Tíminn - 09.12.1989, Blaðsíða 16
16
HELGIN
Laugardagur 9. desember 1989
llilllllillllllll BÆKUR lllllllllllllllllllllllllllM^ ...............................1......Illllllllll.......................................III
hvunndags-
fötum
Hörpuútgáían hefur sent frá sér
bókina Bændur á
hvunndagsfötu n eftir Helga
Bjarnason blaðamann. 1 bókinni
segja sex nútím ibændur frá
lífshlauþi sínu fc áskap,
áhugamálum, ft i.agsstörfum og
skoðunum.
„Skýringann er að leita í
náttúrunni sjáliri" er yfirskrift
viðtals við Aðalstein
KEA hangikjötið er meðhöndlað samkvæmt
norðlenskri hefð af færustu kjötiðnaðar-
mönnum. KEA hangikjötið, bragðgott
og ilmandi eins og þið viljið hafa það
— á jólum!
viðskipta-
orðabók
öm og Örlygur hafa gefið út
íslensk-enska viðskiptaorðabók
eftir Þóri Einarsson, prófessor í
stjómun og skyldum greinum við
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Islands og Terry G. Lacy,
doktor í félagsfræði. Hún hefur
kennt bæði ensku og
félagsfræðigreinar við Háskóla
íslands.
Orðaforði hinnar nýju
viðskiptaorðabókar kemur úr
helstu sviðum viðskipta, eins og
úr starfi banka, tryggingafélaga,
skipafélaga, inn- og
útflutningsfyrirtækja og
fyrirtækja í ferðaþjónustu. Þá em
mörg orð sótt í rekstarhagfræði og
greinar viðskiptafræða eins og
fjármál, markaðsmál, stjórnun,
reikningshald og endurskoðun.
Ennfremur koma fyrir algeng
hugtök úr þjóðhagfræði og
þjóðarbúskap. Þá er rétt að vekja
athygli á því að hugtökum úr
lögfræði, ekki síst verslunarrétti
og róttarfari, em gerð sérstök skil
i þessari bók.
Fyrir sjö ámm kom úr Ensk-
islensk viðskiptaorðabók eftir
sömu höfunda sem hlaut mjög
góðar viðtökur. í formála hinnar
nýju bókar segja höfundar m.a.:
„Fyrir Islendinga og atvinnulíf
þeirra er mikilvægt að þeir sem
standa í viðskiptatengslum við
aðrar þjóðir nái sem bestum
árangri í starfi. Til þess þurfa þeir
að geta tjáð hugsanir sínar
hindmnarlaust á ensku, því máli
sem helst er notað í slíkum
viðskiptum. Höfundur þessarar
bókar ákvað að leggja sitt af
mörkum í þessu efni með
samningu orðabókar um
viðskiptamál."
Islensk-ensk viðskiptaorðabók
er prentuð í Prentstofu G.
Benediktssonar en bundin hjá
Amarfelli hf. Kápu gerði Sigurþór
Jakobsson.
■
■
i' Wk"''
*•
pf
V ■ • v->
/, i m ■ •
imm
Bændur á
það
Islensk - ensk
Aðalsteinsson á Vaðbrekku í
Hrafnkelsdal. Aðalsteinn er
sauðfjárbóndi í afskekktum dal
langt inni í landi.
„Gott félagsbú er á allan hátt
betra en einyrkjabúskapur" er
yfirskrift viðtals við Guðrúnu
Egilsdóttur i Holtsseli í Eyjafirði.
Rúmlega þritug stóð hún fyrir
einu af stærstu kúabúum
Eyjafjarðar og býr nú félagsbúi.
Guðrún tekur þátt í félagsmálum
bænda, er stundum eina konan á
bændafundum en telur að ef
konur létu félagsmálin meira til
sín taka yrði meira gert í
umhverfismálum og betur staðið
að sölu kindakjöts.
Pálmi Jónsson, alþingismaður á
Akri í Húnavatnssýslu, ræðir
einkum um sauðfjárbúskap sinn í
viðtalinu „Rís öndvert gegn
pólitískum erindum á
réttardaginn". Pálmi er virtur
fjárræktarmaður en stendur nú á
þeim tímamótum, eins og fleiri
bændur þessi árin, að sjá á eftir
fjárstofni sínum lenda fyrir
hnífnum vegna riðuveiki. Pálmi
segir lítillega frá verkefnum sem
hann fékkst við í
landbúnaðarráðherratíð sinni og
lýsir skoðunum sínum á
landbúnaðarmálum.
„Ég fer mínar eigin leiðir" er
yfirskrift viðtals við Ólaf
Eggertsson á Þorvaldseyri undir
Eyjafjöllum. Stórbóndinn á
Þorvaldseyri er jafnframt
þúsundþjalasmiður og rekur eitt
af tæknivæddustu búum landsins.
Á bænum hafa verið unnin
árangursrík brautryðjendastörf í
kornrækt í áratugi. Hugur Ólafs
þetta árið hefur mikið verið
bundinn við borun eftir heitu
vatni sem skilaði góðum árangri
þrátt fyrir hrakspár.
Jóhannes Kristjánsson á
Höfðabrekku í Mýrdal er
borgarbarn sem lét drauminn um
búskap í sveit rætast. „Höfum
engu tapað í kjaftinn á Kötlu" er
yfirskrift viðtals við hann og er þar
vísað til hættunnar sem
Mýrdælingum stafar stöðugt af
nábýli við Kötlu gömlu.
„Gott að sjá broslega hlið á
hverju máli" heitir viðtal við
Þórólf Sveinsson á Ferjubakka í
Borgarfirði. Þórólfur er ættaður úr
Fljótum, er búfræðikandidat og
starfaði sem ráðunautur í
Húnavatnssýslu áður en hann
gerðist kúabóndi á Ferjubakka.
Bændur á hvunndagsfötum er
fyrsta bók Helga Bjarnasonar
blaðamanns. Hann hefur á
undanförnum árum aflað sér
mikillar þekkingar á flestum
þáttum landbúnaðarmála og er
vel þekktur meðal bænda fyrir
vönduð fréttaskrif um málefni
þeirra.
Bókin er 192 bls. að stærð,
prýdd yfir 120 mynda auk
yfirlitskorta af heimabyggð
viðmælenda. Bókin er unnin að
öllu leyti í Prentsmiðjunni Odda
hf.