Tíminn - 17.01.1990, Blaðsíða 16
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hotnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
ÞRðSTUR
685060
VANIR MENN
Tíniinn
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990
Málverk sem er allt að því 400 ára gamalt á uppboð í byrjun febrúar:
VARLA HÆGT AD META
MÁLVERKID TIL FJÁR
í byrjun febrúar er ráðgert að selja á uppbooi nenenuis
málverk sem talið er vera jafnvel 400 ára gamalt.
Málverkið er áþekkt mynd sem Þjóðminjasafnið á en allt
bendir til þess að myndin sem seld verður sé eldri en mynd
Þjóðminjasafnsins, sem þá er eftirmálun af hinni fyrr-
nefndu. Úlfar Þormóðsson hjá Gallerí Borg, sem sér um
sölu myndarinnar, sagði að „Geirfuglsverð“ ætti að fást
fyrir myndina og verð undir tveimur milljónum væri
dónaskapur við fortíðina.
Endanleg aldursgreining hefur
ekki verið gerð á málverkinu en
allt bendir til þess að það sé jafnvel
um 400 ára gamalt. Ekki er vitað
hver listamaðurinn er enda tíðkað-
ist ekki að menn merktu sér myndir
á þessum tíma. Myndin er af þeim
Ara sýslumanni Magnússyni prúða
í Ögri og Kristínu Guðbrandsdótt-
ur Hólabiskups sem gengu í hjóna-
band 1596. Talið er að myndin hafi
borist hingað til lands frá Hull eða
Þýskalandi í farteski Eldeyjar-
Hjalta en árið 1912 sótti hann
togara fyrir Hafnfirðinga til Þýska-
lands. Myndin hefur verið í eigu
erfingja Eldeyjar-Hjalta en lítið
hefur farið fyrir því að tilveru
hennar hafi verið haldið á loft.
Hékk málverkið í mörg ár í svefn-
herbergi þeirra afkomenda sem nú
vilja selja myndina.
Þjoðminjasafnið á
eftirmálunina
Úlfar Pormóðsson sagði að
myndin í Pjóðminjasafninu væri
líklega eftirmálun af myndinni sem
nú fer á uppboð. Mynd Þjóðminja-
safnsins væri mun lakari, „minni"
list, eins og Úlfar orðaði það, hún
væri ekki eins fagmannlega unnin
og í hana vantaði vissan „neista"
eins og oft væri í frummyndum en
vantaði í eftirmálanir.
Mynd Þjóðminjasafnsins er að
mestu leyti eins og eldri útgáfan
nema hvað litirnir eru aðeins frá-
brugðnir, Jesús á krossinum er þar
ekki með geislabaug og að auki er
gróðurinn annar.
Þriðja útgáfan af myndinni er
einnig til. Hún var máluð í Kaup-
mannahöfn þegar mynd Þjóð-
minjasafnsins var þar til viðgerðar
í kringum 1890oggaf Vídalínsfólk-
ið Ögurkirkju þá mynd.
Úlfar sagði jal'nframt að tilvist
myndarinnar hafi ekki farið hátt.
Hún hafi verið hluti af heimilinu
hjá erfingjum Eldeyjar-Hjalta og í
rauninni hafi það ekki leitt hugann
að peningalegu verðmæti myndar-
innar. Nú hyggist það minnka við
sig húsnæðið og þess vegna væri
myndin sett á uppboð. Úlfar bætti
því við að eigendurnir hafi sýnt
Kristjáni Eldjárn myndina en hann
var þá forstöðumaður Þjóðminja-
safnsins.
Geirfuglsverð
fyrir málverkið?
Myndin er í góðu ásigkomulagi
og er nú í endanlegri aldursgrein-
ingu. Úlfar sagði að fullkomnustu
tæki og aðferðir væru ekki til
staðar hérlendis og í rauninni væri
réttast að mynd eins og þessi væri
send til Sothebys, eða annars álíka
fyrirtækis þar sem færustu sérfræð-
ingar á þessu sviði starfa.
Þegar Úlfar var spurður að því
hvaða verð fengist fyrir myndina
sagði hann að sér fyndist að það
ætti að vera „geirfuglsverð" fyrir
svona mynd, en bætti því við að
verð undir tveimur milljónum væri
dónaskapur við fortíðina. Þó væri
sannvirði fyrir svona mynd varla til
þar sem í rauninni væri ekki hægt
að meta hana til fjár.
18 sveinar, allir 18 ára
Þess má geta að nokkur saga er
á bak við það hvernig leiðum
heiðurshjónanna á myndinni bar
saman. Þegar Ari Magnússon bað
Kristínar biskupsdóttur er sagt að
Ari hafði riðið með 18 sveina, alla
átján ára, til Hóla að biðja Kristín-
ar. Lét Ari kalla biskup á hlað út
og bar þar upp bónorðið við hann.
Biskupi leist illa á oflátung þennan
og gaf honum afsvar og þeysti þá
Ari á hesti sínum úr hlaði. Hins-
vegar hafði Kristín séð Ara úr
biskupshúsum og leist það vel á
piltinn að fyrir þrábeiðni hennar
við föður sinn lét hann ríða Ara
upp með þau boð að hann fengi
Kristínar.
í „Landið þitt ísland" segir að
Ari hafi verið svo stór vexti að
hann var höfðinu hærri en aðrir
menn. „Hann var héraðsríkur og
því nær einvaldur um alla Vestfirði
um sína daga. Þegar honum var
boðið lögmannsembættið fyrir
Suður- og Austurland sem var ein
mesta virðingarstaða á íslandi
hafnaði hann því, vildi heldur vera
bóndi í Ögri. Ari sýslumaður fór
með her manns á hendur spænsk-
um mönnum sem orðið höfðu
skipreka við ísland en fóru síðan
víða um Vestfirði með ránum og
gripdeildum." SSH
Áframhaldandi átök í verkfalli Sleipnis:
VSÍ óskar eftir
lögreglurannsókn
Til harðra átaka kom milli verk-
fallsvarða ■ Bifreiðastjórafélaginu
Sleipni og bílstjóra hjá Vestfjarða-
leið í gær. Verkfalli Sleipnis lýkur á
miðnætti í nótt. Félagsfundur verður
haldinn í félaginu ■ kvöld og þar
munu rútubflstjórar taka ákvörðun
um næstu skref í stöðunni. Enginn
samningafundur hefur verið boðað-
ur í deilunni.
í gærmorgun eltu verkfallsverðir
rútur frá Vestfjarðaleið og reyndu
með ýmsum aðferðum að koma í
veg fyrir að þær kæmust leiðar
sinnar. Þetta leiddi til þess að bíll
verkfallsvarða lenti í árekstri við
eina rútuna á Bústaðavegi í Reykja-
vík. Tvennum sögum fer af því hvers
vegna kom til þessa áreksturs. Verk-
fallsverðir segja að ekið hafi verið á
bílinn kyrrstæðan og honum ýtt
nokkra metra. Bílstjóri rútunnar,
sem er tengdasonur Jóhannesar Ell-
ertssonar eigenda Vestfjarðaleiðar,
segir hins vegar að verkfallsverðir
hafi ekið í veg fyrir rútuna þegar hún
var að taka af stað. Bíllinn skemmd-
ist nokkuð við áreksturinn en ekkert
sást á rútunni.
Verkfallsmenn segja að tengda-
sonur Jóhannesar Ellertssonar megi
ekki aka rútunni vegna þess að hann
sé ekki meðeigandi í fyrirtækinu.
Síðdegis í gær var hann hættur
akstri.
Ferðir frá öðrum fyrirtækjum lágu
niðri í gær, en í fyrradag urðu hörð
átök milli verkfallsvarða og Land-
leiða og fleiri aðila. Engar rútuferðir
voru milli Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur í gær.
Vinnuveitendasamband íslands
fór þess á leit við Rannsóknarlög-
reglu ríkisins í gær að hún rannsak-
aði atferli verkfallsvarða úr Sleipni.
VSÍ segir að verkfallsverðir hafi
með aðgerðum sínum stefnt í hættu
lífi og limum farþega svo og al-
mennra vegfarenda. VSÍ vill að
höfðað verði opinbert mál gegn
þeim sem hlut áttu að máli. Óskað
er eftir því að rannsókn málsins
verði hraðað eins og kostur er.
Jafnframt er farið fram á rannsókn
á framgöngu lögreglunnar í Hafnar-
firði í þessu máli. Samkvæmt upplýs-
ingum Vinnuveitendasambandsins
hefur atbeini hennar einkum beinst
að því að stöðva hópferðabifreiðar,
að þvf virðist að kröfu Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis, til þess að
ganga úr skugga um hvort þeir hafa
fullgild akstursréttindi.
Vinnuveitendur ætla ekki að ræða
við Sleipnismenn meðan á verkfall-
inu stendur. Þeir hafa lýst því yfir að
tilgangslaust sé að ræða um kröfur
Sleipnis því þær sé fáránlegar. Félag-
ið hefur farið fram á rúmlega 100%
launahækkun. -EÓ
Verkfallsverðir Sleipnis sjást hér skammt frá Álverinu ■ Straumsvík síðdegis
í gær þar sem þeir hugðust stöðva akstur starfsfólks á rútum frá
Vestljarðaleið. Ekkert varð þó úr því, þar sem bflstjórar voru eigandi,
eiginkona hans og dóttir þeirra, en ekki tengdasonurinn. Tímamynd: Pjetur