Tíminn - 09.12.1989, Blaðsíða 5

Tíminn - 09.12.1989, Blaðsíða 5
Laugardagur 9. desember 1989 HELGIN 5 í heimi hinnar pólitísku hugmyndafræði var sáttmálinn á við nátt- úruhamfarir. Kommúnistaflokkar um heim allan urðu nú að kasta fyrir róða g'ómlum slagorðum gegn fasismanum og semj a ný. Hitler missti nú það agn sem best hafði dugað gagnvart borgara- stéttinni - óttann við bolsevismann. samningur viö Sovétríkin árið 1932. Árið 1937 var það fyrsta verk utanríkisráðherra nýrrar sam- steypustjórnar, Rudolf Holsti, að fara til Moskvu og reyna að eyða tortryggni Sovétríkjanna gagnvart Finnum. Þetta tókst honum að nokkru, því eftir heimsókn hans, eða í apríl 1938, hófu Sovétríkin leynilegar samningaviðræður við Finna um varnarsamstarf, hyggð- ust Þjóðverjar nota finnskt land- svæði til árásar á Sovétríkin. En svo langt voru þeir er réðu utan- ríkisstefnu Finna ekki reiðubúnir að ganga. Þeim leist ekki á að selja sig undir rússnesk áhrif, er þau þýsku dvínuðu. Þeir vildu tryggja hlutleysi sitt, kæmi til á- taka milli þessara stórvelda. Þeir vildu eiga samstöðu með Svíum, en hlutleysi Svíþjóðar var hvar- vetna virt. Gerðu Finnar og Svíar með sér samkomulag um að tryggja sjálfstæði Álandseyja í ó- friði. Hins vegar var Sovétríkjun- um heitið að Finnar mundu halda fast við hlutleysi sitt og ekki láta það líðast að Þjóðverjar notuðu finnskt land til árásar á Sovétríkin. Viðhorfin breytast Hinum leynilegu viðræðum við Rússa var haldið áfram vorið 1939, en án árangurs. í ágúst breyttust viðhorfin í einu vetfangi. Sovétríkin gerðu sáttmála sinn viö Þýskaland, sem gaf Þjóðverj- um frjálsar hendur í vestri. í leyni- ákvæðum sáttmálans var kveðið á um skiptingu Póllands og að baltnesku ríkin og Finnland teld- ust sovéskt áhrifasvæði. í heimi hinnar pólitísku hug- myndafræði var sáttmálinn á við náttúruhamfarir. Kommúnista- flokkar um heim allan urðu nú að kasta fyrir róða gömlum slagorð- um gegn fasismanum og semja ný. Hitler missti nú það agn sem best hafði dugað gagnvart borg- arastéttinni - óttann við bolsevis- mann. Tveimur árum síðar sögðu báðir einræðisherrarnir að sátt- málinn hefði aðeins verið brella. Hitler kvaðst hafa gert hann í því skyni að forðast stríð á tvennum vígstöðvum, en Stalín sagðist hafa gert hann til þess að vinna tíma - tíma til að vígbúast, enda ekki á vestræn ríki að treysta. En sáttmálinn gilti í tvö ár og líkt og fyrir Pólverja og baltnesku ríkin urðu þau ár Finnum örlaga- rík. Síðustu vikuna í september fengu stjórnir Eistlands, Lettlands og Litháen boð um að senda full- trúa sína til Moskvu. Þar voru þessi lönd neydd til að heimila Sovétríkjunum að koma upp á ný herbækistöðvum þeim, sem Rússar höfðu haft þar á tíma keisaranna. Þar með var röðin komin að Finnum. Hinn 5. október fékk finnska stjórnin orðsendingu þess efnis að hún skyldi senda menn til Moskvu að ræða „aðkallandi vandamál." Finnar völdu til farar- innar Juho Kusti Paasikivi, fyrrum formann flokks hægrimanna, en hann var um þessar mundir sendiherra Finna í Stokkhólmi. Hann var íhaldssamur maður, en áleit að Finnum væri ráðlegt að taka tillit til hernaðarlegra hags- muna hins volduga granna síns, þrátt fyrir að hin pólitíska hug- myndafræði væri svo ólík. Síðar var formaður jafnaðarmanna- flokksins, Vaino Tanner, sendur til Moskvu, Paasikivi til stuðnings. Tanner hafði löngum verið tals- maður vinsamlegra samskipta við Sovétríkin. Árangurslitlar viðræður Fyrirmælin sem finnska stjórn- in gaf Paasikivi voru þess efnis að hann skyldi ekki fallast á neinar kröfur í líkingu við þær sem balt- nesku löndin höfðu orðið að ganga að og hlytu að teljast brot á hinni yfirlýstu hlutleysisstefnu. Sama dag og Paasikivi kom til Moskvu bauð finnska stjórnin út Vettvangskönnun á vígstöðvunum. varaliði hersins „til æfinga." Þetta takmarkaða herútboð áttu þeir í Moskvu að skilja sem svo að Finnar mundu verja sjálfstæði sitt afdráttarlaust. Stalín stjórnaði sjálfur samn- ingunum við Paasikivi og Tanner. Tillögur hans byggöust á gamalli reynslu Rússlands af hernaðará- tökum. Hann var viss um að sá er betur hefði í heimsstyrjöld þeirri sem nú var hafin mundi fyrr eða síðar ráðast á Rússland. Sáttmál- inn við Þýskaland var engin end- anleg trygging. „Allt er breytingum undirorpið í heimi hér.“ Árásarað- ilinn mundi án vafa nota finnskt landsvæði til þess að herja á Len- ingrad og því mundu Finnar ekki fá afstýrt. Því vildi hann færa til landamærin á Karelíueiðinu, svo Leningrad yrði ekki lengur í skot- máli nútímastórskotaliðs. Þá skyldu Finnar afsala sér til Rússa eyjunum í Finnskaflóa og vinstri hluta Fiskiskaga í grennd við Pet- samo við íshafsströndina. Og það sem mestu máli skipti: Finnar skyldu láta Hangö af hendi, sem er á suðurströnd Finnlands, hundrað kílómetra vestur af Hels- ingfors. Þar skyldi komið upp sov- éskri flotastöð með víghreiðrum. Þannig yrði mögulegt að loka mynni Finnskaflóa fyrir óvinveitt- um herskipum. í sárabætur bauð Stalín Finnum svæðin í Sovésku - Karelíu. Hugmyndir Stalíns voru í fullu samræmi við varnarkerfi Rússa á keiaratímanum. Hernaðarráðgjaf- ar Paasikivi reyndu að sýna fram á að þetta kerfi væri úrelt og að öryggi Leningrad byggðist á því hverjir réðu baltnesku löndunum og suðurströnd Finnskaflóa. En Stalín minnti á að Judenitsch hefði stefnt hvítliðum sínum til St. Pétursborgar með strönd Finnskaflóans og að bresk her- skip hefðu sótt að Rússlandi þessa leið. Fullyrðingar Paasikivi um að Finnar mundu aldrei hleypa Þjóðverjum inn í land sitt dugðu lítið. „Þeir munu ekki spyrja um leyfi," sagði Stalín. Kröfur Stalíns settu finnsku stjórnina í feiknavanda. í Berlín ráðlögðu menn Finnum að fallast á kröfurnar. í London og París var fullyrt að herstöðvar þær sem Stalín krafðist mundu fyrst og fremst eiga að notast gegn Þjóð- verjum, enda ógnuðu þær á eng- an hátt hagsmunum annarra ríkja á vesturlöndum. Roosevelt forseti bauðst til að miðla málum, en Molotov ráðlagði honum að skipta sér ekki af því sem hann ekki varðaði um. í Stokkhólmi hittust þjóðhöfðingjar Norðurlanda og var fundinum ætlað að sýna ein- dregna samstöðu með Finnum. Að tjaldabaki var Finnum þó gerð grein fyrir að þeir gætu ekki vænst hjálpar frá Svíum, ef til á- taka kæmi. Smáþjóð í vanda Finnar stóðu því einir uppi og þeir drógu sínar ályktanir af því. Þeir lýstu sig því reiðubúna til samninga. Þeir kváðust tilbúnir að flytja landamærin lengra frá Leningrad, en þó ekki jafnlangt og Stalín heimtaði. Þá skyldu Rússar fá eyjarnar í Finnskaflóa til um- ráða. En stjórnin gat ekki fallist á að láta Hangö af hendi né eyjam- ar þar. Finnar tortryggðu Stalín og álitu að hann hefði fleira en hern- aðarhagsmuni eina í huga. Ef til vill ætlaði hann að svipta Finna sjálfstæði sínu. En að öllu þessu slepptu var Ijóst að yrði gengið að kröfum hans, yrði Finnum ekki unnt að vera hlutlausir í þýsk - sovésku stríði. Þannig náðist ekki samkomu- lag um herstöðvarnar, og hinn 13. nóvember héldu þeir Paasikivi og Tanner á ný til Helsingfors. Þeir á- litu þó að samningaviðræðunum væri ekki lokið. Menn voru við- búnir langvarandi þrýstingi og spennu, en ekki stríði. Hluti vara- liðsins fékk nú heimfararleyfi. „Rússarnir gera ekki árás í vetrar- byrjun," sagði Eljas Erkko utanrík- isráðherra og hernaðarsérfræð- ingarnir voru sammála. En sérfræðingar geta ekki ætíð séð fyrir óvænta atburði á stjórnmálasviðinu. Hinn 26. nóv- ember fullyrti sovéska stjórnin að

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.