Tíminn - 23.11.1989, Side 3
Fimmtudagur 23. nóvember 1989
Tíminn 3
Bifreiðaskoðun
á Sauðárkróki
Frá Emi Þórarinssyni, fréttaritara Tímans í
Fljótum
Fyrir skömmu opnaði Bifreiðaskoð-
un íslands hf. skoðunarstöð á Sauð-
árkróki. Stöðin er til húsa í mjög
vistlegum og rúmgóðum húsakynn-
um að Sauðármýri 1, en það hús
hafði staðið ónotað síðan bílasala
Óla Antons fór úr því fyrir rúmu ári.
í skoðunarstöðinni er hægt að skoða
alla bíla innan dyra að vörubifreið-
um undanskildum. Starfsmaður
Bifreiðaskoðunar hefur verið ráðinn
Bjarki Sigurðsson. Bjarki sagði
blaðamanni að skoðunarstöðin ætti
fyrst og fremst að þjóna Skagafjarð-
arsýslu þótt þangað gætu að sjálf-
sögðu komið bílar hvaðanæva af
landinu. Stöðin verður fyrst um sinn
opin frá kl. 8.00 til kl. 15.30 alla
virka daga. Bjarki sagðist búast við
að gestkvæmt yrði í Skoðunarstöð-
inni til að byrja með, því fjöldi
ökutækja í héraðinu væri óskoðaður
enn og búast mætti við að lögreglu-
menn færu að huga að klippunum
fljótlega.
Úr skoðunarstöðinni á Sauðárkróki, Bjarki Sigurðsson ásamt syni sínum á opnunardaginn.
Myndir ö. Þ.
Magnús Magnússon hefur verið
sæmdur riddaraorðu breska heims-
veldisins.
Magnús
Magnússon
- heiðursriddari
Á mánudaginn var tilkynnt opin-
berlega að Elísabet Bretlandsdrottn-
ing hefði ákveðið að sæma Magnús
Magnússon heiðursriddaratign eða
KBE, riddaraorðu breska heims-
veldisins. Magnús er sæmdur orð-
unni fyrir mikilvæg störf sín að
varðveislu þjóðararfs, sérstaklega í
Skotlandi.
Magnús verður sæmdur tigninni í
Edinborgarkastala 15. desember
næstkomandi. Skotlandsmálaráð-
herra mun sæma Magnús orðunni
þar sem Magnús er ekki þegn drottn-
ingar. Af sömu ástæðu mun Magnús
ekki nota titilinn, sir, sem fylgir
heiðrinum þegar breskir ríkisborgar-
ar eiga í hlut.
Auk sjónvarpsþáttanna Master-
mind er Magnús þekktur fyrir
ritstörf. Einnig er hann forseti
breska fuglaverndunarfélagsins og í
þjóðminjasafnsnefnd Skotlands.
Fjórir íslendingar hafa hlotið
heiðursriddaranafnbót í Bretlandi:
Guðmundur í. Guðmundsson fyrr-
um utanríkisráðherra, Henrik Sv.
Björnsson sendiherra, Ásgeir Ás-
geirsson fyrrum forseti og Vigdís
Finnbogadóttir forseti íslands. Af
erlendu fólki sem hlotið hefur þenn-
an heiður má nefna Ronald Reagan
og fiðlusnillinginn Jehudi Menuhin.
________________ SSH
Bílarogtæki
Brimborgar
þjónustud
Hið þekkta bíla- og vélafyrirtæki
Þórshamar á Akureyri hefur tekið
að sér umboð fyrir Daihatsubíla og
annast nú sölu á þeim norðanlands
auk þess sem það sér um viðgerðir
og varahlutaþjónustu fyrir Daihatsu.
Þórshamar annast einnig sölu á
öðrum bílum og tækjum sem Brim-
borg hf. í Reykjavík flytur inn til
íslands og má þar nefna Volvobíla
af öllum stærðum og gerðum, vinnu-
vélar, bátavélar og lyftikrana.
Þórshamar er rúmlega hálfrar ald-
ar gamalt fyrirtæki og hjá fyrirtækinu
vinna um 30 manns. Þar er rekin stór
varahlutaverslun og tvö viðgerð-
averkstæði; annað fyrir vörubíla og
vinnuvélarenhittfyrirfólksbíla. -sá
Allt að 16%
yerðlækkun
á lambakjöti
ef þú kaupir
1 v /
/ kjotborðinu fcerdu m.a snyrt lœri,
lœrissneiöar, súpukjöt o.fl. á tilboðs-
verði.
Frambtyggir eru á sérstaklega
góðu verði og einnig bjóðum við
„mjóa bryggi“ sem er nýjung á
markaðnum.
M.....
ífrystiborðinu fœrðu innpakkaðar kótilettur,
lceri, lcerissneiðar, „mjóa bryggi", framhryggi,
framhryggjarsneiðar, súpukjöt o.fl. á góðu verði.
Lambakjöt á lágmarksverði - úrvalsJiokkur: Súpukjöt, hálfur
hryggur, grillrif og lceri í heilu Einstakir hlutar sem nýtast illa eru
fjarlcegðir. Þúfœrð alltþetta kjöt (6,0 kg) fyrir aðeins 2.568 kr.
Þar sem óvenju lítið er til af lambakjöti frá
haustinu ’88 bjóðum við það allt á sér-
stöku tilboðsverði til mánaðamóta.
Hvort sem þú kaupir það ferskt eða frosið,
úr ffystiborði eða kjötborði, færðu það á
mjög góðu verði.
Sparaðu núna — verðlækkunin stend-
ur aðeins til mánaðamóta ef birgðir
endast.
SAMSTARFSHÓPUR
UM SÖLU LAM BAKJÖTS