Tíminn - 22.12.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Föstudagur 22. desember 1989
FRÉTTAYFIRLIT
10001
PANAMABORG - Guili-
ermo Endara sem sór emb-
ættiseið sem forseti Panama í
byrjun innrásar Bandaríkjanna
setti á næturlangt útgöngu-
bann auk þess sem öllum opin-
berum skrifstofum og stofnun-
um verður lokað næstu daga.
Þetta er gert til að koma á
lögum og reglu, en mikil ringul-
reið hefur rikt frá því Banda-
ríkjamenn gerðu innrásina og
hafa verslanir veriö rændar.
Enn sló í brýnu milli banda-
rískra hermanna og vopnaðra
stuðningsmanna Noriega sem
ekki hefur enn verið handsam-
aður.
MOSKVA - Stjórnarnefnd
sovéska kommúnistaflokksins
boðaði til neyðarfundar mið-
stjórnar flokksins til að ræða
ákvörðun kommúnistaflokks-
ins í Litháen umaðslítatengsl-
um við móðurflokkinn í
Moskvu.
LEIPZIG - Francois Mitter-
rand forseti Frakklands kom í
opinbera heimsókn til Austur-
Þýskalands í gærkvöldi og er
hann fyrsti leiðtogi Banda-
manna sem heimsækir Austur-
Þýskaland frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Mitter-
rand notaði tækifærið við kom-
una til Leipzig til að fordæma
framferði Ceausescus gegn
mótmælendum [ Rúmeníu.
AUSTUR-BERLÍN
Komið hefur á daginn að spill-
ing um það bil 200 háttsettra
embættismanna kommúnista-
flokksins var enn meiri en áður
var talið. Frá þessu var skýrt í
málgagni kommúnistaflokks-
ins í gær.
BONN - Helmut Kohl kansl-
ari Vestur-Þýskalands kom
heim úr opinberri heimsókn til
Austur-Þýskalands og varði þá
ákvörðun sína að bjóða Aust-
ur-Þjóðverjum upp á áætlun
um sameiningu þýsku r(kj-
anna, en lagði áherslu á að
sameinað Þýskaland, ef af
yrði, væri ekki ógnun við ná-
grannaríkin.
VESTUR-BERLÍN
Fjöldi manns frá Vestur-Berlín
hópaðist að Berlínarmúrnum
gegnt Brandenborgarhliðinu
og beið þess að austur-þýskir
verkamenn brytu göt á múrinn.
Umferð gangandi manna um
Brandenborgarhliðið verður
leyfð í dag og munu verða
hátíðarhöld af því tilefni þar
sem bæði Hans Modrow for-
sætisráðherra Austur-Þýska-
lands og Helmut Kohl kanslari
Vestur-Þýskalands verða á
meðal gesta.
ÚTLÖND
Blóðbað í Búkarest í kjölfar pmennra mótmælafunda gegn ógnarstjóm kommúnista:
Ceausescu sigar skrið-
drekum á mannfjöldann
Blóð rann um götur Búkarest í gær eftir að Nicolae
Ceausescu forseti Rúmeníu sigaði skriðdrekum og öryggislög-
reglu vopnaðri vélbyssum á þúsundir mótmælenda sem
kröfðust lýðræðis og afsagnar einvaldsins. Skriðdrekar óku
yfir stúdenta er mótmæltu harðræði kommúnistastjórnar
Ceausescus og fjöldamorðunum í Timisoara um síðustu helgi.
Öryggislögreglan bætti um betur og skaut á mannfjöldann úr
vélbyssum.
Þá bárust þær fréttir frá Timisoara
þar sem öryggislögregla myrti
hundruð manna, jafnvel þúsundir,
eftir mótmælaaðgerðir um síðustu
helgi, að verkamenn í nokkrum
verksmiðjum hafi tekið þær á sitt
vald og hóti að sprengja þær í loft
upp verði ekki látið af kröfum
þeirra. Ein verksmiðjan er stór olíu-
hreinsistöð Þeir krefjast þess að
Rúmensk stjórnvöld fordæmd
íslensk stjórnvöld hafa lýst yfir
þungum áhyggjum vegna grimmi-
legrar vaidbeitingar rúmenskra
stjórnvalda undanfarna daga og
fordæma harðlega fjöldamorð á
friðsamlegum mótmælendum.
í fréttatilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu segir að mótmælaað-
gerðir í borginni Timisoara séu
andsvar almennings í Rúmeníu við
þeim ásetningi stjórnvalda að virða
að vettugi þær lýðræðislegu um-
bætur, sem rutt hafa sér rúms í
öðrum ríkjum Austur-Evrópu.
ísland hefur áður gagnrýnt
endurtekin brot rúmenskra stjórn-
valda á mannréttindaákvæðum
Helsinki-sáttmálans. íslensk
stjórnvöld skora á stjóm Ceausesc-
us að virða þær skuldbindingar
sem Rúmenar hafa gert á Vínar-
ráðstefnunni um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu og láti hið fyrsta af
þeim ofbeldiskenndu stjórnunar-
aðferðum, sem hvarvetna eru nú á
undanhaldi í öðrum ríkjum Aust-
ur-Evrópu. -EÓ
Ungverjaland:
Þingið greiðir
fyrir kosningum
Ungverska þingið samþykkti á
fundi sínum í gær að láta af störfum
16. mars til að greiða fyrir fyrstu
fullkomlega frjálsu þingkosningun-
um í Austur-Evrópu í 40 ár. Er gert
ráð fyrir að Matyas Szuros sem
gegnir embætti forseta Ungverja-
lands til bráðabirgða muni ákveða
um helgina hvaða dag kosningarnar
muni fara fram.
Samva;mt kosningalögum hefði
þingið getað leyst sjálft sig upp
samdægurs og starfað einungis sem
starfsþing án löggjafarvalds, en sú
leið var ekki farin þar sem þurfi að
leysa ýmis lagaleg atriði til að kosn-
ingarnar verði löglegar. Hins vegar
tryggir þessi ákvörðun þingsins nú
að kosningar geti farið fram í síðari
hluta maímánaðar því 90 dagar
Skálmöld á Sri Lanka:
200 myrtir
á sólarhring
Um það bil tvöhundruð ungir
menn lágu í valnum á Sri Lanka á
einum sólarhring á fimmtudag eftir
gegndarlausa morðöldu sem ekki
ætlar að linna. Þá hafa um áttaþús-
und manns verið drepnir á Sri Lanka
á tveimur árum.
Mennirnir tvöhundruð fundust við
vegakanta vítt og breitt um Hamb-
antotahérað í gærmorgun og voru
flest líkin limlest og jafnvel brennd.
Eru talið að bæði vinstri sinnaðir
skæruliðar og vopnaðar sveitir hlið-
hollar ríkisstjórninni hafi staðið fyrir
ódæðunum.
Skálmöldin á Sri Lanka hefur
ekkert linnt þó að stjórnarherinn
hafi náð að fella helstu leiðtoga
vinstri sinnaðra skæruliða fyrir
nokkru.
verða að líða fram að kosningum frá
því til þeirra er boðað.
Áður en þingið ákvað að leysa
sjálf sig upp var fjárlagafrumvarp
ríkisstjórnarinnar samþykkt. Frum-
varpið miðar að harkalegum aðgerð-
um til að ná tökum á efnahagslífi
Ungverjalands, en til mikils er að
vinna, því í staðinn fá Ungverjar
gífurlega há hagstæð lán frá Ál-
þjóðagjaldeyrissjóðnum og frá Evr-
ópubandalaginu til að rétta við at-
vinnulíf landsins. Er samþykkt fjár-
lagafrumvarpsins mikill sigur fyrir
Miklos Nemeth forsætisráðherra
sem sagði sig úr stjórnarnefnd Sósí-
alistaflokksins þar sem frumvarp
hans hlaut þar ekki óskoraðan
stuðning.
Noröur-írland:
Skotið á
stúlku
Fimmtán ára gömul stúlka varð
fyrir kúlu herlögreglumanns í
Belfast á Norður-írlandi í gær.
Stúlkan var í bifreið sem stöðvaði
ekki á varðstöð herlögreglunnar
í borginni. Skotið var á bifreiðina
með fyrrgreindum afleiðingum
Stúlkan var í lífshættu á sjúkra-
húsi í Belfast í gærkvöldi, en
ferðafélagar hennar voru í yfir-
heyrslum hjá lögreglu.
Her og lögregla á Norður-ír-
landi erum í viðbragðsstöðu þar
sem búist er við öldu hermdar-
verka nú um jólin. Þegar hafa sex
sprengjur fundist í Londonderry
og þær gerðar óvirkar.
Ceausescu láti af völdum og að
umbætur verði gerðar í anda þeirrar
umbótastefnu sem gengið hefur yfir
Austur-Evrópu að undanförnu.
Svar Ceausescus við aðgerðum
verkamannanna var að senda skrið-
dreka og herþyrlur á staðinn og er
jafnvel búist við blóðbaði þar fyrr en
síðar.
Atburðarásin í Búkarest í gær var
mjög dramatísk. Ceausescu átti að
ávarpa fjöldafund sem komið var á
fót til að sýna stuðning við stefnu
hans og var útvarpað frá fundinum.
Skyndilega heyrðust öskur og læti og
útsending var rofin í þrjár mínútur.
Eftir það hélt Ceausescu áfram ræðu
sinni.
Ekki er vitað hvað gerðist, en
skömmu síðar hafði mikill mann-
fjöldi safnast saman við háskólann í
Búkarest undir forystu stúdenta og
kröfðust afsagnar Ceausescus. Svar
hans var að senda skriðdreka og
öryggislögreglu gegn fólkinu.
Þá má geta þess að Gyula Horn
utanríkisráðherra Ungverjalands
skýrði frá því í gær að slegið hefði í
brýnu milli herflokks og sveita ör-
yggislögreglumanna á nokkrum
Ceausescu vflar ekki fyrir sér að
senda skriðdreka gegn andófsmönn-
um.
stöðum í Rúmeníu, þegar hermenn
sem eru kallaðir í herinn reyndu að
koma í veg fyrir að öryggislögreglu-
menn myrtu vini og ættingja sem
stóðu í mótmælaaðgerðum.
Bandarískir hermenn á flugvellinum í Panama.
Bandaríski herinn ræður lögum og lofum í
Panama eftir hörð átök:
Leita Noriega
logandi Ijósi
Bandaríski herinn ræður lögum
og lofum í Panama eftir innrásina á
miðvikudagsmorgun. Bardagar rén-
uðu út á aðfaranótt fimmtudags, en
hart var barist á ýmsum stöðum fyrst
eftir innrás Bandaríkjamanna.
Reyndar mátti enn heyra skothríð
við og við þegar leið á daginn i gær.
Bandarískir hermenn leita nú
Antonio Noriega hershöfðingja log-
andi ljósi, en herförin var fyrst og
fremst gerð til að ná höndum í hári
hans og koma Guillermo Endara
forsetaefni stjórnarandstöðunnar til
valda, en sigraði í forsetakosningum
í fyrravor. Noriega ógilti þær kosn-
ingar á sínum tíma.
í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu sem
birt var í gær var sagt að Noriega
væri örugglega ennþá í Panama og
að það yrðu engin tímamörk sett á
hve lengi yrði reynt að handsama
hann og draga fyrir rétt í Bandaríkj-
unum. Þar hefur hann verið ákærður
fyrir víðtækt eiturlyfjasmygl. Einum
milljarði Bandaríkjadala hefur verið
heitið þeim er geta gefið vísbendingu
sem leiðir til handtöku Noriegas.
í yfirlýsingu Hvíta hússins segir að
George Bush sé ánægður með herför
Bandaríkjahers í Panama og að nú
sé þar réttkjörinn forseti kominn til
valda.
Fólk nýtti sér ringulreiðina sem
varð í kjölfar innrásar Bandaríkja-
manna og rændi öllu lauslegu úr
verslunum borgarinnar. Reyna
bandarískir hermenn nú að koma í
veg fyrir rán, með misjöfnum ár-
angri.
Samkvæmt upplýsingum Banda-
ríkjahers þá féllu átján bandarískir
hermenn í innrásinni og á annað
hundrað særðust. Ekki er vitað hve
margir panamískir menn féllu, en
talið er öruggt að rúmlega hundrað
manns hafi fallið og að rúmlega
þúsund séu sárir.
Nú eru um 24 þúsund bandarískir
hermenn í Panama, en í her Panama
eru rúmlega fimmþúsund manns.
Við það bætast sérstakar sveitir
Noriegas sem telja um áttaþúsund
manns. Þær eru einungis léttvopnað-
ar.
Dick Cheney varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna sagði í gær að ekki
liði á löngu þar til bandarískir her-
menn muni geta dregið sig frá Pan-
ama og inn á svæði þau við Panama-
skurðinn sem eru undir stjórn
Bandaríkjanna.