Tíminn - 30.11.1989, Side 6

Tíminn - 30.11.1989, Side 6
6 Tíminn Fimmtudagur 30. nóvember 1989 Timinn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU 0G FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Aðstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. ágúst hækkar: Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð í lausasölu í 90,- kr. og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Tvö tímabil Stjórnarforysta Porsteins Pálssonar í 14 mánuði, frá júlímánuði 1987 til septembermánaðar 1988, verður lengi í minnum höfð fyrir úrræðaleysi forsæt- isráðherrans og þess liðs sem hann studdist við. Á þessu tímabili óx rekstrarvandi í undirstöðu- greinum atvinnulífsins, sjávarútveginum og sam- keppnisiðnaðinum, með þeim afleiðingum að um allt land stefndi í rekstrarstöðvun fyrirtækja og atvinnu- leysi blasti við. Enda fór svo að stöðvun fjölmargra fyrirtækja varð ekki umflúin. Ýmsum þeirra varð ekki bjargað frá gjaldþroti. Porsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, horfði á þessa þróun gerast án þess að hafast nokkuð að, þótt hann væri forsætisráð- herra landsins. Nú má vel vera að Þorsteini Pálssyni hafi verið sá vandi á höndum að hann fengi ekki ráðið við það sundraða lið sem Sjálfstæðisflokkurinn er samkvæmt eðli og uppbyggingu, þar sem einstakar fylkingar eru naumast í kallfæri hver við aðra, svo að helst er líkjandi við þann fræga Lýðræðisfrjálshyggjuflokk í Japan sem raðað er saman úr ótal kubbum í pólitískri raðþraut. Þótt t.d. Egill á Seljavöllum sé raddsterkur er borin von að ómur af máli hans heyrist yfir á bekkina þar sem peninga- og vaxtafrjálshyggjan á fulltrúa sína. Það hefur komið í hlut þeirrar ríkisstjórnar, sem mynduð var á rústum stjórnarferils Þorsteins Pálsson- ar, að endurreisa atvinnulífið í landinu. Núverandi stjórnarsamstarf nær yfir 14 mánaða skeið, sem hefur verið óslitið endurreisnartímabil, í stað þess að 14 mánaða forsætisráðherratíð Þorsteins Pálssonar 1987- 1988 var tími vasturs og úrræðaleysis. „Fyrirvarastefnan" Pað er fróðlegt að fylgjast með málflutningi sjálfstæðismanna í EFTA-málinu. Þar kemur fram gamli tvískinnungurinn sem sjálfstæðismenn temja sér í málflutningi þegar það hentar og oft endar í tómri hræsni. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú tekið upp þá stefnu, einn íslenskra stjórnmálaflokka, að íslendingar eigi að búa sig undir að ganga í Evrópubandalagið. Pað er hin opinbera stefna Sjálfstæðisflokksins og afar þungvægt áhugamál margra forystu- og áhugamanna í flokknum. Framsóknarflokkurinn hefur hins vegar markað algera andstöðu gegn aðildarhugmyndum Sjálfstæðis- flokksins og vill leysa aðlögunarvanda íslendinga að nýrri efnahagsþróun í Evrópu innan vébanda Fríversl- unarsamtakanna með öllum þeim fyrirvörum sem sérstaða íslands krefst. Það er stefna ríkisstjórnarinn- ar. Hún má sem best kallast fyrirvarastefna. Það er viðkunnanlegt gælunafn. Helsti áhrifamaður Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og viðskiptamálum og aðalráðgjafi Þorsteins Pálsson- ar í þeim efnum, Ólafur ísleifsson, fer hörðum orðum um „fyrirvarastefnuna“ í Morgunblaðinu á sunnudag- inn. Ólafur kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Það verður ekki sagt um Þorstein Pálsson og liðsmenn hans á Alþingi, sem nú þykir ekki nóg að gert að tryggja fyrirvarastefnuna. Það er ekki nýtt að tvískinnungur endi í hræsni. GARRI Að sigla frosin höf Komin er út bók eftir dóttur Einars Benediktssonar, skálds, þar sem skáldinu er lýst með augum fjölskyldumeðlims. Það hcilleg- asta, sem út hefur komið um Einar er samantekt Steingríms J. Þor- steinssonar, prófessors, fyrir fram- an heildarútgáfu á verkum Einars. Enn er saga Einars órituð, þ.e. sagan sem hann á skilið að skrifuð verði, svo einhvern tíma taki enda þrálátar sögur um sölu norðurljósa eða sölu jarðskjálfta, sem Einar mun eitt sinn hafa sagt að skorti á sölulistann. Frosið fyrir skilningarvitin Einar Benediktsson var stór- brotinn maður, skáld og heimspek- ingur, sem talaði um vatnsdropann með líkum hætti og Einstein síðar og aðrir vísindamenn, þegar þeir fóru að fjalla um efnið og kjama þess. En hann lifði á tíma, þegar hin veraldlega hlið íslenskrar hugs- unar var bundin í dróma þúsund ára járnaldar ■ landinu. Framfar- irnar höfðu faríð fram hjá landinu á nítjándu öldinni, þegar iðnbylt- ingin geisaði í Evrópu, og fyrstu skrefin til framfara voru vart stigin fyrr en í byrjun aldarínnar. Þá var Einar orðinn fullþroska maður með mikið hugmyndaflug og stóra drauma um þá möguleika, sem vom fyrir hendi í landinu sjálfu og komið hafa í Ijós síðar. Virkjunar- staðurinn við Búrfell var valinn á þessum tíma að tilhlutan Einars Benediktssonar, en vegna þess hve þá var fast frosið fyrir skilningarvit þjóðarínnar ráku menn upp heimskuhlátur og sögðu að Einar væri í útlöndum að selja norður- Ijósin. Skýjaborgir á járnöld í ritdómi um sögu Katrínar Hrefnu, Dúfu töframannsins, þar sem hún segir frá sjálfri sér og Einari föður sinum, segir Ámi Bergmann í Þjóðviljanum, eftir að hann hefur talið að málsvörn höf- undar varðandi Einar sé dálítið út Einar Benediktsson í hött: „Eins og þegar Katrín Hrefna tekur að sér að staðhæfa að fyrirtæki og áætlanir Einars hafi ekki verið ævintýramennska og skýjaborgir, heldur hafi þar allt verið vandlega hugsað og undirbú- ið.“ Þarna erum við enn komin að þessum sama gamla vanaskilningi á Éinari Benediktssyni. AUt var þetta ævintýramennska og skýja- borgir. Helsta baráttu og bisness- mál Einars var að fá Þjórsá virkj- aða við Búrfell og önnur faUvötn, og því hafði hann áhuga á að kaupa vatnsréttindi. Virkjanir vom þýð- ingarmiklar á þessum tíma með hliðsjón af því að iðnaðurinn í Evrópu gekk fyrir kolum. Einari tókst ekki að koma af stað stór- virkjunum. Það var ekki fyrr en síðar, sem við eignuðumst mann sem með aðstoð stefnumótunar stjórnmálamanna reyndist ígildi Einars Benediktssonar í virkjunar- málum. Þessi maður er Jóhannes Nordal. Hann tók við þar sem Einar hætti við Þjórsá, og hefur verið formaður stjómar Lands- virkjunar allan tímann, sem stór- virkjanir í landinu hafa staðið yfir. En það var ekki fyrr en frostgadd- urinn í vitum þjóðarinnar hafði þiðnað. Enginn segir um Jóhannes að hann hafi verið að selja norður- Ijósin. Þessi er m.a. munurinn á hugarfari járnaldar og hugarfari tæknialdar. Hann sigldi frosin höf Enginn gerði sér betri grein fyrir hugmyndum manna um raunveru- leika skýjaborganna í byrjun aldar- innar en einmitt skáldið Einar Benediktsson. Honum var full- komlega Ijóst að hann var að ræða ónumin og ókönnuð fyrirbæri við íhaldssama landa sína. Það var ekki fyrr en Jónas Jónsson frá Hriflu fór að tala um hvítu kolin sem menn fóm að setja rafmagn í samband við eitthvað annað en Ijós frá litlum rafstöðvum handa kauptúnum. Hvítu kolin var nafn- gift tii að setja virkjun fossa í evrópskt samhengi, þar sem kol vora notuð til iðnaðar. Einar, þessi stórgáfaði maður, mátti sitja uppi með skýjaborgirnar og norðurljósin, og enn hafa menn ekki burði til að skilja að hann hafði rétt fyrir sér allan tímann - bara of snemma. En Einar skrifaði sín eigin eftir- mæli, sem menn ættu að hafa í huga, þegar þeir ræða skýjaborgir hans. I kvæðinu Frosta, sem hann orti um sjálfan sig, segir hann á einum stað: Hann sigldi frosin höf á undan öðrum og alltaf fann hann rás og vök að fljóta. Ekki verður annað sagt en Einar hafl ■ bókstaflegum skilningi siglt frosin höf íslensks þjóðlífs, þegar hann í byrjun aldar hóf upp raust sína og vildi með virkjunum þeyta íslandi á einu augabragði inn í þann evrópska nútíma, sem hann þekkti mæta vel. Menn komu síðar og unnu þetta verk fyrir hann. Tími íslands var ekki kominn á dögum Einars. En það situr ekki á íslendingum nútímans að tala um skýjaborgir og norðurljós þessa manns. Garri VÍTT OG BREITT Fjölbreyttur sósíalismi Þjóðviljinn og Alþýðublaðið eru farin að skilgreina sósíalisma rétt einn ganginn og tekst vel upp í þeirri þrætubók eins og fyrri daginn. Jafnaðarstefna blandast í þræturnar og vill nú ritstjóri Þjóð- viljans nú ólmur og uppvægur vera jafnaðarmaður og er jafnvel á honum að heyra að allaballasöfn- uðurinn hafa allt tíð aðhyllst jafn- aðarstefnu, svo ekki sé nú talað um Þjóðviljann sem helst er á að skilja að hafi barist fyrir jafnaðarstefnu alla sfna tíð. Málgagnið forðast eins og heitan eldinn að minnast á sameignar- stefnu rétt eins og hún hafi aldrei verið til eða boðuð í blaðinu. Þeim allaböllum sem aldrei hafa heyrt á sameignarstefnu minnst geta flett upp á orðinu í íslenskri orðsifjabók eftir marglofaðan fræðimann Ás- geir Blöndal Magnússon. Þeir minnissljóu á Þjóðviljanum er nóg að líta í nokkurra ára gömul tölu- blöð af málgagninu til að vera ekkert að rugla saman hugsjóninni stóru og krataþruglinu um jafnað- arstefnu. Skólaspeki En sósíalisminn hefur mörg and- lit og útlistanir á eðli hans eru álíka og þegar prestar þjóðkirkjunnar eru að auka skilning safnaða á guðdómnum. Prédikuð eru álíka fjölbreytt trúarbrögð og prestarnir eru margir. Svo er þrætunni fyrir að þakka að það sem Vilmundur landlæknir kallaði eitt sinn sósíalisma and- skotans er nokkurn veginn hið sama og nú er nefnt pilsfaldakapít- I tHÓÐVIUIMM Málgagn sósíalisma, þjódfrtl Ofugmæli úr Alþýðuflokki Mjög áberandi hefur venð nú um hrið vióleitni smœrri og stærn spámanna í Alþyðuftokknum til að umsknta á sinn hátt sögu verklýðsftokkanna eða A-flokkannaj^umJeið^ogpei^ alismi. Ekki þarf mikla leikni í þrætubók til að sanna með aðferð- um skólaspekinnar að sósíalismi og kapítalismi séu eitt og hið sama. En hver kærir sig um svo einfalda lausn á máli sem hægt er að margflækja og snúa út úr á alla vegu? Leiðari Þjóðviljans í gær eru stóryrtar yfirlýsingar um ágæti jafnaðarstefnunnar og sýnt er fram á að það era allaballar sem era jafnaðarmenn og hafa alla tíð verið en kratar era fjanda kornið engir jafnaðarmenn og hafa aldrei verið, eiginlega bara ójafnaðarmenn. Þjóðviljaritstjóri segir upphaf Alþýðubandalagsins megi rekja til þess að hluti Alþýðuflokksmanna varð að hrekjast í útlegð undan ofsa hinnar hægrisinnuðu forystu flokksins. Því er gleymt að útlegðin var slagtog með sameignarsinnum Sameiningarflokks alþýðu, og flestir hröktust kratarnir þaðan aftur, fullsaddir af „jafnaðar- mennsku“ sameignarsinnanna. Öllum læðri Tilefni jafnaðarmannadaðurs Þjóðviljans er greinarkorn sem Guðmundur Einarsson, fyrrum al- þingismaður, skrifaði í Alþýðu- blaðið um að allaballasöfnuðurinn sé alls ekki jafnaðarmannaflokkur og færir til þess margvísleg rök, t.d. að landsfundur hafi alls ekki viljað sækja um upptöku í Al- þjóðasamband jafnaðarmanna, sem samþykkja útvatnað jukk um efnið og fleira í þeim dúr. Svona skrif segir Þjóðviljinn vera gikkshátt sem kratar temji sér þegar þeir segja meiningu sína um allaballa. Og Þjóðviljinn æsir sig upp í sósíaldemókratimsa og úthúðar jafnframt Alþýðuflokknum, svo að manni sýnist sjálfgefið að flokks- grey það verði umsvifalaust rekið úr Alþjóðasamtökum jafnaðarm- anna. Hins vegar liggur í orðanna hljóðan að Alþýðubandalagið sé svo ofboðslega mikill jafnaðar- mannaflokkur að það sé hátt yfir aðra jafnaðarmannaflokka hafið með sitt göfuga þjóðfrelsisprógram og eigi því ekkert erindi í slagtog með öðram jafnaðarmönnum. Finnist einhverjum þverstæður í þessum málflutningi ber þess að gæta að verið er að vitna í þrætur sósíalista um sósíalisma eða jafn- aðarmanna um jafnaðarmennsku, eða svoleiðis. Það þarf því alls ekki að bera vott um tornæmi eða skilningsleysi þótt dauðlegir menn eigi erfitt með að fylgja þeirri þrætubók. En fróðlegt væri að fá upplýsing- ar hiá Þjóðviljanum um hvenær sameignarstefnan lognaðist út af á þeim bæ. OÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.