Tíminn - 09.12.1989, Síða 13
Laugardagur 9. desember 1989
Tíminn 13
MiNNING
voru í hávegum höfð. Afkomendur
foreldra hennar eru nú 76.
Anna fór í héraðsskólann á Laug-
arvatni eins og margar af systrunum
en síðan lá leiðin í Húsmæðraskól-
ann á Laugalandi í Eyjafirði. Anna
kvæntist 12. ágúst 1950 Benjamín
Halldórssyni byggingameistara frá
Skaftholti, Gnúpverjahreppi, sem
lengi hefur verið húsvörður við
menntaskólann. Þau bjuggu ætíð á
Laugarvatni, lengst af í húsi foreldra
hennar, Bjarkarlundi, sem þau
byggðu við. Fyrirhjónabandeignað-
ist Anna dóttur, Bergljótu Magna-
dóttur, sem er líffræðingur á
Keldum. Maður hennar er Georg
Douglas frá Norður-írlandi, doktor
í jarðfræði, kennari við Menntaskól-
ann við Hamrahlíð. Þau eiga tvö
börn og búa í Mosfellsbæ. Anna og
Benjamín eignuðust tvo syni. Sá
eldri, Halldór Steinar trésmiður,
starfar nú sem bifreiðastjóri hjá
Sérleyfisbílum Suðurlands. Kona
hans er Sigríður Mikaelsdóttir frá
Patreksfirði. Þau eiga 4 börn og búa
á Laugarvatni. Sá yngri, Böðvar
Ingi, deildarstjóri hjá Kristjáni Sig-
geirssyni hf., er kvæntur Sólveigu
Friðgeirsdóttur úr Kópavogi. Þau
eiga 3 syni og búa í Mosfellsbæ.
EPSON
TÖLVUR OG
PRENTARAR
PC/XT TÖLVUR
AT/286 & 386 TÖLVUR
FARTÖLVUR
9 NÁLA PRENTARAR
24 NÁLA PRENTARAR
LEYSIPRENTARAR
ÞÓRf
SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA
11
Hjónaband Önnu og Benjamíns var
farsælt og áttu þau miklu barnaláni
að fagna. Anna dáði barnabörn sín
mjög enda voru þau hænd að ömmu
sinni.
Að leiðarlokum þakka ég Önnu
margt, hún hefur fylgst með mér frá
fæðingu því þá var hún til hjálpar
foreldrum mínum. í skólunum á
Laugarvatni var oft skroppið til
önnu frænku og ekki var ég ein um
það af frændsystkinunum. Síðar er
við Þórir settumst að á Laugarvatni
var gott að eiga hana og Benna að.
Börnin okkar hændust að henni því
hún lét þau finna að þau skiptu máli
þó lítil væru. Ég man hvað hann
sonur minn var ánægður þegar hann
fékk skeyti frá henni á 10 ára
afmælinu, þá nýfluttur suður. En
svona var hún. Mörg undanfarin ár
hefur hún prjónað sokka á alla sem
fæðst hafa í hennar stóru fjölskyldu
og þetta eru engir venjulegirsokkar.
Hún var mikil hannyrðakona og
eftir hana liggur ótrúlega mikið á því
sviði.
Anna lést á sjúkrahúsinu á Selfossi
eftir stutta en harða baráttu við
skæðan sjúkdóm. Hún tók örlögun-
um með æðruleysi og hetjulund.
Hún var sérlega sterkur persónu-
leiki, vann sigra á vandamálum lífs-
ins og miðlaði öðrum ríkulega. Ég
og fjölskylda mín sendum Benna og
fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur
og þökkum áratuga samleið og
tryggð. Blessuð sé minning hennar.
Ingunn Valtýsdóttir
Breyting á verkstæðisbyggingu
á Litla Hrauni
Tilboð óskast í endurbyggingu verkstæðishúss á
Litla Hrauni og innréttingu skólastofa í húsnæðinu.
Flatarmál hússins er um 160 m2.
Verktími ertil 18. maí 1990.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgar-
túni 7 Reykjavík til og með föstudags 29. desemb-
er gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R. Borgartúni 7,
fimmtudaginn 4. janúar 1990. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Eindagjnn er
2Zdesember
vegna
söluskatts
í nóvember
A
M m ð gefnu tilefni er athygli vakin á því
að eindagi söluskatts
vegna nóvembermánaðar 1989
er miðvikudagurinn 27. desember 1989.
Forðist örtröð - gerið skil tímanlega