Tíminn - 09.12.1989, Blaðsíða 12
12
HELGIN
Laugardagur 9. desember 1989
Priscllla Gustafson og böm hennar tvö fundust myrt á heimili sínu. Móðirin var skotin í rúmlnu en börnin kyrkt í baðkeri.
SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL
Hann var sífellt að brjótast inn og hrella fólk en þegar hann hitti fyrir konu og tvö börn
hennar heima þá taldi hann ráðlegast að ryðja þeim úr vegi.
Síbrotaunglingur
gerist morðingi
Allt benti til að dagurinn yrði sérstæður hjá Gustafson, fasteignasala í
Townsend í Massachusetts, 8.200 manna bæ um 100 km frá Boston. Um
klukkan hálffjögur gekk hann frá einum stærsta samningi sem hann hafði
nokkurn tíma gert og taldi þá ástæðu til að fagna. Hann hringdi heim til að
biðja konu sína að útvega barnfóstru en enginn svaraði. Hann hringdi
tvisvar eftir það með sama árangri en klukkan var tæplega hálfsex þegar
Gustafson renndi upp að glæsilega, tveggja hæða íbúðarhúsinu við
Saunders Road og þá var hann kominn með herping í magann af þeirri á-
leitnu hugsun að eitthvað væri ekki eins og ætti að vera.
Hann var sífellt aö brjótast inn
og hrella fólk en þegar hann hitti
fyrir konu og tvö börn hennar heima
þá taldi hann ráðlegast að ryðja
þeim úr vegi.
Allt benti til að dagurinn yrði
sérstæður hjá Gustafson, fasteigna-
sala í Townsend í Massachusetts,
8.200 manna bæ um 100 km frá
Boston. Um klukkan hálffjögur
gekk hann frá einum stærsta samn-
ingi sem hann hafði nokkurn tíma
gert og taldi þá ástæðu til að fagna.
Hann hringdi heim til að biðja konu
sína aö útvega barnfóstru en enginn
svaraði. Hann hringdi tvisvar eftir
það með sama árangri en klukkan
var tæplega hálfsex þegar Gustaf-
son renndi upp að glæsilega,
tveggja hæða íbúðarhúsinu við
Saunders Road og þá var hann kom-
inn með herping í magann af þeirri
áleitnu hugsun að eitthvað væri ekki
eins og ætti að vera.
Það að vínrauður skutbíll
Priscillu konu hans stóð í heimreið-
inni en ekki var eitt einasla ljós
kveikt í húsinu gerði sitt til að auka
ónotin. Gustafson stökk út úr bíln-
um, hljóp inn og kallaði en fékk
engin svör. Hann hringdi í snalri til
stúlkunnar sem venjulega gætti 5
ára sonar hans meðan Priscilla
kenndi viö leikskóla.
Hann rifjaði upp seinna að helst
af öllu hefði liann viljað vita af
hverju bíllinn stóð úti þegar enginn
væri heima. Þegar börnin reyndust
ekki vera hjá stúlkunni, kveikti
hann ljósin og gekk milli herbergja,
kallandi á konu sína og börn. Leit-
inni að Priscillu lauk í svefn-
herberginu.
„ Eg sá hana liggja á grúfu á
rúminu, sagði hann seinna. - Hún
var greinilega dáin. Hún var alveg
líflaus og hendurnar voru gráar.
Priscilla Gustafsson, 33 ára, lá á
grúfu á rúminu með tómt koddaver
yfir höfðinu og þrjá kodda í kring.
Maöur hennar snerti ekkert, því
hann þóttist sjá að hún væri dáin.
Hann rak upp hátt óp, hljóp niður
aftur og hringdi til lögreglunnar.
„ Síðan, rifjaði hann upp, - fannst
mér ég verða að fara upp aftur og þá
sá ég skotgötin á koddaverinu. Ég
þorði ekki að leita meira, ég var svo
hræddur um að finna börnin dáin
líka.
Bömin í baðkerunum
Ekki löngu síðar, þennan kalda
1. desember 1987, kom lögreglu-
maðurinn John W. Johns að húsinu
og hitti Gustafson fyrir þar sem
hann gekk um gólf í eldhúsinu.
Johns fór síðan upp og sá einnig
skotgötin á koddaverinu yfir höföi
líksins. Hann fann ekkert lífsmark
með konunni og fór niður aftur til að
róa manninn. Skömmu síðar kom
Irving Marshall lögregluforingi á
veltvang og þá fór Johns til að leita í
húsinu.
í þurru baðkeri við svefnher-
bergið á efri hæðinni
fann hann snyrtilega klætt h'k
Williams Gustafson sem varð fimm
ára mánuði áður. í öðru baðkeri á
neðri hæðinni lá lík Abigail systur
hans í nokkrum þumlungum af
vatni. Hún hefði orðið átta ára viku
síðar. Föt telpunnar voru öll aflöguð
og rispur og marblettir á líkamanum
bentu til að hún hefði barist hetju-
lega við banamann sinn og litla
bróður síns.
Mikiö lögreglulið var nú sett í að
rannsaka málið og brátt fundust
vitni sem séð höfðu Priscillu með
drenginn um kl. 13.00. Abigail
hafði einnig sést á gangi heim úr
skóiabílnum um klukkan 15.30.
Ekki var talið útilokað að ein-
hver hefði ætlað aö ræna húsið.
Hálfum mánuði áður hafði einhver
brotist þar inn þótt ekki hefði neinu
verið stolið.
Nágrannar og ættingjar lýstu
Gustafson“fjölskyldunni sem róleg-
heitafólki og virku í kirkjustarfi
bæjarins og góðgerðarfélögum.
Priscilla var prestsdóttir frá næsta
bæ, Ashby.
Meðan rætt var við grannana,
könnuöu aðrir lögreglumenn um-
hverfið og fundu m.a. far eftir í-
þróttaskó í blómabeði og lengra úti í
garðinum fannst rifinn koddi og inni
í honum tvö skothylki af hlaupvídd
.22.