Tíminn - 06.01.1990, Page 2
2 Tíminn
r.c.c. i u'. i.i.-?: rs uirV'b'pnna )
Laugardagur 6. janúar 1990
Samningur um lán Húsnæöisstofnunar á fjármunum lífeyrissjóðanna:
Um 2Ó0.0Ó0 kr. frá
hverjum launþega
Samið hefur við lífeyrissjóðina um kaup á skuldabréfum
Húsnæðisstofnunar fyrir um 20-25 milljarða króna á næstu
tveim árum. Þetta er stærsti lássamningur sem gerður hefur
verið á innlendum Qármagnsmarkaði, samkvæmt tilkynningu
frá fjármálaráðuneytinu. Lætur nærri að upphæðin svari til
þess að hver starfandi maður í landinu láni Húsnæðisstofnun
í kringum 200.000 kr. af lífeyrissparnaði sínum að meðaltali
með þessum hætti árin 1990 og 1991.
í>ar af eru áætluð skuldabréfakaup
á þessu ári um 11 milljarðar kr., en
auk þess er áætiað að lífeyrissjóðirn-
ir kaupi húsbréf fyrir 2,5 milljarða.
En hlutfall húsbréfakaupa á að taka
til endurskoðunar á næstu mánuð-
um.
Vextir af verðtryggðum skulda-
bréfum eiga að ráðast af vöxtum
spariskírteina ríkissjóðs, en skulu
jafnan vera 0,1% lægri, og eru því
5,9% miðað við vexti nýrra spari-
skírteina um þessar mundir. Lífeyr-
issjóðunum er frjálst hins vegar
frjálst að kaupa ECU-bréf fyrir 35%
af lánsfjárhæðinni. Nafnvextir verða
9,6% á slíkum bréfum í nú janúar.
En þeir skulu jafnan vera um 0,15%
lægri en á nýjum ECU-bréfum gefn-
um út í Danmörku, og verða fastir
allan lánstímann sem er 15 ár.
f bókun með samkomulaginu er
gert ráð fyrir breyttri skiigreiningu á
svonefndu ráðstöfunarfé lífeyris-
sjóðanna, til þess að greiða fyrir
hlutafjárviðskiptum þeirra og gera
þeim kleift að fjárfesta í ríkisvíxlum
og öðrum skammtímakröfum. Sala
hlutabréfa verður ekki talin til ráð-
stöfunarfjár nema hún sé umfram
kaup á nýju hlutafé. Og innlausn
ríkisvíxla og bréfa til skemmri tíma
en árs telst ekki til ráðstöfunarfjár.
Áfram gildir að fullur lánsréttur
manna hjá Húsnæðisstofnun miðast
við að lífeyrissjóðir þeirra láni Hús-
næðisstofnun 55% af ráðstöfunarfé
sínu. - HEI
Slökkviliðið
lceland Seafood Ltd:
7% sölu-
aukning
á árinu
Heildarsala Iceland Seafood
Ltd. á árinu 1989 nam 44,2 millj.
sterlingspunda á móti 41,3 mill-
jónum punda árið 1988. Aukn-
ingin nemur því um 2,9 milljón-
um punda eða 7 af hundraði.
Heildarsalan í magni var
24.566 tonn og var það 7,6%
meira en árið áður. Stærsta mark-
aðsland Iceland Seafood er
Bretland, en þar nam salan 26,8
milljónum sterlingspunda, en það
er svipað verðmæti og fékkst á
árinu 1988. í öðru sæti er Frakk-
landsskrifstofa fyrirtækisins, en
þar nam heildarsalan 111,2 mill-
jónum franka, en það er 18,4%
meira en árið áður og sala Ham-
borgarskrifstofunnar nam 22,5
milljónum marka, en það er
46,3% meira en árið áður.
- ABÓ
í Reykjavík:
854 útköll
slökkviliðs
Hreppsncfnd Hólmavíkurhrepps eftir hátíðarfund á aldarafmæli Hólmavíkur. F.v. Magnús H. Magnússon, Kjartan
Jónsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Helgi S. Ólafsson, Brynjólfur Sæmundsson, oddviti og Stefán Gíslason
sveitarstjóri.
Hátíð á Hólmavík:
100 ára verslunarafmæli
Miðvikudaginn 3. janúar sl. voru liðin 100 ár frá því að Hólmavík
fékk löggildingu sem verslunarstaður.
Þann 3. janúar 1890 gaf Kristján IX út lög þess efnis, að við
Hólmavík hjá Skeljavík í Steingrímsfirði skyldi vera löggiltur
verslunarstaður. Verslun hófst þó ekki á staðnum fyrr en 1895, en
þá byggði Björn Sigurösson, kaupmaður í Skarðsströnd og síðar
bankastjóri, svonefndan Langaskúr og hóf þar verslun. Ári síðar tók
Richard Peter Riis við verslunarekstrinuma af Birni. Riis byggði
síðan svonefnt Riishús 1897, en það stendur enn og er elsta húsið á
Hólmavík.
Hólmvíkingar minntust afmælis-
ins með afmælisveislu í grunnskólan-
um að kvöldi afmælisdagsins. Par
hélt Brynjólfur Sæmundsson oddviti
hátíðarræðu, kór Hólmavíkurkirkju
söng og félagar úr Leikfélagi Hólma-
víkur fluttu gamanmál. Hrepps-
nefnd bauð öllum viðstöddum upp á
kaffi og meðlæti og í veislulok stóð
Björgunarsveitin Dagrenning fyrir
glæsilegri flugeldasýningu.
Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps
hélt' hátíðarfund á afmælisdaginn.
Þar voru samþykktar tvær tillögur,
önnur um útgáfu bókar um Hólma-
vík og hin um sérstakt trjáræktar-
átak í tengslum við landgræðslu-
skógaátak 1990.
Bókin sem hreppsnefnd sam-
þykkti að gefa út, er skrifuð af óla
E. Björnssyni á Akranesi, en Óli er
Hólmvíkingur að uppruna. í bókinni
verða myndir af öllum húsum á
Hólmavík og frásagnir sem tengjast
húsunum og íbúum þeirra.
Samþykkt hreppsnefndar um
trjáræktarátak tengir saman 100 ára
afmæli Hólmavíkur og 60 ára afmæli
Skógræktarfélags íslands. Með sam-
þykktinni er staðfest þátttaka Hólm-
víkinga í landgræðsluskógaátaki
Skógræktarfélagsins og jafnframt
ákveðið að gróðursetja 8-10.000
trjáplöntur af þessu tilefni.
Síðustu helgina í júlí á sumri
komanda verður aldarafmælis
Hólmavíkur minnst með fjölbreyttri
útihátíð. Hátíðarhöldin hefjast
föstudaginn 27. júlí, en aðaldag-
skráin verður laugardaginn 28. og
sunnudaginn 29. júlí. Meðal efnis
verða leiksýningar, tónlistarflutn-
ingur o.m.fl.
Á nýliðnu ári skipaði hreppsnefnd
Hólmavíkurhrepps 5 manna nefnd
til að undirbúa afmælishaldið. For-
maður nefndarinnar er Björk Jó-
hannsdóttir kennari. Örn Ingi mynd-
listarmaður á Akureyri hefur verið
ráðinn starfsmaður nefndarinnar og
mun hann öðrum fremur stjórna
skipulagningu sumarhátíðarinnar í
júlí.
Frá fréttaritara Tfmans á Hellissandi, Ægi
Þóröarsyni:
Stjórn Verkamannabústaða Nes-
hrepps utan Ennis, sem nær yfir
Hellissand og Rif afhenti tvær íbúðir
í verkamannabústaðakerfinu , 29.
desember á Rifi, Snæfellsnesi.
íbúðirnar eru í glæsilegu parhúsi,
og er önnur þeirra fjögurra her-
bergja, 105 fermetrar að stærð, en
Slökkviliðið í Reykjavík var
kallað út 854 sinnum á síðasta
ári, en til þeirra útkalla telst öll
aðstoð slökkviliðs. Af þessum
854 skiptum voru 335 eldar
slökktir. Til samanburðar má
geta þess að árið 1988 voru 447
útköll þar sem slökkva þurfti
eld. 115 sinueldar voru hins
vegar slökktir 1988 en 76 sinu-
eldar á síðasta ári.
Kvaðningar slökkviliðs komu
flestar í gegn um síma eða 534,
kvaðningar með viðvörunarkerfi
voru 193 og lögregla kvaddi slökkvi-
liðið til 117 sinnum. í þeim tilfellum
sem ekki var um eld að ræða var
grunur um eld í 110 tilfellum, við-
vörunarkerfi kallaði á aðstoð í 174
tilfellum og slökkviliðið var kallað
til björgunarstarfa eða aðstoðar í
232 sk.ipti, s.s. vegna efnaleka,
vatnsleka, losun úr bílflökum
hin þriggja herbergja og 95 fermetr-
ar.
Fað voru tvö ung pör sem fluttu í
íbúðimar og var í nógu að snúast hjá
þeim við flutningana, enda þær af-
hentar aðeins tveim dögum fyrir jól.
Eru þetta fimmtu og sjöttu íbúðirnar
sem stjórn Verkamannabústaða í
Neshreppi afhendir á sl. þremur
árum og eru þær allar byggðar eftir
o.s.frv. í 3 skipti var slökkviliðið
narrað á staðinn.
Flestar kvaðningar slökkviliðs á
síðasta ári voru síðdegis og fram til
miðnættis, en flestar á tímabilinu frá
klukkan 18.00 til 21.00 og því næst
frá 20.00 til miðnættis.
Flestir eldsvoðar urðu í íbúðar-
húsnæði eða 91, því næst voru eldar
í bifreiðum eða 42. Orsök elds voru
í flestum tilfellum vegna íkveikju
eða 152, en ókunnugt er um orsök
elds í 97 tilvika.
Enginn lést af völdum eldsvoða í
Reykjavík árið 1989, en einn árið
áður.
Sjúkraflutningar voru alls 10.421
talsins 1989, en voru 10.278 árið
1988, þar af voru 2982 slysa og aðrir
neyðarflutningar. Hefur fjöldi
sjúkraflutninga haldist svo til
óbreyttur allt frá árinu 1973 eða
rúmlega 10 þúsund á ári. - ABÓ
sömu teikningu. Ekki eru fyrirhug-
aðar frekari byggingar í verka-
mannabústaðakerfinu hér um slóðir
á næstunni. Verktaki var Bæring
Sæmundsson trésmíðameistari á Rifi
og teikningar voru frá Húsnæðis-
stofnun ríkisins.
Nýárskveðjan til útlanda 16% dýrari en jóla-
kveðjan, vegna virðisaukaskattsins:
Erlend vinátta
hækkar í verði
Símtöl og öll önnur fjarskipta-
þjónusta við útlönd hækkaði um
15,8% frá áramótum, vegna inn-
heimtu 24,5% virðisaukaskatts í
stað 7,5% söluskatts sem áður var
á þessari þjónustu. Símtal til út-
landa kostar nú nærri 16% fleiri
(umfram)skref heldur jafn langt
símtal gerði fyrir áramótin.
Á hinn bóginn tilkynnir Póstur
og sími að þar sé nú til athugunar
að taka upp næturtaxta til útlanda
snemma á þessu ári. Hvenær er
ekki nánar tekið fram, né heldur
hvað símtal á nóttinni á að verða
mikið ódýrara en að degi til.
Þá vekur stofnunin athygli á því
að 24,5% virðisaukaskattur er nú
kominn á burðargjald fyrir al-
menna böggla og forgangspóst
(EMS) innanlands og sömuleiðis á
heimsendingarþjónustu. - HEI
Stjórn Verkamannabústaða Neshrepps:
Tvær íbúðir afhentar