Tíminn - 09.12.1989, Blaðsíða 9

Tíminn - 09.12.1989, Blaðsíða 9
Laugardagur 9. desember 1989 Tíminn 9 BÓKMENNTIR ................................................. :: H,BIIIIIIIII1!:; i!! ^ rMIIIIIIBI 11 ! I i Wllllllllllim .................................................. ................................. .................. :; I l.i. ...................III ímyndunaraflið í fullum gangi Gyrðir Elíasson: Tvö tungl, Mál og menning, Rv. 1989. Gyrði Elíassyni hefur verið hamp- að mikið sem skáldi, enda maðurinn afkastamikill. Að því er segir hér á bókarkápu er þetta níunda bók hans frá árinu 1983 og sjötta ljóðabókin. Það fer heldur ekki á milli mála að þrátt fyrir ungan aldur hefur hann sýnt það ótvírætt að hann býr yfir fíngerðri skáldgáfu sem mikils má vænta af. Verk hans til þessa hafa gjarnan verið innhverf og höfðað inn á við í tilfinningalíf lesenda, fremur en til hins ytri veruleika og skynsemi þeirra. í þessari nýju Ijóðabók verður þó ekki annað sagt en að Gyrðir haldi í stórum dráttum áfram á keimlíkum brautum og hann hefur verið á til þessa. Hér er naumast nokkur meg- inbreyting sjáanleg frá því sem áður hefur verið. Ljóðin hér eru innhverf og snúast gjarnan utan um afmark- aðar hugmyndir. Þessar hugmyndir eru líka gjarnan sóttar inn í eitthvað sem mætti kannski nefna barnslegt hugmyndaflug. Þar eru á ferðinni einhver atriði úr draumkenndum hugrenningum sem gripin eru á lofti, spunnið utan um og gerð úr ljóð. Dæmi getur verið ótalmargt, til dæmis ljóð sem heitir Með bláum stöfum: Á vegginn hafði veríð skrífað LIFIDA UÐINN! og mér fannst þrátt fyrír allt drengilega gert að styðja hann svona þennan gamla mann hruman með orfið sitt í grasilmandi nóttinni djúpu utan við hvelfingarnar Hér er áletrun á vegg, raunveruleg eða ímynduð, gripin á lofti á mjög dæmigerðan hátt fyrir bókina og fellt við myndina alkunnu af dauðan- um persónugerðum sem manninum með ljáinn. Út af þessu er svo spunnin sú ályktun að hann hljóti að vera orðinn gamall og því fallega gert að veita honum stuðning sem hljóti að vera kærkominn. Og þó er það raunar ekki algilt að barnslegt ímyndunaraflið eigi uppt- ök sín í huga höfundar sjálfs. Þarna er til dæmis ljóð sem heitir Barna- teikning og sýnist sniðið til eftir mynd gerðri af barni. Það er svona: Tvö börn í sólskini og húskofi í rjóðri jörðin er úr marsipan og neðst I hominu spor eftir drekafætur Kanína kemur yfir eina hæðina og ætlar að festa rólu upp í sólina Þessi kanína er nýbúin að vera með hálsbólgu Hér er sömuleiðis enn á ferðinni lýsing á barnslegu hugmyndaflugi, út af fyrir sig vel gerð: Börn eru nú einu sinni þannig að þau hugsa öðru vísi en við, sem fullorðin eigum að teljast, og leyfa hugmyndafluginu meira að rása út um heima og geima en við gerum svona almennt. Því er ekki að leyna að bæði þessi kvæði verða að teljast vel gerð, sem og meginþorri þeirra annarra sem standa á þessari bók. En hitt er annað mál að efnisvalið verður að teljast hér heldur einlitt og fábrotið. Börn eru ágæt, en flest börn verða nú einhvern tíma fullorðin. Og þá fara þau að hugsa öðruvísi en áður. Ætli menn að ná marktækum árangri sem skáld þá geta þeir ekki endalaust leikið sér með eitt saman hugmynda- flug barna. Þeir verða eiginlega að gera það sem venjulega er kallað að komast til fulls þroska. Að minnsta kosti ef þeir ætla sér að gera eitthvað að ráði af því að setja saman bækur handa fullorðnu fólki. Með öðrum orðum þá virðist mér að hið frumstæða og barnslega hug- myndaflug, sem til þessa hefur borið uppi ýmis af helstu verkum Gyrðis Elíassonar, svo sem Bréfbátarign- inguna 1 fyrra og Gangandi íkorna í hitteðfyrra, sé farið að ganga sér til húðar. Það er einkenni á öllum sönnum listamönnum að þeir endur- nýja sig, bæði að því et' varðar val á viðfangsefnum og formið sem þeir beita. Og svo vill til að hér þarf ekki að fara út fyrir bókina til að sýna dæmi af þeirri ættinni sem ég er að tala um. Hér er til dæmis ljóð sem heitir Hrekkjalómur, þar sem slegið er saman á sérkennilega skemmtilegan hátt hugmyndum úr ýmsum áttum. Þar segist ég ljóðsins hafa fundið „gleraugu í spaugbúð um daginn" sem hann fullyrðir að séu mun meira ógnvekjandi heldur en augu draugs- ins Gláms sáluga. Með þessi gler- augu telur hann víst að sér hefði tekist að hræða Gretti svo rækilega úti í Drangey að hann hefði hoppað þar fram af bjargbrúninni. Og ljóð- inu lýkur á þessu: Syndi baksund í nótt gegnum tímasjóinn út í klettavirkið með spaugbúðargleraugu Það á við um ljóðagerð jafnt sem aðrar listir að þar reynir á frumkvæði Gyrðir Elíasson. í hugsun og markvissa beitingu hug- myndaflugsins. Mér virðist þessi bók bera þess vitni að höfundur hennar hljóti nú að standa á nokkrum tímamótum. Annars vegar á hann þess kost að halda áfram að yrkja í sama stílnum, sem væntanlega leiðir þá til þess með tíð og tíma að menn hætta að nenna að lesa það sem hann sendir frá sér. Hins vegar að endur- nýja yrkisefnaval sitt skipulega, til dæmis í líkingu við það sem hann gerir í þéssu ljóði um Gretti. Tök hans á máli og stíl til þessa sýna ótvírætt að það má mikils vænta af honum. En skáldgyðjan er kröfuhörð, og ekki má heldur gleyma því að hér á ljóðamarkaðn- um er samkeppnin orðin býsna hörð í seinni tíð. Það er ótrúlega mikið ort á íslandi í dag og margt af því gott. Þess vegna dugar þar ekki að slá af í neinu ef menn vilja halda áunnum orðstír. Eysteinn Sigurðsson. tónlist iiiiiiiiniimTi"- ,iiiiiiiiiiiniiiiinii'iNr1 - .........................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................1 ........................................................................................................................ Ævinlega skulu Háskólatónleikar koma á óvart. Stundum eru þeir ágætir vegna þess hve dæmalaust skemmtileg tónlistin er, stundum vegna þess hve sérkennileg hún er eða sjaldheyrð og stundum koma þarna fram listamenn sem annað hvort eru fáheyrðir eða orðnir þjóð- sagnapersónur og enginn vissi að voru ljóslifandi hér á meðal vor. Og stundum er hljóðfæraskipan þannig að frásagnavert þætti yfir í aðrar sóknir, eins og á tónleikunum 29. nóvember þar sem klarinettutríó lék en Ólöf Kolbrún Harðardóttir söng. Venjulega hefur maður dálitla ótrú á eins hljóðfæris hljómsveitum, eins og sellóhljómsveit eða flautuhjóm- sveit eða klarinettuhljómsveit, og finnst jafnvel hugmyndin sjálf bera keim af klíkuskap: knéfiðlararnir í einhverri sinfóníuhljómsveit stofna eigið band - eins og Pablo Casals gerði reyndar - til að músísera saman af því þeim líkar svo vel hver Sópran og þrír lúðrar við annan, enda þótt tónlistin sem útsett er fyrir svona hljómeyki sé ekki nema svona la la í besta lagi. En með klarinettutríó lítur þetta ekki alveg svona illa út. Því klarin- etturnar eru dálítil fjölskylda eins og birnirnir þrír eða fiðlufjölskyldan (fiðla, lágfiðla, knéfiðla), nú spiluðu þeir Sigurður Snorrason, Óskar Ing- ólfsson og Kjartan Óskarsson á klar- inettu, bassethorn og bassaklarin- ettu Svítu eftir Jóhann Kristófer Graupner fyrir þrjú chalumeau - alt, tenór og bassa, en þetta hljóðfæri var forveri klarinettunnar. Mjög fróðlegt skrif er í tónleikaskránni um þetta gleymda tónskáld, Graupner, sem líkt og Salieri var hossað hátt at samtíð sinni en sagan dæmdi léttvægan. Þegar sólin er lágt á lofti kasta dvergarnir löngum skugga, og þegar sól Bachs og Moz- arts reis upp á festinguna hurfu þeir Grupner og Salieri. Þangað til nú, þegar hin óseðjandi hít múgmenn- ingarinnar þarf sífellt nýtt tros til að næra sig, og er óþreytandi að róta í fornum gröfum. Enda kemur í ljós, að dauðir meðalmenn eru síður en svo verri en lifandi meðalmenn, og þessi svíta Graupners hin skemmti- legasta - maður getur raunar skilið hvers vegna Bach, samtímamaður Graupners og Handels, þótti ýmist gamaldags eða yfirborðslegur hjá þeim síðarnefndu kveður þegar við Þrir kvintettar Kammermúsíkklúbburinn hélt aldeilis ágæta tónleika í Bústaða- kirkju 4. desember sem enduðu með einu allra besta kammerverki Mozarts, kvintett fyrir píanó og blásara K 452. Áður flutti Blásara- kvintett Reykjavíkur, þeir Bern- harður Wilkinsson flauta, Daði Kol- beinsson óbó, Einar Jóhannesson klarinetta, Joseph Ognibene horn og Hafsteinn Guðmundsson fagott, tvo kvintetta eftir Anton Reicha (1770-1836) og Paul Hindemith (1895-1963), skemmtileg verk og að sjálfsögðu prýðilega leikin. Blásara- kvintett Reykjavíkur hlýtur að vera einn allra besti kammerhópur lands- ins og þótt víðar væri leitað, enda hafa þeir félagar gert nokkuð víð- reist með kúnst sína. Ólíkt strengja- kvartettum, hinu háleita formi kammertónlistar, sem byggir á skyldleika hljóðfæranna fjögurra og samstæðum eða heildstæðum hljómi þeirra, nota höfundar blásarakvint- etta sér ekki síst það hve ólík hljóðfærin fimm eru og syngja hvert með sínu nefi. Þess vegna eru blás- arakvintettar venjulegast litrík verk þar sem hin ýmsu hljóðfæri taka einleikskafla en hin sjá um undirleik- inn, en stundum kveða við mikil- fenglegir samhljómar allra hljóðfær- anna. Félagar Blásarakvintetts Reykjavíkur eru búnir að spila sam- an lengi, sem m.a. kemur fram í þvf að auk þess að vera afbragðs ein- leikarar hver um sig eru þeir mjög samæfðir orðnir, þannig að jafnan ríkir hið fullkomna jafnvægi milli hljóðfæranna fimm. Ekki var það einasta að ég hefði ekki fyrr heyrt kvintett Reicha í Es-dúr op. 88 nr 2, heldur hafði ég aldrei heyrt tónskáldsins getið. En tónlist hans var fjörleg og skemmti- leg fyrir því. Hindemith er hins vegar öllum kunnur og heldur óorð á honum fyrir leiðinlega tónlist, en það á ekki við um þennan kvintett hans sem heitir Kleine Kammermus- ik op. 24 nr. 2. Eða kannski að öll tónlist verði skemmtileg í túlkun jafnágætra listamanna og Blásarak- vintett Reykjavíkur er. Hápunkturinn var auðvitað pí- anókvintett Mozarts. Guðríður Sig- urðardóttir lék píanópartinn af furðulegum léttleik og tæknilegu öryggi, enda var flutningurinn í heild frábærlega góður. Þessir tón- leikar verða meðal hinna eftirminni- legustu á þessu ári og þótt ennþá lengra væri seilst. Sig.St. tón 19. aldar, og hið „stærðfræði- lega“ hjá Bach má svo sem kalla yfirborðslegt, með þeim skilningi að „tilfinningarnar" einar séu djúpar. í tónleikaskránni segir semsagt frá því, að Graupner (1683-1760) var nemandi Kuhnaus kantors við Tómasarkirkjuna í Leipzig þegar Ku- hnau lést 1722 og kantorsstaðan losnaði sóttu þrír, Telemann, Graupner og Bach, og var hann talinn langsístur þeirra. Bach fékk þó stöðuna, en vegna þess að hinir báðir fengu launahækkun hvor á sínum stað og drógu þá umsóknir sínar til baka í því viðfangi sagði borgarráðsmaður einn í Leipzig að þar sem bestu mennirnir fengjust ekki til starfans yrðu menn að gera sig ánægða með einhvern miðl- ungsmann, og annar lét þess getið að hann vonaði að tónsmíðar Bachs yrðu ekki of yfirborðslegar. Seinna verkið á tónleikunum voru fimm sálmaforleikir eftir Bach, sem breska tónskáldið Harrison Birt- wisle hefur útsett fyrir þrjár klarin- ettur. í þremur þeirra söng Ólöf Kolbrún Harðardóttir með miklum glæsibrag. Rödd Ólafar og stöngstíll Ólöf Kolbrún. hafa þróast svo að hún nýtur sín best í dramatískri óperu og óratoríum, rétt eins og nú. Hins vegar þótti mér útsetning Birtwistles heldur illa heppnuð frá sjónarmiði Jóhanns Se- bastíans og tónlistarinnar í söngfor- leikjunum, en heldur betri í hinum tveimur. En þar fyrir spiluðu þeir þremenningar ákaflega vel, enda eru íslenskir klarinettistar margróm- aðir fyrir ágæti sitt sem kunnugt er. Sig.St. Efnileg söngkona í Gerðubergi í Breiðholti er í vetur haldin ljóðatónleikaröð með mánaðarlegum tónleikum. í haust kom fyrst fram Ólöf Kolbrún Harð- ardóttir (2. október) en 27. nóvem- ber söng Hrafnhildur Guðmunds- dóttir mezzósópran. Hrafnhildur vakti fyrst á sér athygli í fyrravor þegar hún söng Cherubino í Brúð- kaupi Fígarós af miklum þokka og öryggi. Nú reiddi hún hátt til höggs með viðamikilli söngskrá: Þremur lögum eftir Sigvalda Kaldalóns, Li- ederkreis op. 39 eftir Schumann, Banalités eftir Poulenc, þremur fen- eyskum söngvum eftir Reyaldo Hahn og fimm negrasöngvum eftir Xavier Montsalvatge. Jónas Ingi- mundarson var við hljóðfærið. Öllu þessu fylgdi 16 síðna tónleikaskrá með öllum textum á frummálinu og prósaþýðingum Reynis Axelssonar, enda sátu áheyrendur eins og börn í dönskutíma og fylgdust með textun- um - en söngkonan kunni allt rei- prennandi utanbókar. Hrafnhildur er mjög efnileg söng- kona, með prýðilega rödd og umtals- verða kunnáttu. Hins var samt ekki að vænta að hún, jafnung og hún er, hefði jafngott vald á þeim mismun- andi söngvum sem hún tókst á við þarna. Einna minnst þótti mér til Schumanns koma, enda mun full- komin túlkun ljóðaflokks þessa krefjast mikils þroska söngvarans, sem við sem eldri erum trúum jafnan að komi einungis með árunum. Hinn gamansami Poulenc var ágætur hjá Hrafnhildi en þótt undarlegt megi virðast tókst henni langbest upp í feneysku söngvunum - stíll þeirra virðist eiga best við söngkonuna. Negrasöngvarnir kalla á safameiri túlkun en Hrafnhildur lét í té. En þetta er tínt til einungis vegna þess hve glæsilegur söngur Hrafnhildur lét í té. En þetta er tínt til einungis vegna þess hve glæsilegur söngur Hrafnhildar í rauninni var, það sem hana vantar mun hún öðlast með auknum þroska, lærdómi ogreynslu. Tónlistargagnrýnandi Tímans tekur ofan fyrir hinni ungu söngkonu. Sig.St.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.