Tíminn - 17.01.1990, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.01.1990, Blaðsíða 6
6 Tíminn Títninn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og ___Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Aöstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriöi G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. ágúst hækkar: Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð í lausasölu í 90,- kr. og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Könnun Félags- vísindastofnunar Birtar hafa verið skýrslur um könnun á hús- næðismálum íslendinga sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands gerði sumarið 1988 að beiðni Húsnæðisstofnunar ríkisins. Skýrslur þessar eru í nokkrum heftum og mjög fagmannlega frágengnar þar sem í hverju hefti er greint frá úrvinnslu afmarkaðra þátta könnunarinn- ar. Ekki verður í efa dregið að mikinn fróðleik er að finna í þessum skýrslum. Eins og oftast hlýtur að verða um félagsfræðilegar kannanir beindist þessi könnun ekki eingöngu að efnislegu ástandi, heldur felst í henni upplýsing um hugarfarsástand íslensks almennings á þeim tíma sem könnunin átti sér stað. Eins og fram hefur komið var þessi félagsfræði- lega könnun gerð sumarið 1988. Hún er u.þ.b. eins og hálfs árs gömul og lýsir þar af leiðandi hugarfars- ástandi eins og það var á þeim tíma. Pá er þess að minnast að efnahagslegt og pólitískt ástand í landinu var með allsérstæðum hætti árið 1988. Má með sanni segja að efnahagserfiðleikar framleiðslu- atvinnuveganna væru þá í hámarki, þá var sýnt að sjávarútvegsfyrirtæki voru víða að þrotum komin og sum reyndar stöðvuð vegna rekstrartaps og vonleysis um úrbætur. Sumarið 1988 ríkti auk þess vont stjórnmálaá- stand, ekki vegna þess að sitjandi ríkisstjórn hefði ekki nægilegt þingfylgi. Ríkisstjórnin sem var undir forsæti Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðis- flokksins, naut meira þingfylgis en dæmi eru um í íslenskri þingræðissögu í 86 ár. En geta þessarar ríkisstjórnar var í öfugu hlutfalli við þingfylgið, svo að af sjálfu sér leiddi að stjórnarsamstarfið hlaut að bresta - sem það gerði nokkrum vikum eftir að könnun Félagsvísindastofnunar var gerð í hápunkti stjórnmálalegs og efnahagslegs vonleysis sem ríkti í landinu sumarið 1988, en umfram allt í sjávarpláss- um úti um land. En samkvæmt fréttum á það að vera ein meginniðurstaða þessarar könnunar að þar sé fólk óánægðast allra landsmanna með tilveru sína. Ekki er það tilgangurinn með þessum ábending- um um ástand í þjóðmálum 1988 að gera lítið úr könnun Félagsvísindastofnunar. Það er heldur ekki markmiðið að halda því fram að ekki séu veilur í byggðastefnu íslendinga, hvað þá að ekki sé að finna meðal landsbyggðarfólks óánægju sem á sér aðrar orsakir en vonda stjórnarforystu sjálfstæðis- manna 1987-1988. En við túlkun á þessari könnun, þá lærdóma sem menn vilja draga af henni, er skylt að þekkja efnahags- og stjórnmálaástandið á könnunartímanum. I könnun af þessu tagi snýst allt um hugarástand fólks á ákveðnu augnabliki, hún er í rauninni skoðanakönnun fremur en félagsleg rannsókn í víðum skilningi. Þess vegna er varlegast að draga ekki of afgerandi ályktanir af þessari könnun um hvaðeina sem þar er að finna. Þessi skýrsla er góð svo langt sem hún nær, en heldur ekki meira. Miðvikudagur 17. janúar 1990 GARRI Deilt um svalir Um þessar mundir er deilt um endurskipulagningu á áhorfenda- sal Þjóðleikhússins. Fyrir nokkru var talið að húsið væri að hruni komið, en nú virðist sem það ætli að láta bíða að hrynja, en í staðinn skal tekið til við að nema burtu neðri svalir og auka brattann í áhorfendasal sem því nemur. Þetta eru í meira lagi skrítnar tilfæríngar, en eru sagðar nauðsyn til að auka sambandið á milli leikara og áhorf- enda, en talið hefur veríð við þá uppríijun sem fram hefur veríð með gífurlegum hönnunarkostnaði og atvinnubótavinnu, að á sumum stöðum í sal Þjóðleikhússins horfi áhorfendur sex metra yfir Ieikar- ana. Sýndist þá ódýrara að láta þá leika á stultum, en slík leiktæki voru flutt inn fyrír nokkrum árum og þykja afbragð. Listaverk eru friðhelg Nú hefur Morgunblaðið skrifað forystugrein til vamar Þjóð- leikhúsinu, og lýst því yfir að húsið sé listaverk eftir Guðjón Samúels- son, og vitnar í þvi efni til greinar eftir Hörð Bjarnason, fyrrum Húsameistara ríkisins og sam- starfsmanns Guðjóns. í lok for- ystugreinar segir Morgunblaðið: „Ahorfendasalur Þjóðleikhúss- ins og umhverfi hans er kjami þessa húss. Honum á að halda eins og húsameistari gekk frá honum, svo merkur arkítekt sem hann var. Listaverk em friðhelg.“ Þetta viðhorf kom fram í Tíman- um strax og fréttist um fyrirhugað- ar breytingar á áhorfendasal. En' nú virðist menntamálaráðherra vera orðinn þess sinnis, að nauð- synlegt sé að rífa svaliraar, og er þá ekki að sökum að spyrja. I ræðu sem hann flutti nýlega í Þjóð- leikhúsinu taldi hann að fjárveit- ingar til annarra og sjálfsagðra lagfæringa á húsinu væra í hættu, yrðu svalimar ekki rífnar, og hvatti til samstöðu. Menn geta sem sagt valið um; annað tveggja að húsið hrynji eða rífa svalimar og er hvorugur kosturínn góður. Tískukóngur og sérviskan Bent hefur veríð á að síðan Borgarleikhúsið var tekið í notkun, en þar hefur aðsókn verið litil, hafi þessi umræða um brattan áhorf- endasal í Þjóðleikhúsinu hafist. Hún er því lítið annað en tískufyr- irbærí, sem hefur sýnt sig að gerír lítið gagn hvað varðar aðsókn að leikhúsi. Tískukóngur, eins og rit- stjóri Alþýðublaðsins, segir í blaði sínu: „Þær mótbárar sem enn standa í vegi fyrír endanlegri ákvarðanatöku um framkvæmdir era bæði óhyggilegar og einkenn- ast af íhaldssamri viðkvæmni og sérvisku.“ Hann segir ennfremur að það sé athyglisvert, fyrst fjár- veiting sé fengin, að deilt skuli um hvort nýta eigi hana eða ekki. En auðvitað gildir Ijárveitingin fyrir aðrar breytingar á húsinu, og ætli þeir í atvinnubótavinnunni hafi gert svo nákvæmar áætianir að veiti af svalapeningunum til greiðslu á umframkostnaði. Þá seg- ir fjárveiting til breytinga á lista- verki ekkert til um nauðsyn breyt- inganna. Aðsókn og skíðabrekkur Brynja Benediktsdóttir, leikari og leikstjóri, hefur bent á það af mikilli kurteisi, að aðsókn að leik- húsi fari ekki eftir hallanum á gólfi áhorfendasalar, heldur eftir þeim áhuga sem leikhús getur vakið með viðfangsefnum sínum. Öryggi er lítið að hafa í leiklist eins og öðram listum, en fólk gerír væntanlega eins og það getur. Því er eðlileg að því finnist sérkennilega að málum staðið, að fjármunum skuli eytt í að rífa listaverk í stað þess að eyða þeim fjármunum í að gera leikur- um fært að skapa betrí list. Þetta mál, að rífa neðrí svalir í áhorf- endasal og fá með þvi þokkalegan skíðabrekkuhalla á gólfið, er eitthvað utan og ofan við þann skilning, sem gildir um rekstur leikhúsa. Áhorfendur sjá og heyra það sem þeir vilja heyra, hvort sem þeir sitja í miklum halla eða Iitlum, og kúnstir teiknara og atvinnu- bótamanna, sem gera út á hönnun- arkostnað, breyta þar engu um. Sjálfsagt er að gera allar þær lagfæringar á húsinu, sem þörf er fyrír og bent hefur veríð á. Að öðra leyti á að láta listaverk Guð- jóns Samúelssonar í fríði. Við get- um ekki átt það á hættu, að hvert einasta tískufyrírbæri kosti breyt- ingar á þjóðminjum okkar og lista- verkum í framtíðinni, aðeins ef einhverjum dettur í hug að lista- verkin eigi að vera hinsegin breyt- inganna vegna. Skíðabrekkur okk- ar eru t.d. í Bláfjöllum og þar koma þær að notum. Brekkulistir hefur Þjóðleikhúsið aftur á móti ekkert með að gera. Garri llllllllllllllllllllllllllll VITTOGBREITT Tenórar byggðaröskunar Mikil byggðaröskun og þjóð- , flutningar eiga sér stað um allan ' heim. Víða er litið á þetta sem , vandamál og reynt að sporna við þróun sem oft tengist tæknifram- förum svokölluðum og breyttum atvinnu- og lifnaðarháttum. í löndum þar sem búsetubreyt- ingar þykja ekki æskilegar nema í hófi og ekki er hægt að koma við átthagafjötrum einræðisstjórna er ráðist gegn vandanum með einföld- um aðgerðum, sem embættismenn og stjórnmálamenn kalla t.d. byggðastefnu og einkennist af fjárframlögum. Þetta er kallað stuðningur við atvinnulíf eða sam- göngubætur eða aukin þjónustu- starfsemi og á að snúa þróun í æskilega farvegi. En það er aldrei athugað hvað það er í raun sem laðar fólk úr afskekktu strjálbýli í þéttbýli. Norðmenn hafa veitt ómældum fjármunum til að halda við byggð í norðlægari byggðalögum landsins, sem er langt og mjótt eins og sést á landakortum og nær yfir marga breiddarbauga. En allt kemur fyrir ekki, fólkið streymir suður. Frjóum skoðanakönnuði datt í hug að spyrja Norðlendingana sem fluttir voru suður hvað hefði dregið þá svo langt frá átthögunum. Auð- vitað voru ástæður margar, en númer eitt voru veðurfréttirnar í sjónvarpi. 7 stig í Norður-Noregi en 23 stig í Osló og sífelldar myndasýningar á léttklæddu fólki í gróðursæld. Einhver munur en í kalsanum og fásinninu fyrir norðan. Áður vissi fólk vel um muninn á meðalhitan- um, en hann varð fyrst sýnileg staðreynd með tilkomu sjónvarps, og fólkið flutti í veðursældina. Tilvistarvandinn hér og þar Annað lag er á fslandi og breidd- arbaugar færri en í Noregi. Samt eru miklir búferlaflutningar, aðal- lega suður þar sem eitthvað dregur og laðar annað en hlýrri veðrátta. f þessu skoti hefur áður verið á það minnst að líkast til er það samanburðarfræðin sem þar ræður mestu. Sveitarstjórnarmenn og aðrir stjórnmálamenn eru fremstir í flokki að sannfæra fólk um að það sé svo erfitt að búa úti á landi, launin lág, afkoman slæm, öryggið ekkert, þjónustan afleit og tilvist- arvandi hvert sem litið er. Þá er nú einhver munur að búa í þéttbýlinu fyrir sunnan við kjöt- katla stjórnsýslunnar og svalla í þjónustu, skemmtunum og menn- ingu, svo ekki sé talað um háa kaupið og hagstætt fasteignaverð - fyrir þá sem selja. Þeir tenórar byggðastefnunnar sem sífellt eru að gera óraunhæfan samanburð á búsetu milli lands- hluta eru í hugsunarleysi sínu dygg- ustu smalar sem reka flóttann úr flestum landshlutum á höfuðborg- arsvæðið. Þjónustubrögðin og nábýlið við stjórnsýsluna í henni Reykjavík er kannski ekki alltaf eins eftirsóknar- vert og af er látið og víst er lífsbaráttan hörð hjá mörgum sem hrekjast um í ótryggri atvinnu og enn ótryggari okurleigu. Skoðanakönnunin sem sýnir að verulegur hluti íbúa smærri þétt- býlisstaða vildi suður ætti að íeiða hugann að því hvað það er sem fólk er að flýja og hvers það væntir á höfuðborgarsvæðinu sem flestir vilja til. Ekki er nóg að kveða upp ein- hverja sleggjudóma um að hlúa beri að atvinnu, þjónustu og sam- göngum til að valda æskilegri hug- arfarsbreytingu og þar með stöðva búseturöskunina. Einu sinni áttu félagsheimili að leysa allan svona vanda, síðar togarar og heilsugæslustöðvar og nú síðast auðveldari samgöngur og lausnarorðið er jarðgöng. Einnig er farið að nefna fjöl- breyttari atvinnutækifæri, eins og það er kallað, til að stöðva fólks- flótta. Verðmætasköpun Vestfirðinga og Austfirðinga stendur vel undir kostnaði við samgöngubætur og eflingar þeirrar þjónustu sem við verður komið. Því er engin eftirsjá af framlögum til samgöngubóta eða annarra útbóta sem gera bú- setu fýsilegri. En renna menn ekki blint í sjóinn þegar verið er að ákveða hvort framlög til þessarar aðgerðar eða hinnar geri yfirleitt nokkra stoð? Leita þarf svara við rétt fram settum spurningum til að komast að raunverulegum orsökum bú- seturöskunar, en hætta að setja fram stórkallalegar yfirlýsingar um að fjármagnsaustur út og suður leysi allan vanda. Og enn þarf vel að vanda til athugunar á því hvort byggðarösk- un sé endilega ávallt af hinu illa. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.