Tíminn - 09.12.1989, Page 3
Laugardagur 9. desember 1989,
Tíminn 3
Hæstiréttur dæmdi í máli Magnúsar Thoroddsen í gær:
Magnús víki úr embætti
Hæstirettur staðfesti í gær dóm undirréttar, að víkja beri
Magnúsi Thoroddsen úr embætti sem Hæstaréttadómara. Af
sjö dómurum voru fimm sammála um að víkja bæri Magnúsi,
en tveir skiluðu séráliti og töldu ekki rétt að vikja honum úr
embætti. Þá kvað Hæstiréttur upp úr með það að þáverandi
dómsmálaráðherra, Halldóri Ásgrímssyni, hafí veríð heimilt
að víkja Magnúsi úr embætti. Halidórí hafði verið borið á
brýn að hafa með ákvörðun sinni um brottvikningu, brotið
ákvæði stjórnarskrárinnar.
Hæstiréttur staðfesti dóm undir-
réttar varðandi launagreiðslur til
Magnúsar. Var það niðurstaða
Hæstaréttar að Magnúsi bæru full
laun frá þeim degi er hann lét af
embætti og fram tii þess dags er
undiréttur kvað upp úrskurð sinn.
Gunnlaugur Claessen ríkislög-
maður sótti málið af hálfu ákæru-
valdsins. Tíminn hafði samband við
Gunnlaug í gær og spurði hvort hann
teldi úrskurðinn staðfestingu á að
Hæstarétt hefði sett niður við mál
Magnúsar Thoroddsens?
„Það verður hver og einn að túlka
það eins og hann vill, en málið var
byggt á því að verulegu leyti, að
trúnaðarbrestur hefði orðið milli
þjóðarinnar og Hæstaréttar. Sá trún-
aðarbrestur yrði endurvakinn ef
Magnús gengi aftur inn í Hæstarétt.
Það var byggt mikið á því trausti sem
verður að vera á milli þjóðar og
Hæstaréttar,“ sagði ríkislögmaður.
Tíminn reyndi að hafa samband
við Magnús Thoroddsen, en fékk
þau svör að Magnús vildi ekki tjá sig
um málið fyrr en hann hefði séð
dóminn. Tímanum var tjáð að
hvorki Magnús né verjandi hans,
Jón Steinar Gunnlaugsson, hefðu
séð dóminn. Yfirlýsingar er að vænta
frá Magnúsi í dag.
Meirihluta í Hæstarétti í gær
mynduðu; Gunnlaugur Briem yfir-
sakadómari, Ingibjörg Benedikts-
dóttir sakadómari, Jón Finnsson
hæstaréttarlögmaður, Ragnar H.
Hall borgarfógeti og Gunnar M.
Guðmundsson, settur hæstaréttar-
dómari. Séráliti skiluðu Hæstarétt-
arlögmennimir Sigurður Reynir Pét-
ursson og Sveinn Snorrason
-ES
Magnús Thoroddsen ásamt lögmanni sínum, Jóni Steinari Gunnlaugssyni.
Stofnun norræns kvikmynda- og sjónvarpssjóðs:
Utfærsla íslenskrar
kvikmyndalandhelgi
í gær undirrituðu Kvikmynda-
sjóður íslands, Ríkisútvarpið og ís-
lenska sjónvarpsfélagið hf. samning
um stofnun norræns kvikmynda- og
sjónvarpssjóðs, sem mun hafa árlega
til ráðstöfunar 405 milljónir ís-
lenskra króna. Samningurinn er
gerður milli norrænna kvikmynda-
stofnana, norrænna sjónvarpsstöðva
og norrænu ráðherranefndarinnar,
en Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra er nú formaður hennar. Við
undirskrift samningsins sagði menn-
tamálaráðberra að sjóðurinn stuðl-
aði að útfærslu íslenskrar kvik-
myndalandhelgi og því starfi yrði
haldið áfram.
íslenskar sjónvarpsstöðvar greiða
samanlagt 1% af framlagi norrænna
sjónvarpsstöðva og Kvikmyndasjóð-
ur íslands greiðir 1% af framlagi
norrænna kvikmyndastofnana.
Hlutur fslenska ríkisins greiðist af
norrænu fé. íslensku sjónvarps-
stöðvamar greiða hvor um sig 750
þúsund krónur en Kvikmyndasjóður
greiðir 1.5 milljón króna. Framlög
íslensku aðilanna miðast við sömu
reglur og framlög til norræns
samstarfs.
Á fréttamannafundi kom fram að
með samningi þessum væri brotið
blað í norrænni kvikmynda- og sjón-
varpsgerð. Stofnun sjóðsins væri
merkilegur viðburður m.a. fyrir þær
sakir að með tilkomu hans sameinist
norrænar kvikmyndastofnanir, sjón-
varpsstöðvar og ráðherranefndin um
að taka höndum saman við það
sameiginlega verkefni að efla nor-
ræna kvikmynda- og sjónvarpsgerð
svo að Norðurlöndin geti meðal
annars betur mætt sókn erlends
kvikmyndaiðnaðar í menningar-
landhelgi Norðurlandanna.
Meginmarkmið norræna kvik-
mynda- og sjónvarpssjóðsins verður
að efla framleiðslu á kvikmyndum
og sjónvarpsefni á Norðurlöndum
og stuðla að tryggri dreifingu á
norrænum kvikmyndum og sjón-
varpsefni innan Norðurlandanna.
Sérstök áhersla er lögð á framleiðslu
kvikmynda og sjónvarpsefnis fyrir
böm og unglinga.
Norræni kvikmynda- og sjón-
Viðtalsbók Jóns Kr. og Regínu á Gjögri:
SÍMASKRÚFA
SEGIR FRÁ
tlt er komin bókin Regína, frétta-
ritari af Guðs náð, viðtalsbók Jóns
Kr. Gunnarssonar við Regínu Thor-
arensen á Selfossi eða Regínu á
Gjögri en við þann stað er hún
gjaman kennd síðan hún bjó þar og
var var fréttaritari Morgunblaðsins á
Ströndunum.
Regína hefur verið fréttaritari
Dagblaðsins sáluga á Eskifirði og nú
síðast DV á Selfossi. Hún er lands-
þekkt fyrir furðulega orðaðar fréttir
þar sem hinum ólíkustu og ólíkleg-
ustu atriðum er blandað saman í
jafnvel eina málsgrein eða setningu
og persónulegar skoðanir og for-
dómar fréttaritarans á mönnum og
málefnum koma skýrt í ljós.
-sá
varpssjóðurinn er sjálfstæð stofnun
sem hefur aðsetur í Stokkhólmi.
Sérstök sjálfstæð sjóðsstjórn tekur
endanlegar ákvarðanir um úthlutan-
ir úr sjóðnum, sem munu verða
byggðar á heilstæðu listrænu mati og
því hvort fyrirhugað efni sé vel fallið
til dreifingar á Norðulöndunum. Af
fslands hálfu situr í sjóðsstjóminni
Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi
og fyrmm sjónvarpsmaður og er
varamaður hans Kristín Jóhannes-
dóttir kvikmyndaleikstjóri.
Kvikmyndaframleiðendur eða
framleiðendur sjónvarpsefnis geta
sótt um framlög úr sjóðnum. Ekki er
gert að skilyrði að um sameiginlegt
verkefni tveggja eða fleiri Norður-
landa sé að ræða, eða að þeir sem
standa að gerð kvikmynda eða sjón-
varpsefnis komi frá fleiri en einu
Norðurlandanna.
Upphafið að stofnun norræna
kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins má
rekja til tillögu er Eiður Guðnason
flutti í Norðurlandaráði fyrir um
þremur árum síðan. Á fundinum
sagði Eiður að óvenju góð samstaða
hefði náðst um stofnun sjóðsins og
úrvinnslan tekið mjög skamman
tíma miðað við það sem yfirleitt
gerist í ráðinu. Eiður sagði jafnframt
að hann hefði flutt tillöguna þegar
ljóst var að ekkert yrði úr norrænu
sjónvarpssamstarfi til að leita ann-
arra leiða til að styðja við bakið á
norrænni sjónvarpsframleiðslu í
samkeppninni við engilsaxneskt
efni. SSH
Sumarhótel
Endurnýjaður hefur verið
samningur milli menntamála-
ráðuneytisins og Ferðaskrifstofu
íslands h.f. um leigu á heimavist-
um sex ríkisskóla til hótelrekstrar
yfir sumarmánuðina, þ.e. frá 10.
júní til 31. ágúst. Skólar þeir sem
hér um ræðir eru Menntaskólinn
á Akureyri, Menntaskólinn á
Laugarvatni, Héraðsskólinn í
Reykholti, Héraðsskólinn á
Reykjum, Héraðsskólinn í Skóg-
um og Alþýðuskólinn á Eiðum.
Leigutíminn nær til ágústloka
1992, nema í Reykholti, en þar er
leigutíminn til ágústloka 1991.
Einnig var samið um forgangsrétt
til leigu á húsnæðinu ef til áfram-
haldandi útleigu kemur, þegar
umræddir samningar renna út.
I 6 cm
LaJ
6 cm
2 stk. 2 stk.
reykháfs- reykháfs-
plötur plötur
4QW
iU
6 stk.
gluggáhlerar Hurð
26 cm
2 stk. þakplötur
c 0 n
o »» i i
18 cm
. I------1
I I______I
ri
2 sílc. veggir
Cajl
Cajl
Auk þess girðing, jólaköttur, rurtnar og steinar eftir
eigin hönnun.
Teikning Rb. af piparkökuhúsinu.
Rb hannar piparkökuhús:
Engin fasteigna-
eða lóðargjöld
Húsið hefur marga kosti: Lóðin
kostar ekkert, fasteignagjöld eru
engin og svo er hitunarkostnaður í
lágmarki. Ekki er ljóst hvort það
stenst jarðskjálfta yfir 5 á „Richter"
kvarða, en fullvíst þykir að því stafi
veruleg hætta af bömum, einkum
litlum börnum, og á til að rýma hratt
þegar enginn sér til.
Þannig lýsir Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins nýjasta og efa-
lítið ódýrasta húsi sem hannað hefur
verið á vegum Rb. -piparkökuhúsi.
í nýjasta fréttabréfi Rb. er að finna
fullunnar teikningar að húsinu, öll
mál og sömuleiðis nákvæma lýsingu
á hverjum verkþætti, allt frá undir-
byggingu til lokafrágangs. Einnig er
gerð tillaga um lóðarfrágang.
Byggingarefni:__________________
1 dl vatn
1 dl síróp
250 gr smjöreðasmjörlíki
200 gr sykur (helst púðursykur)
2 tsk. kanill
3 tsk. engifer
2 tsk. negull
1,5 tsk.matarsódi
450 gr hveiti
Til skreytinga:
1/2 eggjahvíta
2 dl flórsykur
matarlitur
Vatn, síróp, sykur og krydd er
hitað og suðan látin koma upp.
Smjöri er hrært út í. Hrært þangað
til blandan er köld. Matarsóda
blandað saman við hveitið, sem
síðan er sett hægt og hægt saman við
blönduna (nokkuð af hveitinu geymt
þangað til flatt er út). Geyma skal
deigið á köldum stað, helst til næsta
dags.
Verklýsing:
Deigið er flatt út og skorið í plötur
samkvæmt teikningu og þær bakaðar
við 200 gráðu hita í 10 mínútur.
Einnig má búa til þykka „undir-
stöðuplötu" fyrir húsið og festa á
hana „runna“ og „steina" úr afgöng-
um áður en hún er bökuð. Húshlut-
arnir em límdir saman með sykri
sem hefur verið bræddur á pönnu
(varlega). Með bræddum sykri má
einnig festa möndlur og sælgæti á
húsið. Það er síðan skreytt með
flórsykursblöndunni (með rjóma-
sprautu eða kramarhúsi úr bökunar-
pappír). Eftir að allt er orðið þurrt
er „snjó“ (flórsykri) sáldrað yfir
húsið.
Bygg i ngarefti rl it
Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins býðst til að rannsaka
húsið með tilliti til loftþéttleika,
einangrunar, samsetningar og fleiri
atriða fyrir þá sem þess óska. Hins
vegar er engin trygging gefin fyrir
því að nokkuð verði eftir af húsinu
að rannsókn lokinni. -HEI