Tíminn - 30.11.1989, Side 20
AUGLÝSINGASÍMAI Ft: 680001 —
1 e
RÍKISS^IP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 SAMVINNUBANKINN L í BYGGÐUM LANDSINS ÍM PÓSTFAX TÍMANS 687691
ÞRÖSTUR
68 50 60
VANIR MENN
Iíniiiin
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989
■■■
Loðnuleit rannsóknaskipa Hafrannsóknastofnunar lokið. Útlitið svart ef engin loðna leynist á vestursvæðinu sem ekki tókst að kanna vegna íss:
in a \ fO n U im i 0 tuer
Ól m m la ð’ \i es t Ul rsv ræði
Loðnuleit rannsóknaskipa Hafrannsóknastofnunar er
nú lokið, án þess að loðna hafi fundist svo heitið geti. Sú
kynþroska loðna sem fannst var mjög rýr, sem bendir til
þess að átuskilyrði hafi verið mjög léleg í sumar. Þó eru
vonir bundnar við að hrygningarloðnan sem veiðistofninn
byggist á haldi sig á vestursvæðinu, en þangað komust
rannsóknaskipin ekki vegna brælu og íss.
„Það er vissulega óvenjulegt
ástand að við höfum ekki komist
í neina loðnu sem heitið getur og
einnig óvenjulegt að flotinn hafi
ekki orðið var við loðnu sem heitir
í sumar og haust. Það er vekur
upp margar spurningar og efa-
semdir hjá manni. Eg vil ekki
fullyrða að þessi loðna sé ekki til,
vegna þess að það eru svæði sem
ekki hafa verið könnuð og hún
getur verið á þeim,“ sagði Sveinn
Sveinbjörnsson leiðangursstjóri á
rannsóknaskipinu Árna Friðriks-
syni.
Rannsóknaskipið Árni Frið-
riksson fór af stað 26. október til
loðnuleitar og kom til hafnar í
fyrradag, eftir fimm vikna úthald.
Fyrirhugað var að kanna Vest-
fjarðasvæðið fyrst, en vegna stans-
lausrar brælu komst skipið ekki á
svæðið. „Þar eyddum við hálfum
mánuði án þess að geta nokkuð
gert,“ sagði Sveinn. Þá var haldið
út á svæðið fyrir Mið-Norðurlandi
og þaðan leitað vesturúr.
Rannsóknaskipið Bjarni Sæm-
undsson fór til leitar 11. nóvember
og kom til hafnar í gærkvöldi eftir
tæplega þriggja vikna úthald. Far-
ið var á Vestfjarðasvæðið, þar
sem Árni Friðriksson varð frá að
hverfa, en þá var kominn það
mikiil ís að skipið komst ekki á
svæðið. Því er Vestfjarðasvæðið
svo til ókannað.
„Við komumst vel yfir önnur
svæði í góðu veðri, en segja verður
að við fundum mjög lítið af loðnu
og ekkert svipað þvf sem verið
hefur undanfarin ár og í raun
nánast ekki neitt," sagði Sveinn.
Hann sagði að sá árgangur sem
veiðin eigi að byggjast á, þ.e. 1987
árgangurinn sem hrygnir eftir ára-
mót og telst þá þriggja ára, hafi
verið mjög rýr og lélegur. „Meðal-
þungi á kynþroska hluta loðnunn-
ar var 12,21 gramm, en í venjulegu
árferði á tveggja ára loðna að vera
17,2 til 17,4 grömm. Þannig að
það er geysilegur munur þar á,“
sagði Sveinn. Hann sagði að þetta
segði það að sú loðna sem þeir
hefðu fundið fyrir Norðurlandi
hafi haft mjög léleg átuskilyrði í
sumar.
Að sögn Sveins eru menn að
velta fyrir sér hvort þessi árgangur
hafi hreinlega horfið og drepist,
því hann var mældur í fyrra, 1988,
þá sem ársgömul loðna. Sú mæling
kom ágætlega út miðað við marga
aðra árganga sem hafa gefið góða
veiði. „Nú vitum við ekki hvort
eitthvað hafi gerst í millitíðinni
sem veldur því að hún kemur ekki
fram,“ sagði Sveinn. Annar mögu-
leiki er Sveinn nefndi er að loðnan
sé útundan Vestfjörðum, svæði
sem rannsóknaskipin gátu ekki
kannað. „Það eru fordæmi fyrir
því 1975 og 1979 að hún sé svo
vestarlega á þessum árstíma.
Maður getur ekki alveg afskrifað
að loðna sé þarna vesturfrá og ef
hún er þar getum við ekkert
heldur fullyrt um ástand hennar.
Hún hefur þá vafalaust alist upp
við önnur skilyrði en sú loðna sem
við fundum, þannig að við getum
næsta lítið um hana sagt,“ sagði
Sveinn.
Ef loðnan er þarna vesturfrá,
þá hlýtur sá tími að fara að koma
að hún fari að mynda hrygningar-
göngu og fari að ganga af fssvæð-
inu og þá að þyngjast. Að sögn
Sveins mundi loðnan væntanlega
ganga djúpt austur með Norður-
landi og síðan upp að Austurlandi.
Þetta sagði hann að væri hin
hefðbundna gönguleið, þó þekkt
væri að hún gengi að vestan og
suður með Vestfjörðum.
Verulegur þrýstingur er frá
loðnuskipstjórum og útgerðar-
mönnum að farinn verði annar
leiðangur í desember, þá væntan-
lega á vestur hluta svæðisins. Það
er hins vegar ekki á áætlun hjá
Hafrannsóknastofnun og yrði
frumkvæðið að koma frá sjávarút-
vegsráðuneytinu.
Loðnutorfan við Kolbeinsey
sem loðnubátarnir hafa verið að
veiða úr er lítil, auk þess sem hún
er töluvert blönduð, þannig að
ekki er eingöngu um kynþroska
loðnu að ræða heldur einnig tals-
vert mikið af ársgamalli loðnu.
Norðmenn eru nú einnig komnir
á það svæði, en þeir hafa yfirleitt
smáriðnari nætur og því nokkuð
hættulegt að þeir séu að skaka í
ungloðnunni. Ekki hefur verið
ákveðið hvort gripið verði til
veiðibanns vegna þessa. -ABÓ
Uppistand vegna ummæla Gunnars Bjarnasonar fyrrv.
ráðunautar í sjónvarpsþættinum Fólkið í landinu:
Slúður, elliórar,
raup og ósannindi?
erum ekki að krefjast neins af þeim
en þætti viðkunnalegt ef þeir sendu
okkur bréf um sína niðurstöðu,"
sagði Ólafur.
Otvarpsráð fjallaði um bréf
ráðunautanna á fundi sínum s.l.
föstudag og óskaði eftir greinar-
gerð frá þáttarstjóra, Ólínu Þor-
varðardóttur. Að sögn varafor-
manns útvarpsráðs, Markúsar Á.
Einarssonar verður málið að öllum
iíkindum tekið fyrir á ntesta fundi
ráðsins á föstudaginn kemur og
afgreitt endanlega.
Tíminn hefur komist yfir eintak
af bréfi ráðunautanna til Útvarps-
ráðs og í því er farið hörðum
orðum um Gunnar og ummæli
hans í þættinum og þau kölluð
slúður, raup og elliórar og að ckki
sæmi virðingarverðum fjölmiðli að
breiða út fordóma og óhróður um
bændur og þá sem starfað hafa í
þágu landbúnaðarins, lífs eða
liðna. -sá
„Ég get staðfest að bréf hefur
borist útvarpsráði frá nokkrum
ráðunautum Búnaðarfélagsins. í
bréfinu er kvartað undan ákveðn-
um ummælum Gunnars Bjarna-
sonar í viðtalsþætti mínum í sjón-
varpinu við hann. Ég hef samið
greinargerð handa útvarpsráði og
málið er nú í þess höndum. Áður
en ráðið hefur afgreitt málið frá sér
vil ég ekkert frekar um það segja,“
sagði Ólína Þorvarðardóttir fyrr-
verandi fréttamaður Sjónvarpsins.
Ekki tókst að hafa tal af Gunnari
Bjarnasyni sjálfum í gær eða fyrra-
dag vegna þessa máls.
I bréfi ráðunautanna er vakin
athygli útvarpsráðs á óviðurkvæmi-
legum ummælum Gunnars í
þættinum Fólkið í landinu þann
18. nóv. s.l. Það sem fór fyrir
brjóstið á mönnum voru ummæli
um látna heiðursmcnn, eins og það
er orðað.
Ólafur R. Dýrmundsson er einn
Gunnar Bjarnason.
ráðunautanna sem bréfið sendu.
Hann sagði að í því hefðu þeir gert
athugasemdir við dagskrárgerð af
þessu tagi; þar sem manni er leyft
að hafa uppi ónot um menn og
málefni.
„Við förum ekki fram á annað í
bréfinu en að útvarpsráð kanni
málið og álykti um það á þann hátt
sem ráðið telur heppilegast. Við
Börn í bíó
Það er óhætt að segja að örlað hafi
á eftirvæntingu bama af nokkrum
barnaheimilum borgarinnar sem
boðið var að vera við fmmsýningu
teiknimyndarinnar „Óliver og félag-
ar“ í Bíóhöllinni í gær. Bjössi bolla
skemmti krökkunum og öllum var
boðið upp á kók sem greinilega var
vel þegið.
Teiknimyndin „Óliver og félagar"
er byggð á sögunni Óliver Twist,
eftir Charles Dickens. Myndin verð-
ur fmmsýnd um alla Évrópu um
þessi jól. Hún var frumsýnd í Banda-
ríkjunum á síðasta ári og hlaut þá
mjög góðar viðtökur.
—ABÓ/ Tímamynd Pjetur