Tíminn - 22.12.1989, Blaðsíða 13
Föstudagur 22. desember 1989
Tíminn 13
r kvn\i\uu • Hnr
Jólaalmanak S.U.F. 1989
Geriö skil og leggið baráttunni lið.
Allar frekari upplýsingar í síma 91-24480 eða 91-21379 og á
skrifstofunni, Nóatúni 21, Reykjavík.
Velunnarár, látið ekki happ úr hendi sleppa.
1 .des. 1. vinningur nr. 5505.
2. vinningur nr. 579
2. des. 3. vinningur nr. 4348
4. vinningur nr. 2638
3. des. 5. vinningur nr. 2656
6. vinningur nr. 2536
4. des. 7. vinningur nr. 4947
8. vinningur nr. 1740
5. des. 9. vinningur nr. 1341
10. vinningur nr. 4997
6. des. 11. vinningur nr. 4635
12. vinningur nr. 5839
7. des. 13. vinningur nr. 1937
14. vinningur nr. 3035
8. des. 15. vinningur nr. 1996
16. vinningur nr. 3860
9. des. 17. vinningur nr. 1840
18. vinningur nr. 4217
10.des. 19. vinningur nr. 3935
20. vinningur nr. 5514
Samband ungra framsóknarmanna.
Jólahappdrætti Framsóknarflokksins
Dregið verður 23. desember n.k.
Velunnarar flokksins eru hvattir til að greiða heimsenda gíróseðla fyrir
þann tíma.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða í síma
91-24480.
Framsóknarflokkurinn.
Framsóknarmenn Siglufirði
og Fljótum
Munið hádegisverðarfund að Hótel Höfn föstudaginn 22. des.
Stjórnin.
11 .des. 21. vinningur nr. 546
22. vinningur nr. 1164
12. des. 23. vinningur nr. 5442
24. vinningur nr. 3569
13. des. 25. vinningur nr. 5943
26. vinningur nr. 4362
14. des. 27. vinningur nr. 1617
28. vinningur nr. 3647
15. des. 29. vinningur nr. 648
30. vinningur nr. 4822
16. des. 31. vinningur nr. 1136
32. vinningur nr. 3488
17. des. 33. vinningur nr. 3806
34. vinningur nr. 1981
18. des 35. vinningur nr. 5960
36. vinningur nr. 1595
19. des. 37. vinningur nr. 568
38. vinningur nr. 5842
20. des. 39. vinningur nr. 1107
40. vinningur nr. 1353
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur kjördæmissambandsins og Einherja verða lokaðar frá 21.
desember til 3. janúar.
Hægt verður að ná í ritstjóra Einherja á þessu tímabili í síma
96-71054.
IIIIIIIIHIIIIIII R/FKIIR IIIIIIIIIIIIIIIIM
1 Pjctur Hafstein Lárusson Bláknöttur dansar
M
,|lj
Iðunn
Bláknöttur
dansar
Bókaútgáfan Iðunn hefur gefið
út nýja ljóðabók eftir Pjetur
Hafstein Lárusson og nefnist hún
Bláknöttur dansar. Pjetur hefur
áður sent frá sér nokkrar
ljóðabækur. Hin nýja bók sýnir
vaxandi vald hans á myndrikum
ljóðstíl. Bókin skiptist í þrjá kafla.
I hinum fyrsta eru átján
Heykjavíkurljóð, svipmyndir úr
borginni. Þar skiptast á skýrar
myndir kunnuglegs umhverfis
annars vegar og tilvísun til
almæltra tíðinda - og hins vegar
einkalegar skynmyndir og
hugsýnir. í öðrum hluta eru
nokkur stutt ljóð, öguð og meitluð.
í þriðja hluta bókarinnar eru sex
svipmyndir frá Café Norra Klara í
Stokkhólmi. Höfundur hefur búið
þar í borg síðustu ár. Pjetur
Hafstein nær sér vel niðri í þessum
ljóðum. í hrjúfum gripum hans má
heyra persónulegan tón og
tjáningarhátt. Hér er á ferðinni
skáld sem kemur við lesandann.
KRISTJÁN l
TH0RLACJUS
Kristján
Thorlacius
mættur til
leiks á ný
Út er komin hjá Bókaútgáfunni
Reykholti bókin Kristján
Thorlacius: Þegar upp er staðið.
Kristján er hreinskilinn og afar
opinskár í þessari bók. Margt af
því sem fram kemur um nærri 30
ára starfsævi Kristjáns sem
formaður BSRB á því eftir að vekja
athygli. Má þar nefna misjöfn
samskipti Kristjáns við yfirmenn
og viðsemjendur. Þar koma fram
nöfn eins og Gannar Thoroddsen,
Grundartanga-Jón Sigurðsson,
Höskuldur Jónsson, Magnús frá
Mel o.fl.
Bókin er skrifuð af
sóknarprestinum á Höfn í
Hornafirði, sr. Baldri
Kristjánssyni. í henni tekur hann
skref frá viðtalsforminu, nýtir
kosti þess en kannar jafnframt
baksvið atburða.
Hún Dolly var orðin aðeins 98
pund þegar Carl maður hennar
greip til sinna ráða
IIIIIIIIIIHIIIII SPEGILL IIIIIIIIM^
Dolly Parton á frumsýningu á
„Stál-magnólíunum“
Kvikmyndin „Steel Magnolias"
hefur þegar orðið gróðafyrirtæki,
þó stutt sé síðan hún kom á
markað. Þar eru sex stjörnur í
aðalhlutverkum, -en Dolly Parton
fer þar fremst í flokki, og er hún
ánægð með myndina og sjálfa sig
um þessar mundir.
Annars hafði margt gengið illa
hjá Dolly á sl. árum. Sjónvarps-
þættir hennar þóttu lélegir og voru
teknir af dagskrá og sjálf var hún
orðin þunglynd. Það fór líka illa
með hana hve hún hafði gengið
nærri sér í megrunaræði. Nú viður-
kennir Dolly það fyrir sjálfri sér og
öðrum, að hún hafi verið komin
með megrunarsjúkdóminn „anor-
exia“ og stórskaðað sig á líkama og
sál.
Hún segir Carl, eiginmann sinn,
hafa hjálpað sér til að átta sig á
hlutunum og koma sér á rétta
braut. Hann fékk Dolly til að
koma með sér í þriggja vikna frí í
sumarhúsi sem þau eiga í Tenness-
ee. Þar dreif hann konu sína með
sér í langar gönguferðir og sá um
að góður matur væri á boðstólum
þegar þau komu þreytt heim, og
smátt og smátt fór Dolly að fást til
að borða.
Hún sagði það hafa haft mest
áhrif, þegar Carl sagðist alls ekki
geta faðmað hana, hún væri bara
skinn og bein! Þá var hún aðeins 98
pund.
Nú hefur allt gengið betur, og á
árinu 1989 hefur hún gefið út
plötualbúm „White Limozeen"
sem fór í 1. sæti á „kántrílaga-lista“
og mörg lögin náðu geysilegum
vinsældum, og þó Dolly hafi nú
unnið einhver ósköp í sambandi
við nýju kvikmyndina „Steel
Magnolias1' þá er hún orðin 109
pund og segist vera nokkuð ánægð
með það. Til að styrkja sig eftir
allan slappleikann stundar hún
núna líkamsrækt, - sem hún þó
segist hata - hún hjólar á þrekhjóli,
lyftir smálóðum og hoppar í léttum
leikfimiæfingum.
í myndinni „Steel Magnolias"
eru 6 leikkonur, þ.e. Dolly Parton,
sem leikur hárgreiðslukonu en
Daryl Hannah er aðstoðarstúlka
hennar, en þær Sally Field, Shirley
MacLaine, Olympia Dukakis og
Julia Roberts eru viðskiptavinir.
Milli þeirra tekst vinátta í mynd-
inni, og svo varð einnig í raunveru-
leikanum. Þær urðu heilmiklar
vinkonur, og segjast ætla að halda
sambandi sín á milli áfram.
Eftir frumsýningu á myndinni í
Ziegfeld Theater í New York var
haldið mikið samkvæmi á Hilton
hótelinu þar sem þátttakendur
greiddu háan aðgangseyri í sjóð,
sem á að nota til að fjármagna
rannsóknir á sykursýki og lækning-
um á þeirri veiki. Sjóðurinn er
kenndur við Iacocca, forstjóra hjá
Chrysler.
Leikkonurnar sex sem urðu
góðar vinkonur eftir samleikinn
í „Stál-magnólíunum“. í aftari
röð f.v.: Dolly Parton, Sally
Fields og Daryl Hannah. í fremri
röð: Shirley MacLaine Olympia
Dukakis og Julia Roberts
Dolly Parton sést hér koma á
frumsýninguna í Hollywood.
Það fór hrifningarkliður um sal-
inn þegar stjarnan gekk inn