Tíminn - 10.02.1990, Side 11

Tíminn - 10.02.1990, Side 11
Laugardagur 10. febrúar 1990 HELGIN 19 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Didier Chapron misskildi klœðn- að Marcelle og taldi hana ver- gjama. Hún vísaði öllum á bug. allar konu. Hún hét Marie—Claire Leclerq. Auðvitað var hún ekki grun- uð sem ntorðinginn og ekki heldur bóndi hennar, bankastarfsmaður með hreint sakavotlorð. Hins vegar haföi Marie—Claire heitið Demarche fyrir giftingu og á listanum yfir þá 20 grunuðu var einmitt að finna Louis nokkurn Demarche, tvítugan að aldri. Þessi tilviljun fór ekki fram hjá rannsóknarlögreglumönnum og frek- ari könnun leiddi í Ijós að Louis var bróðir Marie—Claire. Hann hafði verið kœröur þrisvar fyrir árásir á konur á fimmtugsaldri. Hann var tal- inn truilaður á geðsmunum og í öll skiptin haföi hann fengið meðferð hjá sálfrœðingum en hún virtist engan ár- angur hafa borið. Hann haföi alltaf brolið af sér aftur innan mánaðar. Á grundvelli þessara upplýsinga var Louis Demarce nú efstur á listan- um. Hann var ofstopafullur, hneigðist ekki til afbrigðileika í kynferðismál- um og var í blóðflokki ÁB. Lögregl- an komst strax aö því að hann heim- sótti systur sína alloft, einkum til aö sníkja, því þau hjónin voru allvel stœö. Hins vegar var ekki hœgt að stað- festa að hann hefði komið í heimsókn morðkvöldið eöa að hann heföi nokk- urn tíma farið eftir skógarstígnum á ferðum sínum. — Hann er nákvœmlega það sem við leitum að, sagði Dantan. — Það vekur ýmsar grunsemdir. Venjulega ganga hlutirnir ekki svona veí fyrir sig. — Það breytir engu, sagði Agn- eau. — Við verðum að finna tengsl milli hans og moröstaöarins. Glœpa- ferili hans einn dugir ekki til hand- töku og því síöur sú staðreynd að systir mannsins býr í nágrenninu. Hvað um náungann sem býr við Rue Lainatrine? — Hann er möguleiki líka, svar- aði Dantan. — Hann er ekki innfœdd- ur heldur flutti hingað af Ermasunds- svœðinu fyrir þrernur árum þegar foreldrar hans fleygöu honum út fyrir að komast í kast viö lögregluna. — Var það kynferðisafbrot? vildi Agneau vita. — Hvað heitir náung- inn? 26 ára kvenhatari — Didier Chapron. Hann er 26 ára og var dœmdur einu sinni fyrir aö sýna lögreglunni mótþróa. Hann var að hrella konu þegar lögreglumann bar að. Hann sló lögreglumanninn niður og fékk þrjá mánuði fyrir vikið. Konan var lítt meidd. — Hvaö er lagt síðan þetta var? vildi Agneau vita. — Þaö var 7. mars 1981, þegar hann var 19 ára og hann hefur ekkert gert af sér síðan. Varla er hœgt að kalla hann ástríðuglœpamann. — Lœknirinn segir að morðinginn þurfi ekki að vera það, sagði Agneau. — Hann gœti bara verið óstöðugur andlega og þoldi ekki að sjá fákloedda konu á ferli um nótt. Athugum hann betur. Gleymdu samt ekki Demarche. Dantan hélt rannsóknum sínum áfram og náði árangri á báðum víg- stöðvum. Þótt hann gœti ekki sannað að Demarche heföi farið skógarstíg- inn morðkvöldiö þá fann hann vitni í Rue Lamartine sem hafði oft áður séð Demarche ganga eftir götunni og stefna að skógarstígnum. Þótt hœgt vceri að rekja feröir hans fyrr um kvöldið, fannst ekkert sem benti til ferða hans eftir klukkan tíu. Hvað Didier Chapron varðaði þá var hátterni hans tekiö að líkjast œ meira því sem lœknirinn taldi að moröinginn heföi til að bera. Hann var steinhöggvari að iön og vinnu- veitendur hans báru á hann iof fyrir lagni og dugnað. Félagslega var hann ekki jafnágœtur. Hann var kubbslegur og ófríður í andliti. Hann var vel þekktur á krám og knœpum sem hann stundaði töluvert. Auk þess var honum einkar upp- sigað við konur og hann lenti iðulega í átökum við fyldgdarmenn þeirra fyr- ir að slengja á þœr fúkyrðum á mesta sóöamáli. Fyrir vikið átti Chapron engar vinkonur og virtist aldrei hafa átt neina. — Eg finn ekkert sem bendir til þess að hann leiti til vcendiskvenna heldur, sagöi Dantan. — Maöurinn hlýtur að vera eins og eldfjall tilfinni- naglega. Eftir því sem ég veit um Itann núna þá get ég vel trúað að Itann fœri allur í kerfi við aö sjá konu á náttslopp á ferli um götu. Nágranninn vissi margt — Það er bara einn hœngur á því, sagöi Agneau. — Chapron hlýtur að hafa séð Marcelle á ferli ótal sinnum á þeim þremur árum sem hann hefur búið viö götuna. Á daginn kom að Chapron bjó ekki aðeins viö götuna, heldur í nœsta húsi við Marcelle. Hún bjó á jarðhœð í númer tvö en hann á jarðhœð í núm- er fjögur. — Það er snúið, viðurkenndi Dantan. — Hafi hann viljaö nauðga kon- unni, því gerði hann þaö ekki fyrr? Hún gekk syngjandi á náttkjólnum eftir götunni mörg hundruö sinnurn á þessum þremur árum. — Kannski hann hafi veri óvenju- drukkinn jjetta kvöld, stakk Agneu upp á en Dantan aftók það. — Hann heimsótti Hibou—hjónin fyrr um kvöldið og þá var hann allsgáður. — Kom hann þangað á undan Marcelle? vildi Agneu vita og lyftist allur í stólnum. — Á sama tíma, var svarið. — Hann kom á meðan hún var þar og fór tíu mínútum eða svo á eftir henni. — Þá goeti hann hafa gert þaö, staö- hcefði Agneu. — Verurn ekkert að hika , viðþetta. Láttu handtaka báða mennina og rannsaka fötin jaeirra. Við finnum kannski samstœöar trefjar. Ekki var Agneau svo heppinn. Eng- in flík sem Demarche eða Chapron áttu kom heiin við tretjarnar í fötum hinnar myrtu. Hins vegar bar aðgerðin árang- ur því báðir mennirnir uröu miður sín af skelfingu og játuöu á sig glœpinn. Það heföi getað valdiö vandrœðum en Dantan var ekki í vafa um hvor vœri rétti morðinginn. Hann byrjaöi á aö yf- irlieyra Louis Demarche og fljótlega kom í Ijós að hann vissi ekkert um morðið nema það sem stóö í blöðunum. Didier Chapron var öilu betur aö sér og vissi margt sem aðeins moröinginn og lögreglan gátu vitað. Auk [>ess reyndust hárin tvö af kynfœrum hans. Voru aðstœður mild- andi? — Hún var að gera mig villausan, sagöi hann þegar hann loks viöur- kenndi allt. — Hún brosti alltaf og hljóp urn svo fáklœdd að maður sá allt. Hún bauö upp á þetta og ég ákvað að þiggja boðið. Ég hefði ekki meitt hana ef hún liefði ekki neitað mér um allt og hlegið að mér. Bannsett konan. Hún hefur áreiðanlega sof'ið hjá hverjum manni í bœnum en þegar ég vildi svo- lítið líka þá var hún of góö fyrir mig. Svona athugasemdir gœtu stafað af von um aö fá mildari dóm vegna að- stœðna og jafnvel geðbilunar, en þegar Chapron var rannskaður kom í ljós að hann hafði ekki hugsaö um þaö. Hann fyrirleit bara kvenfólk almennt j»tt hann laðaðist að því kynferðislega. Þess vegna vissi hann nákvœmlega hvaö liann var að gera þegar hann réðst á Marcelle Camara, nauögaöi henni og myrti hana en verjandi hans benti á að hann hefði oröið fyrir ögrun, Marcelle alveg óafvitandi. Kviðdómur tók það til greina og 17. rnars 1989 var Didier Chapron doemdur í 20 ára fangelsi. Bestu bílakaupársins 1987- Tímaritið „FOUR WHEELER' Bestu bílakaup ársins 1988 - Tímaritið „FOUR WHEELER ‘ Beslu biiakaup ársins 1989 - Tímaritið „FOUR WHEELER' Hver býður betur? Veró frá kr. 1.648.000, Þaö er samdóma álit sérfræðinga JFOUR WHEELER", að hag- kvæmustu og bestu kaupin í fjórhjóladrifnum jeppum er í ISUZU TROOPER. SjS Þetta kemur ekki á óvart miðað við þá frá- bæru dóma, sem ISUZU TROOPER hefur hlotið hjá gagnrýnendum. Þegar þú hefur kynnt þér allan þann búnað, rými og þægindi í akstri, sem ISUZU TROOPER hefur uppá að bjóða fýrir þetta verð, er auðvelt að sannfærast um, að ISUZU TROOPER ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína. BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 ♦Stgr. veró án afh.kostnaðar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.