Tíminn - 22.12.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 22. desember 1989
■Tíminn3
1838 tonn
seld ytra
Vegagerðin leggur áherslu á að allir helstu vegir verði færir fyrir jól:
Fært um allt land
Á fiskmörkuðum í Bretlandi og
Þýskalandi voru í liðinni viku seld
samtals 1838 tonn, fyrir um 169
milljónir króna. Þar af voru 1160
tonn seld á mörkuðum í Bretlandi
og var heildarverðmæti aflans 135
milljónir króna.
Þrír bátar lönduðu í Bretlands-
höfnum, samtals 277 tonnum. Þetta
voru Hjörleifur RE með 80 tonn,
meðalverð 113,17 krónur fyrir kíló-
ið, Sólberg OF með 111 tonn, meðal-
verð 120,49 krónur og Þórhallur
Daníelsson SF með 85 tonn, meðal-
verð 131,43 krónur. Uppistaðan í
afla bátanna var þorskur eða 222
tonn og fékkst 124,67 króna meðal-
verð fyrir kílóið. Af ýsu voru seld 15
tonn, meðalverð 135,17 krónur, tvö
tonn af ufsa, meðalverð 79,59 krón-
ur og af grálúðu voru seld 36 tonn,
meðalverð 101,06 krónur. Heildar-
verðmæti aflans nam 33,7 milljónum
króna.
Úr gámum voru seld 883 tonn,
fyrir tæpar 102 milljónir króna. Tæp-
lega helmingur fisksins var þorskur
eða 413 tonn, meðalverð 112,63
krónur og 301 tonn var selt af ýsu,
meðalverð 124,93 krónur. Þá voru
seld rúm 13 tonn af ufsa, meðalverð
67,06 krónur, 19 tonn af karfa,
meðalverð 56,97 krónur, 60 tonn af
kola, meðalverð 128,70 krónur og af
blönduðum afla voru 76 tonn, með-
alverð 105,52 krónur.
í Þýskalandi lönduðu þrír bátar,
Breki VE landaði 285 tonnum, með-
alverð 81,64 krónur, Drangey SK
landaði 193 tonnum, meðalverð
Helgi Jónsson kennari með bók sína.
Unglingasaga
umeinelti
Eitt af þeim íslensku skáldverkum
sem litu dagsins ljós nú fyrir jólin er
unglingasagan „Skotinn" eftir Helga
Jónsson kennara í Ólafsfirði og rit-
stjóra bæjarblaðsins Múla. „Skotin"
er unglingasaga. Aðalpersónan Kári
er í áttunda bekk. Hann er einmana
og vinafár, haltrar á öðrum fæti og
er því mikið strítt og nánast lagður í
einelti. En þá fyrst byrja vandræðin
þegar hann fer að hugsa um stelpur.
Kári er skotinn í Silvíu, en hún er á
föstu með skólafantinum Skarp-
héðni sem sífellt níðist á Kára. Hann
getur lítið að gert og verður því að
finna nýja aðferð til að sigrast á óvini
sínum. Kári ákveður að gera bíó-
mynd í skólanum og fær Skarphéð-
in'. til að leika í myndinni. Hann er
ekki bara að þessu til að vingast við
óvin sinn heldur einnig til að ganga
í augun á Silvíu.
Það er ekki nóg með að Helgi
skrifi bókina, heldur gefur hann
hana sjálfur út og dreifir henni. í
samtali við Tímann sagði Helgi að
hann hefði átt uppkast að þessari
sögu í fórum sínum og hefði fullunn-
ið hana á síðasta ári. Hann sagðist
lengi hafa haft þá hugmynd í kollin-
um að vinna sögu um einelti og að
lokum ákveðið skrifa unglingabók
um þetta efni.
Stuðlaprent í Ólafsfirði setti bók-
ina og braut um, en prentsmiðjan
Oddi sá um prentun.
96,04 krónur og Már SH landaði 198
tonnum, meðalverð 95,01 króna.
Uppistaðan í aflanum var sem fyrr
karfi, en af honum voru seld 417
tonn, meðalverð 90,41 króna.
Færð á þjóðvegum landsins er
með sæmilegasta móti að sögn Karls
Ásgrímssonar hjá vegaeftirliti Vega-
gerðar ríkisins í gær. Hann sagði að
færð mundi ekki spillast nema veru-
legt áhlaup gerði, sem ekki væri útlit
fyrir samkvæmt veðurspá.
Fært var frá Reykjavík og norður
í land, en skafrenningur var á Öxna-
dalsheiði, hafði færð þar nokkuð
spillst og varla fær nema jeppum og
stórum bílum. Um Snæfellsnes var
færð góð öllum bílum, en að Patreks-
firði var Kleifaheiði erfið yfirferðar.
Þá var ágæt færð til ísafjarðar.
í gær var fært um allt Suðurland
til Austfjarða. Breiðdalsheiði var
ófær en fært var um Austfirði með
ströndinni. Möðrudalsöræfi voru
aðeins fær jeppum.
í dag er ruðningsdagur, verður
Öxnadalsheiði rudd, svo og til Patr-
eksfjarðar og aðrir vegir á Vestfjörð-
um, þar sem færð hefur spillst. Ekki
er gert ráð fyrir að Möðrudalsöræfin
verði rudd í dag, en líklega verður
farið í það á morgun, svo og aðrir
þeir vegir þar sem færð hefur spillst
vegna snjóa. Vegagerðin ráðgerir að
flestir þjóðvegir landsins verði færir
á laugardag, svo fólk komist til síns
heima áður en jólahátíðin gengur í
garð. -ABÓ
-ABÓ
•