Tíminn - 06.01.1990, Qupperneq 17
Laugardagur 6. janúar 1990
Tíminn 25
SPEGILL
Halldór Jón
Almennur stjórnmálafundur
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráöherra og Jón Kristjánsson
alþingismaður ræöa stjórnmálaviðhorfið, atvinnu og byggðamál á
almennum stjórnmálafundi í Valaskjálf á Egilsstöðum mánudaginn 8.
janúar kl. 20.30.
Halldór Ásgrímsson,
Jón Kristjánsson.
Steingrimur Páll Stefán
Skagfirðingar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Safnahúsinu á Sauðár-
króki miðvikudaginn 10. jan. kl. 20.30.
Frummaelendur: Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra og
alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson.
Allir velkomnir
Páll Pétursson
Stefán Guðmundsson
Vestur Húnvetningar
Alþingismennimir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals í Vertshúsinu, Hvammstanga mánudaginn 8. jan. kl. 18-20.
Skagstrendingar - nærsveitamenn
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals á hótel Dagsbrún, þriðjudaginn 9. jan. kl. 14-17.
Hofsósbúar - nærsveitamenn
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson verða til
viðtals í Höfðaborg Hofsósi miðvikudaginn 10. jan. kl. 15-18.
Guðmundur Páll Stefán
Bjarnason Pétursson Guðmundsson Líndal
Austur Húnvetningar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Hótel Blönduósi þriðju-
daginn 9. jan. kl. 20.30.
Frummælendur: Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, alþingismennimir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson og
Elín Líndal varaþingmaður.
Allir velkomnir.
Siglfirðingar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Hótel Höfn sunnudaginn
14. jan. kl. 14.
Frummælendur: Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra og al-
þingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson.
Allir velkomnir.
Söngvarinn Yves Montand
- 68 ára og faðir í fyrsta sinn
Halldór
Yves Montand á að baki langan
feril sem frægur skemmtikraftur,
einkum sem söngvari. Montand
hefur líka leikið í kvikmyndum og
á sviði.
Hann var kvæntur leikkonunni
Simone Signoret, en þau áttu ekki
börn. Sagt var að Yves væri stund-
um „að hlaupa út undan sér“ í
kvennamálum, en Simone hefði
tekið því með ró. Einu sinni var þó
talið að henni hefði ekki staðið á
sama, en það var þegar Yves
Montand var að vinna í Hollywood
og var þá orðaður við Marilyn
Monroe. Pá brá Simone sér yfir
hafið og eiginmaðurinn fór aftur
með henni heim til Parísar.
Simone Signoret lést 1985 eftir
langvarandi veikindi, og Yves
Montand vann lítið á því tímabili.
En lífið heldur áfram, og hann
fór aftur að ferðast um og syngja á
skemmtistöðum og taka upp þráð-
inn á ný.
Fyrir um tveimur árum fór hann
að sjást með ungri konu, og fluttist
hún fljótlega til hans. Þau hafa
ekki gift sig, en búa saman og hafa
nú eignast son.
I blaðaviðtali lýsir Yves Mont-
and því fjálglega hve indælt það sé
að vera orðinn faðir. „Það hefði
auðvitað verið enn betra ef það
hefði gerst fyrr á ævinni, að ég
hefði ekki verið eldri en t.d.35 ára,
- en ég er þakklátur forsjóninni að
ég skyldi eiga þetta eftir.“
Síðan dásamar Montand Carole,
sambýliskonu sína. Hún sé svo
indæl, góð móðir og létt í lund og
langi til að eignast fleiri börn. Þau
ætli að sjá til með það, en eins og
er njóti þau þess að fylgjast með
þroska litla Valentins, sem er tæp-
lega ársgamall. Ekki var neitt tekið
fram um aldursmun á þeim Carole
og Yves, en hann er sagður á að
giska 35 - 40 ár!
Yves Montand segist ætla á
þessu ári að ljúka heimsreisu sinni
númer tvö, og halda tónleika eða
„One-man show“ víða um heim-
Hinir stoltu foreldrar, Yves Uontand og Carole með litla Valentin
Glaðir feðgar. Yves er að kenna syni sínum að ganga
inn. Hann ætlar að byrja í París,
líklega í maí nk., halda síðan til
New York, Moskvu, Melbourne
og Tokyó.
Þennan járnbrautarvagn keypti
Montand í Japan þegar Valentin
var nýfæddur, en nú kemur hann
í góðar þarfir þegar snáðinn er
að æfa sig að ganga, - og svo
heyrist fjörugt lag þegar vagnin-
um er ýtt áfram