: 1 Sigur heimaliðsins ætti að teljast skotheldur, en allt getur gerst. Lið Aston Villa hefur verið í sókn að undan- förnu og hver veit. QPR-Liverpool: 2 Þá er komið að sjónvarps- leiknum, þar sem búast má við harði hríð að marki heimaliðsins. Liverpool óvænt á heimavelli um síð- ustu helgi fyrir Coventry og þarf því að snúa á sigur- brautina á nýjan leik með sigri í þessum leik. Sheff. Wed.-Charton: 2 Lið Wednesday vann óvæntan útisigur á Forest um síðustu helgi, en liðið vinnur ekki tvo leiki í röð, þannig að Charlton hirðir 3 stig á Hillsborough. Tottenh.-Wimbledon: 1 Það ætti ekki að vera spurn- ing að heimasigur er mjög líklegur í þessum leik. Bæði þessi lið gerðu jafntefli um síðustu helgi, svona til fróð- leiks. Bournem.-Sheff.Utd: 1 Óvæntur heimasigur Boume- mouth á toppliðinu í 2. deild. Óvænt úrslit, en hafa ber í huga að Bournemouth liðið er mjög sterkt á heim- avelli. Sunderland-Wolves: x Úlfarnir unnu góðan sigur á West Ham um síðustu helgi og styrkti því stöðu sína í deildinni. Á sama tíma tap- aði Sunderland á útivelli. Jafntefli er ekki fjarri lagi í þessum leik. West Ham-Newcastle: 1 West Ham missir af lestinni í deildinni ef liðið hefur áfram að tapa. Liðið getur klórað í bakkann með sigri í þessum mikilvæga leik í toppbaráttunni í deildinni. FJÖLMIÐLASPÁ z | Q 5 Z < LEIKIR11. NÓV. '89 : 2 z z 1 1 tr 1 < 5 “7 ö -J 3 I % -4 ca 3 f í 1 SAMTALS 2 O F 2 o U S < x 1 X 2 Coventry - Southampton X 1 2 11 2 2 1 1 2 X 1 5 2 4 C. Palace - Luton 1 1 1 XI 1 1 2 1 1 1 9 1 1 Derby-Man. City 1 1 1 1 1 1 1 X 1 2 2 8 1 2 Everton - Chelsea 1 1 X 1 1 1 1 1 1 1 X 9 2 0 Millwall - Arsenal 2 2 2 2 2 7 2 2 X X 2 0 3 8 Norwich - Aston Villa 1 1 1 1 t 1 1 X 1 1 1 10 1 0 Q.P.R. - Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 X 0 1 10 Sheff. Wed. - Charlton 1 1 2 X X 2 X X X 1 1 4 5 2 Tottenham-Wimbledon 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 Bournemouth - Sheff. Utd. 2 X 1 2 2 1 2 2 X 2 2 2 2 7 Sunderland - Wolves X 1 X 1 1 1 1 2 X 1 X 6 4 West Ham - Newcastle 1 il 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 0 x2 1x2 1x2 1x2 1x2 í kvöld ieika KA og ÍBK á Akureyri kl. 20.30.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.