Tíminn - 23.11.1989, Page 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 23. nóvember 1989
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar að störfum á vettvangi í gærmorgun. Þarna í hominu sprakk
sprengjan. Leifar af kveikjuþræðinum fundust í kjarrinu til vinstri á myndinni. Sjá má að hurðin hefur rifnað
af stöfunum og brotnað, en þetta er bakhluti bQskúrsins. Handan veggsins sem annar sprengjusérfræðinganna
styður hendinni á er sund, þar sem í fyrstu var talið að sprengjan hafi sprangið og hefði getað valdið þeim
ófyrirsjánlegu tjóni sem átt hefði leið þar um. Tímamynd Pjetur.
Dínamít sprengt í húsagarði við Laufásveg:
Talið er að sprengjan sem
sprakk skömmu fyrir kl. 22 á
þriðjudagskvöld í bakgarði
húss númer 24 við Laufásveg,
hafi verið sömu stærðar og
sprengjumar sem sprangu í
september á Bergþórugötu og
Öldugötu. Engin slys urðu á
fólki, en vel á annan tug rúða
brotnaði, einkum á vesturhlið
hússins þar sem sprengjan
sprakk og í kjallara hússins að
Fríkirkjuvegi 11. Ekki hefur
tekist að hafa hendur í hári
þeirra sem hér voru að verki.
Að sögn sprengjusérfræðinga
Landhelgisgæslunnar eru ummerki
svipuð og í fyrri skiptin og bendir
allt til þess að um eina 120 gramma
dínamíttúpu hafi verið að ræða.
Aðspurður hvort þessi sprenging
og sprengingarnar fyrr í haust væru
eitthvað í líkingu við sprengingar
IRA á áttunda áratugnum, sagði
sprengjusérfræðingurinn að þessi
sprengja væri jafnvel öflugri en
margar sprengjur IRA-manna þá.
Sagði hann að fólk liti á sprengjutil-
ræði IRA erlendis alvarlegum aug-
um, „en telja þessar sprengjur hér
heima vera einhvem leikaraskap.
Þetta eru ekki síður öflugri
sprengjur," sagði sprengjusérfræð-
ingurinn.
Við vettvangsrannsókn í fyrra-
kvöld fannst sprengiþráður á gang-
stígnum milli húsanna númer 22 og
24 við Laufásveginn. f gærmorgun
þegar Tímann bar að garði fundu
sprengjusérfræðingar fleiri búta af
sprengjuþræðinum í bakgarðinum,
þá var einnig búið að finna staðinn
þar sem sprengjan sprakk.
Sprengjan sprakk eins og áður
sagði í garði húss númer 24 við
Laufásveginn, í homi bílskúrs-
veggjar og veggjar er skilur að
bakgarðinn og sundið að Fríkirkju-
'vegi 11. f hominu mátti greinilega
sjá ummerki eftir sprenginguna og
var steinstétt gengin niður í hom-
inu og svört slikja var á veggnum.
Á bílskúrsveggnum þar sem
sprengjan sprakk brotnaði hurð og
í húsinu vom 11 rúður brotnar á
vesturhliðinni. Til að gefa hug-
mynd um þrýstinginn sem hlaust af
sprengingunni, þá brotnuðu fjórar
rúður í kjallara hússins að Frí-
kirkjuvegi 11, sem er í um 70 metra
fjarlægð en steinveggur skilur að
staðinn þar sem sprengjan sprakk
og ofangreindar rúður að Frí-
kirkjuvegi 11 er brotnuðu.
Piltur sem var á gangi milli
Kvennaskólans og Skothúsvegar,
sem er í talsverðri fjarlægð frá
þeim stað sem sprengjan sprakk
hentist um koll við þrýstinginn. Að
sögn sprengjusérfræðingsins hefði
getað farið illa ef einhver hefði
verið á gangi um sundið.
Það var kl. 21.53 sem tilkynning
barst um sprenginguna til lögreglu.
Fjöldi fólks dreif að og sagði
sprengjusérfræðingurinn að það
hefði að nokkm hamlað rannsókn
á vettvangi.
Ekki hefur tekist að hafa hendur
í hári þeirra sem hér vom að verki,
en leitt hefur verið getum að því
sömu aðilar hafi sprengt sprengj-
una við Laufásveg og á Bergþóm-
götu og Öldugötu í september.
-ABÓ
Leifar kveikiþráðs er fannst á lóðinni í gærmorgun.
Tímamynd Pjetur
Sprengjan álíka
öflug og þær er
sprungu í haust
Verslunarbankinn sendir Stöð 2
ótvíræð skilaboð vegna skuldastöðu:
Verslunarbanki fslands hefur nú
vaxandi áhyggjur vegna skuldastöðu
Stöðvar 2. Akveðnar heimildir Tím-
ans herma að stöðin skuldi nú nokk-
ur hundruð milljónir króna og
stærstur hluti skuldarinnar sé í Versl-
unarbankanum. Hafa forráðamenn
bankans fengið sig fullsadda á at-
burðum síðustu vikna og leita nú
logandi Ijósi að vel stæðum fyrir-
tækjum, sem keypt gætu ríflega
helming hlutafjár í Stöð 2.
Á mánudag vom málefni Stöðvar
2 til umræðu á bankaráðsfundi
Verslunarbankans. Fundurinn fór
að mestu í umræður um skuldahala
sjónvarpsstöðvarinnar. Þar börðu
menn í borðið og sögðu að þessi
skuldasöfnun gengi ekki lengur.
f þessu sambandi er rétt að geta
þess að nýverið greindu fjölmiðlar
frá kaupum bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar NBC á 5% hlutafé
Stöðvar 2. Tímaritið Frjáls verslun
greindi frá þessu í síðasta tölublaði
undir fyrirsögninni „Stöð 2: NBC
kaupir5% á 185 mil!jónir.“ Ástæður
kaupanna segir Frjáls verslun að
NBC vilji styrkja stöðu sína hvar-
vetna í Evrópu áður en Evrópu-
bandalagið verður ein markaðsheild
1992. í niðurlagi fréttarinnar segir
Frjáls verslun; „Ef þetta reynist rétt
vera em hér á ferðinni mikil tíðindi
og víst er að þetta skref mundi
styrkja stöðu Stöðvar 2 gífurlega."
Heimildir Tímans benda á að
ólíklegt sé að stöð á borð við NBC
hafi fyrir því að kaupa smáhlut í
sjónvarpssöð á íslandi eða sinni
yfirleitt slíkum sparðatíningi.
Mun Verslunarbankinn ekki hafa
trú á þessu og vísa til sambærilegra
mála, sem áður hafa skotið upp
kollinum í samskiptum við Stöð 2.
í gær barst Tímanum fréttatil-
kynning frá utanríkisráðuneytinu,
þar sem m.a. var greint frá því að
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra hafi, í kjöifar heimsóknar
Mitterands, sent bréf til Frakklands
varðandi áhuga Stöðvar 2 um náið
samstarf við franska sjónvarpsstöð.
f sömu frétt segir að Frakklandsfor-
seti hafi vakið máls á mikilvægi
samvinnu Evrópuríkja, þar á meðal
fslands, á sviði sjónvarpsmála, til
eflingar menningu Evrópuþjóða.
í niðurlagi fréttatilkynningarinnar
segir; „Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra telur, að nauðsyn
beri til að renna styrkari stoðum
undir starfsemi íslenskra sjónvarps-
stöðva, bæði fjárhagslega og hvað
snertir dagskrárefni.“
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri kannaðist ekki við að hafa
óskað eftir slíkum afskiptum utan-
ríkisráðherra.
Hinsvegar munu liggja skjalfestar
sannanir fyrir því að Stöð 2 er að
reyna með aðstoð utanríksiráðherra
að ná samningum við frönsku sjón-
varpsstöðina Canal Plus um sam-
vinnu og fjárhagslega aðstoð.
Þessar æfingar Stöðvar 2 eru túlk-
aðar sem örvæntingafullar tilraunir
til að bjarga fyrirtækinu. - ES/IGÞ
„Hin rámu regindjúp“
f kvöld kl. 20.50 hefjast í Sjón-
varpinu sýningar á nýrri íslenskri
þáttaröð sem hlotið hefur nafnið
„Hin rámu regindjúp“. Þar er fjallað
um eldsumbrot á jörðinni og þróun
jarðarinnar. Höfundur handrits og
þulur er Guðmundur Sigvaldason
jarðfræðingur og framleiðandi Jón
Hermannsson.
„Þetta er metnaðarfyllsta og dýr-
asta heimildamyndagerð sem íslend-
ingar hafa ráðist í og feiknalega
vandað efni,“ sagði Sveinn Einars-
son dagskrárstjóri Sjónvarpsins þeg-
ar blaðamönnum gafst kostur á að
kynnast aðeins þessu fróðlega og
skemmtilega efni sem þarna verður
sýnt í 6 þáttum sem hver um sig er
25 mínútna langur.
Undirbúningur að þáttagerðinni
hófst fyrir þrem árum, en undanfarið
eitt og hálft ár hefur leið þeirra
Guðmundar og Jóns legið víða um
heim til að afla efnis og má nefna
staði eins og Kalifomíu, Kína, Kól-
umbíu, Frönsku Vestur-Indíur,
Grikkland, Himalaja-fjöll, Hawaii
og Indónesíu.
Eins og nærri má geta hefur þetta
verið dýrt fyrirtæki og er kostnaður
kominn upp í 25 milljón-
ir.