Tíminn - 09.12.1989, Síða 18

Tíminn - 09.12.1989, Síða 18
18 Tíminn Laugardagur 9. desember 1989 MINNING Sveinn Sigurjón Stefánsson frá Vatnsenda í Ólafsfirði Fæddur 25. april 1940 Dáinn 29. nóvember 1989 Dáinn, horfínn - Harmafregn. Hvílíkt orð mig dynur yfír. En ég veit að látinn lifír. Það er huggun harmi gegn. Mér komu í hug þessar ljóðlínur Jónasar Hallgrímssonar er mér var tilkynnt andlát uppeldisbróður míns og frænda, Sveins Stefánssonar, vöruflutningabílstjóra frá Ólafsfirði. Við sem byggjum þetta land verðum oft að kljást við óblíða náttúru og taka áhættu til að sjá okkur farborða í lífinu. Lítið samfélag norður við ysta haf þarf ekki síður en önnur samfélög, sem betur eru í sveit sett, á sínum nauðþurftum að halda. Sveinn var einmitt í þjónustu þess samfélags er byggir Ólafsfjörð er kallið kom. Fyrir nokkrum árum stofnaði hann fyrirtæki með fjöl- skyldu sinni sem sá um vöruflutninga milli Ólafsfjarðar og Reykjavíkur og hafði afgreiðslu í Reykjavík hjá Landflutningum hf. Kona hans og Torfa toi Torf» íqítíAíábi'J Torfa GriíXtóví# AHufeyfí. | Torfaera 1S8S Frábær myndbönd frá torfærukeppnum sumarsins: Hella. Jósepsdalur 1. Jósepsdalur 2. Jósepsdalur 3. Egilsstaðir Grindavík - Akureyri Frábært skemmtiefni í skammdeginu fyrir yngri sem eldri Verð; hver spóla kr. 1.600,- 4 eða fleiri kr. 1.440,- Dreifing póstverslun Pöntunarsími 64 22 30 SJAUMST MED ENDURSKINI! ||UMFERÐAR ENDURSKINS- MERKI lást i apótekum og viðar. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför Oddgeirs Péturssonar Grýtubakka 28, Reykjavfk Anna Árnadóttir Gígja Friðgeirsdóttir Árni Hrafn Árnason örlygur Oddgeirsson Þorbjörg Á. Oddgeirsdóttir Auður Oddgeirsdóttir PéturOddgeirsson Sigurgeir Oddgeirsson örn Erlendsson Hlín P.Wium Jóhanna Kr. Hauksdóttir ÓttarGeirsson Árni V. Árnason Kristrún Tómasdóttir barnabörn og barnabarnabörn. dætur tóku af alhug virkan þátt í fyrirtækinu. Til marks um þann samhug fjölskyldunnar er það að elsta dóttir hans, Arna, aflaði sér réttinda til að aka svo stóru farartæki sem vöruflutningabifreið er. Hún fór stundum með föður sínum í þessar ferðir til að létta undir með honum við aksturinn á langri leið. Sveinn Sigurjón Stefánsson fædd- ist á sumardaginn fyrsta, 25. apríl 1940, á Vatnsenda í Ólafsfirði. For- eldrar hans voru Anna Sveinsdóttir, en hennar foreldrar voru Guðlaug Bjarnadóttir og Sveinn Sigmundsson á Grundarlandi í Unadal í Skaga- firði, og Stefán Stefánsson, en for- eldrar Stefáns voru Stefanía Stefáns- dóttir og Stefán Bjömsson er bjuggu í Vík í Héðinsfirði. Anna dvelur nú á Elli- og hjúkrunarheimilinu Hom- brekku í Ólafsfirði, en Stefán lést 1974. Varla er hægt að hugsa sér betri sumargjöf en lítinn son sem auk þess er frumburður ungra hjóna. Brátt stækkaði systkinahópurinn og auk mín og systur minnar Emelíu, bama Oddnýjar, föðursystur Sveins, og Bám Sæmundsdóttur, uppeldis- dóttur ömmu okkar, var það fjöl- mennur bamahópur sem ólst upp við leiki og störf á Vatnsenda. Systk- ini Sveins em sex: Stefanía, sem býr í Reykjavík, gift Jóhannesi Bjama- syni, Anna Lilja, býr á Akureyri, gift Guðmundi Ólafssyni, Páll Gísli er dvelur á Reykjalundi, Guðlaug Sigríður, býr á Akureyri, gift Gunn- laugi Guðmundssyni, Jóhanna Lov- ísa, býr í Kópavogi, gift Eyvindi Jóhannssyni, og Sigurrós Þórleif, býr á Sauðárkróki, gift Bimi Sigur- bjömssyni. Þegar Sveinn var aðeins 10 ára gamall missti Anna móðir hans heils- una og hefur dvalið langtímum sam- an á sjúkrahúsum síðan. Stefán faðir hans hélt áfram búskap með öll börnin ásamt aldraðri móður sinni og systmm. Það lá því beint við að Sveinn hjálpaði til við búskapinn, enda var hann ekki nema um ferm- ingu þegar hann var farinn að vinna að öllum búskaparstörfum eins og fullorðinn maður. Þá var vélvæðing- in, sem síðar átti eftir að breyta búskaparháttum til sveita, lítið sem ekkert komin í Ólafsfjörð og öll sveitastörf unnin með hestum. Hon- um fórst sú vinna svo vel úr hendi að fljótt var farið að leita til hans af öðrum sem höfðu túnbletti og vant- aði að fá þá slegna. Kappið og dugnaðurinn komu snemma fram í fari Sveins, bæði við leik og nám. Ólafsfjörður er snjó- þung sveit, svo að sjaldan verður þar snjóavant á veturna. í Ólafsfirði hafa löngum verið skíðamenn í fremstu röð. Það lá því í hlutarins eðli að Sveinn fór mjög ungur að stunda skíði. Oft og tíðum þurfti að grípa til þeirra til að koma sér á milli staða. Sveinn fór margar ferðimar á skíðum að heiman og í skólann, leið sem er rúmlega einnar stundar gangur. Hann lét sér ekki nægja þessar gönguferðir, því fór hann að æfa skíðaíþróttina og náði að komast í fremstu raðir á skíðamótum íslands. Sveinn var ágætlega vel gefinn og fljótur að átta sig á hlutunum. Hann nýtti sér þá námsmöguleika sem buðust í Ólafsfirði á þeim tíma þegar hann var að vaxa ur grasi. Þá var starfandi á Ólafsfirði iðnskóli sem nokkrir áhugasamir menn höfðu komið á fót til að gera æskufólki staðarins kleift að afla sér þeirrar bóklegu menntunar sem þá fylgdi iðnnámi. Sveinn stundaði þar nám og lauk þaðan prófi án þess að ætla sér frekar í iðnnám. Sjálfsbjargarviðleitnin var honum í blóð borin. Hann lærði fljótt að bjargast á eigin spýtur og vildi síst af öllu vera upp á aðra kominn. Greið- vikni og ósérhlífni voru svo stór þáttur í lífi Sveins að oft og tíðum frestaði hann sínum eigin störfum til að liðsinna öðrum. Hann vildi láta hlutina ganga, kunni ekki að hlífa sjálfum sér og var lítt hrifinn af seinagangi hjá öðrum. Hann var skilningsríkur faðir því alltaf var hann tilbúinn til að hlusta á dætur sínar og stóð með þeim í blíðu og stríðu. Þá kom oft glettnin fram með góðlátlegum athugasemdum. Sveinn var mjög bamgóður og böm hænd- ust að honum. Hann kunni svo vel að skilja og tala þeirra mál að óðar en varði vom þau komin upp í fang hans. Hann kom oft á mitt heimili og gat gengið hér inn og út á nóttu sem degi. Þá var oft slegið á létta strengi með bömum mínum og vin- um þeirra með góðlátlegu gríni og var það oft svo að þegar bíllinn var kominn að húsinu þá komu vinir barnanna í heimsókn til að hitta Svein. Hann unni byggðarlagi sínu mjög og vildi að hagur þess væri sem bestur og taldi mikilvægt að íbúun- um fækkaði ekki því svo lítið byggð- arlag mætti engan mann missa. Hann sagði stundum við mig að í hvert sinn sem hann flytti eina fjölskyldu í burtu frá Ólafsfirði þá þyrfti hann helst að flytja þangað tvær í staðinn. Þann 28. maí 1966kvæntist Sveinn eftirlifandi konu sinni Björk Arn- grímsdóttur, ættaðri frá Hólmavík. Hún er dóttir hjónanna Guðnýjar Bergsveinsdóttur og Arngríms Guð- björnssonar. Arngrímur lést 1983 en Guðný býr í Ólafsfirði. Sveinn og Björk hófu búskap fyrst á Vatnsenda til ársins 1969 en þá seldu þau jörðina og fluttu sig um set til kaupstaðarins. Sveinn var virkur þátttakandi í ýmsum félögum í Ólafsfirði. Fyrir utan félagsstörfin sem fylgdu skíða- íþróttinni tók hann þátt í leikstarf- semi Leikfélags Ólafsfjarðar, var um skeið formaður þess félags og sté stundum upp á fjalirnar og tók þátt í leiksýningum. Hann söng um tíma með Karlakór Ólafsfjarðar og var einnig í stjóm hans. Kiwanisklúbbur Ólafsfjarðar var stofnaður í mars 1976. Sveinn var fyrsti forseti þess félagsskapar og gegndi því starfi í hálft annað ár. Eftir að akfært varð fyrir Ólafsfjarðarmúlann var fengin sjúkrabifreið til Ólafsfjarðar og nokkrir ungir menn tóku að sér að annast sjúkraflutninga í sjálfboða- vinnu milli Ólafsfjarðar og Akureyr- ar. Sveinn var einn af þeim sem tóku þátt í því ábyrgðarmikla starfi og var alltaf reiðubúinn til þeirra ferða. Einnig var hann formaður í vörubíl- stjórafélaginu Múla á Dalvík. Skömmu eftir að hann fluttist til kaupstaðarins fór hann að vinna með vörubíl og þungavinnuvélar. Þessi atvinna var fremur ótrygg og átti það illa við Svein að sitja aðgerð- arlaus þegar lítið var að gera, enda var honum mjög umhugað um að sjá vel fyrir fjölskyldu sinni. Til að tryggja sér öruggari atvinnu keypti hann vöruflutningabifreið til flutn- inga á vörum miUi Ólafsfjarðar og Reykjavíkur. Starfsemi þessi var ekki stór í sniðum í fyrstu en jókst brátt og var hann nú hin síðustu ár með tvo bíla í förum. Sveinn var öruggur bílstjóri og kunni að bregð- ast rétt við ef eittnvað bar út af í akstrinum. En örlögin höguðu því svo að hann náði ekki heim úr sinni síðustu ferð. Það er sár söknuður hjá eigin- konu, dætrum, dótturdóttur, móður og systkinum er sjá nú á bak hraust- um og góðum dreng á miðjum aldri sem búinn var að afkasta miklu en átti þó svo margt ógert. Sveinn og Björk eignuðust fjórar dætur en þær eru: Guðný Ama, fædd 9. febrúar 1966, stundar nám í viðskiptafræði við Háskóla íslands, dóttir hennar er Sveindís Ösp, fædd 2. nóvember 1986. Anna, fædd 8. desember 1967, stundar nám við Fósturskóla íslands. Sigríður Guðrún, fædd 5. september 1971, hún er við nám í Mennta- skólanum á Akureyri og Soffía Snædís, fædd 24. september 1984. Útför Sveins fer fram frá Ólafs- fjarðarkirkju í dag. Kæra Björk og dætur, ég og fjölskylda mín vottum ykkur dýpstu samúð. Minningin um góðan dreng mun fylgja okkur um aldur og ævi. Sveinbjörn Sigurðsson frá Vatnsenda Guðmundur Bernharðsson frá Ástúni Fæddur 10. nóvember 1899 Dáinn 18. nóvember 1989 Með örfáum ljóðlínum Davíðs Stefánssonar um bóndann langar okkur, barnabörnum Önnu Sig- mundsdóttur, að minnast Guð- mundar Bernharðssonar frá Ástúni, Ingjaldssandi, með kærri þökk fyrir alla hans gæsku og hlýhug okkur til handa. Með stáli plógsins reist þú þína rún, þú ræktaðir þitt land, þín föðurtún. Til verka þinna viljansmátturknúði þá vinarhönd, sem ungum gróðri hlúði. Frá ystu nöf að efstu hlíðarbrún, bjóst óðal hjartans grænu sumar- skrúði. Þú fannst að það var gæfa lýðs og lands, að lcita guðs og rækta akra hans. íauðmýkt naust þú anda þeirra laga, sem öllum vilja skapa góða daga. 1 dagsverki og þökk hins þreytta manns, býr þjóðarinnar heill - og ævisaga. Hvíl í friði. Magnús, Jón Ómar, Hilmar, Ingvar, Skorri og Anna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.