Tíminn - 09.12.1989, Page 15

Tíminn - 09.12.1989, Page 15
Laugardagur 9. desember 1989 HELGIN 15 THE BIG BLUE: Heillandi kvikmynd Aðalleikarar: Rosanna Arquette, Jean- Marc Barr og Jean Reno. Handrit og leikstjóri: Luc Besson „The Big Blue“ er leyndardóms- fullur heimur hafsins sem er eins fjarlægur manninum og geimurinn. 1 myndinni verða ókannaðar dýptir hafsins vettvangur tveggja manna í að sanna hugrekki sitt. Æskufélagarnir Jacques (Jean- Marc Barr) og Enzo (Jean Reno) eru snillingar í köfun og báðir keppa að því að sigra undirdjúpin. Jacques er eins og af öðrum heimi og hefur uppgötvað sérstaka eiginleika sem gera honum kleift að kafa dýpra en nokkur annar án súrefnis og sárs- auka. Enzo aftur á móti er rekinn áfram af viljanum til að sigra og voninni um frægð. Joanna (Rosanna Arquette) kemur til sögunnar sem unnusta Jacques sem hún hefur ótak- Stjörnugjöf: ★★★★ markaða ást á, þó hún viti að hjarta hans tilheyri hafinu. Aðdráttarafl hafsins verður loks til þess að stía þeim í sundur. Árangur Jacques við köfunina verð- ur umfram það sem er manninum mögulegt og þá kemur í ljós að hann er eitthvað annað og meira en bara maður... „The Big Blue“ er snilldarlega vel gerð kvikmynd sem svíkur engan sem ann góðum kvikmyndum. Kvik- myndatakan er stórkostleg á köflum og áhorfandinn lifir sig ósjálfrátt inn í heim undirdjúpanna og heldur jafnvel ósjálfrátt niðri í sér andanum er hann fylgist með Jacques og Enzo í undirdjúpunum. Leikararnir eru sannfærandi í hlutverkum sínum og hefur Luc Besson (gerði m.a. kvikmyndina Subway) gert frábæra kvikmynd sem er þess virði að horfa á. SSH St. Jósepsspítali - Landakot Hjúkrunarforstjóri Staða hjúkrunarforstjóra við St. Jósepsspítala, Landakoti er laus til umsóknar. Umsókarfrestur er til 10. janúar 1990. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. apríl 1990. Hjúkrunarforstjóri hefuryfirum- sjón með og ber faglega ábyrgð á allri hjúkrun á sjúkrahúsinu, St. Jósepsspítali - Landakoti er 200 rúma deildasjúkrahús og kennslustofnun, sem veitir sérfræðiþjónustu á augnlækninga-, hand- lækninga- og lyflæknisdeildum, gjörgæsludeild, skurðstofu og svæfingadeild, móttökudeild, barna- deild, öldrunardeild, stoðdeildum og rannsókna- deildum. Umsækjandi skal vera hjúkrunarfræðing- ur með framhaldsnám í stjórnun eða hafa masters- gráðu í stjórnun, hafa minnst 3ja ára starfsreynslu við stjórnunarstörf og 2ja ára starfsreynslu við almenn hjúkrunarstörf. Umsóknir skulu sendar til framkvæmdastjóra spít- alans, Loga Guðbrandssonar. HOBSONS CHOICE Öskubuska fer að búa Stjörnugjöf ★★★ 1/2 Aðalhlutverk: Sharon Gless, Richard Thomas og Jack Warden. Leikstjóri: Gilbert Gates Ég sá sterka samlíkingu, í þessari mynd, við ævintýrið um Oskubusku. Þetta er allt að því hugljúf mynd og tilvalin sem slík fyrir alla fjölskyld- una. í stuttu máli greinir frá fjölskyldu- lífi Hobsons fjölskyldunnar, þar sem einstæður faðir drottnar yfir þremur uppkomnum dætrum. Tvær þær yngri vilja báðar giftast en karlinn samþykkir það ekki. Elsta stúlkan (Öskubuska) gengur í öll störf og pabbi hennar ráðskast með hana og segir hana verða piparkerlingu. Öskubuska er ekki á þeim buxunum og nær sér í mann sem kemur flatt upp á alla og ekki síst pabbann, þegar hann uppgötvar hver tilvon- andi tengdasonurinn er. Taka hjóUn nú að snúast hratt og úr verður hin besta skemmtun. Ég átti ekki von á miklu þegar ég setti þessa spólu í tækið, gerði það með hálfum hug. Ég hló mikið að þessari mynd og komst í hreint frábært skap við að horfa á hana. Það ríkir nokkurskonar Mary Popp- ins stemmning í þessari mynd. FUNNY FARM/BILAÐA BÝLIÐ: Haldið á vit náttúrunnar Stjörnugjöf ★ 1/2 Aðalhiutverk: Chevy Chase Leikstjóri: Georg Roy Hill Hér segir frá íþróttafréttamanni sem fengið hefur sig fullsaddan á skarkala borgarlífsins, og flytur með sinni heittelskuðu upp í sveit. Þar ætlar hann að helga sig ritstörfum og skrifa metsölubók. f stuttu máli er söguþráðurinn á þessa leið. Verð- andi rithöfundur ræður ekki við verkið og leggst í drykkju. Konan hans blómstrar hinsvegar á ritvellin- um og eykur það enn á þunglyndi húsbóndans. Inn í þennan söguþráð fléttast óteljandi atriði sem ekki er ástæða til að greina frá hér, en flest eru til þess fallin að auka glundroð- ann sem ræður ríkjum í myndinni. Ein og hálf stjarna er frekar ríflegt fyrir þessa mynd, en það stafar af því að öll vafaatriði eru túlkuð fram- leiðendum í hag. Ég er ekki hrifinn af Chevy Chase sem gamanleikara, Gamanmyndir um sveitasælu eru en það er skoðun sem ég á alfarið við alþekkt fyrirbrigði. Ég mæli mun sjálfan mig. Þykir mér leikarinn frekar með íslensku myndinni ofleika og finnst mér sem það komi „Dalalíf" vilji menn á annað borð alltaf niður á þeim kvikmyndum sem sjágamanmynd tengda landbúnaði. hann leikur í. _ES Einhverjum kann að þykja sem þrjár og hálf stjarna sé full mikið, en sá hinn sami verður að taka tillit til þess að hér er skoðun undirritaðs á ferðinni. -ES \ SLÖKKVISTÖÐIN í REYKJAVÍK Laus staða í slökkviliðinu í Reykjavík er laus staða starfs- manns í eldvarnareftirliti. Umsækjandi skal hafa tæknimenntun eða hafa langa starfsreynslu í slökkviliði. Umsóknir berist undirrituðum fyrir 31. desember 1989. Reykjavík, 1. des. 1989 Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.