Tíminn - 06.01.1990, Síða 3
Laugardagur 6. janúar 1990
Tíminn 3
Krossanesverksmiöjan:
Eldsupptök í
brennaranum
Rannsókn á eldsvoðanum í Krossanesi hefur leitt í Ijós að
eldurinn kviknaði út frá olíubrennara í miðju verksmiðjuhús-
inu, sem notaður er til upphitunar. M at á tjóninu er ekki lokið
og munu endanlegar ákvarðanir um framtíð fyrirtækisins ekki
verða teknar fyrr en það liggur fyrir.
„Rannsókn Ieiddi í ljós að ketill-
inn gat auðveldlega kveikt í miðað
við það ástand sem hann var í,“
sagði Daníel Snorrason rannsóknar-
lögreglumaður á Akureyri í samtali
við Tímann. Meira vildi Daníel ekki
um málið segja, utan það að rann-
sókn væri að mestu lokið.
Fundur var haldinn í stjórn
Krossanesverksmiðjunnar í gærm-
orgun. Sigfús Jónsson bæjarstjóri og
stjórnarformaður verksmiðjunnar
sagði að þar hefði staðan verið rædd
og framtíðin skoðuð í ljósi undan-
genginn atburða. Sigfús sagði að
beðið væri eftir endanlegu mati
tryggingafélaganna um tjónið, áður
en endanlegar ákvarðanir um fram-
tíðina yrðu teknar. Þó er ljóst að
nýja hlutafélagið sem stofnað var
um rekstur verksmiðjunnar og átti
að taka við um áramót mun halda
.sínu striki.
í kjölfar brunans voru allir verka-
menn fyrirtækisins sendir heim og
skráðir atvinnulausir. Sigfús sagði
að fyrir því væri heimild í lögum frá
1979 um óvænt áföll fyrirtækja.
Skrifstofufólkið hefur hins vegar
þriggja mánaða uppsagnafrest.
Starfsfólki verksmiðjunnar var sent
uppsagnarbréf fyrir jól og sagði
Sigfús að það hefði verið gert vegna
tilkomu hins nýja hlutafélags. í bréf-
inu var jafnframt óskað eftir þvf að
starfsfólk inni hjá verksmiðjunni til
vertíðarloka, 1. maí. Sigfús sagði að
endurskipulagning hafi verið á döf-
inni og því ekki stætt á að lofa
mönnum vinnu lengur en út vertíð-
ina. - HIÁ
Slökkviliðið á Akureyri:
Brunaútköllum
hefur fækkað
Slökkvilið Akureyrar var
kallað 73 sinnum út á árinu
1989, en árið áður var slökkvi-
liðið kallað út 79 sinnum. Af
þessum 73 útköllum voru fjög-
ur utanbæjar, þ.e. á svæði
brunavarna Eyjafjarðar. Lang-
mesti eldsvoðinn var í Síldar-
verksmiðjunni í Krossanesi að-
faranótt gamlársdags.
Sjúkraútköll á árinu voru 1028,
þar af 130 utanbæjar. Til saman-
burðar voru sjúkraútköll 1084 og
185 utanbæjar árið 1988. Af þess-
um 1028 sjúkraútköllum voru 175
bráðatilfelli.
Slökkviliðið var kallað út 42
sinnum í gegn um síma, en bruna-
boði gerði viðvart í 25 skipti. í átta
skipti reyndist vera um bilun í
brunaboða að ræða, grunur um eld
var í 15 tilfellum en reyndist ekki
vera þegar komið var á staðinn og
í 4 skipti var slökkviliðið narrað á
staðinn.
Flestir eldsvoðanna urðu í íbúð-
arhúsum eða 15 talsins, en í sex
tilfellum kom upp eldur í iðnaðar-
húsnæði og í 8 tilfellum kom upp
eldur í bifreiðum. Flestireldsvoðar
urðu í maí eða 7 talsins og næst-
flestir í desember. Fæst útköll
vegna eids voru í nóvember, aðeins
eitt. Algengast er að eldur komi
upp á tímabilinu frá hádegi til
miðnættis, en einnig má sjá breyt-
ingar eftir árstímum. Breytingin
felst einkum í því að þegar birta
tekur á vorin virðist tilhneiging til
þess að eldur kvikni fyrr á daginn,
en þegar skyggja tekur færast elds-
voðarnir yfir á síðari hluta dagsins
og fram á kvöldin.
Orsök eldsvoðanna voru í flest-
um tilfellum vegna rafmagnstækja,
íkveikju og raflagna. - ABÓ
Maður lést
í eldsvoða
Maður um sextugt lést í eldsvoða
í gærmorgun. Slökkviliðið var kallað
að húsi númer 54 við Öldugötu kl.
7.10 og þegar að var komið logaði
mikill eldur út um glugga íbúðar á
jarðhæð hússins, sem er fjögurra
hæða steinhús.
Reykkafarar voru þegar sendir
inn í húsið og fundu þeir manninn
látinn í rúmi sínu. Önnur íbúð er á
jarðhæð gengt íbúð þess látna, en
hún reyndist mannlaus. Aðrir íbúar
hússins voru ekki í neinni hættu, en
fjölskyldan sem býr á efstu hæð kom
sér sjálf út.
Slökkvistarf gekk greiðlega fyrir
sig, en miklar skemmdir urðu vegna
elds og reyks í herberginu sem
eldurinn kom upp í. f>á urðu einnig
skemmdir á stigagangi og öðrum
íbúðum í húsinu vegna reyks.
Síðdegis í gær fékkst ekki uppgef-
ið um eldsupptök, en Rannsókna-
lögregla ríkisins rannsakar upptök
eldsins. - ABÓ
Frá brunastað á Öldugötunni.
Tímamynd: Pjetur
Engin lukka
Enn hefur enginn hreppt einbýlis-
húsið sem er stærsti vinningurinn í
skafmiðahappdrætti björgunarsveit-
anna, Lukkutríó.
Framkvæmdastjóri Lukkutríósins
sagði í samtali við Tímann að nú
væri búið að selja um helming mið-
anna, 500 þúsund talsins. Tveir mán-
uðir eru síðan sala á miðunum sem
gefa möguleika á 15 milljón króna
einbýlishúsinu í Grafarvogi hófst.
Besta nóttin
Tólf loðnuskip tilkynntu um afla í
gærdag, samtals 8570 tonn sem skip-
in fengur 60 til 70 mílur norðaustur
af Langanesi. Skipin voru að fá þetta
100 og upp í 200 tonn í kasti. Nær
öll loðnuskipin voru kontin á miðin
í fyrrinótt, sem var sú besta á þessari
vertíð. Að meðtöldum þeim afla
sem tilkynnt var um í gær er búið að
landa rúmum 52 þúsund tonnum frá
því veiðar hófust í haust. - ABÓ
Onýtir ofnar í Breið-
holti skipta hundruðum
Síðast liðið ár hefur borið
nokkuð á því að opnar í Breið-
holti hafa bilað. Að þessum
orsökum hafa orðið vatns-
skemmdir í nokkrum húsum.
Húseigendur þurfa að bera
kostnaðinn af því að skipta um
ofnana. Hreinn Frímannsson
verkfræðingur hjá Hitaveitu
Undanfarið hefur verið unnið að
athugun á skipulagi menntamála-
ráðuneytisins og í framhaldi af því
ákveðið að stofna skrifstofu í ráðu-
neytinu er nefnist almenn skrifstofa.
Hennar hlutverk mun verða að fjalla
um rekstur ráðuneytisins og sameig-
Reykjavíkur segir að menn séu
að vona að búið sé að uppræta
skaðvaldinn.
Ekki er fullljóst hver ástæðan er
fyrir því að ofnarnir fara að leka, en
þó er ljóst að súrefni úr Elliðaár-
svæðinu hefur komst í borholur. Að
sögn Hreins Frímannssonar verk-
inlega þjónustu. Staða skrifstofu-
stjóra hinnar nýju skrifstofu verður
auglýst laus til umsóknar á næstunni.
Pá hefur Knúti Hallssyni, ráðu-
neytisstjóra menntamálaráðuneytis-
ins, verið veitt orlof frá starfi sínu
um eins árs skeið. í fjarveru hans
fræðings hjá Hitaveitu Reykjavíkur
er búið að koma í veg fyrir að þetta
súrefni fari til notenda. Ef að súrefni
er í hitaveituvatninu verður tæring í
ofnunum sem leiðir til þess að þeir
fara að leka. Óvíst er þó hvort búið
er að koma í veg fyrir alla tæringu
með þeim aðgerðum sem Hitaveitan
hefur þegar ráðist í. „Við vitum ekki
fyrir víst hvort að við erum búnir að
mun Árni Gunnarsson, skrifstofu-
stjóri háskóla- og menningarmála-
skrifstofu ráðuneytisins, gegna starfi
ráðuneytisstjóra, en Stefán Stefáns-
son, deildarsérfræðingur, mun
gegna starfi Áma næsta árið.
- ÁG
koma í veg fyrir þetta. Við erum
búnir að gera alit sem við getum til
að koma í veg fyrir að jarðhitasvæðið
sjálft skemmi ofnana. Áfram verður
unnið að þessum málum, en við
erum að vona að þetta sé gengið
yfir,“ sagði Hreinn.
Hitaveitan hefur ekki bætt það
tjón sem húseigendur hafa orðið
fyrir. Hreinn segir að reglugerð
heimili Hitaveitunni ekki að bæta
tjónið. Kostnaður húseigenda liggur
fyrst og fremst í því að skipta um og
laga bilaða ofna. Eitthvað mun þó
vera um alvarlegar vatnsskemmdir,
m.a. mun parket á gólfi hafa
skemmst hjá a.m.k. einum húseig-
anda. Erfitt er að áætla hve margir
ofnar hafa bilað allt í allt. Sem dæmi
um fjöldann má þó nefna að í
Seljaskóla í Breiðholti hafa milli 10
og 20 ofnar bilað, þannig að óhætt
er að fullyrða að ofnarnir skipti
hundruðum. - EÓ
Akureyri:
Skoðanakönn-
un hjá Framsókn
Nú stendur yfir skoðanakönn-
un meðal flokksbundinna félaga
í Framsóknarfélagi Akureyrar og
Félagi ungra framsóknarmanna á
Akureyri, vegna uppstillingar á
framboðslista flokksins fyrir
bæjarstjórnarkosningar 26. maf
n.k.. Að sögn Úlfhildar Rögn-
valdsdóttur, bæjarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins, vildi uppstil-
lingarnefndin fá fram, hverja
menn vildu fá í sex sæti framboðs-
lista flokksins í komandi kosning-
um.
Könnunin er ekki bindandi, en
uppstillinganefnd mun hafa hana
til hliðsjónar. Kosið er á skrif-
stofu Framsóknarflokksins Hafn-
arstræti 90. Kosningu lýkur
klukkan 16.00. í dag.
Framsóknarmenn eiga nú tvo
fulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar.
Þegar er ljóst að Sigurður Jó-
hannesson, sem skipaði fyrsta
sæti flokksins í síðustu kosning-
um, gefur ekki kost á sér til
áframhaldandi setu í bæjarstjórn,
en Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
annar bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins segist vera til í slaginn
ef til sín verði leitað. - HÍA
Skipulagsbreytingar innan menntamálaráðuneytisins:
Stofnuð ný skrifstofa