Tíminn - 09.12.1989, Síða 2
2
HELGIN
Laugardagur 9. desember 1989
I
Þrjár nýjar frá Björk:
í heimsókn hjá Hönnu
Kötturinn Branda
Litla rauða hænan
komu allar út í haust í fyrsta sinn. Þær eru í bókaflokknum
Skemmtilegu smábarnabækurnar, sem eru hinar vinsæl-
ustu fyrir lítil börn, sem fyrirfinnast á bókamarkaðinum, enda
valdar og íslenskaðar af hinum færustu skólamönnum og
prentaðar í mörgum litum. Nokkrar þeirra hafa komið út í
áratugi en eru þó alltaf sem nýjar. Fást í öllum bókaverslunum
og heita:
1. Bláa kannan
2. Græni hatturinn
3. Benni og Bára
4. Stubbur
5. Tralli
6. Stúfur
7. Láki
8. Bangsi litli
9. Svarta kisa
10. Kata
11. Skoppa
12. Leikföngin hans bangsa
13. Dísalitla
14. Dýrin og maturinn þeirra
15. Kalli segir frá
16. Geiturnar þrjár
17. Gettu hver ég er
18. Dýrin á bænum
19. Tommi er stór strákur
20. Kötturinn Branda
21. í heimsókn hjá Hönnu
22. Litla rauða hænan
Fallegar - Vandaðar - Ódýrar
Aðrar bækur fyrir börn:
Húsið mitt
Mídas konungur
Nýju fötin keisarans
Tóta tætubuska
mi.í
f HEIMSÓKN HJA
HÖNNU
KÖTtURINN |
BRANDA t
, ‘ <t . 0L \/
■y--
Bókaútgáfan Björk
REYKJAVÍKURHOFN
Forstöðumaður rekstr-
ar- og þjónustudeildar
Reykjavíkurhafnar
Starf forstöðumanns rekstrar- og þjónustudeildar
Reykjavíkurhafnar er laust til umsóknar.
Starfið:
í starfinu felst að veita forstöðu rekstrar- og
þjónustudeild. Því fylgir skipulagning og stjórnun
á þjónustustarfsemi Reykjavíkurhafnar, rekstur
þeirra svæða og eigna, sem henni tilheyra,
samskipti við notendur og stjórnun þess mannafla,
sem þjónustuna veitir.
Helstu þjónustuverkefni Reykjavíkurhafnar eru
skipaþjónusta, umsjón og rekstur hafnarsvæða í
Gömlu höfninni og Sundahöfn og þjónusta við
leigjendur. Einnig yfirumsjón með gagnasöfnun
vegna reikninga, ýmsum leigumálum o.fl.
Krafist er:
Staðgóðrar þekkingar á fyrirtækjarekstri og
reynslu af þjónustustarfsemi og skipulagningu
hennar. Háskólamenntun er æskileg og góðir
samskiptahæfileikar eru skilyrði.
Umsóknir og upplýsingar:
Upplýsingar um starfið veitir hafnarstjóri í síma
28211.
Umsóknir um starfið skulu berast undirrituðum eigi
síðar en 3. janúar 1990.
Hafnarstjórinn í Reykjavík.
11 j •jrí
DAPURLEGUR
DAUÐDAGI
aði honum þá svo að hann sendi þeg-
ar kæru til yfirvaldanna út af með-
ferðinni á sjúklingnum. Segir hann í
þessari kæru: „Svo hirðuleysislega
hef ég aldrei séö farið með veika
manneskju, sem annars hefur inni í
byggöum húsum verið.“ Gerði hann
svo orö Ragnheiði Ólafsdóttur, yfir-
setukonu í Brunnhúsum að fara heim
til Billenbergs og setja sjúklingnum
stólpípu.
Ragnheiður kom þangað um
klukkan tíu að morgni. Sagðist henni
svo frá að að hún hefði aldrei séð
annan eins frágang á neinni mann-
eskju, ekki einu sinni á versta niður-
setningi. Auðséð hefði verið að
aldrei hefði verið búið um hina veiku
og heföi hún gert allar sínar nauð-
þurftir undir sig, enda hefði lyktin
þar inni verið öldungis óþolandi.
Hún kvaðst þá hafa spurt Hansínu á
hverju móðir henar heíöi nærst allan
þennan tíma. „Engu“ svaraði Hans-
ína. Skipaði Ragnheiður henni þá að
koma með hafrasúpu. Fór nú Hans-
ína fram og tók til gijónanna, sem
Guðrún haíði keypt á miövikudaginn
og kom að vörmu spori með súpuna.
Nærðist sjúklingurinn á hálfri könnu
af seyðinu. Ragnheiður ávítaöi Hans-
ínu harðlega fyrir meðferðina á móð-
ur sinni og fór hún þá að gráta.
„Af hverju er stelp-
an að skæla"?
Þegar Guðrún Einarsdóttir kom
með vatnið að vanda var Ragnheiður
þar fyrir. Vildi hún þá að þær hjálp-
uðust að því að búa um sjúklinginn,
en bæði Billenberg og Hansína héldu
því fram að hún þyldi það ekki.
Ragnheiður spurði þá hvort þau gætu
ekki fengið neina konu til þess að
vaka yfir sjúklingnum og taldi Hans-
ína að ekki mundi vonlaust aö Jó-
hanna Jónsdóttir, kona Geirs skóara í
Grjótaþorpi mundi fást til þess. Var
nú Guðrún send til Jóhönnu meö
skilaboð og eins til læknisins að
spyrja hann hvort ekki mundi óhætt
að laga um sjúklinginn.
Læknirinn kom og sagði að það
væri sjálfsagt aö hreinsa rúmið og
færa sjúklinginn í hrein og þurr föt.
Avítaði hann Billenberg og harðlega
fyrir skeytingarleysi hans og kvað
þaö hafa verið skyldu hans aö leita
læknis þegar í stað er konan veiktist.
En Billenberg afsakaði sig með því
að hann hefði haldið að þetta væri
ekki svona alvarlegt.
Þær konurnar stumruðu nú yfir
hinni veiku. Var hún þá alveg mál-
laus og rænulaus og dó í höndunum á
þeim um daginn. Þegar hún var dáin
fór Hansína að gráta, en Billenberg
sagði:
„Af hveiju er stelpan að skæla?"
Réttvísin höfðar
mál
Réttvísin höfðaöi nú mál gegn
þeim Billenberg og dóttur hans. Var
Þórður Jónassen þá settur bæjarfó-
geti og hélt hann próf í málinu dag-
ana 19 - 22 júlí. Voru þá fyrst yfir-
heyrðar konurnar þrjár, sem komið
höföu til Lovísu Billenberg. Bar
þeim öllum saman um þaö að hún
hefði legið þarna umhirðulaus í
bleytu og óþrifnaði allan tímann,
aldrei fengið næringu og aldrei verið
snúið í rúminu, enda hefðu sést á
mjööm hennar blárauöar rákir, sem
dreyrði úr og mun hún hafa fengið
“Skraddarahúsiö”, þar sem
Billenberg bjó.
þaö af því að liggja á þvagblautum
fellingum í tuskum þeim, sem undir
hana höfðu verið lagðar upphaflega.
Bláir blettir sáust og á fæti hennar, en
ekki vildi neinn eigna þaö því að
henni hefði verið misþyrmt. Hafði
það frést að hún hefði dottið í stiga
fyrir skemmstu og öðru sinni hefði
hún dottið er hún var að koma að
utan og þá meitt sig á fæti. Guörún
Einarsdóttir bar það að Hansína
mundi aldrei hafa verið hjá móður
sinni, meöan hún var veik, heldur
hefði hún verið alla daga uppi á lofti
hjá föður sínum, eins og hennar væri
vandi, oga Idrei litið inn til móður
sinnar á nóttum. Og Billenberg
mundi aldrei hafa skipt sér neitt af
henni.
Billenberg sagði að kona sín hefði
veriö fullfrísk er hún færði sér kaffið
á mánudaginn. En stundu síðar
kvaðst hann hafa fundið hana á gólf-
inu með krampaflogum. Ofurlítið
sagði hann aö hún hefði talað eftir að
krampanum létti, en hefði verið al-
veg máttlaus vinstra megin. Ekki
sagði hann að hægt hefði verið að
búa um hana, því hún hefði alls ekki
þolað að við sig væri komið og hefði
þá alltaf fariö að kveinka sér. „Á
hveijum degi var eitthvað þurrt sett
undir hana, að minnsta kosti einu
sinni á dag, en oft var það ekki hægt
vegna þess að hún þoldi það ekki,“
sagði hann. Og ekkert kvaðst hann
hafa skipt sér af því, dóttir sín hefði
séð um það. Ekki hafi konan sín vilj-
aö sækja landlækni, því hún hefði
ekki haft neina trú á honum, en meira
álit á Skafta í Skaftabæ, en sjálfur
kvaðst hann ekki hafa viljað sækja
hann. Konan hefði átt vanda til
svima, en það hefði alltaf batnað,
þegar hún fékk kalt vatn eða kam-
fórudropa. Seinast hefði hún getað
talaö á föstudaginn, en þá svo lágt að
hann hefði orðið að leggja eyrað að
vörum hennar til að heyra það, sem
hún sagði. Framburö Guðrúnar kvað
hann rangan og svo var hann reiður
við Guðrúnu, að morguninn eftir tók
hann á móti heni með skömmum fyr-
ir að vitna gegn sér, og Hansína sagði
að hún þyrfti ekki oftar að ómaka sig
með vatn til þeirra.
Framburður Hansínu var mjög á
sömu lund og framburður föður
hennar. Hún kvaðst hafa látið þurrt
undir móður sína á hverjum degi.
Kvaðst hafa talað um það við föður
sinn að ófært væri að láta han liggja
alltaf í bleytunni, en hann heíði sagt
að svo yrði að vera, vegna þess að
hún þyldi ekki aö láta hreyfa sig. Og
þegar þær Guðrún heíðu fært hana úr
kjólnum, hefði hún sagt: „Gud,
hvorledes de handle með mig!“ Hún
kvaðst aldrei hafa stundað sjúkling
fyrr og ekki þorað að hreyfa við
móður sinni af því að hún vildi það
ekki.
Óheyrileg og ótrú-
leg orð
Nú varð hlé á réttarhöldunum.
Vilhjálmur Finsen tók við embættum
landfógeta og bæjarfógeta og hafði í
svo mörgu að snúast af þeim sökum
fyrst í stað að hann gat ekki sinnt
HEILSUGÆSLUSTÖÐ
IÞORLÁKSHÖFN
Tilboö óskast í frágang heilsugæslustöðvar í Þorláks-
höfn þar með talið múrhúðun, pípulögn og alla aðra
frágangsvinnu innanhúss og frágang lóðar. Flatarmál
hússins er um m2.
Verktími er til 1. apríl 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni
7, Reykjavík til og með föstudags 15. desember 1989
gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 19.
desember 1989 kl. 11.00.
ll\ll\IKAUPASTOFI\IUI\l RIKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK__
Silungsveiði
í straumvatni
Stangveiðifélagið Ármenn leitar að skemmtilegum
silungsveiðiám sem henta vel fyrir fluguveiði.
Nánari upplýsingar veita, Daði Harðarson í síma
46252 og Guðni Kolbeinsson í síma 19728.
Ármenn, landsfélag um þjóðlega náttúruvernd
og stangveiði með flugu.