Tíminn - 09.12.1989, Síða 13
Laugardagur 9. desember 1989
HELGIN
13
SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL SAKAMAL
Inni í húsinu fannst óopnuð
bjórflaska sem talið var að morð-
inginn liefði tekið úr kæliskápnum.
Undir kvöldið komu sporhundar á
vetlvang og einn þeirra rakti slóð út
í skóg með svo miklum ákafa að
hann nánasl dró manninn á eflir
sér. Hundurinn nam loks staðar við
poka sem í reyndust bláköflólt
skyrta, blautir vettlingar, annar gul-
ur og hinn hvítur og dyraskiltið af
lnisi Guslafsons.
Afbrotaunglingur
Hundurinn fékk að þefa af
skyrtunni og tók þegar í stað stefn-
una úl úr skóginum og að húsi við
Elm Slreet. För eftir íjoróttaskó að
húsabaki komu alveg heirn við
skófariö í blómabeði Gustafsons.
Lögreglumönnum kom þetta
ekki sérlega á óvart. Um nokkurt
skeið hafði unglingspiltur sem
þarna átti heima verið lögreglunni
þyrnir í augum á þessu rólegheita-
svæði.
Árið áður, þá aðeins 16 ára,
hafði hann verið ákærður fyrir árás
á 14 ára slúlku. Þótt hann hafi ver-
ið sýknaður af nauðgunarkæru álti
hann enn fyrir höndum- réttarhöld
fyrir líkamsárás og meiðingar.
í desember réttu ári áður hafði
hann iðulega klæðst indíánabún-
ingi og gengið um veifandi öxi.
Þannig lil fara réðst hann inn til
fjölskyldu í nágrannabænum Pepp-
erell og hafði uppi hótanir þar til
allir lögðu á flótta. í það skiptið
skildi hann eftir rauðvínslögg í
glasi á eldhúsborðinu og einmilt
bjórflaskan í eldhúsi Gustafsons
minnti á þetta.
Vegna alviksins í Pepperell var
Daniel LaPlante var aöeins 17
ára en þegar orðinn forhertur
glæpamaður. Það þurfti þrjú
morð til að samfélagið losnaðl
pilturinn, Daniel LePlante, strax
grunaður en þegar átli að gahga að
honum, reyndist hann hafa slokkið
fram af svölunum og var horfinn.
Við leit í herbergi hans fannst skot-
hylki sem virtist úr sömu byssu og
Priscilla Gustafson var skotin með.
Þar l'annst líka guli vettlingurinn á
móti þeim sem hundurinn fann í
pokanum.
Daginn eftir þegar leit lögregl-
unnar að Daniel slóð sem hæst til-
kynnti kona í Pepperell að brolist
hefði verið inn hjá henni og byssu
stolið. Lögreglan kom strax á stað-
inn og fann þá brúnan leðurjakka
sem skilinn hafði verið eftir. Hann
reyndist eign Daniels LePlante.
Síðdegis sama dag ruddist dökk-
hærður unglingur inn hjá annarri
konu í Pepperell og tilkynnti henni
að hann væri svangur. Síðan neyddi
hann konuna út í bíl hennar og ók
með hana frá húsinu. Henni tókst þó
að sleppa fljótlega og klukkan fimm
sá lögreglan Daniel undir stýri í
bílnum í Ayer. Hann náðist hálftíma
síðar og var handtekinn. Líklegt
þótti að hann hefði kastað byssunni
í tjörn skammt frá staðnum í Ayer
sem hann var handtekinn.
Konan var ófrísk
Daniel hélt því stíft fram við
lögregluna að hann hel'ði verið
heima hjá sér að horfa á tónlistar-
myndbönd, á þeim tíma sem morð-
in voru framin. Reilly saksóknari
var hins vegar sannfærður um að
Daniel væri sekur og úrkurðaði að
tekin skyldu hár“ og munnvatns-
sýni til samanburðar við hár, blóð-
slettur og sæði sem fannst á og í
grennd við lík fórnarlambanna.
Sálfræðingur saksóknaraemb-
ættisins athugaði Daniel í þrjár
klukkustundir og fyrirskipaði síðan
að hann skyldi sendur til þriggja
vikna dvalar á geðdeild til rækilegr-
ar geðrannsóknar. Réttarhöld voru
ákveðin 22. desember.
Mánudaginn 7. desember var
staðfest í skýrslum að Priscillu
Gustafson hefði verið nauðgað og
einnig að hún hefði verið á fyrstu
vikum meðgöngu að þriðja barni
sínu.
Þar kom líka fram að fundist
hetðu undirföt, rifin utan af eigand-
anum í skáp í svefnherbergi Guslaf-
sons. I herberginu fundust einnig
umbúðir af tveimur smokkum og
einn notaður sem totan hafði verið
klipin af. A rúmteppinu fundust hár
sem ekki voru af fórnarlambinu.
Fréltamönnum var sagt að
einnig hefði fundist í herberginu
blágræn blússa sem Priscilla hafði
klæðst fyrr um daginn. Þegar líkið
fannst var það hins vegar klætt bux-
um og blárri skyrlu en engum und-
irfötum. Hins vegar var Priscilla í
blágrænu blússunni þegar vitnið sá
hana eftir hádegið.
Sönnunargögnum
fjölgar
Af öllu þessu var það totuklippti
smokkurinn sem olli lögreglunni
mestum heilabrotum. - Hann gæti
hafa klippt hann sjálfur, var stung-
ið upp á. - Fyrr á árinu var fallið frá
ákæru um að hann hefði nauðgað
14 ára telpu og hann veit mæta vel
að hægt er að þekkja mann al' sæði,
rétt eins og blóðflokki. Með því að
losa sig við það hefur hann talið sig
rjúla öll tengsl milli sjáll's sín og
nauðgunar í þelta sinn.
Við teljum að hann hafi annað-
hvort skipað frú Gustafson að hafa
fataskipti eða klætt hana sjálfur eft-
ir að hafa nauðgað henni og skotið
liana tvisvar í höfuðið.
Þann 11. janúar 1988 var Daniel
LaPlante ákærður fyrir alls 28 at-
riði, allt frá Gustafson“morðunum
til ógnananna við fjölskylduna í
Pepperell nær tveimur árum áður.
Margar kærur voru fyrir innbrot,
Iíkamsárásir, ólöglegan vopnaburð,
bílþjófnað, mannrán og mótþróa
við lögregluna.
Við réttarhöldin kom fram í
vitnisburði níu ára telpu að á morð-
daginn hafði hún verið samferða
Abigail Gustafson heim úr skólan-
um og séð hana fara inn heima hjá
sér. Sjálf fór hún heim til sín, setti
skólatöskuna inn en fór svo út aflur
til að hjálpa systur sinni að elta
uppi kanínu sem hún hafði misst.
Þá heyrði hún langdregið óp heim-
an frá Abigail og hundinn þar gelta
ákaflega. Hún kvaðst viss um að
Abigail hefði æpl.
Einnig kom fram að í byrjun
aprfl, fjórum mánuðum eftir morð-
in, hringdi aðstandandi Daniels til
lögreglunnar og baö um að maður
yrði sendur þangað. Að húsabaki
stóð Cherokee“jeppi og í hanska-
hóll'i hans var skammbyssa með
hlaupvídd .22. Hún var talin hafa
orðið Priscillu Gustalson að bana.
Þá bar nágranni Daniels að byss-
unni hefði verið stolið við innbrol á
heimili hans í október 1987.
Einangrun til æviloka
Síðasta vitni ákæruvaldsins var
meinafræðingurinn sem rannsakaöi
lík barnanna. Hann sagði að á hálsi
telpunnar hefðu verið áverkar sem
bentu til að liert hefði veriö vel að.
Þess má geta í því sambandi að 250
hár af henni voru í hnúl á hálsbindi
sem fannst í stofusófanum.
El'tir þennan framburð var gert
réttarhlé. Verjandi leiddi engin vitni
og mælti heldur ekki fyrir málstað
ákærða. Kviðdómur fann Daniel
LaPlante sekan urn þrjú morð. Sak-
sóknari lét þess getið að hann heföi
aldrei fjallað um jafnviðurslyggi-
legt mál. - Ákærði hefur ekki harm-
að verknað sinn eitt andarlak.
Dómarinn ávrapaði Daniel og
sagði m.a.: - Margir eru þeirrar
skoðunar að þú ættir að hljóta sömu
örlög og fórnarlömb þín: Heng-
ingu. Því miður er hér aðeins hægl
að dæma þig til ævilangrar fangels-
isvistar án möguleika á náöun og án
nokkurra leyfa. Svona mönnum má
alls ekki sleppa lausum andarlak
meðal saklausra borgara.
%s. Jl uðrún Ásmundsdóttir leikkona er íslending-
um að góðu kunn. í bókinni Ég og lífið gefur hún
lesendum innsýn í margbrotið líf sitt þar sem skipst
hafa á gleði og sorg, sigrar og ósigrar, trú og efi.
Hún ræðir á opinskáan hátt um bernsku sína, ást,
hjónabönd, störf og list. Líf Guðrúnar er hlaðið
andstæðum og miðlar hún reynslu sinni af mikilli
einlægni og næmni.
Inga Huld Hákonardóttir hefur skrásett áhrifaríka
og heillandi sögu Guðrúnar Ásmundsdóttur af
miklu listfengi. Eg og lífið er einhver óvenjulegasta
æviminningabók sem komið hefur út á íslandi.
VAKM
HEUCAFELL
SÍÐUMÚLA 29
SÍMI6-88-300