Tíminn - 09.12.1989, Blaðsíða 18
18 Tíminn
Laugardagur 9. desember 1989
MINNING
Sveinn Sigurjón
Stefánsson
frá Vatnsenda í Ólafsfirði
Fæddur 25. april 1940
Dáinn 29. nóvember 1989
Dáinn, horfínn - Harmafregn.
Hvílíkt orð mig dynur yfír.
En ég veit að látinn lifír.
Það er huggun harmi gegn.
Mér komu í hug þessar ljóðlínur
Jónasar Hallgrímssonar er mér var
tilkynnt andlát uppeldisbróður míns
og frænda, Sveins Stefánssonar,
vöruflutningabílstjóra frá Ólafsfirði.
Við sem byggjum þetta land verðum
oft að kljást við óblíða náttúru og
taka áhættu til að sjá okkur farborða
í lífinu. Lítið samfélag norður við
ysta haf þarf ekki síður en önnur
samfélög, sem betur eru í sveit sett,
á sínum nauðþurftum að halda.
Sveinn var einmitt í þjónustu þess
samfélags er byggir Ólafsfjörð er
kallið kom. Fyrir nokkrum árum
stofnaði hann fyrirtæki með fjöl-
skyldu sinni sem sá um vöruflutninga
milli Ólafsfjarðar og Reykjavíkur
og hafði afgreiðslu í Reykjavík hjá
Landflutningum hf. Kona hans og
Torfa toi
Torf»
íqítíAíábi'J
Torfa
GriíXtóví#
AHufeyfí. |
Torfaera
1S8S
Frábær myndbönd
frá torfærukeppnum
sumarsins:
Hella.
Jósepsdalur 1.
Jósepsdalur 2.
Jósepsdalur 3.
Egilsstaðir
Grindavík - Akureyri
Frábært skemmtiefni
í skammdeginu
fyrir yngri sem eldri
Verð; hver spóla kr. 1.600,-
4 eða fleiri kr. 1.440,-
Dreifing póstverslun
Pöntunarsími 64 22 30
SJAUMST
MED
ENDURSKINI!
||UMFERÐAR
ENDURSKINS-
MERKI lást i
apótekum
og viðar.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför
Oddgeirs Péturssonar
Grýtubakka 28, Reykjavfk
Anna Árnadóttir
Gígja Friðgeirsdóttir
Árni Hrafn Árnason
örlygur Oddgeirsson
Þorbjörg Á. Oddgeirsdóttir
Auður Oddgeirsdóttir
PéturOddgeirsson
Sigurgeir Oddgeirsson
örn Erlendsson
Hlín P.Wium
Jóhanna Kr. Hauksdóttir
ÓttarGeirsson
Árni V. Árnason
Kristrún Tómasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
dætur tóku af alhug virkan þátt í
fyrirtækinu. Til marks um þann
samhug fjölskyldunnar er það að
elsta dóttir hans, Arna, aflaði sér
réttinda til að aka svo stóru farartæki
sem vöruflutningabifreið er. Hún
fór stundum með föður sínum í
þessar ferðir til að létta undir með
honum við aksturinn á langri leið.
Sveinn Sigurjón Stefánsson fædd-
ist á sumardaginn fyrsta, 25. apríl
1940, á Vatnsenda í Ólafsfirði. For-
eldrar hans voru Anna Sveinsdóttir,
en hennar foreldrar voru Guðlaug
Bjarnadóttir og Sveinn Sigmundsson
á Grundarlandi í Unadal í Skaga-
firði, og Stefán Stefánsson, en for-
eldrar Stefáns voru Stefanía Stefáns-
dóttir og Stefán Bjömsson er bjuggu
í Vík í Héðinsfirði. Anna dvelur nú
á Elli- og hjúkrunarheimilinu Hom-
brekku í Ólafsfirði, en Stefán lést
1974. Varla er hægt að hugsa sér
betri sumargjöf en lítinn son sem
auk þess er frumburður ungra hjóna.
Brátt stækkaði systkinahópurinn og
auk mín og systur minnar Emelíu,
bama Oddnýjar, föðursystur Sveins,
og Bám Sæmundsdóttur, uppeldis-
dóttur ömmu okkar, var það fjöl-
mennur bamahópur sem ólst upp
við leiki og störf á Vatnsenda. Systk-
ini Sveins em sex: Stefanía, sem býr
í Reykjavík, gift Jóhannesi Bjama-
syni, Anna Lilja, býr á Akureyri,
gift Guðmundi Ólafssyni, Páll Gísli
er dvelur á Reykjalundi, Guðlaug
Sigríður, býr á Akureyri, gift Gunn-
laugi Guðmundssyni, Jóhanna Lov-
ísa, býr í Kópavogi, gift Eyvindi
Jóhannssyni, og Sigurrós Þórleif,
býr á Sauðárkróki, gift Bimi Sigur-
bjömssyni.
Þegar Sveinn var aðeins 10 ára
gamall missti Anna móðir hans heils-
una og hefur dvalið langtímum sam-
an á sjúkrahúsum síðan. Stefán faðir
hans hélt áfram búskap með öll
börnin ásamt aldraðri móður sinni
og systmm. Það lá því beint við að
Sveinn hjálpaði til við búskapinn,
enda var hann ekki nema um ferm-
ingu þegar hann var farinn að vinna
að öllum búskaparstörfum eins og
fullorðinn maður. Þá var vélvæðing-
in, sem síðar átti eftir að breyta
búskaparháttum til sveita, lítið sem
ekkert komin í Ólafsfjörð og öll
sveitastörf unnin með hestum. Hon-
um fórst sú vinna svo vel úr hendi að
fljótt var farið að leita til hans af
öðrum sem höfðu túnbletti og vant-
aði að fá þá slegna.
Kappið og dugnaðurinn komu
snemma fram í fari Sveins, bæði við
leik og nám. Ólafsfjörður er snjó-
þung sveit, svo að sjaldan verður þar
snjóavant á veturna. í Ólafsfirði
hafa löngum verið skíðamenn í
fremstu röð. Það lá því í hlutarins
eðli að Sveinn fór mjög ungur að
stunda skíði. Oft og tíðum þurfti að
grípa til þeirra til að koma sér á milli
staða. Sveinn fór margar ferðimar á
skíðum að heiman og í skólann, leið
sem er rúmlega einnar stundar
gangur. Hann lét sér ekki nægja
þessar gönguferðir, því fór hann að
æfa skíðaíþróttina og náði að komast
í fremstu raðir á skíðamótum
íslands.
Sveinn var ágætlega vel gefinn og
fljótur að átta sig á hlutunum. Hann
nýtti sér þá námsmöguleika sem
buðust í Ólafsfirði á þeim tíma
þegar hann var að vaxa ur grasi. Þá
var starfandi á Ólafsfirði iðnskóli
sem nokkrir áhugasamir menn höfðu
komið á fót til að gera æskufólki
staðarins kleift að afla sér þeirrar
bóklegu menntunar sem þá fylgdi
iðnnámi. Sveinn stundaði þar nám
og lauk þaðan prófi án þess að ætla
sér frekar í iðnnám.
Sjálfsbjargarviðleitnin var honum
í blóð borin. Hann lærði fljótt að
bjargast á eigin spýtur og vildi síst af
öllu vera upp á aðra kominn. Greið-
vikni og ósérhlífni voru svo stór
þáttur í lífi Sveins að oft og tíðum
frestaði hann sínum eigin störfum til
að liðsinna öðrum. Hann vildi láta
hlutina ganga, kunni ekki að hlífa
sjálfum sér og var lítt hrifinn af
seinagangi hjá öðrum. Hann var
skilningsríkur faðir því alltaf var
hann tilbúinn til að hlusta á dætur
sínar og stóð með þeim í blíðu og
stríðu. Þá kom oft glettnin fram með
góðlátlegum athugasemdum. Sveinn
var mjög bamgóður og böm hænd-
ust að honum. Hann kunni svo vel
að skilja og tala þeirra mál að óðar
en varði vom þau komin upp í fang
hans. Hann kom oft á mitt heimili
og gat gengið hér inn og út á nóttu
sem degi. Þá var oft slegið á létta
strengi með bömum mínum og vin-
um þeirra með góðlátlegu gríni og
var það oft svo að þegar bíllinn var
kominn að húsinu þá komu vinir
barnanna í heimsókn til að hitta
Svein. Hann unni byggðarlagi sínu
mjög og vildi að hagur þess væri sem
bestur og taldi mikilvægt að íbúun-
um fækkaði ekki því svo lítið byggð-
arlag mætti engan mann missa. Hann
sagði stundum við mig að í hvert
sinn sem hann flytti eina fjölskyldu
í burtu frá Ólafsfirði þá þyrfti hann
helst að flytja þangað tvær í staðinn.
Þann 28. maí 1966kvæntist Sveinn
eftirlifandi konu sinni Björk Arn-
grímsdóttur, ættaðri frá Hólmavík.
Hún er dóttir hjónanna Guðnýjar
Bergsveinsdóttur og Arngríms Guð-
björnssonar. Arngrímur lést 1983 en
Guðný býr í Ólafsfirði. Sveinn og
Björk hófu búskap fyrst á Vatnsenda
til ársins 1969 en þá seldu þau
jörðina og fluttu sig um set til
kaupstaðarins.
Sveinn var virkur þátttakandi í
ýmsum félögum í Ólafsfirði. Fyrir
utan félagsstörfin sem fylgdu skíða-
íþróttinni tók hann þátt í leikstarf-
semi Leikfélags Ólafsfjarðar, var
um skeið formaður þess félags og sté
stundum upp á fjalirnar og tók þátt
í leiksýningum. Hann söng um tíma
með Karlakór Ólafsfjarðar og var
einnig í stjóm hans. Kiwanisklúbbur
Ólafsfjarðar var stofnaður í mars
1976. Sveinn var fyrsti forseti þess
félagsskapar og gegndi því starfi í
hálft annað ár. Eftir að akfært varð
fyrir Ólafsfjarðarmúlann var fengin
sjúkrabifreið til Ólafsfjarðar og
nokkrir ungir menn tóku að sér að
annast sjúkraflutninga í sjálfboða-
vinnu milli Ólafsfjarðar og Akureyr-
ar. Sveinn var einn af þeim sem tóku
þátt í því ábyrgðarmikla starfi og var
alltaf reiðubúinn til þeirra ferða.
Einnig var hann formaður í vörubíl-
stjórafélaginu Múla á Dalvík.
Skömmu eftir að hann fluttist til
kaupstaðarins fór hann að vinna
með vörubíl og þungavinnuvélar.
Þessi atvinna var fremur ótrygg og
átti það illa við Svein að sitja aðgerð-
arlaus þegar lítið var að gera, enda
var honum mjög umhugað um að sjá
vel fyrir fjölskyldu sinni. Til að
tryggja sér öruggari atvinnu keypti
hann vöruflutningabifreið til flutn-
inga á vörum miUi Ólafsfjarðar og
Reykjavíkur. Starfsemi þessi var
ekki stór í sniðum í fyrstu en jókst
brátt og var hann nú hin síðustu ár
með tvo bíla í förum. Sveinn var
öruggur bílstjóri og kunni að bregð-
ast rétt við ef eittnvað bar út af í
akstrinum. En örlögin höguðu því
svo að hann náði ekki heim úr sinni
síðustu ferð.
Það er sár söknuður hjá eigin-
konu, dætrum, dótturdóttur, móður
og systkinum er sjá nú á bak hraust-
um og góðum dreng á miðjum aldri
sem búinn var að afkasta miklu en
átti þó svo margt ógert. Sveinn og
Björk eignuðust fjórar dætur en þær
eru: Guðný Ama, fædd 9. febrúar
1966, stundar nám í viðskiptafræði
við Háskóla íslands, dóttir hennar
er Sveindís Ösp, fædd 2. nóvember
1986. Anna, fædd 8. desember 1967,
stundar nám við Fósturskóla íslands.
Sigríður Guðrún, fædd 5. september
1971, hún er við nám í Mennta-
skólanum á Akureyri og Soffía
Snædís, fædd 24. september 1984.
Útför Sveins fer fram frá Ólafs-
fjarðarkirkju í dag. Kæra Björk og
dætur, ég og fjölskylda mín vottum
ykkur dýpstu samúð. Minningin um
góðan dreng mun fylgja okkur um
aldur og ævi.
Sveinbjörn Sigurðsson
frá Vatnsenda
Guðmundur
Bernharðsson
frá Ástúni
Fæddur 10. nóvember 1899
Dáinn 18. nóvember 1989
Með örfáum ljóðlínum Davíðs
Stefánssonar um bóndann langar
okkur, barnabörnum Önnu Sig-
mundsdóttur, að minnast Guð-
mundar Bernharðssonar frá Ástúni,
Ingjaldssandi, með kærri þökk fyrir
alla hans gæsku og hlýhug okkur til
handa.
Með stáli plógsins reist þú þína rún,
þú ræktaðir þitt land, þín föðurtún.
Til verka þinna viljansmátturknúði
þá vinarhönd, sem ungum gróðri
hlúði.
Frá ystu nöf að efstu hlíðarbrún,
bjóst óðal hjartans grænu sumar-
skrúði.
Þú fannst að það var gæfa lýðs og
lands,
að lcita guðs og rækta akra hans.
íauðmýkt naust þú anda þeirra laga,
sem öllum vilja skapa góða daga.
1 dagsverki og þökk hins þreytta
manns,
býr þjóðarinnar heill - og ævisaga.
Hvíl í friði.
Magnús, Jón Ómar, Hilmar, Ingvar,
Skorri og Anna.